Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 38

Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 38
30 26. júlí 2012 FIMMTUDAGUR Francesca Lombardo er plötusnúður á uppleið og þeytir skífum á Faktorý annað kvöld fyrir íslenska dansunnendur. „Ég held að það verði frábær upp­ lifun að kynnast landinu og tón­ listarunnendum þess,“ segir hin ítalska Francesca Lombardo sem þeytir skífum annað kvöld á Fak­ torý. Kanilhópurinn skipuleggur komu hennar til landsins en hann hefur staðið fyrir danskvöldum með hústónlist undanfarið rúmt ár á Faktorý og flutt inn fjölda erlendra plötusnúða. Francesca sló nýverið í gegn eftir að hafa skrifað undir samn­ ing hjá plötufyrirtækinu Cross­ town Rebels, sem er eitt það umfangsmesta í danstónlist. Með samningnum er hún komin með sömu umboðsskrifstofu og nöfn á borð við Art Department, Jamie Jones og Maceo Plex. Fyrsta plata hennar á vegum fyrirtækisins kom út fyrir viku og nefnist Changes. Hún hefur fengið afar góð viðbrögð og situr í fjórða sæti á lista Beatport yfir hústón­ list, en síðan er stór í sölu dans­ tónlistar á Netinu. Breiðskífa með lagasmíðum hennar er væntanleg á næsta ári. „Ég er með mjög litríkan stíl,“ segir hún og nefnir að hún semji tónlist eftir líðan sinni og sæki innblástur til Depeche Mode, Aphex Twin og Plastikman meðal annarra. Francesca á að baki fjölbreytta reynslu í tónlist en hún hóf klass­ ískt píanónám og óperusöng ung að árum. „Þrátt fyrir þetta hef ég alltaf heillast af raftónlist og tækjum,“ segir hún og rifjar upp: „Ég fann mig í rauninni aldrei í klassískri tónlist.“ Hún mun spila tónsmíðar sínar í bland við aðra tóna hústónlistar annað kvöld og sjá Jón Eðvald, Steindór Jónsson, Kanilsnæld­ ur og Atli Kanill um upphitun. Aðgangur er ókeypis á kvöldið sem mun án efa enda í ógleyman­ legum dansi. „Ég hef verið plötusnúður í tíu ár og byrjaði á því mér til skemmt­ unar en nú hefur það orðið að aðal­ ástríðu minni,“ segir Francesca. hallfridur@frettabladid.is Þeytir skífum af ástríðu fyrir dansóðan landann Tónlist HHHHH Mannakorn Í blómabrekkunni Sena Hljómsveit sem eldist með reisn Hljómsveitin Mannakorn hefur veið starfandi síðan um miðjan áttunda áratuginn þegar fyrsta plata sveitarinnar, samnefnd henni, leit dagsins ljós. Í blómabrekkunni er níunda plata Mannakorna með nýju efni og sú fyrsta síðan hin ágæta Von kom út fyrir þremur árum. Sem fyrr eru það þeir fóstbræður Pálmi Gunnarsson (röddin) og Magnús Eiríksson (höfundurinn) sem fara fyrir sveitinni, en auk þeirra koma margir valinkunnir tónlistarmenn við sögu, þar á meðal Ellen Kristjánsdóttir sem syngur tvö lög, Stefán Már Magnússon og Eyþór Gunnarsson. Auk textanna hans Magga Eiríks er á plötunni nýtt lag við ljóðið Í kirkjugarði eftir Stein Steinar. Helstu einkenni Mannakorna eru góðar laga- og textasmíðar, vel útsettar og fluttar. Lögin á Í blómabrekkunni eru með þessum klassíska blæ sem Maggi er þekktur fyrir. Útsetningarnar minna líka um margt á fyrri afrek; það er smá kántrí hér og svolítill blús þar. Það er samt einn munur. Mannakorn í dag (hljómsveit að nálgast fertugt) er rólegri og þroskaðri heldur en Mannakorn á Brottför klukkan 8. Það heyrist bæði á tónlist og textum. Það eru engin Göngum yfir brúna eða Braggablús á nýju plötunni. Popparar vilja margir halda endalaust í æskuna (og eru svo sem ekki einir um það), en Mannakorn eldist með reisn. Í blómabrekkunni er fín Mannakornaplata. Lög og textar svíkja ekki, útsetn- ingarnar eru hágæða og tilgerðarlausar og Pálmi syngur jafn vel og áður. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Fleiri frábær lög og textar frá Magga Eiríks og Pálma Gunn. Á uppleið Francesca Lombardo þeytir skífum á Kanilkvöldi á Faktorý á morgun en hún sló nýverið í gegn í heimi danstónlistar. MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Miðasala: 412 7711  www.bioparadis.is / midi.is  Hluti af Europa Cinemas FIMMTUDAGUR: RED LIGHTS 17:40, 20:00, 22:20  BERNIE 17:50, 20:00, 22:10  UNG (GOODBYE FIRST LOVE) 20:00  SUMARTÍÐ (SUMMER HOURS) 17:50  COOL CUTS: LEGENDS OF VALHALLA- THOR 18:00  COOL CUTS: JAR CITY 20:00  TÓNLEIKAR: THE HEAVY EXPERIENCE 21:30 (FRÍTT INN)  BLACK’S GAME (ENGLISH SUBS) 22:00 SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! SAMI AFSLÁTTUR FYRIR ÖRYRKJA OG ELDRI BORGARA. TÓNLEIKAR KL. 21:30: THE HEAVY EXPERIENCE. FRÍTT INN!ROBERT DE NIRO | SIGOURNEY WEAVER RED LIGHTS HEIMSFRUMSÝNING! Frábær sálfræðitryllir í anda The Sixth Sense JACK BLACK SLÆR Í GEGN SEM BERNIE TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á 35.000 MAnns! sMÁRABÍÓ HÁsKÓLABÍÓ 5%nÁnAR Á MIÐI.IsGLeRAUGU seLd sÉR 5% BORGARBÍÓ nÁnAR Á MIÐI.Is ÍsöLd 3d KL. 5.50 L Ted KL. 8 - 10.10 12 spIdeRMAn 3d KL. 10.10 10 InTOUcHABLes KL. 5.50 - 8 12 HLUTI AF HVERJUM SELDUM BÍÓMIÐA ALLAN JÚLÍ - rennur til Barnaheilla - TV, KVIKMYndIR.Is - VJV, sVARTHöfÐI dARK KnIGHT RIses KL. 4.30 - 5.30 - 8 - 9 - 11.30 dARK KnIGHT RIses LÚXUs KL. 4.30 - 8 - 11.30 10 ÍsöLd 4 3d ÍsL.TAL KL.3.20 - 5.50 L ÍsöLd 4 2d ÍsL.TAL KL. 3.20 L Ted KL. 8 - 10.20 12 spIdeR-MAn 3d KL. 5 - 8 - 10.50 10 ÍsöLd 4 2d ÍsL.TAL KL.5.50 L Ted KL. 8 12 spIdeR-MAn 3d KL. 6 - 9 10 InTOUcHABLes KL. 5.30 - 6.30 - 8 - 9 - 10.30 12 WHAT TO eXpecT WHen eXpecTInG KL. 10.25 L EGILSHÖLL V I P 12 12 12 12 12 12 12 12 KRINGLUNNI L L L 12 12 12 16 16 16 L L L KEFLAVÍK 16 STÆRSTA MYND ÁRSINS  EMPIRE  KVIKMYNDIR.IS  HOLLYWOOD REPORTER  SÉÐ OG HEYRT SELFOSSI ÁLFABAKKA THE DARK KNIGHT RISES kl. 1 - 2 - 4:30 - 5:30 - 6 - 8 - 9 - 10 - 10:20 - 11:20 2D DARK KNIGHT RISES VIP kl. 1 - 4:30 - 8 - 11:20 2D MAGIC MIKE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D DREAMHOUSE kl. 8 2D MADAGASCAR 3 ísl. Tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 2D MADAGASCAR 3 ísl. Tali kl. 1:30 - 3:40 3D UNDRALAND IBBA ísl. Tali kl. 1:30 2D DARK KNIGHT RISES kl. 5:30 - 6 - 9 - 10 2D MAGIC MIKE kl. 8 - 10:20 2D MADAGASCAR 3 ísl. Tali kl. 5:50 3D AKUREYRI DARK KNIGHT RISES kl. 4:30 - 8 - 11:20 2D LOL kl. 6 2D DREAM HOUSE kl. 8 - 10:20 2D DARK KNIGHT RISES kl. 7 - 10:20 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10 2D THE DARK KNIGHT RISES kl. 8 - 11:15 2D DREAMHOUSE kl. 8 - 10:10 2D DARK KNIGHT RISES 1 - 2 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10:10 - 11:10 2D TED kl. 3:20 - 5:40 - 10:30 2D MAGIC MIKE kl. 8 2D ÍSÖLD 4 ísl. Tali kl. 2 - 4 3D MADAGASCAR 3 ísl. Tali kl. 1 - 3 2D THE DARK KNIGHT RISES 3.50, 7, 10.10(P) TED 5.50, 10.15 INTOUCHABLES - ISL TEXTI 4, 8, 10.20 ÍSÖLD 4: HEIMSÁLFUHOPP 3D 4 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar POWERSÝNING KL. 10.10 35.000 MANNS! www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar 5% Angelinu Jolie og Brad Pitt er ætlað að eyða ævinni saman ef marka má orð vinar þeirra, skart­ gripahönnuð­ arins Roberts Procop. Hann hannaði trú­ lofunarhring Jolie og hefur þekkt parið í nokkur ár. „Þau vissu frá upp­ hafi að þeim var ætlað að eyða ævinni saman. Þó sambandið hafi verið fullt af spennu til að byrja með þá hafa þau þroskast í traust par sem sinnir fjölskyldu sinni fyrst. Það er dásamlegt að sjá hversu ástfangin þau eru. Þau eru yndislegt fólk sem dregur fram það besta í hvort öðru og þegar maður er með þeim finnur maður fyrir þessari sterku ást,“ sagði Procop í viðtali við US Weekly. Afskaplega ástfangin ÁSTfaNgiN Angelina Jolie og Brad Pitt eru afskaplega ástfangin. nordicPHotoS/GEtty

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.