Fréttablaðið - 26.07.2012, Síða 33
FIMMTUDAGUR 26. júlí 2012 25
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 26. júlí 2012
➜ Tónleikar
12.00 Friðrik Vignir Stefánsson,
organisti Seltjarnarneskirkju, leikur á
hádegistónleikum í Hallgrímskirkju.
Miðaverð er kr. 1.500 en frítt fyrir félaga
í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.
16.30 II (Uni og Jón Tryggvi) leika
fyrir gesti á næstu tónleikum í Pikknikk
tónleikaröð Norræna hússins. Frítt er á
tónleikana sem haldnir eru í gróðurhúsi
Norræna hússins.
20.30 Píanóleikarinn Ingi Bjarni
Skúlason heldur tónleika í Þjóðmenn-
ingarhúsinu. Verða þetta eins konar
kveðjutónleikar þar sem hann flyst til
Hollands næsta haust til að stunda
framhaldsnám í jazzpíanóleik. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.000.
21.00 Tónleikamaraþoni Jónasar Sig-
urðssonar lýkur í kvöld með uppákomu
í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgar-
firði Eystri.
➜ Uppákomur
20.00 Álfheiður Ingadóttir formaður
Þingvallanefndar mun ræða um störf
og stefnu Þingvallanefndar í síðustu
fimmtudagskvöldgöngu sumarsins.
Gönguferðin hefst á Valhallarreitnum og
eru allir velkomnir.
➜ Tónlist
12.00 Dúettinn Guðmundsdætur
halda lokatónleika í Dómkirkjunni. Það
eru þær Chrissie Telma Guðmunds-
dóttir fiðluleikari og Hrafnhildur Marta
Guðmundsdóttir sellóleikari sem skipa
dúettinn. Aðgangur er ókeypis.
20.00 Hljómsveitin My Sweet Baklava
treður upp á Reykjavík Backpackers,
Laugavegi 28. Aðgangur er ókeypis en
tekið verður við frjálsum framlögum í
útgáfusjóð sveitarinnar.
21.00 Söngkonan Sigríður Thorlacíus
kemur fram á Heitum fimmtudögum á
Græna Hattinum á Akureyri. Með henni
verður Guðmundur Óskar Guðmunds-
son gítar- og bassaleikari og samstarfs-
maður hennar úr Hjaltalín. Miðaverð er
kr. 1.500.
21.30 Hljómsveitin 1860 verður með
tónleika á Café Rosenberg. Kynnt verður
nýtt efni af væntanlegri breiðskífu þeirra
í bland við eldri lög. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
22.00 Hljómsveitin Kiriyama Family
kemur fram á Mærudögum á Húsavík,
en tónleikarnir verða haldnir á Gamla
Bauk.
22.00 Agent Fresco, RetRoBot og
svissneska hljómsveitin Kapnorth
spila á tónleikum á skemmtistaðnum
Faktorý. Eru tónleikarnir liður í tveggja
ára afmælisfögnuði staðarins og er
aðgangur ókeypis.
22.00 Bítladrengirnir blíðu halda tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Tólf tónlistarmenn koma fram á hinni árlegu
Reykholtshátíð sem hefst á morgun og stend-
ur fram á sunnudag. Þetta er í sautjánda sinn
sem hátíðin er haldin en hún fer jafnan fram
síðustu helgina í júlí ár hvert.
Einvalalið innlendra og erlendra tónlistar-
manna leiðir saman hesta sína á hátíðinni í
ár, þar sem finnskir listamenn í fremstu röð
verða meðal gesta. Sirkka Lampimäki, sem
þykir ein fjölhæfasta söngkona Finnlands
nú um mundir, flytur fjölbreytta efnisskrá
með sönglögum við undirleik Eliisu Suni.
Réka Szilvay, einn fremsti fiðluleikari Finna,
heldur tónleika ásamt píanóleikaranum Heini
Kärkkäinen en þær munu meðal annars flytja
eitt þekktasta verk tónbókmenntanna, Kreut-
zer-fiðlusónötuna eftir Beethoven. Þá verður
Joseph Ognibene hornleikari meðal gesta og
Vovka Ashkenazy flytur Brahms-píanókvin-
tettinn.
Af íslenskum flytjendum má nefna Þóru
Einarsdóttur sem heldur tónleika ásamt Stein-
unni Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara og
strengjum Reykholtshátíðar, þar sem meðal
annars verða fluttar nýjar útsetningar á
íslenskum einsöngslögum. Auk þeirra koma
fram strengjaleikararnir Auður Hafsteins-
dóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Þórunn
Ósk Marínósdóttir og Helga Þóra Björgvins-
dóttir. Á dagskrá hátíðarinnar eru meðal
annars verk eftir Sibelius, Kuula, Brahms,
Beethoven, Ysaÿe, Jón Nordal, Bartók, íslensk
sönglög og fleiri. Nánari upplýsingar um
hátíðina má finna á reykholtshatid.is.
Reykholtshátíð í sautjánda sinn
REYKHOLT Finnskir tónlistarmenn í fremstu röð verða
meðal gesta á sautjándu Reykholtshátíðinni nú um
helgina.
Opið laugard. kl. 10-14