Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 6

Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 6
26. júlí 2012 FIMMTUDAGUR6 18,7 Kw/h VERSLUN Breska verslanakeðjan Iceland opnar verslun á Íslandi á laugardaginn. Það er Jóhann- es Jónsson, áður kenndur við Bónus, sem rekur verslunina hér á Íslandi. Verslunin verður opnuð í Engihjalla í Kópavogi þar sem verslun 10-11 var um hríð. Þegar Fréttablaðið hafði sam- band við Jóhannes í gær var hann í óða önn að raða í hillur og undir- búa opnun verslunarinnar. Spurð- ur hvernig undirbúningurinn gengi sagði hann allt ganga eins og í sögu. „Það stendur allt eins og stafur á bók.“ Iceland verslanirnar voru í eigu Baugs Group frá 2005 þar til Baug- ur varð gjaldþrota árið 2009. Mal- colm Walker, stofnandi Iceland, og Graham Kirkham eiga nú stærstan hluta í verslanakeðjunni. Iceland hefur í gegnum tíðina einbeitt sér að frosinni matvöru. Ásamt því að reka matvöruversl- un í Engihjalla ætlar Jóhannes að láta Iceland standa fyrir vefversl- un þannig að viðskiptavinir geti fengið vörur sendar heim. „Net- verslunin verður opnuð á sama tíma á laugardaginn á icelandnet. is,“ bendir Jóhannes á. - bþh Jóhannes Jónsson opnar útibú bresku verslanakeðjunnar Iceland í Kópavogi: Iceland opnað á laugardaginn JÓHANNES Í ICELAND Verslanakeðjan Iceland opnar hér útibú á laugardaginn. Jóhannes Jónsson, áður kenndur við Bónus, rekur verslunina og vann að því að gera allt tilbúið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNSÝSLA Sveitarstjóri í Súða- víkurhreppi hefur lagt til við Íslandspóst að sveitarfélagið taki yfir póstþjónustuna þar. Starfs- menn Landsbankans önnuðust póstþjónustu í bænum en þegar útibúi bankans var lokað í vor lagðist póstþjónustan niður. „Við misstum bæði bankann og pósthúsið skyndilega núna í vor,“ segir Ómar Már Jónsson, sveitar- stjóri. „Sveitarfélagið var mjög óánægt með þessa lokun.“ Ómar Már vonar að fyrirkomulagið verði að veruleika í haust. - bþh Súðavíkurhreppur: Hreppurinn annist póstinn SAMFÉLAGSMÁL Appelsínuguli dag- urinn er nú haldinn 25. dag hvers mánaðar til höfuðs ofbeldi gegn konum. UNiTE heitir herferð framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og UN Women. Þá er skorað á fólk hvarvetna í heimin- um að klæðast appelsínugulu. Góð þátttaka var í gær í átak- inu og sendu margir af sér mynd- ir á samfélagsmiðilinn Facebook og UN Women á Íslandi. Appelsínugulir dagar verða haldnir mánaðarlega fram að 57. þingi ráðs um stöðu kvenna í mars á næsta ári. - bþh Átak Sameinuðu þjóðanna: Appelsínuguli dagurinn í gær Í APPELSÍNUGULU Starfsfólk innan- ríkisráðuneytisins mætti auðvitað í lit dagsins til vinnu í gær. NÁTTÚRA Ástand gróðurs í Surtsey er víða mjög slæmt eftir þurrka sumarsins. Þetta á einkum við í hraunklöppum sunnan til á eynni. Þar er jarðvegur þunnur og höfðu plöntur visnað í klöppunum þegar líffræðingar Náttúrufræðistofn- unar Íslands fóru í sinn árlega rannsóknarleiðangur til Surts- eyjar fyrr í mánuðinum. Líffræðingarnir fundu tvær nýjar tegundir smádýra í könn- unarferðinni, maurkönguló og fiðrildið brandyglu. Engar nýjar plöntutegundir fundust þó, en plöntutegundum í Surtsey hefur fækkað frá því í fyrra. - ktg Niðurstöður leiðangurs: Gróðurinn illa farinn í Surtsey Ólympíuleikarnir verða settir í London á morgun og er gert ráð fyrir því að allt verði til reiðu eftir gríðar- lega kostnaðarsamar fram- kvæmdir sem hafa gjör- breytt ásjónu austurhluta borgarinnar sem var áður fátækasta hverfi hennar. Alls hefur um 1.800 millj- örðum króna verið varið í undirbúninginn. Stærsta verslunarmiðstöð Evrópu, Westfield-verslunarmiðstöðin, er nú risin í austurhluta London, en fátækt hefur hingað til einkennt það hverfi. Eftir leikana fara um 2.800 íbúðir sem nú hýsa keppend- ur á sölu, sumar verða niðurgreidd- ar en aðrar verða seldar á frjálsum markaði. Mikil athygli beinist einnig að keppnisleikvöngum og hvernig þeir verða notaðir að leikunum lokn- um. Er enda afar misjafnt hvernig ólympíuborgir hafa haldið á sínum málum og er óhætt að segja að spor- in hræði sé miðað við síðustu tvo leika, í Aþenu árið 2004 og Peking árið 2008. Grikkir lögðu mikið upp úr því að endurkoma leikanna til upp- runalandsins yrði sem glæsilegust. Mikið var í lagt, en kostaðurinn fór úr böndum og varð á endanum tífalt hærri en áætlað hafði verið. Til að bæta gráu ofan á svart stendur nú 21 af 22 byggingum sem byggðar voru fyrir leikana nær ónotuð í reiðileysi og sumar þeirra í niðurníðslu. Efnahagshörmung- ar Grikkja hafa einnig sett strik í reikninginn þar sem viðhald á bygg- ingunum útheimtir mikil útgjöld ef vel á að vera. Leikarnir voru þó ekki aðeins til bölvunar, heldur var mikið unnið í innviðum Aþenuborgar og samgöng- um komið í nútímahorf. Kínverjar létu síður en svo sitt eftir liggja og er talið að kostnaður- inn við leikana 2008 hafi numið allt að 5.000 milljörðum króna, í sam- anburði við þá 2.000 milljarða sem Grikkir vörðu í leikana 2004. Áhorfendur fengu enda magnað sjónarspil þar sem Ólympíuleik- vangurinn, „Fuglahreiðrið“ svo- kallaða, bar hæst. Nú fjórum árum seinna hafa byggingarnar í Peking aðeins verið notaðar að takmörkuðu leyti ef nokkuð. Róðraraðstaðan, strandblaksvöll- urinn og hjólreiðahöllin hafa ekkert verið notuð og Fuglahreiðrið hefur aðallega verið vinsæll viðkomu- staður ferðamanna auk þess sem þar hafa verið haldnir tónleikar (Jackie Chan söng þar fyrir gesti árið 2009). Þar var einnig starf- rækt vetrarland fyrir börn í tvö ár. Sögusagnir herma að þar muni jafnvel verða starfrækt verslunar- miðstöð í framtíðinni. Bretar telja sig hafa girt sig gegn því að slíkt komi upp enda eru fjög- ur knattspyrnulið í London að bít- ast um að fá ólympíuleikvanginn að leikum loknum og West Ham oft- ast verið nefnt sem líklegasti val- kosturinn. Þrátt fyrir þá bragarbót sem gerð hefur verið á hluta Stratford- hverfis í Lundúnum vegna Ólymp- íuleikanna er fátækt, atvinnuleysi og önnur samfélagsleg mein enn landlæg í næsta nágrenni. Því er mikil áhersla lögð á öfluga upp- byggingu atvinnulífsins til að koma í veg fyrir að hverfið koðni niður. Þessi álitamál fá þó að bíða um sinn þar sem leikar eru að hefj- ast, en verða eflaust í brennidepli næstu misserin. Draumaborgir eða draugahverfi Í NIÐURNÍÐSLU Aðkoman á ólympíusvæðinu í Aþenu er sorgleg átta árum eftir leikana. Aðstandendur leikanna í London leggja mikið upp úr því að uppbygging í austurborginni skili sér til framtíðar. NORDICPHOTOS/GETTY Í gegnum tíðina hefur borgum gengið misjafnlega að halda Ólympíuleikum réttu megin við strikið. Sumar nutu góðs af, en aðrar voru í áratugi að vinna upp tapið. ■ Milljarða dala tap varð af ÓL í Montreal árið 1976. Meðal annars fór bygging ólympíuleikvangsins langt fram úr kostnaðaráætlun. Síðasta afborgun af skuldunum var greidd árið 2005. ■ Leikarnir í Sydney árið 2000 sluppu nokkurn veginn á sléttu. Leikarnir í Seoul 1988 og Los Angeles fjórum árum fyrr komu út í gróða. ■ Eftir vetrarólympíuleika í Lake Placid í Bandaríkjunum árið 1980 var ólympíuþorpinu breytt í fangelsi. Tap og gróði ólympíuborga: FRÁ LUNDÚNUM Ólympíugarðurinn er að baki þessum byggingum sem AFP myndaði í gær. Leikarnir verða settir á morgun, föstudaginn 27. júlí. NORDICPHOTOS/AFP Eftirleikar Ólympíuleika Þorgils Jónsson thorgils@frettabladid.is Ert þú ánægð(ur) með að Jón Gnarr ætli á Gaypride í Færeyjum? Já 46% Nei 54% SPURNING DAGSINS Í DAG: Þekkir þú einhvern sem á rafknúið reiðhjól? Segðu skoðun þína á Visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.