Fréttablaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 96
11. ágúst 2012 LAUGARDAGUR52
sport@frettabladid.is
ÞÓRIR HERGEIRSSON getur í dag endurskrifað sigursæla þjálfarasögu norska kvennalandsliðsins í handbolta með því
að verða fyrsti þjálfarinn sem vinnur öll þrjú stærstu mótin í einni runu. Þórir gerði norsku stelpurnar að Evrópumeisturum
2010 og Heimsmeisturum 2011 og vinni þær Svartfjallaland klukkan 19.30 í kvöld þá bætir hann Ólympíumeistaratitlinum
við. Þórir hefur þegar unnið sex gull, þrjú silfur og eitt brons sem aðal- eða aðstoðarþjálfari norska liðsins.
ÓL 2012 Á morgun er lokakeppnis-
dagur Ólympíuleikanna í Lond-
on og eins og venja er verður
þá keppt í maraþonhlaupi karla,
þeirri sögufrægu keppnisgrein.
Kári Steinn Karlsson verður á
meðal hlauparanna sem munu
þeysast um stræti Lundúna í
fyrramálið.
Hlaupið er nákvæmlega 42
kílómetrar og 195 metrar sem
samsvarar þeirri vegalengd sem
gríski hermaðurinn Filippídes
mun hafa hlaupið fyrir rétt um
2500 árum síðan. Þá hljóp hann
frá borginni Maraþon til Aþenu
til að flytja þær fréttir að Grikkir
hefðu haft betur í orrustu þeirra
við Persa.
Líkaminn tók vel við hvíldinni
„Þetta er grein sem allir þekkja
og á góða tengingu við sögu
Ólympíuleikanna. Óneitanlega er
gaman að fá að vera hluti af því,“
sagði Kári Steinn í samtali við
Fréttablaðið.
„Þess fyrir utan er sá hópur
hlaupara sem hefur glímt við
maraþon sístækkandi og mjög
margir sem finna samsvörun
með manni. Hlaupaíþróttin hefur
stækkað mjög á undanförnum
árum en fyrir örfáum árum vissu
fáir hvað þætti góður tími í mara-
þonhlaupi og 10 km hlaupi.“
Kári Steinn hefur þurft að bíða
Vil helst ekta breskt suddaveður
Kári Steinn Karlsson etur kappi við bestu maraþonhlaupara heims í hinu fornfræga maraþonhlaupi á
Ólympíuleikunum í London. Hlaupið markar endalok leikanna sem verður formlega slitið annað kvöld.
TILBÚINN Kári Steinn Karlsson mun hlaupa um götur Lundúna á morgun þegar
maraþon karla fer fram á lokadegi Ólympíuleikanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kári Steinn Karlsson viðurkennir að hann sé orðinn þreyttur á að borða
kolvetnaríkt fæði í hvert mál, eins og hann þarf að gera nú í aðdraganda
maraþonhlaupsins á morgun.
„Kvöldið fyrir keppni fæ ég mér líklega pasta í kvöldmat. Svo rétt áður
en ég fer að sofa fæ ég mér hafrakex og kolvetnadrykk,“ segir hann. „Ég
vakna svo um fjórum tímum fyrir hlaupið og fæ mér þá brauð, banana og
kolvetnadrykk.“
Hann segir að þetta taki sinn toll. „Maður verður hálf þungur í hausnum á
þessu. En það er nauðsynlegt að hlaða líkamann og fylla á glýkógenbirgðir
vöðvanna,“ segir Kári Steinn sem mun taka sér hvíld frá kolvetnum eftir
morgundaginn.
„Það væri örugglega ekki leiðinlegt að vaða í góðan hamborgara eða
væna steik eftir hlaupið,“ bætir hann við.
Hlakka til að vaða í steikina
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
og Valgarður
Gíslason
fjalla um ÓL 2012
eirikur@frettabladid.is - valli@frettabladid.is
lengi eftir sinni grein á Ólympíu-
leikunum en hann hefur þó eytt
drjúgum tíma í æfingabúðum í
Bournemouth, fjarri erli ólymp-
íuþorpsins.
„Það er langt síðan ég kom
hingað út en ég var búinn að stilla
mig inn á þetta og því hefur biðin
ekki verið erfið. Það var gott að
fara til Bournemouth því þar gat
ég einbeitt mér algjörlega að und-
irbúningnum.“
Hann segist ánægður með
hvernig æfingar hafi gengið. „Ég
hef ekki verið að reyna mikið á
mig síðustu vikurnar enda verið
að trappa mig niður eftir þungar
æfingar fram að því. Það er alltaf
spurning hvernig líkaminn bregst
við slíkum breytingum en hann
hefur verið að taka hvíldinni mjög
vel. Ég er því orðinn mjög spennt-
ur fyrir hlaupinu,“ segir hann.
Ætla bara að kýla á það
Þótt ótrúlega megi virðast hefur
Kári Steinn aðeins tvívegis áður
hlaupið heilt maraþon. Fyrst í
Berlín í fyrra en þá náði hann
ólympíulágmarkinu og bætti
Íslandsmetið. Hann tók svo
„æfingamaraþon“, eins og hann
kallaði það, á Ítalíu í marsbyrjun.
„Ég efast um að það séu marg-
ir hér sem eru að hlaupa mara-
þon í aðeins þriðja skiptið. Þetta
er mikil reynslugrein og hún
er grimm að því leyti að maður
þarf að hitta á góðan dag þegar
að hlaupinu kemur – þá þarf allt
að smella. Til þess þarf maður
reynslu og er ég með þeim
reynsluminni í hópnum. Ég læt
það þó ekki hafa áhrif á mig og
ætla bara að kýla á það.“
Íslandsmet Kára Steins er
2:17,12 klst. og bæting á morg-
un væri afar góður árangur hjá
honum. Það spilar þó margt inn í,
eins og veðurfar.
„Ég ætla samt ekki að stressa
mig á veðrinu, enda stjórna ég því
ekki. Það getur verið varasamt
að hlaupa í meira en 30 gráðu
hita en eftir því sem ég best veit
er ólíklegt að það verði svo heitt.
Ef það verður mjög hlýtt þarf ég
að passa mig á því að drekka vel,
sérstaklega á meðan á hlaupinu
stendur,“ segir hann.
„En best væri auðvitað að fá
ekta breskt veður – 15 gráðu hita,
smá rigningu og golu,“ bætir hann
við brosandi.
Hlaupið hefst klukkan 11 að
staðartíma sem er heldur seint að
mati Kára Steins. „Það hefði verið
eðlilegri tími að byrja klukkan 9.
Þetta þýðir að við erum að koma í
mark um eittleytið sem er í kring-
um heitasta tíma dagsins. Ef það
verður steikjandi hiti verður mjög
erfitt að taka síðustu kílómetr-
ana.“
Dýragarður mannkynsins
Kári Steinn hefur nú verið í
ólympíuþorpinu í nokkra daga
eftir að hafa komið til baka frá
Bourne mouth. Hann segir þó
maraþonhlaupara frá Íslandi ekki
vekja sérstaka athygli.
„Nei, ég fæ engin sérstök við-
brögð. Þetta er hálfgerður dýra-
garður mannkynsins þarna inni
og miklar öfgar í allar áttir. Allir
íþróttamennirnir hafa lagt gríðar-
lega mikið á sig og eru allir öfga-
fullir á sínu sviði. Þeim finnst
ekkert svakalega merkilegt að
hlaupa maraþon.“
ÓL 2012 Úrslitaleikir helstu bolta-
greinanna á ÓL í London fara
fram í dag og á morgun.
Í dag klukkan 14.00 spila
Brasilíumenn og Mexíkóbúar til
úrslita í knattspyrnu karla og
í kvöld verður spilað til úrslita
hjá konunum í handbolta (Nor-
egur-Svartfjallaland) og körfu-
bolta (Bandaríkin-Frakkland). Á
morgun fara síðan fram úrslita-
leikirnir í handbolta karla og
körfubolta karla og hefjast þeir
báðir klukkan 14.00.
Brasilíumenn eru sigurstrang-
legasta þjóðin í sögu HM í fót-
bolta með fimm heimsmeistara-
titla en þeir eiga enn eftir að
vinna ólympíugull. Brassar hafa
beðið lengi eftir gullinu (2 silfur
og 2 brons) en brasilíska liðið
er líklegt til að ná loksins gull-
inu í dag enda búið að vinna alla
fimm leiki sína á leikunum.
- óój
Úrslitaleikir á ÓL í London:
Ná Brassarnir
loksins gullinu?
NEYMAR Hvað gerir einn sá allra efnileg-
asti í úrslitaleiknum í dag? NORDICPHOTOS/AFP
Ódýr Heilsársdekk Á Tilboði
Dekkverk Lyngási 20 Garðabæ
Við erum alltaf með ódýrasta verðið sem við getum boðið upp á :D
Opið alla daga 10-19 Laugardaga og Sunnudaga líka
Þó að við sofum stundum yfir okkur um helgar ;)