Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2012, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 26.07.2012, Qupperneq 42
26. júlí 2012 FIMMTUDAGUR34 golfogveidi@frettabladid.is alla mína reynslu og kunnáttu við að þreyta fiskinn, þó vissulega hafi Hilmar átt stóran þátt í því eftir hafa hlaupið 800 metra með fiskinum niður flúðir.“ Laxinn var samt ekki alveg á því að gefast strax upp. „Enn á ný rauk hann aðeins af stað en þó sem betur fer ekki langt. Ég sá aftur á móti að ég var nánast með alla línuna úti og þegar ég er að rembast við að draga inn þá heyri ég skyndilega smell. Hilmar spyr hvað hafi gerst. Ég lít í kringum mig og sé bara lausa línu hanga fram af stöng- inni en aðra línu úti í á. Hnútur- inn við undirlínuna hafði gefið sig. Hilmar sá þetta fljótt og kast- aði sér beinlínis út á eftir línunni út í á þar sem hann nær tökum á henni. Þarna togaðist hann á við stórlax með berum höndum en gaf mér og syni mínum þó nægan slaka til að geta hnýtt lín- una á nýjan leik við undirlínuna. Það tókst sem betur fer og eftir nokkrar mínútur í viðbót lönduð- um við loks þessum stórkostlega laxi. Eins og ég sagði þá er þessi saga ekkert sérstök,“ segir Ant- hony, kíminn á svip. Hlógu saman í korter Anthony og Piers segjast hafa hlegið saman í svona korter eftir að þetta allt gerðist. Þeir feðgar tóku heilan helling af myndum þennan dag, en eitthvað var fókusinn að stríða þeim því myndirnar voru allar úr fókus. Eitt er þó víst að þessi dagur verður skýr í huga þeirra um aldur og ævi. „Þetta var stórkostlegur dagur,“ segir Piers. „Þegar sá gamli kveð- ur mig og heldur til veiða á himnum þá mun ég alltaf eiga þennan dag í minningunni.“ Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að báðum löxunum var sleppt. Sá seinni þurfti hins vegar góðar 20 mínútur til að ranka við sér og synda út í hyl á nýjan leik. Breskir feðgar sem voru við veiðar í Hofsá í Vopnafirði upp úr miðjum mánuðinum upplifðu ótrúlegan dag saman. Á morgunvaktinni veiddi sonurinn 100 sentí- metra lax í Sigurðarstreng og á kvöldvaktinni gerði faðir hans aðeins betur því hann tók 101 sentímetra lax í Skakkabrotshyl. Trausti Hafliðason spjallaði við þá feðga. Piers og Anthony Pollard komu í fyrsta skiptið til Íslands í byrjun júlí. Þeir feðgar hafa veitt mikið saman í gegnum árin. Í samtali við Fréttablaðið segist Piers hafa verið með veiðidellu frá því hann var smágutti. Hann hafi oft farið með pabba sínum að veiða þegar hann var yngri og eftir að hann varð fullorðinn hafi þeir feðg- ar farið árlega saman í veiðiferðir hingað og þangað. Mest hafi þeir veitt í Englandi og Skot- landi. Hann segir að fyrir fimm árum hafi þeir síðan hætt að fara saman að veiða. Engin sérstök ástæða hafi verið fyrir því – það hafi bara gerst. „Um síðustu jól kom pabbi síðan að máli við mig og sagði „Piers, næsta sumar förum við saman að veiða“,“ segir Piers. „Úr varð að við keyptum okkur daga í Laxá í Aðaldal og Hofsá. Breskir veiðimenn vita töluvert mikið um Hofsá þar sem Karl Bretaprins veiddi þar svo árum skiptir. Það skemmir held- ur ekki fyrir að vita að þetta er uppáhaldsáin hans. Ég veit núna af hverju. Hofsá er ótrúleg á og ef ég mögulega get þá ætla ég að koma aftur á næsta ári og vera helst lengur en bara í þrjá daga.“ Sá öflugasti Piers segist fjórum sinnum áður hafa veitt 100 sentímetra lang- an lax en enginn þeirra komist í hálfkvisti við þann sem tók Rauða frances-inn í Sigurðarstreng á dögunum. „Þvílíkt afl og kraftur. Ég hefði aldrei trúað þessu hefði ég ekki haldið sjálfur um stöngina. Ég bara hreinlega verð að upplifa þetta aftur.“ Eftir morgunvaktina voru þeir feðgar nokkuð sáttir enda hafði sonurinn þá landað þessum silf- urbjarta og lúsuga stórlaxi. Þeir vissu ekki hvað beið þeirra. Þegar þeir feðgar komu inn í veiðihúsið Árhvamm eftir kvöld- vaktina birti yfir öllu og öllum. Það sást á fasi þeirra að eitthvað stórkostlegt hafði gerst. Ekkert sérstök saga „Þetta er svo sem ekkert sérstök saga,“ segir Anthony. „Ég var bara þarna í rólegheitum með mína ein- hendu, sem þér að segja er fyrir línu númer sjö. Svo veit ég ekki fyrr en mikill gusugangur rýfur kyrrðina og ég fæ þessa svaka- legu töku. Ég hugsaði strax með mér, þetta er stór fiskur – líklega sá stærsti sem ég hef veitt.“ Anthony segist af fenginni reynslu vel hafa gert sér grein fyrir því að sigurinn væri ekki unninn þó laxinn væri búinn að taka. „Raunar var svolítið langt í það á þessum tímapunkti því eftir að hafa togast á við laxinn í smá tíma tók hann á rás og hélt af stað niður ána. Ég er frekar slæm- ur í mjöðminni þannig að ég lét Hilmar leið- sögumann hafa stöng- ina. Hann bókstaflega hljóp á eftir laxinum niður flúðirnar og stað- næmdist í Höfðamels- hyl, sem er líklega einum 4-500 metrum fyrir neðan staðinn þar sem laxinn tók upphaf- lega. Þegar ég kom tók ég strax við stönginni á nýjan leik en viti menn, eftir stuttan tíma fór laxinn aftur af stað. Hann var aldeilis ekki reiðubúinn að gef- ast upp fyrir mér strax – það var augljóst. Eins og áður rauk hann niður ána og Hilmar leiðsögumað- ur tók stöngina aftur og hljóp eins og fætur toguðu á eftir fiskinum sem róaðist ekki fyrr en hann var kominn niður í Beinagilsstreng.“ Smellur – hnúturinn gaf sig Þegar þarna var komið hafði fiskurinn líklega dregið Anthony og hans föruneyti eina 800 metra niður Hofsá. „Hilmar var skiljanlega laf- móður þegar ég loks kom og tók aftur við stönginni. Laxinn var líklega einnig orðinn svolítið þreyttur því hann ákvað að halda kyrru fyrir í Beinagilsstreng. Þegar þarna var komið notaði ég 2.238 LAXAR veiddust í Hofsá sumarið 1992 og er það met. Þegar sá gamli kveður mig og heldur til veiða á himnum þá mun ég alltaf eiga þennan dag í minn- ingunni. PIERS POLLARD Lygilegur veiðidagur feðga í Hofsá PIERS POLLARD Sonur Anthonys með 100 sentímetra lax við Sigurðarstreng í Hofsá. TVEGGJA MANNA TAK Hilmar og Anthony með 101 sentímetra lax sem tók í Skakkabrotshyl en kom á land 800 metrum neðar, eða í Beinagilsstreng. HOFSÁ Í VOPNAFIRÐI Margir telja Hofsá eina bestu fluguveiðiá í heimi, einn af þeim er Karl Bretaprins. Hún er svo sannarlega kynngimögnuð og fögur að sjá ofan af Burstafelli. FRÉTTABLAÐIÐ/TRAUSTI Hofsá á aðalupptök sín á heiðarsvæði sunnan Fossdals og fellur áin í Vopnafjörð, skammt innan við kaup- staðinn. Veitt er á sjö stangir í ánni og frá árinu 1974 hefur meðalveiðin verið í kringum 1.100 laxar á ári. Mesta veiðin var árið 1992 þegar 2.238 laxar veiddust en minnsta veiðin var árið 1982 þegar 141 lax veiddist. Í vetur voru miklar endurbætur gerðar á veiðihúsinu Árhvammi. Nú eru þar sjö tveggja manna herbergi með baðherbergi og tvö eins manns herbergi sem eru með aðgang að sérsnyrtingu. Þá var sett upp sána í húsinu. Veiðihúsið Árhvammur við Hofsá endurbætt 7 STANGIR eru í Hofsá og er ánni skipt upp í sjö svæði og teygir efsta svæðið sig langt inn Hofsárdal og upp á heiði.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.