Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 30

Fréttablaðið - 26.07.2012, Side 30
26. júlí 2012 FIMMTUDAGUR22 BAKÞANKAR Friðriku Benónýs 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. land, 6. rún, 8. þvottur, 9. kirna, 11. tveir eins, 12. óróleg, 14. rófa, 16. pot, 17. af, 18. óðagot, 20. persónufor- nafn, 21. traðkaði. LÓÐRÉTT 1. lummó, 3. stefna, 4. trjátegund, 5. drulla, 7. starfræksla, 10. ar, 13. skarð, 15. rótartauga, 16. einatt, 19. eldsneyti. LAUSN LÁRÉTT: 2. kúba, 6. úr, 8. tau, 9. ker, 11. rr, 12. ókyrr, 14. skott, 16. ot, 17. frá, 18. fum, 20. ég, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. púkó, 3. út, 4. barrtré, 5. aur, 7. rekstur, 10. ryk, 13. rof, 15. tága, 16. oft, 19. mó. Vel gert Þór-Pedro! En hefurðu séð Prison Break í sjónvarpinu? Þá skaltu vita þetta! Það verður erfiðara að fá MIG burt úr markinu! Ég hef staðið í markinu fyrir þetta lið síðan Mjólkurtönn hvarf á meðan á Dana-bikarnum stóð árið 84. En alveg rólegur, Þór-Pedro. Þú færð kannski að hlaupa í skarðið þegar líður á timabilið. Nú, já! Þú stendur í markinu á laugardag, Þór-Pedro! Já... kannski bara strax á laugardag? Bull! Þeir eru að hvíla mig fram að stórleiknum gegn Dynamo Blöðru- hálskirtli í næstu viku. Snilld! Ekki satt? Hættu að segja að ég hafi týnt kreditkortinu þínu! Ég „týndi“ því ekki, ókei? Það datt einfaldlega úr vasanum mínum á meðan ég var í gamnislag við Hektor á bílastæðinu og var ekki þar þegar ég ætlaði að sækja það. Mér skjátlast sem sagt. „Týnt“ hljómar eins og þetta sé mér að kenna! Ohh! hvers vegna fær þetta lið í sjöunda himni alltaf að skemmta sér svona vel? Bíííb! bíííb! Nei, hæ elskan! Mér sýndist þetta vera þú! Nú er nóg komið. Ég ætla í megrun. Vegna þess að einhver segir hæ við þig? Vegna þess að einhver þekkti mig aftan frá í kílómetra fjarlægð. Karlmaður ræðst á sambýliskonu sína í bíl fyrir framan barn þeirra. Konan kemst undan og kallar til lögreglu. Maður- inn er handtekinn og fluttur á brott en ef að líkum lætur er honum sleppt að loknum yfirheyrslum, getur farið heim og haldið áfram að misþyrma konunni. Þetta er nú einu sinni hans kona og af fréttaflutningi af barsmíðunum að dæma var það eina sem litið var mjög alvarlegum augum í mál- inu það að barnið skyldi verða áhorfandi að ofbeldinu. Enda aldagömul hefð fyrir því að karlar berji sínar eigin konur og hefur til skamms tíma ekki þótt neitt tiltökumál. SEM betur fer er það viðhorf að breyt- ast og á yfirborðinu að minnsta kosti er farið að líta á heimilisofbeldi sem þjóð- félagsmein. Alltof oft heyrist þó sú skoðun að konur geti nú bara sjálfum sér um kennt. Hvað eru þær að vilja í sambúð með manni sem ber þær? Þær hljóta bara að vilja láta berja sig, ann- ars væru þær löngu farnar. Sá flókni valdastrúktúr sem skapast í ofbeldis- samböndum er gjörsamlega virtur að vettugi og stórum hluta ábyrgðar- innar varpað á herðar kvennanna sem fyrir ofbeldinu verða. Samfé- lagið yppir öxlum og snýr sér að því að óskapast yfir „einhverju sem máli skiptir“ eins og ummælum knattspyrnumanna um íþróttafrétta- menn eða nýjustu afrekum Russells okkar. Samskipti hjóna eru nú einu sinni þeirra einkamál, ekki satt? MÉR er minnisstætt atvik sem gerðist á skemmtistað hér í borg fyrir allmörgum árum. Ég var þar í góðra vini hópi ásamt sambýlismanni mínum og allir í góðu stuði. Eitthvað sem ég sagði eða gerði fór þó í taugarnar á sambýlismanninum, sem veitt- ist að mér með hnefann á lofti og hellti yfir mig svívirðingum. Dyraverðir brugðust skjótt við og stukku á manninn í þeim til- gangi að varpa honum á dyr. Hann brást hinn versti við og benti þeim vinsamlegast á að vera ekki að skipta sér af því sem þeim kæmi ekki við, þessi kona væri konan hans og þetta „samtal“ einkamál. Þeir lyppuðust niður á stundinni. „Ó, fyrirgefðu, er þetta konan þín?“ sögðu þeir í kór og hröðuðu sér í burtu. Alveg með það á hreinu að þetta væri ekki þeirra mál. ÖLLUM þessum árum seinna sit ég hér í appelsínugulri blússu og skrifa þennan pistil á appelsínugula deginum „sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um kyn- bundið ofbeldi“ eins og það er orðað. Von- andi skilar það okkur eitthvað áleiðis en til þess að einhver breyting verði þurfa allir dagar að vera appelsínugulir og ofbeldi allt- af ofbeldi, jafnvel þótt það sé „bara konan hans“ sem fyrir því verður. „Ó, er þetta konan þín?“ Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Suðurnesja hefur samþykkt að auglýsa tillögu að Svæðisskipulagi Suður- nesja 2008-2024 ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er aðgengileg á heimasíðu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (www.sss.is) og allra sveitarfélaganna sem eiga aðild að nefndinni. Á heimasíðunni verður jafnframt hægt að nálgast viðbrögð við athugasemdum og ábendingum sem bárust við drög að svæðisskipulaginu. Tillagan mun auk þess liggja frammi á bæjarskrifstofum allra sveitarfélaganna og hjá Skipulagsstofnun. Svæðisskipulagið mótar stefnu og leikreglur skipulags- yfirvalda fyrir þau málefni sem eru mikilvæg á svæðisvísu og snerta hagsmuni fleiri en eins aðila í samvinnu- nefndinni. Samvinnunefndin hefur skilgreint megin áherslur skipulagsvinnu og út frá þeim þau viðfangsefni sem skipulagsáætlunin skal vinna að. Viðfangsefni skipulagsins eru: - Atvinna - Auðlindir - Veitur og samgöngur - Flugvallarsvæðið - Samfélag Ábendingar og athugasemdir við tillöguna skal senda til samvinnunefndarinnar á netfangið oto@sandgerði.is. Einnig er hægt að senda athugasemdir merktar Svæðis- skipulag Suðurnesja á póstfangið, Bæjarskrifstofur Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði. Frestur til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar við tillögu að svæðisskipulaginu er til og með 13. september 2012. Samvinnunefndin vonast til þess að sem flestir kynni sér þá stefnumörkun sem unnið hefur verið að fyrir Suðurnesin og þær áherslur og aðgerðir sem talið er nauðsynlegt er að ráðast í á næstu árum til að ná settum markmiðum. Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja AUGLÝSING Á TILLÖGU AÐ SVÆÐISSKIPULAGI SUÐURNESJA 2008-2024 www.saft.is RÆDDU UM ÞÁ ÁHÆTTU SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.