Fréttablaðið - 08.09.2012, Síða 32
8. september 2012 LAUGARDAGUR32
STÖÐUPRÓF
Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð
13. september kl. 16:00 í eftirfarandi tungumálum:
Albönsku, bosnísku, eistnesku, filippísku (tagalog og
cebuano), finnsku, grísku, hollensku, japönsku, kínversku,
króatísku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, ser-
bnesku, slóvensku, taílensku, tékknesku, tyrknesku, Twi,
ungversku, úkraínsku og víetnömsku.
Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans
http://www.mh.is/skolinn/exam/. Frekari upplýsingar á
skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskil-
ríki með mynd í prófinu.
Prófgjald, kr. 8000 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á
reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323 hb 26
nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslufrestur er til hádegis á
prófdegi, nauðsynlegt er að fram komi nafn og kennitala
próftaka. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi
verið greitt.
PLACEMENT TESTS
Placement tests (for Secondary School credit) will be held
at Menntaskólinn við Hamrahlíð on September 13th at 4
pm in the following languages:
Albanian, Bosnian, Chinese, Croatian, Czech, Dutch,
Estonian, Filipino (tagalog and cebuano), Finnish, Greek,
Hungarian, Japanese, Lithuanian, Portugese, Polish,
Russian, Serbian, Slovenian, Thai, Turkish, Twi, Ukranian
and Vietnamese.
On-line registration takes place on the school website
http://www.mh.is/skolinn/exam/. For more information
call the school office tel. 595-5200. Everyone sitting the
test must show an ID with a picture.
The fee, kr. 8000 per test, should be paid to the account
of the Menntaskólinn við Hamrahlíð bank 323 – 26 –
account no. 106, id. 460269-3509 before noon on the
13th. Please provide the name and identification number
of the examinee when paying. Only those that have paid
can sit the exam.
Rektor.
því við að gera þann sem þurfti á
stoðtækjunum að halda eins sjálf-
stæðan og mögulegt var.
Ég man eftir því þegar við
vorum að þróa hugmynd að tæki
sem hjálpaði fólki að festa gervifót
á sig sjálft. Samstarfsfólk okkar í
Svíþjóð leit ekki á það sem sérstakt
vandamál því þar kom aðstoðar-
fólk heim til fólks á hverjum degi
og aðstoðaði það við að koma fæt-
inum á. Það gekk ekki á Íslandi;
hönnunin þurfti að miðast við að
sá sem notaði gervifótinn gæti ekki
aðeins sett hann sjálfur á sig, held-
ur þurfti hann líka að vera nógu
sterkur og liðlegur til að viðkom-
andi gæti stundað vinnu áfram.
Þetta gerði það að verkum að við
vorum að oft að þróa vörur fyrir
„super users“ og því ekki að undra
að niðurstaðan yrði góð. Fyrirtæk-
ið er því í draumastöðu í dag þar
sem núna er þetta orðin almennur
hugsunarháttur í endurhæfingu að
gera fólk eins sjálfstætt og mögu-
legt er og gera því kleift að lifa líf-
inu með reisn.“
Þriðji þátturinn sem skipti sköp-
um fyrir velgengni Össurar á upp-
hafsárum fyrirtækisins var að
efnahagslífið á Íslandi var að losna
úr læðingi og hleypa nýjum krafti
í atvinnulífið.
„Atvinnulífið á Íslandi hafði
verið fábreytt, eins og þekkt er,
eina raunverulega fyrirtækið
með hurðum og gluggum eins og
þau þekkjast á alþjóðavísu var
Eimskipafélagið. 10. áratugurinn
var að þessu leyti uppgangstími
„íslenska fyrirtækisins“; einstak-
lingsframtakið, sem fékk að njóta
sín, aukið fjármagn og alþjóðavæð-
ing gerðu nýsköpunarfyrirtækjum
á borð við Össur kleift að þrífast
og þróast.“
Að búa til verðmæti úr þekkingu
Þegar hann gekk til liðs við Össur
ímyndaði Hilmar Bragi sér ekki að
hann ætti eftir að vera þar næstu
tuttugu árin. Hugur hans hafði þó
alltaf staðið til rannsóknarstarfa
og hann ákvað að söðla um áður en
það yrði of seint.
„Það var komið að þeim tíma-
punkti að það var orðið spurning
um að hrökkva eða stökkva ef ég
vildi eiga einhvern frama að ráði
innan akademíunnar,“ segir hann.
Markmiðið sem forseti VON segir
hann vera að halda áfram að gera
Háskóla Íslands að öflugum rann-
sóknarháskóla og búa til verðmæti
úr þeirri þekkingu sem verður til.
„Það þarf að búa til kúltúr nýsköp-
unar þar sem rannsóknirnar eru
hagnýttar til að búa til verðmæti.“
Hilmar Bragi segir þetta ekki
kalla á nánari tengsl við atvinnu-
lífið heldur hreinlega samruna.
„Víðast hvar er þessi gamli grein-
armunur ekki gerður á háskóla og
atvinnulífi; háskólinn er hluti af
atvinnulífinu. Til að setja þetta í
samhengi má nefna að innan VON
eru flestir doktorsnemar á Íslandi
sem skilar sér í 300 ársverkum í
rannsóknartengdu námi. Þetta er
vinna sem var ekki til á Íslandi
fyrir nokkrum árum og felur í sér
fjölda tækifæra. Mitt starf er að
koma þeim í verð. Við eigum auð-
vitað ekkert að slaka á rannsóknar-
starfinu en það þarf líka að huga
að hagnýtingunni þannig að þekk-
ingin skili sér hratt og örugglega.“
Hilmar Bragi segir ótvírætt
að þekkingargeirinn hafi fest sig
í sessi sem ein af grunnstoðum
samfélagsins og standi traustum
fótum.
„Já, biddu fyrir þér. Fyrir ekki
svo löngu gátum við ekki mannað
yfirmannastöður í stærri fyrir-
tækjum. Nú eru forstjórar á borð
við Tómas Sigurðsson farnir að
færast upp á við í sínum fyrirtækj-
um og stýra þeim á alþjóðavísu. Við
erum líka með fjölda nýsköpunar-
fyrirtækja sem hafa unnið merki-
legt starf, Nox medical, Ment-
is cura, Stjörnuoddi, svo einhver
séu nefnd. Áhrifanna gætir líka
svo víða annars staðar. Umgengni
um auðlindir og stjórnun og skipu-
lagning nýtingar er allt önnur en
hún var og allt önnur viðmið höfð
að leiðarljósi, sem ég held að sé
einfaldlega afrakstur þekkingar-
geirans enda hafa margir sem þar
stjórna fengið uppeldi og leiðsögn
í nýsköpunarfyrirtækjum.“
Litlu fyrirtækin þurfa hvatningu
Það eru engin merki um það að
þessi þróun eigi eftir að ganga
til baka að mati Hilmars, því lífs-
gæði samfélagsins krefjist mun
verðmætari afurða en áður. Á
samdráttartímum sé „súpukjöts-
hagkerfið“ hins vegar aldrei langt
undan.
„Þá eru gerðar kröfur um fleiri
virkjanir, hærri aflaheimildir og
fiskeldi í hvern fjörð og svo fram-
vegis. Ég skil svo sem þessa þrá og
viljann til að reyna að kippa hlut-
unum í lag í einu vetfangi en þetta
eru ekki raunsæ langtímamark-
mið.“
Spurður út í hlut stjórnvalda
í þróun hátæknigeirans kveðst
Hilmar ætla að tala varlega því
hann sitji nú í skjóli hins opinbera.
„Almennt er ég á því að þetta
sé fyrst og fremst spurning um
frumkvæði, hver á að hafa það?
Ég trúi að frumkvæði einstaklinga
og einkaaðila ýti okkur fram á við,
ekki frumkvæði ríkisins. Hið opin-
bera blandar sér yfirleitt í leikinn
þegar hugmyndirnar hafa sann-
að sig og eru farnar að lofa góðu.
Kannski er ágætt að hið opinbera
ríði ekki á vaðið út í óvissuna held-
ur bíði átekta. Hitt er svo annað
mál að stundum verður maður jafn-
vel var við að menn reyni að eigna
sér frumkvæðið af einhverju sem
þeir tóku í rauninni ekki þátt í.“
Hilmar Bragi vill að stjórnvöld
marki sér skýrari stefnu gagn-
vart nýsköpunargeiranum og fylgi
henni eftir af festu.
„Nú þegar geiranum hefur vaxið
fiskur um hrygg beinist athyglin
kannski einum um of að fyrirtækj-
um sem hafa þegar sannað sig en
minna hugað að sprotafyrirtækj-
unum. Velgengni fyrirtækja á borð
við Össur ætti að beina athygli
stjórnvalda að litlu fyrirtækjun-
um – það eru þau sem þurfa á upp-
byggilegu umhverfi að halda.“
ESB ekki endilega fýsilegur kostur
Hilmar Bragi segir að með aðild
Íslands að EES-samningunum og
innleiðingu tilskipana tengdum
honum hafi komið tryggt ákveðið
athafnafrelsi. Stjórnvöld verði hins
vegar að marka skynsama stefnu
til framtíðar og forðast að taka upp
íþyngjandi og óskilvirkt regluverk,
sem þjóni „engum tilgangi nema til
að sýnast“. Spurður út í mögulega
inngöngu Íslands í ESB segist hann
gera fyrirvara.
„ESB kemur mér fyrir sjónir
sem þunglamalegt, óskilvirkt og
ósveigjanlegt bákn, fjarri þörfum
einstaklinga og þar með nýsköp-
unargeirans. Rannsóknaáætlanir
og samstarf innan Evrópusvæðis-
ins hefur hins vegar getið af sér
mjög athyglisverðar rannsóknir
og möguleika fyrir Íslendinga til
að byggja upp færni á ólíklegustu
sviðum.
Ég hef í sjálfu sér ekki skoðun
á inngöngu Íslands í ESB, því mér
finnst spurningin í rauninni ekki
aðkallandi. Ég skil vel röksemd-
irnar fyrir inngöngu; að fá stöð-
ugri gjaldmiðil, utanaðkomandi
aðhald og þar fram eftir götunum.
Staðreyndin er hins vegar sú að
áður en til þess kemur þurfum við
að taka rækilega til í eigin ranni; í
fjármálakerfinu, „etíkinni“, ríkis-
rekstrinum og svo framvegis. Það
er ekki fyrr en að þeirri tiltekt
lokinni sem það verður aðkallandi
spurning hvert skuli halda þaðan
og þá er ekkert víst að innganga í
Evrópusambandið verði jafn fýsi-
legur kostur, auk þess sem samn-
ingsstaða okkar væri þá hugsan-
lega mun betri.“
Sækjum það besta úr báðum
áttum
Sjálfum finnst Hilmari Braga það
fara Íslendingum vel að vera á
flekaskilum. Sjálfur starfar hann
enda á flekamótum vísinda og
verkfræði, hagnýtingar og grunn-
rannsókna. Hann bjó lengi í Kali-
forníu þar sem Össur er með stóra
starfsstöð og segir margt í Banda-
ríkjunum sem Íslendingar gætu
tekið til fyrirmyndar.
„Umræðan um bandarískt sam-
félag er ansi einsleit hér á landi
og í Evrópu og gefur dálítið vill-
andi mynd. Það er margt að sækja
til Bandaríkjanna, ekki síst fjöl-
menninguna sem þrífst þar og ein-
staklingsframtakið sem er verð-
launað; fjármálakerfið er öflugt
og umræðan afskaplega opin og
frjáls – þótt stjórnmálaumræðan
sem birtist í okkar fjölmiðlum sé
ekki endilega til marks um það.
Við höfum og getum lært margt
af Bandaríkjamönnum, án þess
að þurfa að að tileinka okkur allt í
þeirra fari. Það hefur sína kosti að
vera mitt á milli Bandaríkjanna og
Evrópu, bæði í landfræðilegum og
menningarlegum skilningi. Okkur
gæti farnast býsna vel að sækja
það besta úr báðum áttum.“
ÖSSUR Sem framkvæmdastjóri rannsókna- og vöruþróunarsviðs hjá Stoðtækjaframleiðandanum Össuri, átti Hilmar Bragi þátt í að gera fyrirtækið að einu framsæknasta fyrirtæki heims á sínu sviði. Fleira en hugvit átti
þátt í því að koma Össuri í fremstu röð, þar áttu einnig félagslegir, pólitískir og efnahagslegir þættir hlut að máli.” MYND/ÖSSUR
Nú þegar geiranum hefur vaxið fiskur um hrygg beinist
athyglin kannski einum um of að fyrirtækjum sem hafa
þegar sannað sig en minna hugað að sprotafyrirtækjun-
um. Velgengni fyrirtækja á borð við Össur ætti að beina athygli stjórn-
valda að litlu fyrirtækjunum – það eru þau sem þurfa á uppbyggilegu
umhverfi að halda.“
FRAMHALD AF SÍÐU 28