Fréttablaðið - 15.09.2012, Page 37

Fréttablaðið - 15.09.2012, Page 37
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 Kynningarblað Rekstrarvörur, hágæðalausnir, matvæli og persónuleg þjónusta Okkar styrkleiki felst í góðu vöruúrvali á breiðu verð-bili. Við hlustum á við- skiptavininn, greinum þarfir hans og finnum þær lausnir sem henta best,“ segir viðskiptastjór- inn Bylgja Bára Bragadóttir en fyrirtækjaþjónusta Pennans hefur verið starfrækt frá árinu 1997. „Við leggjum upp úr því að viðskipta- vinir geti nálgast okkur á þann hátt sem hentar þeim best; hvort sem er í gegnum sölumenn, verslun, síma eða vef og viljum að það sé þægi- legt og gaman að eiga við okkur viðskipti.“ Fyrirtæki geta óskað eftir reglulegum heimsóknum frá söluráðgjafa Pennans „Í upp- hafi gerir söluráðgjafi þarfagrein- ingu með fulltrúa viðkomandi viðskiptavinar og veitir ráðgjöf við vöruval þar sem hagkvæmnis- sjónarmiða er gætt. Ef viðskipta- vinur óskar eftir því getur söluráð- gjafi séð um að viðhalda ákveðn- um lágmarkslager auk þess sem hann tekur niður sérpantanir ef við á. „Þetta er þjónusta sem við höfum boðið upp á fyrir bæði smærri og stærri fyrirtæki og hefur gefist afar vel enda getur verið tímafrekt að halda utan um lager og sjá til þess að ekkert vanti,“ segir Bylgja. Söluráðgjafar benda á nýjungar og góð tilboð og í sumum tilfellum fá viðskipta vinir að prófa nýjungar. Þjónustan er fyrirtækj- um að kostnaðarlausu og með henni er hægt að spara bæði tíma og peninga.” Bylgja segir marga kjósa persónu leg samskipti við sölufull- trúa í þjónustuveri Pennans í síma 540-2050. Þar geta viðskiptavin- ir átt sérstakan tengilið og skap- ast oft góð tengsl eftir margra ára viðskipti. „Það eru dæmi um að fólk bíði með að panta ef tengi- liðurinn er í fríi og er bara gaman að því.“ Bylgja segir einnig hægt að senda fyrirspurnir og panta í gegnum netfangið pontun@penn- inn.is og eru margir sem nýta sér það. Ný og notendavæn vefversl- un Pennans, www.penninn.is, auðveldar viðskiptavinum enn frekar að nálgast upplýsingar um vörur og þjónustu. Viðskiptavin- ir geta sótt um þjónustuaðgang á vefnum og meðal annars feng- ið upplýsingar um fyrri pantan- ir og reikninga. „Þá bjóðum við upp á að vera með fyrirtæki í hýs- ingu sem virkar þannig að þau geta hýst hjá okkur markaðsvör- una sína eins og umslög, bréfsefni og fleira sem svo er hægt að nálg- ast í gegnum vefverslunina. Vör- urnar koma beint inn á lager til okkar og eru hýstar eins og önnur vara en eingöngu viðkomandi fyr- irtæki hefur aðgang að henni,“ út- skýrir Bylgja. Að endingu er alltaf gaman að líta við í verslunum Pennans sem eru um land allt. Í húsgagnadeild- inni að Grensásvegi 11 (Skeifunni) er að finna mikið úrval skrifstofu- húsgagna. Penninn hefur í fjölda- mörg ár aðstoðað viðskiptavini við val á innréttingum og húsgögnum fyrir skrifstofuna. Það sem færri vita er að í húsgagnaverslun Penn- ans ergott úrval af heimilisvörum frá fremstu hönnuðum heims. „Við leggjum ríka áherslu á að Fyrirtækjaþjónusta Pennans sé fyrir alla og ekkert fyrirtæki er of lítið eða of stórt til að vera í við- skiptum við okkur.” Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustu Pennans kappkostar að veita fag- lega og persónulega þjónustu um land allt. Fyrirtækjaþjónusta fyrir alla Í Pennanum má finna úrval ritfanga, rekstrarvara, húsgagna og kaffilausna sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustu Pennans kappkostar að veita faglega og persónulega þjónustu um land allt. „Við leggjum upp úr því að viðskiptavinir geti nálgast okkur á þann hátt sem hentar þeim best, hvort sem er í gegnum sölumenn, verslun, síma eða vef, og viljum að það sé þægilegt og gaman að eiga við okkur viðskipti,” segir viðskiptastjórinn Bylgja Bára Björnsdóttir. MYND/ÓLAFUR ÞÓRISSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.