Fréttablaðið - 26.07.2012, Page 17

Fréttablaðið - 26.07.2012, Page 17
FIMMTUDAGUR 26. júlí 2012 17 Meðan Anders Behring Brei-vik situr í klefa sínum og bíður dóms minnist Noregur fórnarlamba hans og lýsir full- um sigri á illu ætlunarverki hins forherta fanga: Það tókst ekki að brjóta niður Noreg. Útrýming- artilraun andspænis mannúðar- stefnu – ekki nýtt heldur marg- reynt á 20. öld. Sprengjumagnið slíkt að hlyti að tryggja helfregn stjórnarhátta, stjórnmálahreyf- ingar og ríkis í fyrri mynd. Ríki í taugaáfalli er veikt ríki. Hið önd- verða gerðist. Lýðræðið og rétt- arríkið standa sterkari en fyrr á endurnýjuðum grundvelli víð- tækrar samstöðu. Hvernig og hvers vegna tókst Noregi þetta? Hvers konar lýðræði? Fyrir réttu ári horfðum við íbúar heimsþorpsins á Jens Stol- tenberg forsætisráðherra Nor- egs og lásum í andlitsdrætti, fas og orð. Beðið var viðbragða norska ríkisins við fjöldamorði, hryðjuverki og pólitískri árás og einbeittur sagði hann svarið vera: „Enn meira lýðræði, enn meiri mannúð.“ Á öðrum degi bættist við „men aldri naivitet“ – aldrei grunnhyggni. Aldrei hafa jafn margir dáið í slíku til- ræði í hinum stóra heimi. Árás- in var gerð á það fólk sem stóð Jens sjálfum næst. Hafði hann ekki allar ástæður til að kalla reiðina sér til stuðnings og Nor- egi til varnar? Lýsa „stríði gegn hryðjuverkum“ eins og George Bush gerði 2001? Virkja reið- ina eins og Íslendingar gerðu 2008 og geta ekki hætt? Hvaðan komu Jens einmitt þessi orð sem reyndust sameinandi og töluð úr hjarta svo margra Norðmanna? Hvers konar lýðræði á hann við og hvernig hindrar það ofbeldi? Útrýmingarstefna heppnast í alræðisríkjum Fáir vita að hinn dapri dagur 22. júlí 2011 hófst í Útey með því að Eskil Pedersen, formaður ung- liðahreyfingarinnar AUF, afhjúp- aði minnismerki um unga norska jafnaðarmenn sem fórnuðu lífi sínu á Spáni í baráttu gegn fas- ismanumm því það voru liðin 75 ár frá lokum spænsku borgar- styrjaldarinnar. „Við verðum að þekkja söguna til að skilja samtíðina og geta mótað fram- tíðina,“ sagði Eskil alls óafvit- andi um að innan örfárra stunda yrði Útey að varanlegu tákni og hann sjálfur að heimsþekktum talsmanni. Lenín og Stalín lýstu báðir sósíaldemókrata réttdræpa stéttaróvini í ritverkum sínum (eins og lesa má um í merkum bókum Arnórs Hannibalssonar sem margir vildu niður þagga) – og heimshreyfing kommúnista boðaði og framfylgdi útrýming- arstefnu. Nasistar skilgreindu sósíaldemókrata sem réttdræpa höfuðóvini og framfylgdu því skipulega. Verknaðurinn á Útey var afrit eldri fyrirmynda, í alræði „riddara Anders Breivik“ er útrýming fjölmenningar sett í stað kynþáttar. Gerhardsen, Bratteli og skilgrein- ing jafnaðarmanns Einar Gerhardsen, leiðtogi norskra jafnaðarmanna, fór nán- ast beint úr fangabúðum nasista í Sachsenhausen í Þýskalandi í embætti forsætisráðherra Nor- egs í stríðslok. Eftirmaður hans á formannsstóli, Trygve Bratteli, var fangi í Dachau. Norrænir jafnaðarmenn lærðu fyrir löngu, hertir í eldi sögunnar og öfganna, að slaka ekki á í grunnhyggni eða villast á lýðhyggju og lýðræði. Það er skilgreining á jafnaðar- manni (ekki síst norrænum) að hafna blóðugu heimsbyltingunni og alræði hvort sem er yfirburða- kynstofns eða öreiga. Hafna hvers konar pólitísku ofbeldi en vinna að umbótum innan ramma stjórnarskrárbundins lýðræð- is sem einn stjórnmálaflokkur af mörgum. Og þess vegna vissi Jens Stoltenberg af uppsafnaðri reynslu kynslóðanna að útrým- ingarstefnu tekst ætlunarverk sitt í alræðisríkjum og samfélög- um sem samþykkja eða umbera meðulin ofbeldi, hatur og ger- ræði. Slík meðul verði skilyrðis- laust að útiloka hversu fagurlega sem framtíðarríkinu – þeim til- gangi sem helgar illa meðalið – yrði hægt að lýsa. Hefði forsætis- ráðherra Noregs ekkert kunnað að hugsa nema „hvað fólkið vildi“ hefði landið eignast vindhana en misst áttavita. Samfélagssýn norskra jafnaðar- manna Við eigum því miður ekki orð á íslensku um það sem Norðmenn kalla nasjonsbygging og vísar til stærsta verkefnis allra jafnt – samfelldrar uppbyggingar ríkis, samfélagsstofnana og sjálfs- myndar. Sjálfstæðisbarátta Norð- manna eins og Íslendinga var samofin sókn frjálslyndisstefn- unnar á 19. öld með frelsisrétt- indum og stjórnarskrám. Eids- voll-stjórnarskráin norska frá 1814 gildir enn með breytingum og velferðarríkið sem Verka- mannaflokkurinn skapaði bætt- ist þar við og lifir með stjórnar- skránni sem frjálslyndisarfleifð jafnaðarmanna með sama hætti og gerðist í öðrum ríkjum Norð- urlanda á 20. öld. Samkvæmt texta norsku stjórnarskrárinnar skulu allar breytingar samræm- ast anda hennar. Noregur, Sví- þjóð og Finnland urðu fyrir 20 árum fyrir mestu bankakreppu sem þá hafði dunið yfir þróuð ríki frá lokum síðari heimsstyrjaldar og tóku á því verkefni með sama hætti og öðrum. Sterkt ríkisvald er umboðshafi almannahags- muna og ásamt sterkri verkalýðs- hreyfingu mótvægi gegn stór- eignasamsteypum innan agaðs ramma um samvinnu. Hatursstefna ekki stjórnmál heldur afbrot Höfuðeinkenni velferðarstefnu norrænna krataflokka er að tryggja grundvöll hennar með öflugu atvinnulífi og traustum ríkisfjármálum. Hugsjónin er að við mótun samfélagsstofn- ana skipti þátttaka og framlag hvers og eins máli, það sé heið- ur og skylda að taka virkan þátt í stjórn sveitarfélaga, félagasam- taka og í stjórnmálaflokkum – sem séu lykilstofnanir lýðræðis- ins. Í þessu felst hugmyndin um lýðræði sem menningu sem sé í raun búin til á hverjum degi í samskiptum og framgöngu allra einstaklinga, hópa og stofnana. Þar eru allir með og eiga aðild óháð kynþætti, litarhætti, fötl- un, kyni, eignastöðu eða öðru, svo fremi þeir virði grunnregl- ur lýðræðisins og samneytis við nágranna. Þannig er hið pólitíska svið samfélagsins markað: Með opnum aðgangi fyrir alla en þeir sem ekki virða forsendur þátt- tökunnar heldur kjósa ofbeldi stíga um leið út af pólitísku sviði inn á persónulegt svið afbrota- ábyrgðar. Hatursstefna telst ekki stjórnmál. Þannig er það líka í þýsku stjórnarskránni sem bannar starfsemi öfgahópa sem virði ekki stjórnskipanina. Í nor- rænum ríkjum er bylting óhugs- andi nema til að afnema hina nor- rænu skipan. Vafalaust ganga þó einhverjir aðrir en Anders Brei- vik með slíka von í brjósti. Ný öld öfganna? Við lifum örlagaríka tíma þar sem allt getur gerst. Ríkisstjór- nir falla hver af annarri eins og dómínó í Evrópu. Við síðustu talningu lágu fleiri stjórnir jafn- aðarmanna í valnum en hægri manna því það hefur ekki gerst, sem margir héldu, að jafnaðar- menn næðu pólitískri yfirhönd. Yfirgnæfandi verkefni allra rík- isstjórna er að tryggja efnahags- legt og pólitískt öryggi. Við á Íslandi ættum að gæta að okkur og endurhugsa hvert við viljum fara. Beint lýðræði eða norrænt? Hvers konar lýðræðishefð er nú í sköpun af völdum hrunsins á Íslandi? Mest er talað bæði frá hægri og vinstri um beint lýð- ræði. Óteljandi margir kveðast sjálfir tilkallaðir að tala fyrir þjóðarviljann og grípa til aðgerða fyrir hann, án þess að hafa verið útnefndir til þess samkvæmt ljósu umboði. Sumar viðvar- andi birtingarmyndir þessa eru í senn hatursfullar og ofbeldis- fullar. Og gjörólíkir hlutir eru lagðir að jöfnu: Almennar kosn- ingar, Facebook-yfirlýsingar, eggjakast og grjótkast á Alþing- ishúsið, málningarhellingar yfir heimili og friðsamar með- eða mótmælastöður eru ekki jafn- gildar aðgerðir í stjórnarskrár- bundnu lýðræðisríki. Mun sú lýð- ræðishefð festast í sessi á Íslandi að gera ekki mun á ofbeldi og kappræðu eða á sjálftöku valds og umboði? Lýðhyggja líka nefnd pópúlismi Slík lýðræðishefð er í eðli sínu lýðhyggja og sögulega eiga fæst- ir stjórnmálaflokkar nokkra samleið með henni nema öfga- og hatursflokkar. Augljóst er að þessi lýðræðishefð yrði engin vörn ef á reynir á Íslandi. Innan hennar gæti einstaklingur fram- ið hatursfulla ofbeldisárás í yfir- lýstu umboði meints þjóðarvilja og réði þá bara stigsmunur en ekki eðlismunur því hvort hún teldist fordæmanleg sem brot gegn lýðræðisreglum landsins. Hver ætlar að standa upp og segja stopp? Til Hreyfingarinn- ar sækir ríkisstjórnin úrslita- stuðning og felur það ekki þótt þingmenn þess flokks hafi varið fyrir augum alþjóðar í sjónvarpi hrottalega lífshættulega líkams- árás sem varðaði hámarksrefs- ingu fyrir dómstólum. Þar skilja leiðir með Stoltenberg því hann talar fyrir lýðræði sem umber aldrei og með engum hætti ofbeldisfullar aðgerðir. Greinin „22. júlí kynslóðin í stjórnmálum“ eftir Kristrúnu birtist í blaðinu á morgun. Mun sú lýðræðishefð festast í sessi á Ís- landi að gera ekki mun á ofbeldi og kapp- ræðu eða á sjálftöku valds og umboði? Slík lýðræðishefð er í eðli sínu lýðhyggja og sögulega eiga fæstir stjórnmálaflokkar nokkra samleið með henni nema öfga- og hatursflokkar. Lexían frá Útey Stjórnmál Kristrún Heimisdóttir lektor í lögfræði AF NETINU Hæstiréttur í mótsögn við sjálfan sig? Ég taldi fráleitt að ógilda for- setakosningarnar vegna kæru Öryrkjabandalagsins. Þessa ágalla á kosningum má auðveldlega laga, ef vilji stendur til. Það er reyndar ekki víst að öryrki sem ekki getur kosið hjálparlaust geri svo leyni- legar með vin sinn, fjölskyldumeð- lim eða aðstoðarmann en með liðsinni starfsmanns kjörstjórnar. Hins vegar voru vissar líkur á að Hæstiréttur myndi ógilda kosningarnar eftir að hafa tínt til ýmsa smálega annmarka þegar stjórnlagaþingskosningarnar voru ógiltar. En Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til að ógilda forsetakosningarnar. Eins og Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Öryrkjabandalagsins, bendir á kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu að ágallarnir hafi ekki haft efnisleg áhrif á niðurstöður forsetakosninganna. En hvað þá með stjórnlagaþings- kosningarnar? Eða eins og Ragnar segir: „Í ákvörðuninni þar sem kosningar til stjórnlagaþings voru ógiltar var ekkert minnst á þessa grein.” eyjan.pressan.is/silfuregils Egill Helgason Stefna ríkisstjórnarinnar: Ekkert meira verði gert fyrir skuldug heimili Allt síðasta vor sagðist ríkisstjórnin vera að vinna að margháttuðum lagfæringum í þágu heimilanna, ýmist með fjármálastofnunum, Íbúðalánasjóði eða lífeyrissjóðun- um. Svo gerðist bara ekkert. Það segir svo sína sögu að ríkisstjórnin í sinni eymd, kenndi öllum öðrum um nema sjálfri sér. Þetta háttalag segir okkur bara eitt, sem þó er þýðingarmikið að við áttum okkur á: Ríkisstjórnin mun ekkert frekar aðhafast í þess- um málum. Og þó. Það er ekki hægt að útiloka að í örvæntingu sinni nú í haust, verði lagt af stað í einhverja sýndarvegferð. Ekki af skilningi í garð heimilanna. Heldur vegna þess að ríkisstjórnarflokk- arnir óttast kjósendur og munu af þeim ástæðum setja af stað eitthvert sjónarspil. Verkleysi ríkisstjórnarinnar í þessum málum á svo sem ekki að koma á óvart. Að minnsta kosti tvö ár eru liðin síðan að forsætis- ráðherrann sagði nóg að gert fyrir heimilin. Það þyrfti ekkert frekar að gera. Hörð viðbrögð stjórnar- andstöðunnar á þingi og almenn- ings í þjóðfélaginu, urðu síðan til þess að brugðist var við. En allt reyndist það meira og minna í skötulíki. ekg.blog.is Einar K. Guðfi nnsson Opnunartími: Mán-Fös. kl: 10-18 Laug.- Sun. kl: 12-16 Fossháls 5-7 l 110 Reykjavík Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is Oakland XL Fjölskyldutjöldin færðu hjá okkur og allan útilegubúnað nú með 25% afslætti Gerðu betri kaup á ferðavörum með 25% afslætti Borðbúnaður Borð Kælibox Skápar Stólar Svefnpokar afsláttur %25 afsláttur %25 afsláttur %25 afsláttur %25 afsláttur %25 afsláttu r %25 Fo rtj öl d M ar kh ís ur Keyrari fyrir hjólhýsi. Hýsið fært til m/ fjarstýringu á auðveldan hátt.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.