Fréttablaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 44
27. ágúst 2012 MÁNUDAGUR20 20 menning@frettabladid.is Heimagalleríið 1.h.t.v. Heimagalleríið 1.h.t.v. sem stað- sett er í blokkaríbúð á fyrstu hæð til vinstri, að Lönguhlíð 19 í Reykjavík, er aðeins starfrækt á sumrin, og nú standa þar yfir tvær sýningar samtímis. Ingólfur Arnarsson sýnir inn- setningu sem nær yfir fjögur her- bergi íbúðarinnar. Hann hefur málað ferhyrndan einlitan flöt upp í loftið fyrir framan gluggana í þessum fjórum rýmum, og er hver flötur með sinn lit. Litirnir taka mið af litum himinsins, en í tilkynningu frá galleríinu segir að unnið sé með „liti, afmörk- un þeirra, staðsetningu, þyngd, andblæ og samspil þeirra við íbúð- ina og útsýni“. Litirnir sem Ingólfur hefur valið eru á svipuðum stað í litapallett- unni og litir í fyrri verkum hans þar sem hann málar á steinsteypta steina, og margir kannast við, en litaflöturinn hér er svipaður eða jafnstór og fyrrnefndir steinar. Ef gera á tilraun til að lýsa lit- unum fjórum í innsetningunni þá er litatónninn ljósfjólublár í svefn- herberginu, í stofunni er liturinn appelsínu/ferskjulitaður, og í eld- húsi og herbergi inn af stofu eru gráir litatónar, mjög svipaðir. Lit- irnir geta þó virkað mismunandi eftir birtustigi og tíma dags. Þessi verk, og þessi innsetning í heild sinni, er ekki flókin að gerð í sjálfu sér, en nær að draga allt umhverfið til sín, bæði sem heild og í sitt hvoru lagi í hverju og einu herbergi. Staðsetning litaflatanna uppi í loftinu er óvenjuleg. Þegar maður horfir á verkið þá horfir maður um leið á svo margt annað. Inn á sjón- sviðið kemur liturinn á himnin- um, trén fyrir utan gluggann, gul- köflóttu gluggatjöldin í eldhúsinu eða röndótta gólfteppið, og í raun íbúðin sjálf sem er falleg að innri gerð. Allt þetta spilar með þessum ferningslaga litflötum sem Ingólf- ur hefur valið. Sólveig Aðalsteinsdóttir sýnir tvö tengd verk á sýningunni. Hún er ekkert að flækja málin, og sækir sér innblástur í grunnteikn- ingu íbúðarinnar sjálfrar þar sem sýningin er haldin. Á vegg hangir í stórri bréfa- klemmu teikning á stórri papp- írsörk. Örkin er þannig upphengd að maður sér ekki svo vel sé af hverju teikningin er, en þarna er á ferð einfaldlega sjálf grunnteikn- ing íbúðarinnar. Þessa teikningu, eða lágmynd eins og mætti kalla þetta líka, er líka hægt að skoða með því að kíkja upp undir keilu- laga formið sem verður til þegar pappírsörkin hangir svona niður, og þá er verkið orðið eins og dular- full göng með sérstakri fjarvídd- artilfinningu. Á borði í herbergi innan af stof- unni er síðan hitt verkið. Þar er á ferð bókverk. Því er stillt upp á lítið teborð á hjólum, og unnið á sams konar pappír og lágmyndin. Áfram er það grunnteikningin sem Sólveig vinnur með. Verkin vinn- ur hún þannig að hún leggur sex pappírsarkir hverja ofan á aðra en setur kalkipappír á milli allra ark- anna. Hún teiknar svo grunnteikn- inguna þéttingsfast á efsta blaðið og teikningin afritast umsvifalaust á öll hin fimm blöðin og þannig verður hver örk með sinn skýr- leika af sömu teikningunni, þar sem teikningin á neðsta blaðinu er daufust, eins og í þoku. Blöðin brýtur hún svo saman í bækur og saumar þær saman í kjölinn. Þau gerast nú eiginlega ekki fal- legri bókverkin. Þarna vinnur hún með margfeldi og gamaldags afrit- unartækni. Þetta er eins konar grafíkmyndagerð líka, og allt efnis- val og aðferð ber vitni um sérstak- lega góða og listræna tilfinningu. Einnig er hægt að horfa á verkið sem skúlptúrlega heild með því að virða fyrir sér bækurnar sem alls eru tíu talsins, í stafla á tveggja hæða teborðinu. Þóroddur Bjarnadóttir Niðurstaða: Sérlega vönduð sýning með ríkri tilfinningu fyrir efni og umhverfi. Fær mann til að finnast maður vera á réttum stað á réttum tíma. Staður og stund INNSETNING Í HEIMAGALLERÍINU Ingólfur Arnarsson sýnir innsetningu í fjórum herbergjum íbúðarinnar, ferhyrndan einlitan flöt í loftinu fyrir framan gluggana. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fyrstu tónleikar Stórsveitar Reykjavíkur í Hörpu fara fram næsta föstudag klukkan átta í Eldborg. Andi stríðsáranna mun svífa yfir vötnum því tekin verður fyrir fyrir tónlist Stórsveitar Glenns Miller, einnar vinsælustu stórsveitar allra tíma og hún endursköp- uð með upprunalegum útsetningum og flytjendum í fremstu röð. „Fáar aðrar stórsveitir náðu viðlíka lýð- hylli og plötusölu á tíma síðari heimsstyrjaldarinnar og stórsveit Glenns Miller. Segja má að hljómsveitin og lögin sem hún flutti séu besta dæmið um tímann þegar dægurtónlistin og djassinn voru eitt. Ekki þarf að að nefna nema „In the Mood“ eða „Moonlight Sere- nade“ til að staðfesta það,“ segir í fréttatilkynningu. Sérstakir gestir stórsveitarinnar á þessum tón- leikum verða söngvararnir Þór Breiðfjörð, Krist- jana Stefánsdóttir, Bjarni Arason, Borgardætur og karlakvartettinn Nútímamenn en þau munu fylla skó Ray Eberle, Tex Beneke, Marion Hutton, Kay Starr, Andrews systra og The Moderners. Stjórnandi verður Sigurður Flosason. Tónleikarnir eru samvinnuverkefni Stórsveitar Reykjavíkur, Jazzhátíðar Reykjavíkur og Hörpu. Stríðsáraandi hjá Stórsveitinni STÓRSVEITIN Harpa er nýr heimavöllur Stórsveitarinnar sem leikur á sínum fyrstu tónleikum þar næsta föstudagskvöld. Myndlist ★★★★★ Ingólfur Arnarsson og Sólveig Aðalsteinsdóttir Dagskráin er vegleg á Reykja- vík Jazz Festival í dag en hátíðin hófst á menningarnótt og stendur til fyrsta september. Á Múlanum í Norræna húsinu byrjar tríó Magnusar Johannes- sen klukkan hálf átta í kvöld. Pían- istinn og tónsmiðurinn Magnus frá Færeyjum spilar ásamt landa sínum Mikael Blak sem plokkar bassa og Snorra Sigurðarsyni sem blæs í trompet. Franska hljómsveitin Limousine kemur fram í Iðnó og spilar tóna sem þykja einstök blanda af áhrif- um poppstefnunnar og djassins. Fyrsta plata þeirra kom út árið 2005 og hafa þeir vakið athygli sem tónleikahljómsveit. Tónar þeirra hafa einnig hljómað í marg- verðlaunuðum kvikmyndum Bruno Dumont. Við sama tækifæri mun Haukur Gröndal frumflytja nokk- ur verk ásamt Guðmundi Péturs- syni, Matthíasi Hemstock og Pétri Grétarssyni. - hþt Einstakir djasstónar LIMOUSINE Franska hljómsveitin Limousine leikur tóna sem þykja einstök blanda af poppi og djassi. HÁDEGISTÓNLEIKAR Í HAFNARFJARÐARKIRKJU Fyrstu hádegistónleikar vetrarins verða í Hafnarfjarðarkirkju á morgun klukkan 12.15. Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti Akureyrarkirkju, leikur fjölbreytta og fagra orgeltónlist á bæði orgel kirkjunnar. Starfsemi HL stöðvarinnar í Reykjavík hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 4. september. Vinsamlega staðfestið þátttöku í síma 561 8002 eða á hlstodin@simnet.is. Meiri Vísir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á vísi. Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.