Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 8
15. september 2012 LAUGARDAGUR8
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
DAGUR
ÍSLENSKRAR
NÁTTÚRU
P
O
K
A
H
O
R
N
IÐ
Kæru landsmenn!
Til hamingju með
Dag íslenskrar náttúru
sunnudaginn 16. september.
Í aldanna rás hefur íslensk náttúra
gefið kraft og veitt innblástur um
leið og hún hefur gert okkur kleift að
lifa af í harðbýlu landi.
Í náttúru landsins er falinn fjársjóður
sem mikilvægt er að varðveita fyrir
komandi kynslóðir.
Njótum gjafa náttúrunnar og fögnum
Degi íslenskrar náttúru
sunnudaginn 16. september.
Upplýsingar um dagskrá er að finna á
www.umhverfisraduneyti.is.
1. Hverjir vilja bílaklukkur í stað
gjaldmæla í Reykjavík?
2. Hver hlaut Sjónlistaverðlaunin
2012?
3. Hvaða leikari úr sjónvarps-
seríunni The Wire kynnti ráðstefnu-
dagskrá ásamt Jóni Gnarr?
SVÖRIN
1. Samtök kaupmanna og fasteignaeig-
enda við Laugaveg og Miðborgin okkar.
2. Ragnar Kjartansson. 3. Clarke Peters.
STÖÐUGT NÝJAR FRÉTTIR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
ORKUMÁL Ef ráðist yrði í allar fyr-
irliggjandi virkjanaframkvæmdir
á Íslandi myndi orkuframleiðsla
Íslendinga aukast um rúm 42 pró-
sent. Yrðu þær allar að veruleika
gætu skapast um fjögur til fimm
þúsund bein störf. Fjárfestingaþörf
vegna þessara verkefna er yfir 300
milljarðar króna fyrir utan nauð-
synlegar breytingar á orkuflutn-
ingskerfinu. Þetta kemur fram í
skýrslu Íslandsbanka um orku-
markaðinn sem kynnt var í gær-
morgun.
Í skýrslunni kemur fram að
Ísland sé í þrettánda sæti á meðal
Evrópuþjóða þegar kemur að raf-
orkuframleiðslu úr endurnýjan-
legum auðlindum. Ísland er hins
vegar með langmestu endurnýjan-
legu raforkuframleiðsluna í heim-
inum miðað við höfðatölu.
Alls eru fjórtán virkjanafram-
kvæmdir í bið eða til skoðunar hjá
Landsvirkjun, Orkuveitu Reykja-
víkur (OR) og HS Orku. Bygging
einnar þeirra, Búðarhálsvirkjun-
ar, hófst haustið 2010 og á að ljúka
í lok næsta árs. Orkan úr henni
mun fara til álversins í Straums-
vík. Áætlanir gera ráð fyrir að
framkvæmdir við byggingu hinna
þrettán hefjist á árunum 2012
til 2015. Sex þeirra eru enn ekki
komnar með tilgreind orkukaup en
sjö eiga að sjá álverinu í Helguvík
fyrir orku, náist samkomulag við
eiganda þess, Norðurál, um verð.
Samanlagt uppsett afl þessara
fjórtán virkjanakosta er 995 mega-
vött. Því er um að ræða aukningu
upp á rúm 42 prósent frá því sem
nú er framleitt af orku hérlendis.
Í skýrslunni segir að „flestar
þessar virkjanir eru á útboðshönn-
unarstigi, þ.e. allri verkhönnun er
lokið og hægt er að ráðast í verk-
efnin með stuttum fyrirvara svo
fremi sem kaupandi að orkunni er
til staðar […] Ef allar ofangreindar
fyrirhugaðar virkjanir fara í fram-
kvæmd gætu skapast um 4.000-
5.000 bein störf hér á landi“.
Íslandsbanki áætlar gróflega
að fjárfestingaþörfin til að hrinda
þessum verkefnum í gagnið sé yfir
300 milljarðar króna. Til viðbótar
þyrfti Landsnet að fjárfesta fyrir
um 75 milljarða króna fram til árs-
ins 2020 vegna nýrra virkjana og
þróunar á flutningakerfi fyrir raf-
orku. „Fari framkvæmdir af stað
munu þær hafa gríðarleg áhrif á
íslenskt efnahagslíf.“ Íslandsbanki
telur vel mögulegt að fjármagna
verkefnin, til dæmis með verkefna-
fjármögnun sem felur í sér stofnun
félags í kringum ákveðið verkefni.
Í skýrslunni segir að helstu
hindranir sem orkufyrirtæk-
in standi frammi fyrir í dag séu
óvissa á alþjóðlegum markaði sem
dregur úr eftirspurn eftir íslenskri
orku, mikil skuldsetning orkufyr-
irtækjanna og breyttar áherslur
í rekstri sem valda því að fram-
kvæmdir eru settar í bið og óvissa
skapast um fjármögnun þeirra. Þá
sé það vandamál að rammaáætlun
liggi enn ekki fyrir og ljóst sé að
pólitísk áhætta vegna breytinga á
reglum eftir að „leikur er hafinn“
hafi fælandi áhrif á erlenda fjár-
festa. thordur@frettabladid.is
Gætu skapað
5.000 ný störf
Fyrirliggjandi virkjanakostir myndu hafa „gríðarleg
áhrif á íslenskt efnahagslíf“ samkvæmt skýrslu
Íslandsbanka. Kosta yfir 300 milljarða króna. Orku-
framleiðsla myndi aukast um 42 prósent.
ORKA Skýrsla Íslandsbanka um orkumarkaðinn var kynnt á Nauthóli í gærmorgun.
Þar kom meðal annars fram að íslensk sérþekking í geiranum væri í útrás.
Skýrslan fjallar einnig um þann stóra geira sem þrífst á að þjónusta
orkugeirann. Alls starfa rúmlega 1.260 manns hjá átta verkfræði- og
þjónustufyrirtækjum innan hans. Fyrirtækin eru EFLA, ÍSOR, Jarðboranir,
Mannvit, Orkustofnun, Reykjavík Geothermal, Verkís og VSÓ. Starfsmönnum
þessara fyrirtækja hefur fækkað um 100 frá árinu 2008 en fjöldi þeirra sem
starfa við orkutengd verkefni hefur þó aukist á sama tíma. Sú aukning er
að nánast öllu leyti vegna aukinna umsvifa þeirra erlendis þar sem sjö af
þessum átta fyrirtækjum eru með starfsemi.
Hlutfall erlendrar veltu verkfræðifyrirtækjanna af heildarveltu þeirra er mis-
jafnt en nær öll erlend verkefni þeirra eru orkutengd verkefni.
Í skýrslunni segir að fjárhagsstaða íslensku orkufyrirtækjanna og ákvörðun
þeirra um að fresta stærri verkefnum hafi keðjuverkandi áhrif á verkfræði-
og þjónustufyrirtækin.
Umfangsmikill hliðargeiri í útrás
EFNAHAGSMÁL Framsóknarflokkur-
inn vill að skattkerfið verði nýtt
til að grynnka á skuldum heimil-
anna. Þetta kemur fram í nýrri
tillögu flokksins sem Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson, formað-
ur flokksins, kynnti á fundi á
fimmtudag.
Samkvæmt tillögunni munu
afborganir fasteignalána vera
frádráttarbærar frá tekjuskatti.
Skattaafslátturinn yrði lagður
beint inn á höfuðstól viðkomandi
fasteignaláns og fasteignalánin
færð niður í 100 prósent af fast-
eignamati. Með þessu yrði fólk
hvatt til að greiða niður fasteigna-
lán sín. Tillaga framsóknarmanna
verður lögð fram sem þingsálykt-
unartillaga á Alþingi og verður
kynnt nánar þegar þar að kemur.
Sigmundur Davíð kynnti grunn-
atriðin fyrir gestum á fundi á
Grand hóteli og var verðtrygg-
ingin ofarlega í huga fundargesta.
Sigmundur ræddi einnig um til-
lögur flokksins um fjögurra pró-
senta þak á verðtryggingu, en sú
tillaga var lögð fram á síðasta
þingi. Hann ræddi einnig um til-
komu nefndar um afnám verð-
tryggingarinnar. - þeb
Framsóknarmenn kynntu nýja tillögu á fundi:
Vilja grynnka á skuldum
VEISTU SVARIÐ?