Fréttablaðið - 15.09.2012, Síða 36

Fréttablaðið - 15.09.2012, Síða 36
15. september 2012 LAUGARDAGUR36 Vegna þess að fólkið var oftast ekki haft með í ráðum hentaði eld- húsið ekki endilega hversdagslegu amstri og sama hversu lítið eld húsið var hélt fólk áfram að safnast þar saman. Þrátt fyrir vankanta sem komu snemma í ljós hélt lokaða eld- húsið vinsældum sínum langt fram eftir öldinni. Inn með nýja, út með gamla En svo kom að því að lokaða eld húsið vék fyrir því opna. Á uppbygging- artímanum í upphafi 21. aldarinn- ar voru ný hús nær undantekninga- laust byggð með nýju skipulagi, hið opna eldhús var allsráðandi og svo virtist sem allir hefðu fengið nóg af fjötrum gamla þrönga eldhússins. Þessar breytingar má skýra með ýmsum hætti. Opna eldhúsið var til að mynda tilraun til að gera heim- ilið að einni heild á sama tíma og minni tíma var eytt þar. Hugmynd- in með opna eldhúsinu var líka að fá meira pláss til að athafna sig sem undirstrikar auknar vinsældir matreiðslu og hugmyndir um elda- mennsku sem félagslega athöfn en ekki einnar konu vinnu. Það endur- speglaði líka ákveðið gegnsæi sem varð lykil atriði, steikin átti ekki að birtast tilbúin á borðstofuborðinu, allir áttu að vita hvernig hún komst þangað. Opna eldhúsið markaði einnig nýja tíma þar sem breytt kynja- hlutverk stjórnuðu ferðinni. Heim- ilið var ekki lengur hugsað sem vinnustaður kvenna enda eru þær löngu komnar út á vinnumarkaðinn og karlarnir farnir að taka meiri þátt í heimilisstörfunum. Eigin- leikar opna eldhússins gerðu áður ósýnilega vinnu sýnilega sem var vissulega frelsandi fyrir konuna sem sinnti áður öllu fyrir luktum dyrum en að sama skapi minnkaði hin persónulega nánd þegar veggir féllu. Blómaskeið eldhússkonsunnar Hugurinn reikar gjarnan til „gömlu góðu“ daganna þegar eldhús ber á góma en opna eldhúsið þykir ekki eingöngu til marks um nýja tíma heldur minna á gamla sveitaeld húsið þar sem fólk kom saman og vann, lærði eða eldaði. Þetta „gamla“ eld- hús er fjölnota herbergi, opið öllum, ungum sem öldnum, konum og körl- um. Það takmarkar einkalíf en ýtir undir samverustundir og fagnar óformlegheitum. Nú til dags er þetta eldhús jafnvel talið styrkja fjöl- skylduböndin og stuðla að samveru. Í kjölfar hruns og kreppu með til- heyrandi sparsemi og hagsýni í stað óhófs hefur jafnvel mátt greina mun á hugmyndum fólks um heimilið. Fólk hefur æ oftar orð á því að það kjósi frekar lokað kósí eldhús en hið opna. Á krepputímum fer fortíðar- þráin á flug og þráin eftir myndar- legum húsmæðrum sem baka brauð á hverjum degi, taka slátur, búa til konfekt fyrir jólin og taka á móti fjölskyldunni með hlýju faðmlagi við lok dags verður sterkari. Lokaða eldhúsið varð að einhverju leyti tákn fyrir blómaskeið hús- mæðra og það vekur upp hug myndir um nánd þegar allir hrúguðust inn í eldhús sama hversu lítið það var. Og allir hafa gleymt striti og svita örmagna húsmóður í agnarlítilli eld- hússkonsu. Veggirnir tala Eldhúsið og hugmyndir okkar um það hafa breyst töluvert. Nýjar áherslur birtast í því hvernig veggir rísa og falla. Veggirnir endurspegla og þeir móta, þeir hlusta og þeir tala, þeir hafa áhrif á þá sem búa innan þeirra en íbúarnir hafa líka áhrif á veggina. Það getur verið ólíkt eftir tímabilum hvernig litið er á rými heimilisins. Eina stundina er litið á gamla þrönga eldhúsið sem tíma- sparandi og hagkvæmt, aðra ein- angrandi og vélrænt og að lokum huggulegt og náið. Það er sama hversu mikið eldhús- ið breytist, það virðist ávallt vera eitt vinsælasta rými heimilisins, að minnsta kosti í hugum fólks. Eld- hús dagsins í dag er, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki svo ýkja frá- brugðið eldhúsum fyrri tíma. Sama hvernig skipulagi þess er háttað er eldhúsið talið búa yfir eiginleikum sem önnur rými hafa ekki. Þar eru allir velkomnir, háir og lágir, þar slær hjartað taktföstum slögum sem tæla okkur til sín. Þ egar þú ferð í partý og skýst inn í eldhús til að næla þér í ískaldan bjór úr ísskápnum verður ekki aftur snúið. Þú dettur inn í samræður, sest upp á borð, nartar í snakk löðrandi í Voga-ídýfu og mestar líkur eru á að þarna munir þú eyða öllu kvöldinu. Í eldhúsinu er gestum boðið upp á kaffi og spjall og þar myndast oft besta stemningin í gleðskapnum. Sumir hafa jafnvel nefnt eld húsið sem sinn uppáhaldsskemmtistað. Það sem fer fram í eldhúsinu þarf því ekki að vera eins formlegt og í stofunni og ekki eins persónulegt og í svefnherberginu. Þar er slúðrað og meira að segja hægt að laumast til að reykja. Eldhúsið er notað í ýmsum til- gangi hvern einasta dag. Það gegnir mikilvægu hlutverki sem blasir þó ekki alltaf við meðan beðið er eftir að vatnið sjóði. Hugmyndin um eld- húsið sem hjarta heimilisins hefur þó sjaldan verið mikilvægari en ein- mitt nú. Á undanförnum árum hefur matreiðsla, sem eldhúsið myndar umgjörð um, notið síaukinna vin- sælda. Vinsældir eldhússins eru í takt við opinberun heimilisins út á við þar sem fasteignavefir eru mörgum dægradvöl auk þess sem híbýla- og hönnunarblogg njóta gífur legra vinsælda. Það kann að skjóta skökku við að á meðan miklum tíma, púðri og peningum er eytt í að eignast huggulegt heimili er mun minni tíma eytt innan veggja þess. Fólk eyðir lunganum úr degin- um annars staðar en heima og fjöl- skyldumeðlimir borða oft á hverjum stað fyrir sig. Eldhúsið stendur því autt stóran hluta dagsins. Elda í eldhúsi, pissa á salerni Hvernig fólk byggir, breytir og skreytir segir margt um fegurðar- skyn, smekk og félagslegar venjur. Arkitektúr hefur markvisst verið notaður til að stuðla að samfélags- breytingum og breytt samfélag birtist glögglega í húsunum sem byggð eru og hugmyndum sem uppi eru um heimilið á hverjum tíma. Þannig segja húsin sögu. Á fyrri hluta 20. aldar höfðu upp- lýstir borgarar áhyggjur af óheil- næmum samsöfnuði fólks í eld- húsum. Gestir stöldruðu við í kaffi, móðirin vann heimilisstörf, börnin léku og faðirinn slakaði á í vinnu- fötunum. Í sumum tilfellum bjuggu heilu fjölskyldurnar, dag og nótt, í einu eldhúsi. Þetta þótti vitaskuld ótækt og reyndi borgarastéttin hvað hún gat að sporna við þessu og snúa alþýðunni til betri vegar. Því voru eldhús í nýjum húsum á fyrri hluta 20. aldar mjög lítil til að ýta fólkinu úr eldhúsinu í önnur rými. Fólk var hvatt til að snúa til „nútímalegra lifnaðarhátta“ þar sem öllu var skipt haganlega niður milli rýma. Elda átti í eldhúsi, sofa í svefnherbergi, pissa á salerni og slaka á í stofunni. Arkitektar komust þó fljótt að því að fólkið hélt áfram að safnast saman í eldhúsinu og skildi stofuna eftir auða og frekar til sýnis fyrir fína gesti. Lokaða eldhúsinu var svo til þröngvað upp á alþýðuna til að bæta líf hennar að henni forspurðri. Úr eldhússkonsu í opið rými Eldhúsið er staður til að næra líkama og sál og jafnvel talið hjarta heimilisins. Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir fjallar hér um sögulegar og hugmyndafræðilegar breytingar á eldhúsum 20. aldar og hvernig þær endurspegla tíðarandann. 1. Þröngt eldhús fúnksjónalismans þar sem hrátt notagildið er í fyrirrúmi. Það sparar sporin og rúmar ekki marga. Slík eldhús voru ríkjandi í fjölbýlis- húsum langt fram eftir 20. öld. 2. Rúmgott eldhús frá sjötta áratugnum undir amerískum áhrifum sem er lokað en meira í ætt við sveitaeldhúsið þar sem allir geta komið saman og unnið, eldað eða slakað á. 3. Opna eldhúsið þykir styrkja fjölskylduböndin en það endurspeglar líka opinberun heimilisins út á við og nýjar hugmyndir um eldamennsku sem félagslega athöfn en ekki einnar konu vinnu. HÖFUNDUR: Sigrún Hanna Þor- grímsdóttir er MA-nemi í þjóðfræði. Vinsældir þrönga eldhússins meðal umbótarsinnaðra arkitekta voru margþættar. Við upphaf tuttugustu aldar var húsnæði af skornum skammti og þurfti bæði að byggja ódýrt, hratt og fyrir marga. Einn þessara arkitekta var Grete Schutte-Lihotsky. Hún var fædd í Vínarborg í lok 19. aldar þegar fátækt var mikil í borginni og sósíalistahreyfingin í blóma. Hún flutti síðar til Frankfurt og hannaði eldhús sem naut gífurlegra vinsælda, „Frankfurtar-eld- húsið“. Þrátt fyrir að vera heilluð af gamla eldhúsinu sem hvatti til samveru beygði hún sig undir kenningar fúnksjónalismans og hannaði praktísk eldhús til þess að elda í. Þegar Schutte-Lihotsky var komin á tíræðisaldur sagði hún frá því að eldhúsið hefði ekki verið hannað með heimavinnandi húsmæður í huga heldur var þetta eld- hús fyrir útivinnandi konur svo þær þyrftu ekki að eyða dýrmætum tíma í eldhúsinu. Eldhúsið átti að spara tíma og auka afköst og það varð í kjölfarið eins og tilrauna- stofa. Slík eldhús spöruðu notendum sporin en mörgum fannst þau einkennast af auðn og eymd hins vélræna þar sem ekki rúmuðust tilfinningar, sköpun og líf. FÚNKSJÓNALISMINN OG FRANKFURTARELDHÚSIÐ Á síðastliðnum árum hafa margir spyrnt fótum við of stíliseruðum og hreinum heimilum á síðum tímarita, sagt að þau séu líflaus og að þar sé ekki búandi. Margir hafa fengið sig fullsadda af glansi; af glansandi heim- ilum glansandi fólks á glansandi pappír sem eiga sér enga stoð í möttum raunveruleikanum. Nýtt „trend“ skipulagðrar óreiðu virðist vera að ryðja sér til rúms. Mörg tímarit leggja nú áherslu á að sýna eðlilegt heimilislíf fólks og birta myndir sem eru uppfullar af dóti og drasli sem við erum ekki vön að sjá – venjulega er búið að taka til, stílisera og gera fínt fyrir gests augað áður en myndavélin er dregin úr slíðrinu. Þessi gjörningur endurspeglar hugmyndir um að heimili eigi ekki að vera sviðsett á síðum tímarita, þar sé lifað og lífið er fullt af óreiðu. Óstíliseruð heimili birtast víðar, til að mynda í auglýsingum húsbúnaðarverslana. IKEA sýnir okkur óumbúin rúm og mat sem snarkar á pönnum, barnadót undir sófum og fleira í þeim dúr og þeir segja okkur meira að segja líka að lífið snúist um meira en húsgögn. SVIÐSETNING HEIMILISINS 2 1 3 Það er sama hversu mikið eldhúsið breytist, það virðist ávallt vera eitt vinsælasta rými heimilisins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.