Fréttablaðið - 15.09.2012, Page 26
15. september 2012 LAUGARDAGUR26
N
ýdönsk heldur upp á aldarfjórðungs
afmælið sitt með þrennum tónleikum.
Fyrst verða tvennir tónleikar í Eld-
borgarsal Hörpunnar laugardagskvöld-
ið 22. september og viku síðar verða
tónleikar í Menningarhúsinu Hofi á
Akureyri. Nánast uppselt er á alla tónleikana en örfá-
ir miðar eru þó fáanlegir.
Einvalalið tónlistarfólks mun samfagna þeim Daní-
el Ágústi Haraldssyni, Birni Jörundi Friðbjörnssyni,
Jóni Ólafssyni, Stefáni Hjörleifssyni og Ólafi Hólm á
tónleikunum. Meðal gesta verða Unnsteinn Manuel
úr Retro Stefson, Högni Egilsson og Sigríður Thorla-
cius úr Hjaltalín, Svanhildur Jakobsdóttir sem syng-
ur með Birni Jörundi lagið Á sama tíma að ári og KK.
„Þetta leggst rosalega vel í okkur og við ætlum að
vanda okkur vel. Við ætlum að spila okkar þekktustu
lög en svo verða líka lög sem hafa ekki heyrst „live“
alveg í tuttugu ár og örugglega lög sem við höfum
aldrei spilað „live“,“ segja þeir Stefán og Ólafur.
Aðspurðir nefna þeir Foss af plötunni Hunang sem
eitt þessara laga. „Það er epískt stórvirki sem kallar
á alla sem vettlingi geta valdið á sviðinu að spila með
okkur. Það þurfa allir að bregðast við því kalli.“
Þið eruð vanir menn, svo varla eru þið stressaðir
fyrir tónleikana? „Ég hef ekki verið stressaður í ein-
hver ár eða áratugi með þessu bandi,” segir Stefán.
„Við æfum vel fyrir tónleikana og það á ekki að vera
neitt óvænt. En það verða nýir vinklar. Það verða
örugglega smá fiðrildi í maganum. Svo erum við í
þessu húsi líka. Þetta er svolítið yfirþyrmandi. Ég hef
aldrei spilað í þessu húsi.“
Fiðrildi í maganum
á 25 ára afmælinu
Hin ástsæla Nýdönsk heldur upp á 25 ára afmælið sitt með þrennum tón-
leikum. Fréttablaðið fékk gítarleikarann Stefán Hjörleifsson og trommar-
ann Ólaf Hólm til að rýna í gamlar ljósmyndir frá ferli hljómsveitarinnar.
NÝDÖNSK Hljómsveitin Nýdönsk fagnar 25 ára afmæli sínu með þrennum tónleikum í september.
1991 DELUXE Á VÍNYL „Þetta er á Borginni [Hótel Borg árið 1991] í tengslum við Deluxe. Ástæðan fyrir því að Steinar [Berg Ísleifsson
útgefandi] er að færa okkur blómvönd er að vínyllinn var að deyja út þarna en við
vorum harðir á því að þessi plata fengi að koma út á vínyl því við vorum búnir að
taka alla plötuna upp hliðrænt. Þess vegna var þetta svolítill viðburður. Steinar
var svolítið að kveðja þetta „format“ og þetta var sennilega seinasta platan sem
hann gaf út á vínyl. Þarna var okkur líka afhent vínylplata.“
1990 NOSTRADAMUS „Þetta var í kringum útgáfu á laginu Nostradamus. Einar Sigurðsson og Þorgils Björgvinsson eru þarna á myndinni.
Þorgils [gítarleikari] spilaði í Nostradamus og það var eina lagið sem hann spilaði
með bandinu. Hann var með okkur í nokkra mánuði en þetta er væntanlega
sumarið 1990,“ segir Ólafur og Stefán bætir við: „Þetta er rétt áður en við Jón
[Ólafsson] komum inn í bandið.“ MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
1997 ENDURKOMA ÁRSINS „Þetta eru tíu ára afmælistónleikar sem voru haldnir í Háskólabíói [í október 1997] en þá var
gefinn út safndiskurinn „87-97“. Þarna er Danni að koma sem gestur
því þarna var hann hættur í bandinu. Þessir tónleikar þóttu tilefni til að
veita okkur viðurkenningu fyrir endurkomu ársins á Íslensku tónlistar-
verðlaununum því við vorum búnir að vera í einhverri pásu þarna,“ segir
Stefán. „Ég á kuðunginn heima þar sem á stendur Tónlistarviðburður
ársins.“ Ólafur bætir við: „Ég braut mína styttu í partínu þarna þegar
verðlaunin voru veitt.“ Spurður út í hinn berfætta Daníel segir Stefán:
„Ég hef aldrei séð hann áður berfættan en hann er kamelljón. Hann
hefur verið í ýmsum múnderingum og allt klæðir hann vel. Ég hafði
aldrei séð það áður þegar hann var alltaf í strigaskóm og jakkafötum.
Það var alveg nýtt. Það var „trendsetter“ í honum.“
1993 DRÖG AÐ UPPRISU „Þessi mynd var tekin á æfingu fyrir þessa tónleika [Drög
að upprisu með Megasi í hátíðasal MH í nóvember
1993]. Það sem kom mér á óvart, eins og mörgum
sem hafa unnið með Megasi, var hvað hann er
„prófessional“. Þetta var þriggja vikna æfingatímabil og
svaka æfingatörn,“ segir Stefán. „Einhvern tímann kom
hann [Megas] með útskrifaðan gítarpart sem ég fór
með heim. Þrátt fyrir að vera hámenntaður gítarleikari
gat ég aldrei spilað hann en þá var hann bara að fíflast.
Þá vissi hann að það væri ekki hægt að spila gítarpart-
inn, sem segir hvað hann er vel að sér. Hann var víst
búinn að leggja þetta fyrir marga aðra gítarleikara.“
1990 MEÐ RAGNARI SÓLBERG „Þetta er Ragnar Sólberg með okkur, sennilega í bakherbergi í Íslensku óperunni [árið 1998]. Hann
spilaði á þessum tónleikum. Þetta var í kringum Húsmæðragarðinn, útgáfu-
tónleikar til að kynna plötuna.“
1993 HUNANG OG BÝFLUGUR „Þetta er í Þjóðleikhúsinu [í desember 1993]. Jón sést ekki en hann er til hliðar á flyglinum. Þetta eru
útgáfutónleikar Hunangs. Við vorum með valið efni í „akústískum“ búningi fyrir
hlé og svo var Hunangsplatan spiluð í heild sinni eftir hlé. Ég man að við vorum
með alls konar býflugur og þess háttar hangandi úr loftinu,“ segir Ólafur.
1992 GULL FYRIR HIMNASENDINGU „Þetta er í Skífunni þar sem Sena er núna. Jón Trausti er þarna með okkur sem var útgáfustjóri. Þarna
fengum við gullplötu fyrir Himnasendingu,“ segir Ólafur. „Er þetta ekki platínu-
plata?,“ spyr Stefán. „Nei, við fengum víst aldrei platínuplötu,“ svarar Ólafur, en
Himnasending, sem kom út 1992, seldist í 9.500 eintökum á þessum tíma. Gull-
plata fæst fyrir 5.000 seld eintök.
NÝDÖNSK