Fréttablaðið - 27.08.2012, Blaðsíða 50
27. ágúst 2012 MÁNUDAGUR26
Sem betur fer fór
boltinn inn því annars
hefði þetta verið pínu vand-
ræðalegt.
GUNNHILDUR YRSA JÓNSDÓTTIR,
FYRIRLIÐI STJÖRNUNNAR
Enska úrvalsdeildin:
LIVERPOOL - MAN. CITY 2-2
1-0 Martin Skrtel (34.), 1-1 Yaya Toure (64.), 2-1
Luis Suarez (66.), 2-2 Carlos Tevez (80.)
STOKE - ARSENAL 0-0
ASTON VILLA - EVERTON 1-3
0-1 Steven Pienaar (2.), 0-2 Marouane Fellaini
(30.), 0-3 Nikica Jelavic (43.), 1-3 Karim El Ahmadi
(73.).
CHELSEA - NEWCASTLE UNITED 2-0
1-0 Eden Hazard, víti (21.), 2-0 Fernando Torres
(47.).
MANCHESTER UNITED - FULHAM 3-2
0-1 Damien Duff (2.), 1-1 Robin van Persie (9.),
2-1 Shinji Kagawa (34.), 3-1 Rafael (40.).
NORWICH - QUEENS PARK RANGERS 1-1
1-0 Simeon Jackson (11.), 1-1 Bobby Zamora (18.).
SOUTHAMPTON - WIGAN ATHLETIC 0-2
0-1 Franco Di Santo (50.), 0-2 Arouna Kona (88.).
SWANSEA CITY - WEST HAM UNITED 3-0
1-0 Angel Rangel (19.), 2-0 Michu (28.), 3-0
Danny Graham (63.).
TOTTENHAM HOTSPUR - WBA 1-1
1-0 Benoit Assou-Ekotto (73.), 1-1 James Morrison
(90.)
STAÐAN:
Chelsea 3 3 0 0 8-2 9
Swansea City 2 2 0 0 8-0 6
Everton 2 2 0 0 4-1 6
WBA 2 1 1 0 4-1 4
Manchester City 2 1 1 0 5-4 4
Fulham 2 1 0 1 7-3 3
Man. United 2 1 0 1 3-3 3
Wigan Athletic 2 1 0 1 2-2 3
Newcastle 2 1 0 1 2-3 3
West Ham 2 1 0 1 1-3 3
Stoke City 2 0 2 0 1-1 2
Arsenal 2 0 2 0 0-0 2
Sunderland 1 0 1 0 0-0 1
Tottenham 2 0 1 1 2-3 1
Reading 2 0 1 1 3-5 1
Liverpool 2 0 1 1 2-5 1
Norwich City 2 0 1 1 1-6 1
QPR 2 0 1 1 1-6 1
Southampton 2 0 0 2 2-5 0
Aston Villa 2 0 0 2 1-4 0
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Hinn ungi Belgi, Eden
Hazard, er heldur betur að standa
undir þeim væntingum sem til
hans voru gerðar.
Hann hefur farið á kostum í
fyrstu leikjum Chelsea á leiktíð-
inni og var aftur í aðalhlutverki
er Chelsea lagði Newcastle, 2-0.
Hazard skoraði fyrra markið úr
víti og lagði upp seinna markið
fyrir Fernando Torres sem einnig
hefur verið að spila vel.
„Það eru ekki bara þeir tveir
sem eru að spila vel. Þeir eru
að ná vel saman við Juan Mata
og hina miðjumennina. Það er
liðinu að þakka að Hazard hefur
náð að smella svona vel inn í leik
liðsins,“ sagði Roberto di Matteo,
stjóri Chelsea.
„Ég veit að þið blaðamenn ein-
beitið ykkur að markaskorurun-
um en mér fannst allt liðið spila
vel. Sérstaklega þar sem þetta
var þriðji leikurinn okkar á sex
dögum.“
Stuðningsmenn Chelsea gleðj-
ast mikið yfir því að Fernando
Torres sé farinn að skora á nýjan
leik.
„Hann var mikilvægur fyrir
okkur í fyrra. Þó svo hann hefði
ekki skorað mikið þá var hann
að vinna vel fyrir liðið. Hann er
mikill liðsmaður og það er enn
betra ef hann byrjar að skora.“
- hbg
Torres og Hazard frábærir:
Torres er mikill
liðsmaður
MAGNAÐIR Hazard og Torres fagna um
helgina en þeir voru magnaðir.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Martin Skrtel, varnar-
maður Liverpool, hefur líklega
ekki sofið neitt sérstaklega vel í
nótt eftir að hann gaf Carlos Tevez
mark sem færði Man. City stig á
Anfield.
Liverpool komst tvisvar yfir í
leiknum en gaf tvö klaufamörk. Í
fyrra markinu náði Reina mark-
vörður ekki fyrirgjöf og boltinn
hafnaði hjá Kelly sem átti skelfi-
lega snertingu. Boltinn datt fyrir
fætur Yaya Toure sem skoraði
auðveldlega. Í seinni markinu
átti Skrtel glórulausa sendingu til
baka sem Tevez náði og eftirleik-
urinn var auðveldur.
„Stundum vinnur ekki betra
liðið. Það er samt mikilvægt að
tapa ekki leikjum. Það er ekki
hægt að vinna alla leiki. Það var
frábært andrúmsloft á þessum
leik og ég er viss um að sigurinn
kemur fljótlega,“ sagði Brendan
Rodgers, stjóri Liverpool.
Roberto Mancini, stjóri City, var
nokkuð sáttur eftir leik.
„Mér fannst jafntefli vera sann-
gjörn úrslit. Við áttum ekki skil-
ið að tapa því við lékum vel fyrsta
hálftímann og áttum færi til að
skora. Við vorum samt ekki upp á
okkar besta og það var mikilvægt
að tapa ekki. Það verður samt að
viðurkennast að seinna mark-
ið okkar var gjöf frá Liverpool,“
sagði Mancini.
Man. Utd vann sinn fyrsta
sigur á tímabilinu er Fulham kom
í heimsókn. Nýliðarnir Robin van
Persie og Shinji Kagawa skoruðu
báðir í sínum fyrsta heimaleik en
United varð fyrir áfalli er Wayne
Rooney fékk stóran skurð á lærið.
„Þetta var mjög ljótt og það lítur
út fyrir að hann verði frá í fjórar
vikur. Rodallega fór með takkana
í hann en þetta var að sjálfsögðu
slys,“ sagði Sir Alex Ferguson,
stjóri Man. Utd, eftir leikinn.
Stjórinn gat þó glaðst yfir því að
þeir Van Persie og Shinji Kagawa
náðu vel saman og léku vel.
„Þetta var fínt hjá þeim. Við
erum rétt að byrja og þeir eiga
eftir að ná betur saman. Fyrri
hálfleikur var frábær hjá okkur.
Við hefðum hæglega getað skor-
að fimm eða sex mörk. Það var
dapurt hjá okkur að gefa mark og
hleypa þeim inn í leikinn. Það var
óþarfi.“ - hbg
Van Persie og Kagawa skoruðu á meðan Rooney meiddist – Liverpool missti unninn leik niður í jafntefli:
Skrtel færði Tevez mark á algjöru silfurfati
HVAÐ VAR ÉG AÐ GERA? Tevez fagnar á meðan Skrtel heldur utan um höfuð sér. Veit
upp á sig skömmina. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Stjarnan varð á laugar-
daginn bikarmeistari kvenna eftir
1-0 sigur á Val á Laugardalsvell-
inum. Gunnhildur Yrsa Jónsdótt-
ir, fyrirliði Stjörnunnar, skoraði
markið níu mínútum fyrir leikslok
með glæsilegu skoti af 30 metra
færi efst upp í fjær hornið.
„Gunnhildur kom með þetta
frábæra skot í vinkilinn, drauma-
skot á draumastundu. Svona mörk
eiga að tryggja svona titla,“ sagði
Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir,
leikmaður Stjörnunnar, í leikslok
um sigurmark fyrirliðans.
Gunnhildur Yrsa tryggði Stjörn-
unni einnig sæti í úrslitum með
fallegu marki í framlengingu í
undanúrslitum gegn Þór/KA.
„Gunnhildur hefur verið að
spara þessi mörk í sumar og
kemur með þetta á góðum augna-
blikum fyrir framan fjölda áhorf-
enda, hún kann þetta stelpan. Hún
er að kóróna gott sumar, hún hefur
verið frábær fyrir okkur og það
er ekki leiðinlegt að skora svona
mark í svona leik. Þetta er frábært
fyrir hana og fyrir okkur,“ sagði
Harpa Þorsteinsdóttir, framherji
Stjörnunnar.
Harpa og Inga Birna Friðjóns-
dóttir fengu sitt hvort dauðafærið
í fyrri hálfleik en Brett Elizabeth
Maron varði í bæði skiptin vel í
marki Vals.
Valur skapaði sér engin færi í
leiknum og þurfti Sandra Sigurð-
ardóttir bara að verja eitt skot í
leiknum, langskot beint úr auka-
spyrnu. Valur gaf fá færi á sér og
fyrir utan færin tvö í fyrri hálf-
leik þá fékk Stjarnan fá færi þrátt
fyrir að Stjarnan væri mun sterk-
ari aðilinn og meira með boltann.
„Við ætluðum að berjast frá
fyrstu mínútu. Við vissum að
Valur væri með sterkt lið og það
væri erfitt að skora hjá þeim.
Við fengum nokkur færi sem við
náðum ekki að klára. Við nenntum
ekki í framlengingu og ákváðum
að klára þetta í lokin,“ sagði Gunn-
hildur Yrsa um leikinn.
„Ég nennti ekki í framlengingu
ég hugsaði að prófa að skjóta og
sem betur fer fór hann inn. Ég
smellhitti boltann, sem betur fer
því annars hefði þetta verið pínu
vandræðalegt. Ég var mjög ánægð
með að sjá hann inni,“ sagði hóg-
vær Gunnhildur Yrsa um markið
sem hún skoraði.
„Við börðumst allan leikinn
og áttum sigurinn skilinn. Við
vorum mjög þéttar á öllum vell-
inum, kantmennirnir komu inn
og við náðum að loka á öll þeirra
hlaup. Þær eru með sterkt lið og
mjög góðar fram á við og erfitt
að loka svona á þær,“ sagði Gunn-
hildur Yrsa sem sagði liðið aldrei
örvænta þó erfiðlega gengi að
skapa færi og nýta yfirburðina er
leið á leikinn.
„Við vissum að við myndum ná
að skapa okkur fleiri færi og að
boltinn myndi fara inn. Svo skipti
líka miklu máli að halda hreinu,“
sagði fyrirliðinn að lokum.
Þorlákur Már Árnason, þjálf-
ari Stjörnunnar, sagði reynsluna
sem Stjarnan hefur öðlast síðustu
ár hafa skilað bikarnum í hús en
Stjarnan varð Íslandsmeistari í
fyrsta sinn á síðustu leiktíð og
varð bikarmeistari í fyrsta sinn á
laugardaginn.
„Ég held að það hafi verið
reynsla sem skildi á milli að
lokum, sem kom mér á óvart. Það
var ró yfir okkar leik og þolin-
mæði. Kannski hafi yngri leik-
menn Vals orðið óþreyjufullir og
pirraðir þegar það fór að líða á
leikinn. Þetta er nýtt fyrir okkur
því Valur var með reynslumesta
lið deildarinnar í fyrra. Ég held að
það hafi á endanum skilað þessu,“
sagði Þorlákur.
„Við höfum spilað vel í sumar
og sýnt mikinn karakter því það
hefur verið sótt að okkur. Deild-
in er sterk og liðin hafa ekki van-
metið okkur, það er á hreinu. Við
höfum þurft að hafa mikið fyrir
þessu í sumar og að vinna þennan
bikar, vera í öðru sæti í deildinni
og vinna meistara meistaranna
sýnir styrkinn í þessu liði,“ bætti
Þorlákur við. - gmi
ÉG NENNTI EKKI Í FRAMLENGINGU
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, tryggði liði sínu sögulegan sigur á Val með algjöru
draumamarki í úrslitum Borgunarbikarsins. Þetta var fyrsti sigur Stjörnunnar í bikarkeppninni.
FÖGNUÐUR Gunnhildur Yrsa fagnar
glæsimarki sínu á efri myndinni og lyftir
svo bikarnum eftirsótta á myndinni fyrir
neðan. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL