Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 4

Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 4
26. júlí 2012 FIMMTUDAGUR4 KOSNINGAR Hæstiréttur hefur hafnað þeim kærum sem bárust vegna nýafstaðinna for- setakosninga. Niðurstaða Hæstaréttar er sú að það hafi verið ótvíræður galli á kosningunum að ein- staka fötluðum kjósendum hafi verið leyft að kjósa með hjálp aðstoðarmanns að eigin vali, en sá galli hafi hins vegar engin áhrif haft á niðurstöður kosningarinnar. Kærurnar bárust annars vegar frá þremur fötluðum kjósendum, sem töldu að það bryti gegn ákvæðum um leynilegar kosningar að láta fulltrúa kjörstjórnar fylgja þeim inn í klefa sem ekki er fær um að kjósa einn og óstuddur, og hins vegar frá Ástþóri Magnús- syni, sem taldi á sér brotið þegar meðmælenda- listar hans voru úrskurðaðir ófullnægjandi. Um þá fyrrnefndu segir Hæstiréttur að reglan um leynilegar kosningar sé hugsuð til að vernda kjósendur frá mögulegum áhrifum annarra á það hvernig atkvæðum er varið, ekki síst frá þeim sem þekkja kjósandann. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður kærend- anna, sagði í samtali við Vísi í gær að þegar stjórnlagaþingskosningarnar voru ógiltar hefði ekkert verið fjallað um hvort meinbug- irnir á kosningunum hefðu haft áhrif á niður- stöðuna, ólíkt því sem nú er gert. Með þessu hafi æðsti dómstóll landsins gefið misvísandi skilaboð. - sh Hæstiréttur segir að reglan um leynilegar kosningar verndi kjósendur fyrir áhrifum vandamanna: Forsetakosningarnar standa óhaggaðar HÆSTIRÉTTUR Lögmaður kærenda segir æðsta dómstól landsins gefa misvísandi skilaboð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NORÐUR-KÓREA, AP Ríkisfjölmiðl- arnir í Norður-Kóreu höfðu ekki um það mörg orð, en komu þó til skila til almennings þeirri stað- reynd að nýr leiðtogi þeirra sé genginn í hjónaband. Íbúar landsins hafa velt mjög vöngum yfir konu nokkurri sem sést hefur í fylgd með Kim Jong Un við opinber tækifæri undan- farið. Á miðvikudagskvöld birtu fjöl- miðlar síðan myndir af parinu í skemmtigarði, þar sem Kim er sagður í fylgd „eiginkonu sinnar, félaga Ri Sol Ju“. Frekari upplýs- ingar fékk almenningur þó ekki að sinni. - gb Ríkisfjölmiðlar Norður-Kóreu: Leiðtoginn Kim sagður kvæntur KIM OG RI Leiðtoginn og kona hans. NORDICPHOTOS/AFP NÁTTÚRA Umhverfisstofnun hefur synjað umsókn Norðursiglingar um leyfi til að sigla með ferða- menn á Mývatni. Starfsemin er talin geta haft truflandi áhrif á fuglalíf á vatninu. Hún er sögð brjóta í bága við verndaráætlun fyrir svæðið. Í fréttaskeyti umhverfis- stofnunar segir að náttúran við Mývatn sé einstök á heimsvísu, en talið er að þar haldi sig fleiri andategundir en nokkurs staðar annars staðar á jörðinni. - ktg Umhverfisstofnun synjar: Fá ekki að sigla með ferðamenn ENGLAND Liam Corcoran, 11 ára breskur strákur, náði að lauma sér um borð í flugvél á flugvell- inum í Manchester og fljúga með henni til Rómar og það án vega- bréfs eða flugmiða. Liam hafði verið með móður sinni í innkaupaleiðangri í versl- unarmiðstöð í borginni. Hann stakk móður sína af, hélt upp á flugvöll og náði að fylgja fjöl- skyldu með stóran barnahóp í gegnum flugstöðina. Þannig komst hann í gegnum fimm örygg- ishlið og upp í flugvél, að því er fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins The Telegraph. Flugvallaryfirvöld rannsaka nú málið og hefur fjölda starfs- manna tímabundið verið vikið úr störfum vegna atviksins. - ktg Stalst með flugi til Rómar: 11 ára strákur laumufarþegi BANDARÍKIN Um 65% líkur eru á sigri Baracks Obama forseta í forsetakosningunum í Banda- ríkjunum, að því er kemur fram á vef tölfræði- sérfræðingsins Nates Silver. Þó munurinn á fylgi Obama og Mitts Romney, frambjóðanda repúblikana, sé aðeins rúm tvö prósent á lands- vísu ber nokk- uð þeirra á milli sé tekið tillit til fylgis í einstökum ríkjum. Silver segir að Obama fengi nú 294 kjörmenn gegn 244 hjá Romney, en 270 þarf til sigurs í kjörinu, og sé með forskot í flest- um lykilríkjum sem gætu riðið baggamuninn í kosningunum. - þj Úttekt tölfræðispekings: Obama talsvert sigurstranglegri BARACK OBAMA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 30° 28° 25° 29° 29° 23° 23° 25° 25° 29° 32° 33° 23° 30° 19° 22° 13 Á MORGUN 8-15 m/s við SA-strönd- ina, annars hægari. LAUGARDAGUR Hæg breytileg átt. 8 11 11 12 6 12 13 15 14 14 6 7 4 2 4 4 4 2 3 5 4 10 1313 15 16 16 14 17 15 15 LÉTTIR TIL! Þá er stuttum blautviðris- kafl a senn að ljúka og við tekur bjart og þurrt veður. Á morgun verður víða bjartviðri og hlýtt á sunnan og vestanverðu land- inu og laugardag eru horfur á bjart- viðri og allt að 18°C víða um land. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður GENGIÐ 25.07.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 211,6399 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,97 124,57 192,22 193,16 150,52 151,36 20,231 20,349 20,383 20,503 17,813 17,917 1,584 1,5932 185,93 187,03 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Voltaren Gel 100g 15% afsláttur SÝRLAND, AP Tyrkir hafa lokað landamærum Sýrlands, sem eru rúmlega 900 kílómetra löng. Flutningabifreiðar fá ekki að fara í gegn, en viðskipti um landamær- in hafa numið nærri þremur millj- örðum dala á ári, eða um 375 millj- örðum króna. Flóttafólki frá Sýrlandi verður þó áfram hleypt yfir landamærin til Tyrklands, en þar eru nú fyrir tugir þúsunda sýrlenskra flótta- manna. Einnig leyfa Tyrkir Sýr- lendingum að ná sér í nauðsynjar yfir landamærin. Að sögn frönsku fréttastofunn- ar AFP hafa 27 yfirmenn úr sýr- lenska hernum flúið yfir landa- mærin til Tyrklands, og bættust tveir í hópinn í gær. Tyrkir voru traustir bandamenn Sýrlands þangað til uppreisn- in gegn Bashar al-Assad forseta hófst snemma á síðasta ári. Tyrk- ir hafa frá byrjun harðlega gagn- rýnt harkaleg viðbrögð Assads forseta og stjórnar hans gagnvart uppreisnarmönnum og mótmæl- endum, sem kostað hafa nærri 20 þúsund manns lífið. Á síðustu vikum hafa uppreisn- armenn náð valdi á æ fleiri stöð- um við landamærin, þar sem þeir hafa komið sér upp bækistöðvum. Þessu hafa fylgt harðir bardagar uppreisnarmanna og Sýrlandshers við landamærin, en undanfarna daga hafa átökin færst meira yfir til Damaskus og Aleppo, tveggja stærstu borga Sýrlands. Sýrlandsher virðist hafa náð að miklu leyti að bæla niður uppreisn- ina í Damaskus og beinir nú meg- inafli sínu gegn uppreisnarmönn- um í Aleppo og hefur Sýrlandsher ítrekað gert loftárásir á borgina síðan á þriðjudag. „Fólk hefur áhyggjur af því að verða fyrir sprengjum og er að flýja borgina,“ segir Mohammed Saeed, einn uppreisnarmanna í viðtali við fréttastofuna AP. Í Damaskus ræddu hins vegar Babacar Gaye og Herve Ladsous, yfirmenn friðargæslustarfs Sam- einuðu þjóðanna, við blaðamenn og reyndu að halda í bjartsýni. „Ég tel að stjórnarerindrekar verði að vera bjartsýnir og það er ekkert grín,“ sagði Ladsous. „Við verðum að halda í vonina um að ferlið allt komist á skrið, að víta- hring ofbeldis linni og að einhverj- ar pólitískar lausnir finnist, eink- um þó að einhver pólitísk samræða geti hafist.“ gudsteinn@frettabladid.is Tyrkir loka landa- mærum Sýrlands Sýrlandsher beinir nú afli sínu einkum gegn uppreisnarmönnum í Aleppo, stærstu borg landsins, en virðist hafa náð að mestu valdi á höfuðborginni Damaskus. Nýr yfirmaður friðargæsluliðs SÞ reynir að vera bjartsýnn. SÝRLENSKIR UPPREISNARMENN Hópur uppreisnarmanna sestur að snæðingi eftir sólarlag í föstumánuðinum ramadan, sem er nýhafinn. NORDICPHOTOS/AFP yfirmenn úr sýr- lenska hernum hafa nú flúið yfir landamærin til Tyrklands. 27

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.