Fréttablaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 11.08.2012, Blaðsíða 10
10 11. ágúst 2012 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Stjórnarflokkarnir unnu kosningasigur allra tíma fyrir þremur árum. Skoð-anakannanir sýna að sam- anlagt fylgi þeirra er nú nærri fjörutíu prósentum minna. Þegar rúmir átta mánuðir eru til kosninga er þrátt fyrir þetta alls ekki víst að dagar ríkisstjórnarinnar séu tald- ir. Hún gæti átt möguleika á fram- haldslífi. Í síðustu kosningum sat Sjálf- stæðisflokkurinn uppi með póli- tíska ábyrgð á hruni krónunnar og falli bankanna. Afhroð var því óhjákvæmilegt. Hann hefur bætt stöðu sína verulega án þess þó að líkur á stjórnaraðild séu að sama skapi meiri. Framsóknar- flokkurinn axl- aði líka póli- tíska ábyrgð á hruninu þótt hann væri utan stjórnar þegar það varð. Honum hefur ekki tekist að hagnýta stöðu sína í stjórnar- andstöðu til að auka fylgið. Það sýnir að hring- landaháttur, upphrópanir og Evr- ópuandstaða eru ekki sjálfgefin efni í uppskrift að góðum bakstri í pólitík. Þrír smáflokkar á vinstri vængn- um eiga nú fulltrúa á Alþingi. Nái þeir ekki flugi á næstu mánuðum duga þeir ekki til að gefa ríkis- stjórninni framhaldslíf. Einn smá- flokkur til hægri stefnir á fram- boð. Eins og sakir standa virðist það ekki breyta miklu um mögu- leika Sjálfstæðisflokksins á stjórn- armyndun. Jafnvel er tvísýnt um að samstarf við Framsóknarflokkinn dugi til meirihlutastjórnar. Af þessu má ráða að framhalds- líf ríkisstjórnarinnar veltur á því hvort henni tekst að fá Framsókn- arflokkinn og einn eða tvo af smá- flokkunum til liðs við sig. Að öllu óbreyttu verður að telja meiri líkur en minni á að svo fari. Stjórnar- stefnan yrði óbreytt en hrossakaup- in meiri um einstök hugðarefni. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is SPOTTIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Er möguleiki á framhaldslífi? Stjórnarflokkarnir áttu alla möguleika á að grípa til markvissra aðgerða í efnahagsmálum og skella um leið skuldinni af óvinsælum ráðstöfunum á stjórnarandstöð- una. Það tókst í byrjun að því er varðar ríkisfjármálin. En eftir að efnahagsáætlun Alþjóðagjald- eyrissjóðsins lauk hefur málefna- staðan veikst. Lausatök á ríkisfjármálum er ein mesta váin sem þjóðin stend- ur andspænis. Þau eru hins vegar heldur til vinsælda fallin meðan unnt er að fá lán og halda hluta útgjaldanna utan ríkisbókhalds- ins. Ríkisstjórnin ætlar að nota þetta svigrúm til að sannfæra þjóðina um efnahagslegan upp- gang. Það bragð gæti dugað í nokkra mánuði. Hugsanlega má fá fólk til að trúa því að í raun hafi tekist betur til hér en annars staðar. Þó að það sýnist í fyrstu þverstæðu- kennt er það samt svo að síbylja Morgunblaðsins gegn stefnu þeirra ríkja sem sýnt hafa mesta efnahagslega ábyrgð á evrusvæð- inu hjálpar ríkisstjórninni með þessa tálsýn. Þá virðist ríkisstjórnin gera ráð fyrir að vinsældir hennar aukist ef henni tekst að ná höfuðstefnu- málum sínum fram. Þau endur- spegla hins vegar þá pólitísku klípu Samfylkingarinnar að hún er nær því að vera sósíalískur vinstri flokkur en jafnaðarmanna- flokkur. Náist þessi mál fram mun það styrkja forystuna inn á við en veikja flokkinn að sama skapi út á við gagnvart jaðarfylginu hægra megin sem er að yfirgefa hann. Betra gengi með flokksmálin er því ekki endilega ávísun á meira kjörfylgi, nema síður sé. Flokksmálin eru veikleiki Þó að Framsóknarflokk-urinn hafi verið í harðri stjórnarandstöðu er ólík-legt að hann vilji láta kosningarnar snúast um það hvort stjórnarandstaðan eigi að leysa rík- isstjórnina af hólmi. Hann mun því halda hinum kostinum jafn opnum að ganga til liðs við ríkisstjórnina. Það þýðir aftur að enginn veit fyrir hvað flokkurinn stendur. Hann á því litla möguleika á berja í bresti trúverðugleikans. Vandi Sjálfstæðisflokksins er sá að hann getur ekki bent á Fram- sóknarflokkinn sem öruggan sam- starfsflokk. Þá mun Morgunblaðið ekki fallast á samstarf við Sam- fylkinguna jafnvel þó að svo ólík- lega færi að hægri armur hennar næði undirtökunum. Málefnalega er síðan erfitt að benda á VG sem eftirsóknarverðan kost til að vinna með. Til að bæta úr þessu þarf Sjálf- stæðisflokkurinn að sýna skýrari áætlun um hvernig ná á Íslandi út úr pólitískri blindgötu stjórn- arflokkanna í efnahagsmálum og trúverðugri hugmyndir um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu til lengri tíma. Jafnframt þurfa fleiri stjórnarmyndunarkostir en Fram- sóknarflokkurinn að vera sýnileg- ir. Að þessu virtu virðist Sjálfstæð- isflokkurinn eiga meiri möguleika en aðrir til að koma ár sinni betur fyrir borð fái hann meiri tíma. Ekki er þó víst að honum takist að nýta hann til þess eða hafi hug á því. En eini öruggi krókur stjórnarflokk- anna á móti slíku bragði er að efna til kosninga í haust. Herkænska af því tagi er þó heldur ólíkleg. Vandi stjórnarandstöðunnar Olweusaráætlunin* Tekið við umsóknum frá leik-, grunn- og framhaldsskólum fyrir skólaárið 2012-2013. Námskeið fyrir verkefnisstjóra hefst í lok ágúst og í byrjun árs 2013. Nánari upplýsingar á www.olweus.is og í síma 8942098. *styrkt af Pokasjóði M enntun ungs fólks er ávísun á aukin lífsgæði í framtíðinni. Það er sama hvert litið er, fylgni milli menntunar og þátta sem almennt flokkast sem gæði í lífinu er mikil. Menntunarstig þjóðarinnar hefur aukist veru- lega á umliðnum árum. Engu að síður er hlutfall ungs fólks í námi eftir grunnskóla lægra en á Norðurlöndunum og brottfall nemenda úr framhaldsskólum er yfir meðaltali í ríkjum OECD. Eitt af verkefnum þjóðarinnar er að að stuðla að áframhaldandi þróun í átt til aukinnar mennt- unar. Í stefnumörkuninni Ísland 2020 er einmitt að finna það ágæta markmið að lækka hlut- fall þeirra sem ekki hafa hlotið formlega framhaldsmenntun. Á veltiárunum í aðdraganda hrunsins gætti þess nokkuð að ungt fólk flosnaði upp úr námi vegna þess að því bauðst vinna sem gaf vel í aðra hönd. Þannig hafði góðærið í raun neikvæð áhrif á menntun ungs fólks. Þegar atvinnuleysi varð hér allt í einu mælanlegt, eftir langt tímabil þar sem það var nærri óþekkt, jókst áhugi ungs fólks á að sækja nám. Framan af var þó ekki mögulegt að vera á bótum frá Vinnumálastofnun og stunda nám um leið. Í fyrrahaust var svo tilbúin leið sem opnaði á þennan mögu- leika, Nám er vinnandi vegur. Nám er vinnandi vegur er sett fram sem átak til þriggja ára og skólaárið sem fram undan er er annað árið af þremur í átakinu. Átakið var annars vegar ætlað nemendum sem þáðu bætur frá Vinnumálastofnun og hins vegar var um að ræða nemendur á aldrinum 18 til 24 ára sem innrituðust í fram- haldsskóla til viðbótar við þá nemendur sem ráð hafði verið fyrir gert. Nærri 1500 nemendur innrituðust í framhaldsskóla undir formerkjum átaksins. Talsvert brottfall var úr hópnum á haustmisserinu eða rúm- lega 20 prósent. Náms- og starfsráðgjöf var efld í þeim skólum sem tóku þátt í átakinu og nemendahópnum fylgt sérstaklega eftir með það fyrir augum að koma í veg fyrir brottfall. Á vorönn sýndi sig sá ánægjulegi árangur að dregið hafði úr brottfalli nánast um helming. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur nú lýst því yfir að hún vilji gera Nám er vinnandi vegur að varanlegu úrræði, jafnvel þótt nú hafi dregið úr atvinnuleysi og líklegt sé að það eigi enn eftir að minnka á komandi misserum. Ungt fólk og lítið menntað er og verður alltaf sá hópur sem atvinnuleysi mun bitna hvað mest á og fáar leiðir eru líklega betur til þess fallnar að rjúfa atvinnuleysi ungs fólks en að hvetja það duglega og gera því um leið kleift að bæta við sig menntun. Fyrir einstaklinginn er menntunin lykill að auknum lífs- gæðum, bæði andlegum og efnislegum, og fyrir samfélagið allt er hærra menntunarstig þjóðarinnar lykill að aukinni almennri velsæld. Fé sem varið er til þess að mennta ungt fólk, bæði fólk sem hvort heldur sem er hefði farið í nám og hina sem að öðrum kosti væru aðgerðalitlir á bótum, er vel varið og mun skila sér til samfélagsins aftur með vöxtum. Mikilvægt að gera ungu fólki kleift að stunda nám fremur en að verða aðgerðaleysi að bráð: Menntun er lykill Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.