Fréttablaðið - 15.09.2012, Side 6
15. september 2012 LAUGARDAGUR6
SJÁVARÚTVEGUR Fulltrúar stjórnar-
andstöðunnar í trúnaðarmanna-
hópi fulltrúa stjórnmálaflokkanna
um stjórn fiskveiða eru sammála
um að formenn stjórnarflokkanna
hafi skuldbundið sig til að leggja
fram breytt frumvarp með þeim
breytingum sem hópurinn yrði
ásáttur um.
Stjórnarþingmenn sjá málið
í öðru ljósi. Landssamband
íslenskra útgerðarmanna telur
plaggið ekki skipta nokkru máli
og heildarendurskoðun á öllu mál-
inu þurfi að eiga sér stað. Það eigi
bæði við um nýsett lög um veiði-
gjöld og frumvarpið sem nú er til
umfjöllunar og verður lagt fyrir
þingið á næstu vikum.
Einar K. Guðfinnsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í hópnum,
segir fyrirliggjandi yfirlýsingu
formanna stjórnarflokkanna,
Jóhönnu Sigurðardóttur og Stein-
gríms J. Sigfússonar, um að þau
atriði sem hópurinn næði sam-
komulagi um yrðu lögð til grund-
vallar vinnu ríkisstjórnarinnar
við frumvarp um stjórn fiskveiða.
„Við náðum saman um mörg stór
veigamikil atriði sem þar með
hlýtur að sjá stað í frumvarpinu
sem lagt verður fram á haustþingi.
Um önnur atriði, sem við náðum
ekki saman um, hefur ríkisstjórn-
in óbundnar hendur. Yfirlýsing
stjórnarforystunnar frá því í vor
var eins skýr og hún gat verið.“
Einar telur ljóst að hópurinn
hefði aldrei sest niður ef þetta
atriði hefði ekki legið fyrir; að
vinnan hefði vigt.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
fulltrúi Framsóknar í hópnum,
segist hafa nákvæmlega sama
skilning og Einar á meðferð nið-
urstaðna trúnaðarmannahópsins.
„Við munum túlka það sem full-
komin svik ef þetta stendur ekki.
Ég trúi því ekki að oddvitar ætli
ekki að standa við það sem þeir
skrifuðu upp á.“
Björn Valur Gíslason, þingmað-
ur Vinstri grænna, sagði í viðtali
við Smuguna í gær að engin skuld-
binding fælist í niðurstöðum hóps-
ins. Ráðherra væri frjálst að fara
með tillögurnar eins og honum
þætti rétt.
Ólína Þorvarðardóttir, þing-
maður Samfylkingar, lagði fram
bókun á fundi atvinnuveganefnd-
ar þar sem tildrög hópsins, vinnu-
aðferðir og efnisatriði voru gagn-
rýnd. Í bókun Ólínu segir að
fjórmenningarnir hafi ekki hlotið
umboð atvinnuveganefndar eða
þingflokka stjórnarflokkanna til
sinna starfa. „Hópurinn er sjálf-
skipaður hluti nefndarmanna í
atvinnuveganefnd sem fengið
hefur samþykki forystumanna
ríkisstjórnarinnar til þess að leita
niðurstöðu sín á milli um fisk-
veiðistjórnunarfrumvarp atvinnu-
vegaráðherra sem sátt geti náðst
um,“ bókaði Ólína.
svavar@frettabladid.is
Ósammála um vægi
trúnaðarmannahóps
Fulltrúar stjórnarandstöðu segja ríkisstjórn bundna af niðurstöðum trúnaðar-
mannahóps um endurskoðun frumvarps um stjórn fiskveiða. Stjórnarliðar
undrast þá afstöðu eða hafna því að vinnan hafi vægi við frumvarpsgerðina.
Á DEKKI Hópurinn samþykkti að fella út 60/40 regluna og 3% klípuna svokölluðu, en það eru veigamikil atriði í málinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
„Mér sýnist augljóst að þau atriði
sem fjórmenningarnir hafa komið
sér saman um í greinargerð
sinni geti aldrei orðið grunnur
að neins konar „sátt“ um þetta
mál, að minnsta kosti ekki innan
stjórnarflokkanna,“ skrifar Ólína
Þorvarðardóttir við fyrirspurn
Fréttablaðsins. „Ég trúi því seint að
Samfylkingin muni víkja frá jafn-
ræðis- og atvinnufrelsiskröfunni
sem stefna okkar í sjávarútvegs-
málum byggir á og stjórnarsáttmálinn staðfestir. Krafan
um vaxandi og öflugan, opinn leigumarkað með afla-
heimildir er í mínum huga ófrávíkjanleg. Ég mun heldur
aldrei sætta mig við að komið verði á sams konar
gjafakvótakerfi í uppsjávar- og úthafsveiðum og því
sem nú er við lýði í botnfiskveiðum, eins og mér sýnast
tillögur hópsins gera ráð fyrir,“ segir Ólína.
„Aldrei grunnur
að neins konar sátt“
„Það þarf að endurskoða þetta allt saman. Frumvarpið
og lögin um veiðigjöld verða ekkert slitin í sundur.
Það er verið að leggja ofurskatt á útgerðina sem er
í sumum tilfellum meiri en allur hagnaður einstakra
fyrirtækja,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda-
stjóri LÍÚ, spurður hvaða þýðingu niðurstöður trúnaðar-
mannahóps stjórnmálaflokkana hafi. „Það er auðvitað
fjölmargt annað sem þarf að gæta að til við-
bótar við þau atriði sem hópurinn fjallar
um. Við leggjum áherslu á að allt málið
verði skoðað frá grunni. Það verður að
taka upp lögin um veiðigjöldin á sama
tíma og endurskoðun laga um stjórn
fiskveiða fer fram. Við eigum að vinna að
samráði atvinnugreinarinnar og stjórn-
málaflokkanna með það að leiðarljósi að
bæta hag greinarinnar og það sem við
höfum út úr því sem þjóð að nýta
auðlindina,“ segir Friðrik.
„Það verður að taka
málið allt upp aftur“
www.baendaferdir.is s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Skíðaferðirnar
okkar 2013 eru komnar í sölu!
Nánari upplýsingar á www.baendaferdir.is
Spennandi ferðir í beinu flugi til München á útvalda staði í Austurríki
HOLLAND, AP Frjálslyndi flokkurinn
og Verkamannaflokkurinn munu á
næstu dögum hefja stjórnarmynd-
unarviðræður eftir góða útkomu í
þingkosningunum í Hollandi í vik-
unni.
Flokkarnir hlutu samtals 79
þingsæti af 150, en þó gæti farið
svo að þeir tækju þriðja flokkinn
inn í viðræðurnar til að styrkja
meirihlutann, en flokkarnir tveir
eru ekki með meirihluta í öldunga-
deild þingsins.
Úrslit þingkosninganna þykja
vera sigur fyrir ESB-sinna þar í
landi þar sem flokkarnir tveir sem
bættu við sig mestu fylgi höfðu
lýst sig fylgjandi björgunaraðgerð-
um fyrir evrusvæðið.
Árangur frjálslyndra vakti sér-
staka athygli, en þeir bæta við sig
tíu þingsætum frá síðustu kosn-
ingum þrátt fyrir að hafa síðustu
misseri farið fyrir ríkisstjórn sem
hefur þurft að grípa til óvinsælla
aðhaldsaðgerða.
Þá tapaði Frelsisflokkur hins
umdeilda Geert Wilders níu
sætum og verður nú með 15 sæti.
Wilders hafði talað fyrir því að
Holland segði sig úr myntbanda-
laginu, en það virðist ekki hafa átt
hljómgrunn meðal kjósenda.
„Þeir fagna þessu í Brussel,“
sagði Wilders þegar ljóst var í
hvað stefndi.
Þó viðræður stóru flokkanna
hafi verið boðaðar eiga þeir tals-
vert óuppgert þar sem Verka-
mannaflokkurinn er hallur undir
að ýta undir hagvöxt með opin-
berum verkefnum á meðan frjáls-
lyndir vilja halda áfram aðhalds-
stefnu sinni, sem hafi gengið
ágætlega hingað til. - þj
Óvæntur sigur Frjálslynda flokksins í hollensku þingkosningunum:
ESB-flokkar í stjórnarmyndunarviðræður
SIGURREIFUR Mark Rutte forsætis-
ráðherra og Frjálslyndi flokkurinn unnu
óvæntan sigur í þingkosningunum í
Hollandi. Hann mun að öllum líkindum
reyna að mynda stjórn með Verka-
mannaflokknum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fylgdist þú með eldhúsdagsum-
ræðum á Alþingi?
JÁ 22,9%
NEI 77,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú keypt þér rafbók?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
KJÖRKASSINN