Fréttablaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 18
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Ég er alltaf með eitthvað milli hand-anna. Bútasaumsklúbburinn minn hefur hist einu sinni í mánuði síðastliðin tuttugu ár,“ segir Þóra Katrín Kolbeins, hannyrðakona þegar hún er spurð að því hvað hún sé með á prjón- unum. Reyndar er það bútasaumur sem á hug hennar allan, þótt hún prjóni líka. Þá var hún að enda við að sauma altar- isdúk sem er harðangur og klaustur, en hún féll fyrir bútasaumnum fyrir rúmum þrjátíu árum. „Ég kynntist bútasaumi fyrst hjá henni Guðfinnu í Virku Þegar ég fór á námskeið hjá henni og hef síðan þá farið á öll bútasaumsnámskeið á hennar vegum á Hótel Örk í Hveragerði. Nám- skeiðið er mjög skipulagt og flott. Þarna erum við allt frá þrjátíu upp í sextíu konur samankomnar og saumum frá því við mætum á staðinn og alveg fram á síðustu stund og njótum þess í botn,“ segir Þóra Katrín glaðlega og segir félagsskapinn ekki síður mikilvægan en saumaskapinn. „Við borðum saman og höldum svo áfram að sauma fram eftir kvöldi. Þá erum við gjarnan að sýna önnur stykki sem við höfum gert, bera saman bækur okkar og hafa gaman af. Þetta gefur mér mikið, enda er maður manns gaman.“ En á svo þaulreynd hannyrðakona eitthvert erindi á námskeið ár eftir ár? „Já já, ég læri alltaf eitthvað nýtt. Það er alltaf hægt að bæta við sig nýrri tækni,“ segir Þóra Katrín og hlær og viðurkenn- ir að eftir svo mörg ár eigi hún talsvert safn af bútasaumsstykkjum í skápunum. „Ég á auðvitað fullt til en ég gef líka mikið í gjafir. Ég á líka margt óklárað til að grípa í, öðruvísi er þetta ekkert gaman.“ ■ heida@365.is SAUMA SAMAN FRAM Á NÓTT BÚTASAUMUR Þóra Katrín Kolbeins er mikil hannyrðakona. Hún kynntist bútasaumi fyrir þrjátíu árum og hefur ekki getað lagt frá sér nálina síðan. LISTASMÍÐ Katrín seg- ist alltaf geta bætt við sig þekkingu þótt hún hafi saumað bútasaum í fleiri áratugi. AFKASTAMIKIL Katrín viðurkennir að eiga talsvert af bútasaums- stykkjum í skápunum hjá sér. MYNDIR/GVA VILT ÞÚ LÉTTAST HRATT OG ÖRUGGLEGA? Taktu inn 2 töflur af KONJAK + STÓRT glas af vatni 3x á dag hálftíma fyrir máltíð Fæst í heilsubúðum, apótekum og heilsuhillum stórmarkaðanna w w w .gengurvel.is Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element), hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar og flest annað til rafhitunar. Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki sem hafa sannað sig með áralangri reynslu. íslensk framleiðsla í 20 ár Rafhitarar fyrir heita potta FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P Þúsundir fermetra af flísum með 20 -70% afslætti Baðherbergisvörur 20 -70% afsláttur ÚTSALA Teppi og dúkar 25% afsláttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.