Fréttablaðið - 27.08.2012, Qupperneq 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Fasteignir.is
veðrið í dag
27. ágúst 2012
200. tölublað 12. árgangur
JARÐFRÆÐI Í VIÐEYHreggviður Norðdahl jarðfræðingur miðlar af
visku sinni um hvernig eldar, ís og sjór hafa
skapað og mótað hina fallegu Viðey í þriðjudags-
göngu annað kvöld kl. 19.15. Ferjan til Viðeyjar fer
aukaferð á þriðjudagskvöldum frá Skarfabakka kl.
18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið.
B rynja Jónsdóttir, 22 ára dansnemi, er nýflutt heim frá Danmörku þar sem hún var í dansnámi. Í haust hóf hún nám í Listaháskóla Íslands. Hún segir hér frá tveimur uppáhaldshlutunum sínum á heimilinu, en þeir eiga það sameiginlegt að vera listaverk eftir foreldra hennar. Önnur myndin er póstkort af Mónu Lísu sem málað hefur verið á. Það gerði móðir hennar, Sóley Eiríksdóttir myndlistakona, en hún lést árið 1994 þegar Brynja var fjögurra ára gömul. „Mér þykir bara svo vænt um þessa mynd því hún er svo mikið í anda mömmu og þess sem ég hef heyrt um hana,“ segir Brynja. „Pabbi dró þessa mynd upp úr skúffu einn daginn og gaf mér hana. Hann sagði mér svo söguna á bak við hana, en þegar þau ferðuðust til útlanda tóku þau alltaf póstkort af frægum málverkum og myndum og mamma breytti þeim áður en þau sendu kortin heim.“
L
Brynju er eftir föður hennar, Jón Axel Björnsson, en hún er einnig í miklu upp-áhaldi hjá henni. „Mér finnst hún hrikalega
flott. Ég saknaði hennar mikið þegar hún
var ekki á veggnum í stuttan tíma. Vegg-urinn var algjörlega allsber án hennar.“ Brynja leggur mikla merkingu í myndina:
„Hún minnir mig á að halda hausnum fyrir
ofan vatnið. Það er þannig sem ég túlka hana og ég lít stundum á hana og man þetta. Ég segi kannski ekki að það sé hluti
af morgunrútínunni að líta á myndina og
hugsa með sjálfri mér að nú sé best að halda höfðinu fyrir ofan vatnið áður en ég
held út í daginn,“ segir Brynja og hlær. „En
hún er vissulega áminning til mín.“ Faðir
Brynju gaf henni myndina þegar hún flutti
að heiman.
Sófinn sem Brynja situr í var einnig gjöf
frá föður hennar en hann smíð ðþeg h
UMVAFIN MYNDLISTLISTAGEN Brynja Jónsdóttir er dansari og listin er henni í blóð borin því hún
er komin af myndlistarfólki. Hún heldur mikið upp á list foreldra sinna.
BREYTT PÓSTKORTMóðir Brynju hafði þann sið á ferðalögum að breyta póstkortum áður en hún sendi þau heim. Þetta er eitt af þeim.
MYND/PJETUR
UPPÁHALDSMÁL-VERKIÐ Brynja segir að heimilið væri tóm-legt án stórs málverks eftir föður hennar á veggnum, en það er í miklu uppáhaldi hjá henni.
MYND/PJETUR
SÉRFR
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
FASTEIGNIR.IS
27. ÁGÚST 2012
32. TBL.
Eignamiðlun ehf. kynnir:
Til sölu Nýbýlavegur 2, 6 og 8 í Kópavogi. Hús nr. 2 er 3.118 fm og ásett verð er 385.000.000 kr. Hús nr. 6 er í tveimur einingum. Aðalhúsið er 1601,7 fm og ásett verð er 180.000.000 kr. Hús nr. 8 er 2.405,2 fm og ásett verð er 268.000.000 kr.
N ýbýlavegur 2: Fyrsta hæð er glæsilega innrétt-uð með vandaðri lýsingu og gólfefnum. Góðar skrifstofur og nokkrar snyrtingar. Inn af sýn-ingarsal er lagerrými með góðum innaksturshurðum. Kjallari er bílageymsla og lagerrými. Önnur hæð: Stórt verkstæði, móttaka, snyrtingar og lager. Fjórar góðar innkeyrsluhurðir. Aðgengi að þessu húsi er frá Dal-brekku. Innangengt er á milli þessa húss og húsa númer 4 og 6 og er lítið mál að loka þar á milli.
Nýbýlavegur 4: Fyrsta hæð er glæsilega innréttuð með vandaðri lýsingu og gólfefnum. Góðar skrifstofur og nokkrar snyrtingar.
Önnur hæð: Stór salur með innkeyrsluhurð. Aðgengi að þessari hæð er frá Dalbrekku.
Nýbýlavegur 6: Fyrsta hæð er glæsilega innréttuð. Góðar skrifstofur og nokkrar snyrtingar.
Önnur hæð (áður sýningarsalur notaðra bíla) er stór salur með tveimur innkeyrsluhurðum. Aðgengi að þess-ari hæð er frá Dalbrekku.
Bakhús (skrifstofuhæð) er 328,5 fm og ásett verð er36 000 000 k
Góð skrifstofuhæð sem skiptist í tvö aðskilin rými og geymslu. Annars vegar er um að ræða 94 fm skrifstofu-rými með þremur skrifstofum og hins vegar 205,7 fm skrifstofurými með 7 skrifstofum og snyrtingu. Einn-ig fylgir 28,8 fm vörug ymsla á jarðhæð. Aðgengi er frá Dalbrekku. Lyfta.
Nýbýlavegur 8: Fyrsta hæð er vel innréttuð. Góðar skrifstofur. Útgengi út í port að sunnanverðu.
Önnur hæð skiptist í verslunarpláss, stóran lager með innkeyrsluhurð, snyrtingar og skrifstofur. Að norðan-verðu er góð skrifstofuálma með nokkrum skrifstofum og stóru opnu vinnurými, salernum og kaffi tofu.Þriðja æðin er mjög góð skrifstofuhæð með rúm-góðum skrifstofum, „kokka eldhúsi“, snyrtingum og góðum matsal. Bakhús: Tveir góðir flísalagðir vinnu-salir, verkstjóraskrifstofa, kaffistofa og fleira.
Samtals er því um að ræða 10.210 fm og er ásett verð á alla eignina 1 214 000 000 k ó
Toyota-húsið til sölu
Toyotahúsið við Nýbýlaveg.
Suðurlandsbraut 22 | Opið mán. – fös. frá kl. 9–17 | www.heimili.is
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Andri
Sigurðsson
sölufulltrúi og
lögg. leigumiðlari
Ásdís Írena
Sigurðardóttir
skjalagerð
Ruth
Einarsdóttir
sölufulltrúi
Bogi
Pétursson
lögg.fasteignasali
Gústaf Adolf
Björnsson
lögg. fasteignasali
Finndu okkur
á Facebook
Rúnar Gíslason
Lögg. fasteignasali
audur@fasteignasalan.is
Viltu selja?
Vegna mikillar sölu vantar mig 2ja
og 3ja herbergja íbúðir í hverfum
101 og 105 Reykjavík.
Ákveðnir kaupendur bíða eftir
réttu eigninni.
Talaðu endilega við Auði í síma 824-7772
eða audur@fasteignasalan.is
Save the Children á Íslandi
Gefum flugmiða
til London!
Skráðu þig í KK-Eðaláskrift
fyrir 30. ágúst og við gefum þér flugmiða.
www.badhusid.is
FÉLAGSMÁL Lögregla er kölluð út
þrisvar til fjórum sinnum hvern
dag ársins vegna átaka á heimil-
um landsins. Í 200 til 300 tilvik-
um á hverju ári hefur verið beitt
ofbeldi, misalvarlegu.
Þetta sýna gögn sem unnin
voru af embætti Ríkislögreglu-
stjóra fyrir Fréttablaðið fyrir
rúmlega fimm ára tímabil frá
2007 til júní 2012. Fjöldi tilvika
heimilisófriðar samkvæmt mála-
skrárkerfi lögreglunnar á þessu
tímabili voru 7.071 alls. Ofbeldi
var beitt í 1.559 tilvikum.
Tölurnar sýna að ár hvert eru
útköllin tólf til fjórtán hundr-
uð en hefur fækkað lítillega á
milli ára allt tímabilið. Athygli
vekur hins vegar að alvarlegum
tilvikum fjölgar hlutfallslega;
árið 2007 var ofbeldi beitt í 272
málum en þá voru 1.116 mál skráð
sem heimilisófriður. Árið 2011
voru 310 ofbeldismál en 895 þar
sem ekki hafði verið beitt ofbeldi.
Það ár, árið 2011, bárust um 850
tilkynningar um ofbeldi og ófrið
til lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Ósættið mátti oft rekja
til sambúðarslita og áfengi og
fíkniefni komu við sögu í meiri-
hluta tilvika. Í ársskýrslu segir:
„Ef [fólk] var ekki að skaða hvert
annað líkamlega fengu dauðir
hlutir sömuleiðis iðulega að kenna
á því. Eignaspjöll voru því fylgi-
fiskar margra málanna, sem og
grófar hótanir oft og tíðum. Börn
voru stundum á heimilum við
áðurnefndar aðstæður og er fátt
dapurlegra en að upplifa slíkt.“
Í september í fyrra var hleypt
af stokkunum tilraunaverkefni
Barnaverndarstofu, barnavernd-
arnefnda og lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu til að sinna sál-
gæslu barna. Verkefnið var til sex
mánaða en framlengt til ársloka.
Tilefnið er að ekki þótti nóg gert til
að styðja börn sem verða vitni að
ofbeldi inni á heimili sínu. Reynsla
af verkefninu sýnir að í viku hverri
verða börn vitni að ofbeldi á heim-
ili sínu, að sögn Rögnu B. Guð-
brandsdóttur félagsráðgjafa sem
hefur umsjón með verkefninu.
„Þetta getur verið mjög átakan-
legt, en misalvarlegt. Oft eru það
börnin sjálf sem þurfa að hringja.
Þetta getur verið andlegt ofbeldi,
öskur og hótanir. Því miður eru
þarna líka dæmi um að heimilið
er rústir einar, börnin í áfalli og
kannski móðir sem þarf að flytja
á slysadeild,“ segir Ragna.
Í skýrslu um heimilisofbeldi,
sem unnin var á vegum Ríkis-
lögreglustjóra og lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu og var birt í
maí 2010, kemur fram að þolendur
heimilisofbeldis voru í 70 prósent-
um tilvikum konur en í 30 prósent-
um tilvika karlar. Gerendur voru í
76 prósentum tilvika karlar en í 24
prósentum tilvika konur. - shá
1.559 útköll vegna ofbeldis
Rúmlega sjö þúsund sinnum á fimm og hálfu ári hefur lögregla verið kölluð til vegna alvarlegs vanda á
heimili. Ofbeldi er beitt í um fjórðungi tilfella. Viðbragðsteymi til að sinna sálgæslu barna er starfandi.
KVIKMYNDIR Tökum á Hollywood-
hasarmynd Baltasars Kormáks, 2
Guns, lýkur í Nýju-Mexíkó í byrj-
un september. Baltasar segir vinn-
una vera á áætlun.
Kostnaðaráætlun 2 Guns hljóðar
upp á rúmlega tíu milljarða króna.
Leikstjórinn viðurkennir að það sé
mjög mikil pressa á sér að skila af
sér góðu verki og halda áætlun á
tökustað. Mark Wahlberg leikur í
2 Guns, eins og í mynd Baltasars
Contraband, sem og Denzel Wash-
ington. „Hann er frábær leikari
og það er frábært að vinna með
honum.“ - fb / sjá síðu 30
Tökum á 2 Guns að ljúka:
Gott að vinna
með Denzel
LEIÐSÖGN GEFIN Baltasar og Mark
Wahlberg ræða málin við tökur 2 Guns,
en tökum lýkur í september.
SKIPULAGSMÁL Hærri upphæð er
greidd árlega af Hörpu í fast-
eignagjöld en af Kringlunni og
Smáralind til samans. Fasteigna-
mat Hörpu er ívið hærra en hinna
húsanna samanlagt, þó þau séu
umtalsvert stærri. Gjöldin af
Hörpu nema 332 milljónum króna,
en 324 af verslunarmiðstöðvunum
tveimur.
Samkvæmt úrskurði yfirfast-
eignamatsnefndar ber að miða
fasteignagjöld Hörpu við stofn-
kostnað, en ekki rekstrarvirði,
eins og áætlanir gerðu ráð fyrir.
Það hækkaði fasteignagjöldin
umtalsvert, en í áætlunum var
í fyrstu miðað við 130 milljón-
ir króna og síðan 180 milljónir
króna. Tap á rekstri Hörpu árið
2012 nemur 407 milljónum króna
og 150 til 200 milljónum króna
hærri fasteignagjöld en gert var
ráð fyrir vega þar þungt.
Sé miðað við hlutfallslega sama
fasteignaskatt á byggingar, 1,65
prósent, kemur í ljós að Harpa
greiðir hærri fasteignagjöld en
10 menningarstofnanir og tvö
íþróttahús, sem stundum eru
notuð í menningarviðburði, sam-
anlagt.
Fulltrúar Reykjavíkurborg-
ar hafa sagt að ekki sé hægt að
lækka fasteignagjöldin sérstak-
lega á Hörpu. Álagning fasteigna-
gjalda sé ekki geðþóttaákvörðun.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að meðal þess sem ríkis-
valdið falist eftir sé að Reykjavík-
urborg auki rekstrarhlutdeild sína
sem nemur þeim auknu tekjum
sem borgin fær með hærri fast-
eignagjöldum. - kóp / sjá síðu 6
Meira er greitt í fasteignagjöld af Hörpu en Smáralind og Kringlu til samans:
Langhæstu gjöldin af Hörpu
Oft eru það börnin
sjálf sem þurfa að
hringja.
RAGNA B. GUÐBRANDSDÓTTIR
FÉLAGSRÁÐGJAFI
BJARTAST NV- OG V-til Í dag ríkja
NA-áttir, víða 5-10 m/s en hvassara
við suður- og suðausturströndina.
Nokkuð bjart víða NV- og V-til en
fremur skýjað og lítils háttar væta
sums staðar S- og A-lands.
VEÐUR 4
11
7 6
5
10
Stjörnudagur í Dalnum
Stjarnan varð bikarmeistari
í fyrsta skipti um helgina.
sport 26
Allt fullt af tónskáldum
Ung Nordisk Musik,
uppskeruhátíð norrænna
tónskálda, hefst á morgun.
tímamót 16
Flottir útgáfutónleikar
Þórunn Antonía
Magnúsdóttir kætti
tónleikagesti sína.
popp 22
BOLTANUM BLAKAÐ Íslandsmótið í strandblaki fór fram í Fagralundi í Kópavogi um helgina.
Óvænt úrslit urðu í kvennaflokki þar sem þær Berglind Gígja Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir úr HK báru sigur
úr býtum en þær eru einungis 16 ára gamlar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fasteignamat 2012
Stærð húsa m² Fasteignamat m.kr. Gjöld m.v 1,65% m.kr.
Kringlan 40.980 10.599
Smáralind 62.072 9.063
Samanlagt 103.052 19.662 324
Harpa 28.813 20.092 332