Fréttablaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 26.07.2012, Blaðsíða 20
26. júlí 2012 FIMMTUDAGUR Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. timamot@frettabladid.is „Ég tróð eiginlega fyrst upp þegar ég var skírð, sex mánaða gömul í Lang- holtskirkju. Það var við útvarpsmessu á annan í jólum hjá séra Árelíusi Níelssyni og ég orgaði víst allan tím- ann. Var bara að láta landsmenn vita að ég væri komin í heiminn!“ segir söngfuglinn Sigríður Beinteinsdóttir hlæjandi. Hún stendur á fimmtugu í dag og er með stórtónleika í Háskóla- bíói í tilefni 30 ára söngferils. „Árið 1982 var ég með Kikk að syngja úti um allt og inn á plötu. Ég var reynd- ar búin að vera í bílskúrsböndum og troða upp á vinnuskólahátíð í Kópa- voginum með hljómsveit sem hét því hræðilega nafni Geðfró. Þú getur spurt doktor Gunna hvernig það nafn hafi komið til, hann var í sveitinni. En þegar ég tala um þrjátíu ára söng- afmæli miða ég við 1982 því þá fóru hjólin að snúast.“ Sigríður fæddist í húsinu Lauga- brekku í litlu hverfi upp með Elliða- ánum, gegnt rafveitunni. Þar var hún til sex ára aldurs og á góðar minning- ar um leiki niðri við árnar með systk- inum sínum, heimsóknir til vinar síns sem vann á gröfu í sandgryfju skammt frá og salibunur með vörubíl- unum sem óku möl úr gryfjunni. Hún var að verða sex ára þegar hún flutti burt. „Það átti að gera svæðið við Elliðaárnar að útivistarsvæði og ég held að flestum íbúum þar hafi verið úthlutað lóðum í neðra Breiðholtinu. Því fluttum við þangað,“ segir hún. Sigríður segir mikið hafa verið sungið og spilað í stórafmælum i fjöl- skyldunni. „Bróðir pabba spilaði í hljómsveit sem hét Sóló og amma, nafna mín, og systir hennar spiluðu á píanó. Ég naut þess frá fyrstu tíð að hlusta á þetta fólk og á tónlist yfir- leitt,“ segir hún og kveðst sjálf hafa sungið frá því hún man eftir sér og kannski lengur. Fimmtugsafmælið er heppilegur tónleikadagur að mati Siggu sem hefur safnað liði í Háskólabíó í kvöld. „Ég er með átta manna hljómsveit og fullt af sólósöngvurum og bakraddasöngvur- um. Tónlistarfólk á Íslandi er svo gott fólk, sem vinnur vel saman og er allt- af tilbúið að gefa af sér,“ segir hún og nefnir sem dæmi Friðrik Ómar, Reg- ínu Ósk, Ernu Hrönn Ólafsdóttur og Pál Óskar. „Svo verður Björgvin Hall- dórs þarna með mér. Fyrsta hittar- ann söng ég með honum, Vertu ekki að plata mig og Grétar Örvars kemur að sjálfsögðu enda tengist hann og Stjórnin hápunktinum á mínum ferli, Eurovision í Zagreb 1990, þar sem við Grétar sungum Eitt lag enn.“ Nú er Sigga tiltölulega nýorðin for- eldri því hún á fimmtán mánaða tví- burasystkini með unnustu sinni, Birnu Maríu Björnsdóttur. Hvað finnst henni um það? „Það er bara yndis- legast í heimi. Auð vitað krefjandi og mikil vinna enda hefur svefninn verið upp og ofan síðasta eitt og hálfa árið en börnin bæta það svo sannarlega upp. Það er stærsta hlutverk lífs míns að fá að fylgja þeim eftir og hjálpa til að koma þeim til manns.“ gun@frettabladid.is SIGGA BEINTEINS: HELDUR UPP Á 30 ÁRA SÖNGFERIL Á FIMMTUGSAFMÆLINU Orgaði alla útvarpsmessuna SÍUNG SÖNGKONA „Ég var reyndar búin að vera í bílskúrsböndum og troða upp á vinnuskólahátíð í Kópavoginum með hljómsveit sem hét því hræðilega nafni Geðfró,“ segir Sigga Beinteins sem fagnar tveimur afmælum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SIGRÍÐUR ARNARDÓTTIR, dagskrárgerðarmaður og rithöfundur, á afmæli í dag. „Það er mikilvægt að ákveða að vera sigurvegari en ekki fórnarlamb.“47 Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra frænda og vinar, EYJÓLFS EYJÓLFSSONAR frá Botnum í Meðallandi, Sundlaugarvegi 24, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum 5. júlí síðastliðinn. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á hjúkrunarheimilinu fyrir einstaka og hlýja umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Birna Halldórsdóttir Elsku besti vinur minn, ástkær faðir, tengdafaðir, afi, langafi, langalangafi og bróðir, BRAGI VESTMAR BJÖRNSSON skipstjóri, frá Sjónarhóli, Hafnarfirði, til heimilis að Ásbúð 96, Garðabæ, lést á heimili sínu 23. júlí síðastliðinn. Bálför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 31. júlí kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Heimahlynningu LSH sími: 543-1159. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Luckas Guðbjörg Birna Bragadóttir Rolf Aage Larsen Harpa Bragadóttir Þóra Bragadóttir Hafsteinn Ólafsson Geir Bragason Erna Dóra Bragadóttir Arnfinn Johnsen Guðmundur Ýmir Bragason Guðrún Hallgrímsdóttir Karl Udo Luckas Rósa Linda Thorarensen Claudia M. Luckas Þórður Bachmann Frank D. Luckas Gígja Magnúsdóttir Við sendum innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs unnusta, sonar, bróður og tengdasonar, BALDURS ÞÓRS RÍKHARÐSSONAR. Sérstakar þakkir fá læknar og starfsfólk hjarta- og gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut. Ásta Sigurðardóttir Sigríður Tómasdóttir Guðjón Sverrisson Ríkharður Hólm Sigurðsson Harpa Eggertsdóttir Tómas Waagfjörð Anna Guðný Guðmundsdóttir Sigurður Ingvi Snorrason Hjartans þakkir fyrir samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ODDNÝJAR DANÍELSDÓTTUR frá Fossseli í Hrútafirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Eirar fyrir alúð og umhyggju. Daníel Bergur Gíslason Helga Björk Jónsdóttir Brynjólfur Gíslason Arndís Gísladóttir Ásgeir Sigurðsson Signý Gísladóttir Ingvar Ágúst Þórisson Kristín Gísladóttir Halldór Kvaran Ragnheiður Gísladóttir Haukur Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR (HÆDÝ) Köldukinn 16, Hafnarfirði, sem lést 23. júlí á Landspítalanum, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 30. júlí kl. 13.00. Jón Marteinsson María Hjartardóttir Ólöf Marteinsdóttir Vilhjálmur Ragnarsson Þorlákur Marteinsson Unnur Bjarnþórsdóttir barnabörn og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, SIGURLAUG AUÐUR EGGERTSDÓTTIR frá Vindheimum Skagafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð Kópavogi mánudaginn 23. júlí. Elín Jóhannesdóttir Eggert Bogason Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA MARÍA PÁLSDÓTTIR (STÚLLA) Lækjarhvammi 5, Búðardal, verður jarðsungin frá Hjarðarholtskirkju laugardaginn 28. júlí kl. 14.00. Hilmar Óskarsson Auður Ásdís Jónsdóttir Guðmundur Hreiðarsson Unnur Ásta Hilmarsdóttir Ásgeir Salberg Jónsson Anna Lísa Hilmarsdóttir Brynjar Bergsson Óskar Páll Hilmarsson Sunneva Ósk Ayari barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES HARALDUR PROPPÉ hjúkrunarheimilinu Mörk, áður Hæðargarði 33, Reykjavík, lést laugardaginn 21. júlí sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. júlí nk. og hefst athöfnin kl. 13.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Unnur Guðmundsdóttir Proppé Sævar Guðmundur Proppé Inga Jóna Sigurðardóttir Fríða Proppé Helgi Skúlason Ragna Björk Proppé Valur Friðriksson Auður Brynja Proppé-Bailey Jean-Pierre Pascal Bailey barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR G. SIGURÐARDÓTTUR. Sigrún Halla Karlsdóttir Kristján Sveinsson Sigurður Karlsson Ellen María Ólafsdóttir Magnús Þór Karlsson Margrét H. Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.