Fréttablaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 48
27. ágúst 2012 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
PEPSI-DEILD KARLA er líka á dagskránni í kvöld en þá fara fram tveir
leikir. KR tekur á móti Fram á meðan Valur sækir Keflavík heim. Báðir leikir hefjast
klukkan 18.00 og verða í beinni textalýsingu á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.
BURSTAR í vél-
sópa á lager
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- flestar
stærðir
1-0 Alexander Scholz, víti (18.), 1-1 Arnór
Eyvar Ólafsson (81.)
Skot (á mark): 12-7 (8-3)
Varin skot: Ingvar 2 - Abel 7.
STJARNAN (4-3-3): Ingvar Jónsson 7 - Kennie
Knak Chopart 5, Alexander Scholz 7, Daníel Laxdal
6, Hörður Árnason 5, Baldvin Sturluson 5 (54.
Snorri Páll Blöndal 5) - Atli Jóhannsson 7, Halldór
Orri Björnsson 6 - Gunnar Örn Jónsson 4, Ellert
Hreinsson 5 (71. Tryggvi Sveinn Bjarnason 5),
Garðar Jóhannsson 5 (40. Mark Doninger 5).
ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 8* - Arnór Eyvar Ólafsson
7, Brynjar Gauti Guðjónsson 6, Rasmus Christian-
sen 6, Matt Garner 7 - Andri Ólafsson 5, Guð-
mundur Þórarinsson 6, George Baldock 5 - Víðir
Þorvarðarson 6 (78. Ian David Jeffs 5), Þórarinn
Ingi Valdimarsson 7, Christian Steen Olsen 7.
* MAÐUR LEIKSINS
Samsungvöllur, áhorf.: 847 Kristinn Jakobsson (8)
1-1
1-0 Rafn Andri Haraldsson (34.), 1-1 Tómas
Leifsson (63.)
Skot (á mark): 11-8 (4-4)
Varin skot: Ingvar 2 - Ismet 3.
BREIÐABLIK (4-3-3): Ingvar Þór Kale 5 – Þórður
Steinar Hreiðarsson 7, Sverrir Ingi Ingason 5,
Renee Troost 6, Kristinn Jónsson 5 – Finnur Orri
Margeirsson 6, Andri Rafn Yeoman 6, Rafn Andri
Haraldsson 6 (89., Olgeir Sigurgeirsson -) - Ben
Everson 4 (75., Stefán Þór Pálsson - ) Nichlas
Rohde 4, Arnar Már Björgvinsson 5 (75., Gísli Páll
Helgason -).
SELFOSS (4-3-3): B Ismet Duracak 5 - Bernard
Petrus Brons 6, Stefán Ragnar Guðlaugsson 6,
Endre Ove Brenne 6, Robert Sandnes 5 (49.,
Marko Hermo 5 -) - Babacarr Sarr 5 , Jon Andre
Royrane 6,Egill Jónsson 6 -Jón Daði Böðvarsson
7, Tómas Leifsson 7* (89., Ivar Skjerve- ) , Viðar Örn
Kjartansson 6.
* MAÐUR LEIKSINS
Kópavogsv., áhorf.: 1.144 Ola Hobbar Nilsen (7)
1-1
1-0 Dean Martin (22.), 2-0 Garðar Berg-
mann Gunnlaugsson (74.), 2-1 Scott Ramsay
(88.)
Skot (á mark): 11-11 (4-2)
Varin skot: Páll Gísli 1 - Óskar 2.
ÍA (4-3-3): Páll Gísli Jónsson 6 - Theodore Furness
5, Ármann Smári Björnsson 7, Kári Ársælsson 6,
Einar Logi Einarsson 6 - Jóhannes Karl Guðjóns-
son 6, Arnar Már Guðjónsson 6, Hallur Flosason
6 (67., Jón Vilhelm Ákason 5) - Dean Martin 7
(43., Eggert Kári Karlsson 4), Andri Adolphsson
5, Garðar Bergmann Gunnlaugsson 7* (Guðmundur
Böðvar Guðjónsson -).
GRINDAVÍK (4-5-1): Óskar Pétursson 5 - Loic
Mbang Ondo 5, Ólafur Örn Bjarnason 6, Mikael
Eklund 4, Ray Anthony Jónsson 5 - Björn Berg
Bryde 3 (57., Pape Mamadou Faye 6), Marko
Valdimar Stefánsson 5 (78., Hafþór Ægir Vilhjálms-
son -), Magnús Björgvinsson 6 (78., Scott Ramsay
-), Iain James Williamsson 6, Óli Baldur Bjarnason
5 - Tomi Ameobi 5. * MAÐUR LEIKSINS
Akranesvöllur Vilhjálmur Þórarins. (7)
2-1
0-1 Einar Karl Ingvarsson (52.)
Skot (á mark): 9-14 (3-8)
Varin skot: Bjarni 6 - Gunnleifur 2.
FYLKIR (4-5-1): Bjarni Þórður Halldórsson 6 –
Davíð Þór Ásbjörnsson 6, David Elebert 7 , Kjartan
Ágúst Breiðdal 7 , Tómas Þorsteinsson 6 - Ásgeir
Börkur Ásgeirsson 6 (77., Sigurvin Ólafsson -),
Finnur Ólafsson 7, Ingimundur Níels Óskarsson 5,
Elís Rafn Björnsson 6 (66., Árni Freyr Guðnason
4), Magnús Þórir Matthíasson 4(85., Emil Ás-
mundsson -) – Björgólfur Hideaki Takefusa 4.
FH (4-3-3): Gunnleifur Vignir Gunnleifsson 6 –
Guðjón Árni Antoníusson 7, Freyr Bjarnason 7,
Pétur Viðarsson 7, Danny Justin Thomas 7 – Bjarki
Bergmann Gunnlaugsson 7, Einar Karl Ingvarsson
7* (79., Viktor Örn Guðmundsson -), Hólmar
Örn Rúnarsson 7, Björn Daníel Sverrisson 5, Atli
Guðnason 6 - Albert Brynjar Ingason 5(62., Krist-
ján Gauti Emilsson 4).
* MAÐUR LEIKSINS
Fylkisvöllur Erlendur Eiríksson (7)
0-1
Pepsi-deild karla:
FH 16 11 2 3 38-17 35
KR 16 9 3 4 31-21 30
ÍBV 16 8 3 5 28-14 27
ÍA 17 8 3 6 27-31 27
Stjarnan 17 6 8 3 35-31 26
Keflavík 16 7 3 6 27-23 24
Breiðablik 17 6 5 6 18-22 23
Fylkir 17 6 5 6 22-30 23
Valur 16 7 0 9 24-25 21
Fram 16 5 1 10 22-28 16
Selfoss 17 4 3 10 24-34 15
Grindavík 17 2 4 11 23-43 10
STAÐAN
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Arnór Atlason samdi um helgina
til eins árs við hið sterka þýska
félag, Flensburg. Liðið varð í öðru
sæti í þýsku úrvalsdeildinni á síð-
ustu leiktíð og leikur því í Meist-
aradeildinni í ár.
Arnór var tilneyddur að finna
sér nýtt lið í kjölfar þess að félag
hans, AG frá Kaupmannahöfn, fór
á hausinn er Ólympíuleikarnir
stóðu yfir.
„Þetta leggst mjög vel í mig enda
frábært félag sem ég er að fara í.
Það er því gott að hafa náð samn-
ingi við þetta félag,“ sagði Arnór
en það var væntanlega engin óska-
staða að semja aðeins til eins árs?
„Nei, en ég er samt ánægður
með þetta tækifæri. Ég gat ekki
verið að setja það fyrir mig og ég
reyni að hugsa sem minnst um það.
Ég ætla bara að nýta tækifærið
sem ég fæ.“
Skytta Flensburg, Petar Djor-
djic, sleit krossbönd síðastliðinn
þriðjudag og spilar því ekkert í
vetur. Strax daginn eftir hafði
Flensburg samband við Arnór og
hann á að leysa Djordjic af hólmi
í vetur. „Það tók stuttan tíma
að klára þetta enda báðir aðilar
spenntir fyrir samstarfi.“
Arnór mun flytja alla fjölskyld-
una til Þýskalands en sonur hans
var byrjaður í dönskum skóla og
svo á konan hans von á sér á hverri
stundu.
„Það er búið að heita því að það
verði hugsað mjög vel um okkur.
Konan mín hafði heyrt í íslensku
stelpunum sem hafa verið hérna
áður og okkur líst vel á þetta. Það
verður mjög gaman og spennandi
að fara þangað,“ sagði Arnór.
Arnór fékk aðstoð til þess að
pakka um helgina svo fjölskyldan
gæti drifið sig til Þýskalands enda
er næsti leikur hjá Flensburg á
miðvikudaginn.
„Ég er búinn að ræða mikið við
Vranjes þjálfara og hann virkar
vel á mig. Hann hefur náð frá-
bærum árangri með þetta lið.
Liðið ætlar að reyna að gera jafn-
vel núna og svo er plús að liðið er
í Meistaradeildinni. Þetta ætti því
að geta orðið skemmtilegur vetur,“
sagði Arnór en hann neitar því
ekki að það sé léttir að vera búinn
að ganga frá sínum málum.
„Það er gott að þetta endaði vel
en þetta var alls ekki skemmti-
leg lífsreynsla. Hún styrkir mann
samt vonandi.“
- hbg
Arnór Atlason búinn að finna sér nýtt félag en hann samdi við eitt besta félag Þýskalands, Flensburg:
Þetta var alls ekki skemmtileg lífsreynsla
Á LEIÐ TIL ÞÝSKALANDS Arnór lék síðast með Magdeburg í þýsku deildinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Breiðablik og Selfoss
skildu jöfn í 17. umferð Pepsi-
deildar karla í gærkvöld.
Liðin áttu sitt hvorn hálf-
leikinn, en Blikar leiddu í hálf-
leik eftir fínt skallamark Rafns
Andra Haraldssonar.
Gestirnir frá Selfossi girtu
sig í brók í síðari hálfleik og áttu
leikinn. Jöfnunarmark Tómas-
ar Leifssonar var verðskuldað.
Selfyssingar geta þó nagað sig í
handarbökin að hafa ekki tekið
öll þrjú stigin með sér heim því
þeir fengu nokkur ákjósanleg
færi til að vinna leikinn.
Tómas Leifsson var samt sátt-
ur í leikslok.
„Þetta var gott stig. Við höfum
fengið sjö stig í síðustu þremur
leikjum og ef við spilum eins og
í síðari hálfleik það sem eftir
er föllum við ekki,“ sagði besti
maður vallarins. - kós
Jafnt í Kópavoginum:
Þetta var gott
stig hjá okkur
FÓTBOLTI Stjarnan og ÍBV gerðu 1-1
jafntefli á Samsungvellinum í gær
en leikurinn var hluti af 17. umferð
Pepsi-deildar karla. Þessi lið berj-
ast um Evrópusætið í deildinni og
var þetta gríðarlega mikilvægur
leikur fyrir bæði liðin.
Stjarnan skoraði fyrsta mark
leiksins eftir rúmlega korters leik
en Eyjamenn náðu að jafna þegar
tíu mínútur voru eftir af leiknum.
Stjörnumenn hafa aðeins unnið
tvo heimaleiki í deildinni í sumar
en síðustu ár hefur heimavöllurinn
talið drjúgt fyrir þá bláklæddu.
Staða liðanna í deildinni breyttist
lítið við þessi úrslit en Eyjamenn
geta í raun sagt bless við Íslands-
meistaratitilinn.
„Rauði þráðurinn hjá okkur í allt
sumar er að við erum ekki að ná
að vinna á heimavelli,“ sagði Atli
Jóhannsson, leikmaður Stjörnunn-
ar, eftir jafnteflið í gær.
„Við duttum ósjálfrátt niður
eftir markið og bjóðum í leiðinni
hættunni nokkuð heim. Mér fannst
við aftur á móti loka nokkuð vel á
þeirra spil og þeir náðu ekki að
skapa sér mörg færi.“
Í síðari hálfleiknum komu Eyja-
menn öflugir til leiks og ætl-
uðu greinilega að jafna metin en
Stjörnumenn vörðust á köflum vel.
„Það var ætlunin að verja mark
okkar í síðari hálfleiknum og við
gerðum það vel, en Eyjamenn
fengu samt sem áður eitt of gott
færi og úr því varð mark,“ sagði
Atli en þjálfari ÍBV, Magnús
Gylfason, var ekki sáttur.
„Ég hefði viljað fá þrjú stig út
úr leiknum í kvöld,“ sagði Magnús
Gylfason, þjálfari ÍBV, eftir leik-
inn í gær. „Mér fannst við líklegri
til að fara með sigur af hólmi í
kvöld og stjórnuðum leiknum vel.
Eftir að Stjörnumenn komust yfir
þá féllu þeir til baka og það áttum
við að nýta okkur mun betur. Liðið
náði að skapa sér nokkur fín færi
og hefðum átt að skora fleiri mörk.
Við erum að berjast um Evrópu-
sæti og í raun er titillinn líklega
farinn frá okkur í ár.“
Vinnusigur hjá FH-ingum
Hafnfirðingar nældu sér í sann-
kallaðan vinnusigur á Fylkis-
mönnum í Árbænum í gærkvöldi
en leiknum lauk með 1-0 sigri FH.
Nýliðinn Einar Karl Ingvars-
son skoraði sigurmarkið með stór-
glæsilegu skoti en þetta var fyrsti
byrjunarliðsleikur hans á Íslands-
mótinu.
„Heilt yfir er ég svekktur að fá
ekkert úr þessum leik á heima-
velli, það vantaði oft herslumun-
inn undir lokin,“ sagði Ásmundur
Arnarsson, þjálfari Fylkis eftir
leikinn.
„Við fáum færi snemma í leikn-
um en svo nær FH tökum á leikn-
um þegar líða tekur á á sama tíma
og við fórum klaufalega með bolt-
ann. Við vorum að tapa boltanum
allt of oft í lykilstöðum og gátum
því ekki skapað okkur nein lykil-
færi,“ sagði Ásmundur.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH,
gat ekki kvartað.
„Þetta var góður leikur af hálfu
FH, mér fannst við töluvert sterk-
ari aðili í þessum leik og unnum
hann sanngjarnt 1-0. Við vorum
klaufar að klára þetta ekki fyrr
en náðum að klára þetta fyrir rest-
ina,“ sagði Heimir ánægður eftir
leikinn. - sáp, - kpt
Glötuð stig í Garðabænum
Stjarnan og ÍBV gerðu jafntefli í gær en bæði lið þurftu sárlega á þremur stig-
um að halda. FH-ingar komust aftur á móti aftur á beinu brautina.
BJARGAÐI STIGI Arnór Eyvar Ólafsson fagnar marki sínu fyrir ÍBV í gær en það tryggði ÍBV stig. Eyjamenn hefðu þó þurft á öllum
stigunum að halda. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL