Fréttablaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 17
JARÐFRÆÐI Í VIÐEY
Hreggviður Norðdahl jarðfræðingur miðlar af
visku sinni um hvernig eldar, ís og sjór hafa
skapað og mótað hina fallegu Viðey í þriðjudags-
göngu annað kvöld kl. 19.15. Ferjan til Viðeyjar fer
aukaferð á þriðjudagskvöldum frá Skarfabakka kl.
18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið.
Brynja Jónsdóttir, 22 ára dansnemi, er nýflutt heim frá Danmörku þar sem hún var í dansnámi. Í haust hóf hún
nám í Listaháskóla Íslands. Hún segir hér
frá tveimur uppáhaldshlutunum sínum á
heimilinu, en þeir eiga það sameiginlegt að
vera listaverk eftir foreldra hennar.
Önnur myndin er póstkort af Mónu Lísu
sem málað hefur verið á. Það gerði móðir
hennar, Sóley Eiríksdóttir myndlistakona,
en hún lést árið 1994 þegar Brynja var
fjögurra ára gömul. „Mér þykir bara svo
vænt um þessa mynd því hún er svo mikið
í anda mömmu og þess sem ég hef heyrt
um hana,“ segir Brynja. „Pabbi dró þessa
mynd upp úr skúffu einn daginn og gaf
mér hana. Hann sagði mér svo söguna á
bak við hana, en þegar þau ferðuðust til
útlanda tóku þau alltaf póstkort af frægum
málverkum og myndum og mamma breytti
þeim áður en þau sendu kortin heim.“
LEGGUR MERKINGU Í VERKIÐ
Myndin sem hangir á veggnum fyrir ofan
Brynju er eftir föður hennar, Jón Axel
Björnsson, en hún er einnig í miklu upp-
áhaldi hjá henni. „Mér finnst hún hrikalega
flott. Ég saknaði hennar mikið þegar hún
var ekki á veggnum í stuttan tíma. Vegg-
urinn var algjörlega allsber án hennar.“
Brynja leggur mikla merkingu í myndina:
„Hún minnir mig á að halda hausnum fyrir
ofan vatnið. Það er þannig sem ég túlka
hana og ég lít stundum á hana og man
þetta. Ég segi kannski ekki að það sé hluti
af morgunrútínunni að líta á myndina og
hugsa með sjálfri mér að nú sé best að
halda höfðinu fyrir ofan vatnið áður en ég
held út í daginn,“ segir Brynja og hlær. „En
hún er vissulega áminning til mín.“ Faðir
Brynju gaf henni myndina þegar hún flutti
að heiman.
Sófinn sem Brynja situr í var einnig gjöf
frá föður hennar en hann smíðaði sófann
þegar hann flutti sjálfur að heiman og
Brynju finnst mikið til hans koma. „Mér
finnst hann nettur, þessi sófi.“
■ halla@365.is
UMVAFIN MYNDLIST
LISTAGEN Brynja Jónsdóttir er dansari og listin er henni í blóð borin því hún
er komin af myndlistarfólki. Hún heldur mikið upp á list foreldra sinna.
BREYTT PÓSTKORT
Móðir Brynju hafði þann
sið á ferðalögum að
breyta póstkortum áður
en hún sendi þau heim.
Þetta er eitt af þeim.
MYND/PJETUR
UPPÁHALDSMÁL-
VERKIÐ Brynja segir
að heimilið væri tóm-
legt án stórs málverks
eftir föður hennar á
veggnum, en það er
í miklu uppáhaldi hjá
henni.
MYND/PJETUR
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
SAGA/FREYJA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, sængurverasett,
heilsukoddar,
viðhaldskoddar,
gaflar, náttborð,
teppasett og fleira.
ÚRVAL STILLANLEGRA
HEILSURÚMA
12 mánaða
vaxtalausar
greiðslur*
SAGA/FREYJA
Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
PROFLEX
2x80x200
339.900 með okkar bestu
IQ-CARE heilsudýnum
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja