Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 21

Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 21
Auður I. Ottesen ritstjóri segir að á hátíðinni verði boðið upp á sýn-ingu á ljósmyndum Páls Jökuls Péturssonar utanhúss. Myndirnar eru af plöntum sem flestar má sjá í garð- inum að heimili þeirra að Fossheiði en Auður, sem er garðyrkjufræðingur, hefur skipulagt garðinn og hannað. Að auki verður sýnt hvernig nota má lágvaxnar fjallaplöntur, steinbrjóta, hnoðra og hús- lauka í steinkerum og sem þekjuplöntur í beðum og í lóðrétta gróðurveggi. Auður og Páll bjuggu í Reykjavík en festu kaup á Fossheiði 1 í lok síðasta árs. „Við höfum verið að standsetja bæði húsið, sem er funkis-hús byggt árið 1967, og hanna garðinn. Hér erum við með heimili og vinnuaðstöðu. Í garð- inum höfum við sett niður gríðarlegan fjölda af plöntum sem Páll hefur mynd- að. Sú hugmynd kviknaði í framhaldinu að vera með sýningu á þeim myndum hér í garðinum,“ útskýrir Auður. „Húsið rammar vel inn myndirnar í garðinum og ég tel það afar sérstakt að setja upp sýningu á stórum ljósmyndum í einkagarði. Þetta verður samspil ljós- mynda og plantna,“ segir Auður enn fremur. Í garðinum er hún einnig með matjurtagarð. Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn kemur út fimm sinnum á ári en Auður segir að blaðinu hafi alltaf verið vel tek- ið. „Við höfum góða útbreiðslu og með afmælishátíðinni viljum við þakka fyrir okkur og bjóða öllum áskrifendum okkar til veislu. Auk þess eru allir velkomnir að koma og skoða.“ Auður og Páll eru ekki óvön því að halda sýningar. Þau sáu um stórsýn- inguna Sumarið í sjö ár. Sú sýning var fyrst í Mosfellsbæ, síðan í Laugardals- höll og loks í Fífunni. „Það komu yfir 20 þúsund manns á þær sýningar og yfir sextíu aðilar sýndu vörur sínar. Afmælis- sýningin okkar er lítil í samanburði við Sumarið en engu að síður er margt að sjá. Í tímaritinu er lögð áhersla á sumar- húsið, garðinn og útivist hvers konar. „Við viljum sýna fólki hvernig hægt er að njóta tilverunnar úti við,“ segir Auður. „Við erum þrautreynd og þrjósk að halda úti útgáfu sérhæfðs tímarit og höfum ótalmargt fram að færa,“ segir hún enn fremur en þau hjónin hafa sömuleiðis haldið fjölmörg vinsæl nám- skeið. Mörður Gunnarsson Ottesen hefur unnið sem fastur pistlahöfundur hjá tímaritinu en nýlega gerðist hann meðeigandi. Sýningin verður opin um helgina og um versluna rmanna helgina, 4. og 5. ágúst. Aðrir skoðunartímar eru sam- kvæmt samkomulagi. Opið er frá kl. 14 til 18 sýningardagana. EINSTÖK SÝNING TÍMARITIÐ SUMARHÚSIÐ OG GARÐURINN KYNNIR Einstök afmælishátíð verður í tilefni 20 ára afmælis blaðsins um næstu helgi og þarnæstu. Sýningin verður í garðinum að Fossheiði 1 á Selfossi. GLEÐI Á SELFOSSI Auður og Páll hlakka til að fá gesti í garðinn sinn. Hann verður með ljósmyndasýningu en hún hefur hannað garð- inn. Ljósmyndirnar eru stórar og fallegar. STÓR OG MIKIL HÁLSMEN Stór og fyrirferðarmikil hálsmen eru áberandi þessa dagana. Mörg eru gyllt og sum skreytt marglitum steinum. Þau eru sum hver borin yfir skyrtur og boli og lífga sannarlega upp á. SUMAR ÚTSALA Gerið gæða- og verðsamanburð SAGA/FREYJA OG ÞÓR Hágæða heilsudýnur Queen rúm nú aðeins kr. 179.900 20-50% AFSLÁTTUR Lök, sængurverasett, heilsukoddar, viðhaldskoddar, gaflar, náttborð, teppasett og fleira. ÚRVAL STILLANLEGRA HEILSURÚMA 12 mánaða vaxtalausar greiðslur* SAGA/FREYJA Queen rúm, nú aðeins 129.900 ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900 PROFLEX 2x80x200 339.900 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnum teg 11001 - nýr litur í frábæru sniði í C,D,E skálum á kr. 5.800,- buxur í stíl á kr. 1.995,- GLÆSILEGUR Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. 10-14 laugardaga Opið virka daga í sumar frá kl. 9 -18 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is Hlaupasokkar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.