Fréttablaðið - 15.09.2012, Side 10
15. september 2012 LAUGARDAGUR10
Gullsmiðurinn í Mjódd, 109 Reykjavík
G.Þ. skartgripir & úr Bankastræti 12, 101 Reykjavík
Úr & Gull Firði, 220 Hafnarf irði
Georg V. Hannah úrsmiður Hafnargötu 49, 230 Keflavík
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi, 600 Akureyri
Fréttaskýring: Réttarhöld í Icesave-málinu
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
Icesave-mál Eftirlitsstofn-
unar EFTA gegn Íslandi
verður flutt fyrir EFTA-
dómstólnum á morgun. Átta
manna málflutningsteymi
Íslands hélt til Lúxemborgar
um helgina. Ekki er búist við
dómi fyrr en undir lok árs.
Átta manna teymi íslenskra lög-
spekinga heldur á morgun til Lúx-
emborgar, þar sem á þriðjudag fer
fram málflutningur í Icesave-mál-
inu gegn Íslandi fyrir EFTA-dóm-
stólnum.
Gert er ráð fyrir að málflutning-
urinn taki fjóra til fimm tíma – þótt
sumum þyki sú áætlun heldur bjart-
sýn – en að málflutningi loknum er
dómurinn hins vegar ekki bundinn
neinum tímatakmörkunum og því
er ekki gert ráð fyrir að niðurstöðu
sé að vænta fyrr en undir áramót.
Búist er við að málið veki mikla
athygli og eftirtekt, og vegna þess
var ákveðið að málflutningur-
inn færi ekki fram í húsakynnum
EFTA-dómstólsins, heldur í rýmri
sal sem var tiltækur hjá viðskipta-
ráði Lúxemborgar.
Um hvað er deilt?
Í málinu krefst Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA) viðurkenningar á því
að Ísland hafi brotið gegn EES-
samningnum með því að tryggja
ekki að þeir sem áttu fé á Icesave-
reikningum Landsbankans í Bret-
landi og Hollandi gætu gengið að
20.000 króna lágmarkstryggingu
sinni eftir hrun bankans.
Krafan er annars vegar reist
á því sjónarmiði að aðildarríkj-
um EES-samningsins beri, sam-
kvæmt tilskipun þar um, skylda
til að vera með innistæðutrygging-
arkerfi sem virkar þegar á reynir
– og ræður þar með við að dekka
lágmarksinnistæður á öllum reikn-
ingum sem undir kerfið heyra.
Einnig kemur til skoðunar sjón-
armið um mismunum innistæðu-
eigenda eftir ríkisfangi – enda hafi
þeir sem áttu peninga í íslenskum
bönkum fengið allt greitt en þeir í
Bretlandi og Hollandi ekkert.
Hvað ef við töpum?
Rétt er að árétta að dómurinn mun
enga afstöðu taka til fjárhagslegra
krafna, heldur einungis hvort um
brot er að ræða. Tapi Ísland málinu
mun það þannig ekki leiða til beinn-
ar greiðsluskyldu fyrir íslenska
ríkið, en hins vegar er hugsanlegt
að þeir sem telja sig hafa orðið
fyrir tjóni höfði í kjölfarið skaða-
bótamál á hendur íslenska ríkinu.
Ef Ísland vinnur málið er því
lokið. Ef Ísland tapar því verður því
hins vegar sennilega beint til ríkis-
ins að grípa til aðgerða til að koma
í veg fyrir að nokkuð af þessu tagi
endurtaki sig.
Hverjir eru aðilar málsins?
ESA er stefnandinn í málinu en
auk þess hefur Evrópusambandið
(ESB) stefnt sér til svokallaðrar
meðalgöngu og tekið undir kröfur
og röksemdir ESA.
Þar sem ESB er orðið aðili að
málinu gefst öllum aðildarríkjum
EFTA og jafnframt ESB tækifæri
til að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri fyrir dómnum.
Fjögur ríki hafa nýtt sér þennan
möguleika: Noregur og Liechten-
stein, hin ríkin sem aðild eiga að
EES-samningnum, hafa tekið undir
með Íslandi og mótmælt því að rík-
isábyrgð sé á innistæðutrygginga-
kerfinu, en Bretland og Holland
lýsa yfir stuðningi við kröfur ESA.
Fulltrúar allra fjögurra ríkjanna
hafa boðað komu sína í réttarhöldin
á þriðjudag og munu þar fá stutt-
an tíma til að lýsa sjónarmiðum
sínum.
Athygli vekur hins vegar að ekk-
ert ríkjanna fjögurra hefur í grein-
argerðum sínum vegna málsins
tæpt nokkuð á mismununarþætt-
inum – á honum virðast þau ekki
hafa skoðun, eða þora ekki að viðra
hana, hvorki Norðmenn og Liech-
tensteinar, né Bretar og Hollend-
ingar.
Niðurstaða undir áramót
SALURINN Málið gegn Íslandi verður ekki flutt í húsakynnum EFTA-dómstólsins í
Lúxemborg, heldur hér, í þessum sal Viðskiptaráðs Lúxemborgar. MYND/EFTA-DÓMSTÓLLINN
Fulltrúi Noregs í EFTA-dómstólnum, Per Christiansen, lýsti sig vanhæfan til
að dæma í málinu og vék sæti. Ástæða var ekki gefin upp formlega en talið
er næsta víst að vanhæfið helgist af grein sem hann skrifaði á sínum tíma í
norska blaðið Aftenposten og fjallaði um Icesave-málið. Sæti Christansens
tekur varamaður hans, Ola Melstad, sem er prófessor við Evrópuréttardeild
Óslóarháskóla.
Páll Hreinsson, fulltrúi Íslands í dómnum, víkur hins vegar ekki sæti, jafn-
vel þótt hann hafi verið formaður Rannsóknarnefndar Alþingis, en í skýrslu
hennar er ítarlega fjallað um Icesave-málið og Tryggingasjóð innstæðu-
eigenda. Í skýrslunni er þó ekki tekin afstaða til álitaefnisins sem liggur
fyrir EFTA-dómstólnum, og þar sem dómararnir þurfa oftsinnis að dæma í
málum heimalanda sinna víkur hann ekki sæti.
Þriðji dómarinn, og forseti dómsins, er Carl Baudenbacher, Svisslendingur
sem dæmir fyrir hönd Liechtenstein.
Norski dómarinn vék vegna vanhæfis