Fréttablaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 43
Snillingar óskast
Vegna nýrra og spennandi tækifæra, bæði í vöruþróun og verkefnum fyrir alþjóðlega viðskiptavini, þurfum
við að bæta við okkur öflugum hugbúnaðarsérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu.
Starfsumhverfið er mjög áhugavert, verkefnin krefjandi og viðskiptavinirnir spennandi.
Spennandi störf við hönnun og þróun á stöðluðum, alþjóðlegum hugbúnaði
í öflugu og kröfuhörðu þróunarteymi með góðan starfsanda.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun
· Haldgóð reynsla af þróun hugbúnaðarkerfa
· Metnaður, öguð vinnubrögð og góð samstarfshæfni
Sérfræðingar
í hugbúnaðarþróun
Hugbúnaðarprófanir
Tæknileg sérfræðiráðgjöf
Tækifæri til að byggja upp öflugt umhverfi fyrir prófanir á lausnum
fyrir kröfuharða alþjóðlega viðskiptavini.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Haldgóð reynsla af prófunum
· Háskólamenntun á sviði upplýsingatækni æskileg
· Góð enskukunnátta er nauðsynleg
Fjölbreytt tækifæri í þjónustu og ráðgjöf á sviði DNS, DHCP og IP-stjórnun.
Við þjónum alþjóðlegum stórfyrirtækjum á okkar fagsviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun
· Haldgóð reynsla af þjónustu hugbúnaðarkerfa og netkerfum
· Góð enskukunnátta er nauðsynleg
Upplýsingar um störfin veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is)
og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) ráðgjafar hjá Intellecta í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst nk.
Allar umsóknir og fyrirspurnir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál
og þeim svarað.
Umsóknir óskast fylltar út á www.intellecta.is. Umsókn um störfin
þarf að fylgja starfsferilskrá.
Menn og mýs er rótgróið hugbúnaðarfyrirtæki,
stofnað árið 1990. Menn og mýs þróar staðlaðar
hugbúnaðarlausnir fyrir alþjóðlegan markað.
Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun og sölu
hugbúnaðarlausna fyrir IP address management
í Microsoft og Linux netumhverfum.
Viðskiptavinir okkar eru alþjóðleg stórfyrirtæki sem
þurfa heildstæða lausn við stjórnun og eftirlit á DNS,
DHCP og IP-skilgreiningum. Verkefni fyrir Microsoft,
Intel, Xerox, HP, Shell, IMF, Sprint, Nestlé, Unilever,
Monsanto, Bosch, T-Mobile og VMWare eru meðal
viðfangsefna okkar.
PIPA
R\TBW
A
· SÍA
· 122249