Fréttablaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 6
27. ágúst 2012 MÁNUDAGUR6
Nú má bæði þvo og þurrka
á aðeins um klukkustund
Þvottavélar
og þurrkarar
í sérflokki
Allt verður
tandurhreint
SKIPULAGSMÁL Harpa greiðir hærri
upphæð í fasteignagjöld en tíu
menningarhús víða um land og
tvö stór íþróttahús, sem gjarnan
eru notuð til tónleikahalds. Húsin
tólf eru samanlagt mun stærri en
Harpa, en fasteignamat þeirra er
svipað.
Líkt og fram hefur komið gerðu
áætlanir ráð fyrir mun lægri fast-
eignagjöldum af Hörpu en raunin
varð. Pétur J. Eiríksson, stjórn-
arformaður Portusar, rekstrar-
félags Hörpu, sagði við Frétta-
blaðið fyrir skemmstu að hærri
fasteignagjöld skýrðu stóran
hluta tapreksturs Hörpu í ár.
„Við erum að horfa upp á tap
upp á 407 milljónir króna. Það
munar 230 milljónum á fasteigna-
gjöldum, hvernig þau eru í reynd
og því sem við teljum rétt vera.
Eftir standa 177 milljónir og eitt-
hvað hefði komið inn samkvæmt
leiðréttingu á samningi við Sin-
fóníuhljómsveitina.“
Katrín Jakobsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra,
sagði í viðtali við Fréttablaðið
fyrir nokkru að það væri Reykja-
víkurborgar að svara því hvað
gert yrði varðandi þá staðreynd
að fasteignagjöldin urðu mun
hærri en ráð var fyrir gert.
„Áætlanir gerðu ráð fyrir að
fasteignamat tæki mið af nýt-
ingarvirði en ekki stofnkostn-
aði eins og niðurstaðan varð. Við
höfum líka dæmi þar sem stofn-
anir hafa fengið styrki til þess að
mæta fasteignagjöldum. Það er
hins vegar Reykjavíkurborgar að
svara því hvort það verður gert
varðandi Hörpu, þar sem hún inn-
heimtir fasteignagjöldin.“
Borgin og ríkið eiga Hörpu
saman og greiða báðir eigendur
nú hærri fasteignagjöld en áætl-
að var. Ljóst er hins vegar að
Reykjavíkurborg fær mun hærri
tekjur af Hörpu en lagt var upp
með, þar sem fasteignagjöldin
renna til borgarinnar.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að ein af þeim hugmynd-
um sem nú séu til umræðu hjá
ríkinu sé að borgin auki hlutdeild
sína í rekstrarkostnaði hússins
sem hærri tekjum nemur. Gjöldin
eru 150 til 200 milljónum krónum
hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
S. Björn Blöndal, aðstoðar-
maður Jóns Gnarrs borgarstjóra,
sagði við Fréttablaðið fyrir viku
að það væri ekki hægt að breyta
fasteignagjöldunum. Álagning
fasteignagjalda væri ekki geð-
þóttaákvörðun.
„Þar gengur eitt yfir alla.
Harpa er mjög stórt hús sem
borgar fasteignagjöld í samræmi
við það.“
Björn fullyrti að fulltrúar borg-
arinnar hefðu á öllum stigum
málsins gert athugasemdir við
það að ólíklegt væri að áætlanir
um lægri fasteignagjöld stæðust.
Það stangast á við orð stjórnar-
formanns Portusar, í samtali við
Fréttablaðið 18. ágúst.
„Borgin hefur ekki gert athuga-
semdir um áætlanir okkar um
lægri fasteignagjöld. Beinir skatt-
ar á okkur á þessu ári eru um 584
milljónir króna. Við erum að borga
mun meira til þessara tveggja
eigenda en sem nemur tapinu,“
en líkt og fyrr segir verður tapið
af Hörpu árið 2012 407 milljónir
króna. kolbeinn@frettabladid.is
Hærri fasteignagjöld af
Hörpu en 12 öðrum húsum
Fasteignagjöld af Hörpu eru hærri en af tíu öðrum menningarhúsum og tveimur íþróttahöllum samanlagt.
Fulltrúar borgar og Portusar ósammála um hvort borgin hafi gert athugasemdir við upphæð gjaldanna.
HARPA Samanlögð fasteignagjöld af Egilshöll og Laugardalshöll nema 100 milljónum
króna. Fasteignagjöld af Hörpu eru 318 milljónir króna á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BJÖRN BLÖNDALPÉTUR J. EIRÍKSSON
Fasteignamat 2012
Stærð húsa m² Fasteignamat m.kr. Gjöld m.v. 1,65%
Menningarstofnanir:
Hamraborg 6-menningarmiðst./tónlistarsk. 1.741 480
Hamraborg 6-safnahús 1.897 391
Listasafn Íslands 2.554 538
Kjarvalsstaðir 3.018 408
Listasafn Reykjavíkur 3.710 497
Þjóðarbókhlaðan 13.403 3.030
Þjóðleikhúsið 6.258 724
Borgarleikhús/bókasafn 14.085 4.091
Háskólabíó 6.874 1.597
Menningarhúsið Hof á Akureyri 7.550 1.466
Samtals 61.090 13.222 218
Íþróttahús/tónleikahús:
Laugardalshöll 17.323 3.000
Egilshöll 24.267 3.051
Samtals 41.590 6.051 100
Alls menningarstaðir/tónleikahús 102.680 19.273 318
Harpa 28.813 20.092 332
UTANRÍKISMÁL Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, fundaði
um helgina með ráðherrum og
æðstu stjórn-
endum Alaska-
ríkis í Banda-
ríkjunum. Á
fundinum kom
fram mikill
áhugi á því að
efla samvinnu
Íslands og
Alaska.
Icelandair
hefur á næsta
ári áætlunarflug til Alaska og
töldu fundarmenn mikil tækifæri
felast í greiðari samgöngum á
milli svæðanna.
Ólafur Ragnar er staddur í
Anchorage í Alaska þar sem Norð-
urslóðaþingið, Arctic Imperative
Summit, fer fram. - mþl
Tengsl Íslands og Alaska efld:
Forsetinn á
fundi í Alaska
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
EKVADOR Rafael Correa, forseti
Ekvadors, segir bresk stjórnvöld
hafa dregið til baka hótun sína um
að ráðast inn ekvadorska sendi-
ráðið til þess að
handtaka Julian
Assange.
Assange, sem
kenndur er við
Wikileaks vef-
síðuna, leitaði
skjóls í sendi-
ráðinu fyrir
rúmum tveimur
mánuðum síðan
til þess að komast hjá framsali til
Svíþjóðar.
Stjórnarmenn í Ekvador brugð-
ust illa við þegar Bretar hótuðu að
ráðast inn í sendiráð þeirra í Lond-
on. Breska utanríkisráðuneytið
hefur nú upplýst Correa að slíkt
standi ekki lengur til. - sm
Ekki ráðist inn í sendiráð:
Assange óhult-
ur enn um sinn
JULIAN ASSANGE
KJÖRKASSINN
Finnst þér að nemendur á lokaári
grunnskóla eigi að fá einkunnir í
bókstöfum í stað tölustafa?
Já 22,0%
Nei 78,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Líst þér vel á hugmyndir um
brú fyrir göngu- og hjólreiðafólk
yfir Fossvoginn?
Segðu þína skoðun á Vísi.is
SVÍÞJÓÐ Erlend flugfélög vilja ekki greiða
skatta og gjöld fyrir starfsmenn sína í Sví-
þjóð. Á fréttavef Dagens Nyheter er greint
frá því að bæði Ryanair og Norwegian fari
í kringum reglurnar með því að ráða fólk í
gegnum erlendar starfsmannaleigur á lág-
launasvæðum.
Fáir erlendir starfsmenn, sem hafa bæki-
stöðvar í Svíþjóð, greiða þar skatt þótt þeir
eigi að gera það. Flestir leigustarfsmanna
Ryanair borga skatta og gjöld á Írlandi. Nor-
wegian hefur komið upp bækistöð í Helsinki
í Finnlandi og fengið leigustarfsmenn frá
Eistlandi. Þeir greiða eingöngu skatt í Eist-
landi.
Flugfélagið hefur einnig fengið erlendar
áhafnir frá pólsku starfsmannaleigunni
Arpi fyrir flug frá Skandinavíu.
Lögfræðingur hjá sænskum skattayfir-
völdum segir það ekki óvenjulegt að starfs-
mannaleigur séu skúffufyrirtæki. Hún
segir að reyna eigi að auka samstarfið milli
skattayfirvalda innan Evrópusambandsins,
ESB. Mikilvægt sé að fyrirtæki sem ráði
erlenda leigustarfsmenn sjái til þess að þeir
njóti þeirra réttinda sem þeim ber.
Flutningur leigustarfsmanna flugfélaga
milli landa er vandamál sem Evrópusam-
bandið hyggst taka á með nýjum reglum.
Greiða á gjöld fyrir leigustarfsmenn þar
sem þeir eru staðsettir.
- ibs
Evrópusambandið tekur á flutningi leigustarfsmanna flugfélaga með nýjum reglum:
Flugfélög koma sér undan skattgreiðslum
RYANAIR Flugfélagið vill ekki greiða skatt í Svíþjóð.