Fréttablaðið - 15.09.2012, Síða 37
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 Kynningarblað Rekstrarvörur, hágæðalausnir, matvæli og persónuleg þjónusta
Okkar styrkleiki felst í góðu vöruúrvali á breiðu verð-bili. Við hlustum á við-
skiptavininn, greinum þarfir
hans og finnum þær lausnir sem
henta best,“ segir viðskiptastjór-
inn Bylgja Bára Bragadóttir en
fyrirtækjaþjónusta Pennans hefur
verið starfrækt frá árinu 1997. „Við
leggjum upp úr því að viðskipta-
vinir geti nálgast okkur á þann hátt
sem hentar þeim best; hvort sem er
í gegnum sölumenn, verslun, síma
eða vef og viljum að það sé þægi-
legt og gaman að eiga við okkur
viðskipti.“ Fyrirtæki geta óskað
eftir reglulegum heimsóknum
frá söluráðgjafa Pennans „Í upp-
hafi gerir söluráðgjafi þarfagrein-
ingu með fulltrúa viðkomandi
viðskiptavinar og veitir ráðgjöf
við vöruval þar sem hagkvæmnis-
sjónarmiða er gætt. Ef viðskipta-
vinur óskar eftir því getur söluráð-
gjafi séð um að viðhalda ákveðn-
um lágmarkslager auk þess sem
hann tekur niður sérpantanir ef
við á.
„Þetta er þjónusta sem við
höfum boðið upp á fyrir bæði
smærri og stærri fyrirtæki og hefur
gefist afar vel enda getur verið
tímafrekt að halda utan um lager
og sjá til þess að ekkert vanti,“
segir Bylgja. Söluráðgjafar benda á
nýjungar og góð tilboð og í sumum
tilfellum fá viðskipta vinir að prófa
nýjungar. Þjónustan er fyrirtækj-
um að kostnaðarlausu og með
henni er hægt að spara bæði tíma
og peninga.”
Bylgja segir marga kjósa
persónu leg samskipti við sölufull-
trúa í þjónustuveri Pennans í síma
540-2050. Þar geta viðskiptavin-
ir átt sérstakan tengilið og skap-
ast oft góð tengsl eftir margra ára
viðskipti. „Það eru dæmi um að
fólk bíði með að panta ef tengi-
liðurinn er í fríi og er bara gaman
að því.“ Bylgja segir einnig hægt
að senda fyrirspurnir og panta í
gegnum netfangið pontun@penn-
inn.is og eru margir sem nýta sér
það. Ný og notendavæn vefversl-
un Pennans, www.penninn.is,
auðveldar viðskiptavinum enn
frekar að nálgast upplýsingar um
vörur og þjónustu. Viðskiptavin-
ir geta sótt um þjónustuaðgang
á vefnum og meðal annars feng-
ið upplýsingar um fyrri pantan-
ir og reikninga. „Þá bjóðum við
upp á að vera með fyrirtæki í hýs-
ingu sem virkar þannig að þau
geta hýst hjá okkur markaðsvör-
una sína eins og umslög, bréfsefni
og fleira sem svo er hægt að nálg-
ast í gegnum vefverslunina. Vör-
urnar koma beint inn á lager til
okkar og eru hýstar eins og önnur
vara en eingöngu viðkomandi fyr-
irtæki hefur aðgang að henni,“ út-
skýrir Bylgja.
Að endingu er alltaf gaman að
líta við í verslunum Pennans sem
eru um land allt. Í húsgagnadeild-
inni að Grensásvegi 11 (Skeifunni)
er að finna mikið úrval skrifstofu-
húsgagna. Penninn hefur í fjölda-
mörg ár aðstoðað viðskiptavini við
val á innréttingum og húsgögnum
fyrir skrifstofuna. Það sem færri
vita er að í húsgagnaverslun Penn-
ans ergott úrval af heimilisvörum
frá fremstu hönnuðum heims.
„Við leggjum ríka áherslu á að
Fyrirtækjaþjónusta Pennans sé
fyrir alla og ekkert fyrirtæki er of
lítið eða of stórt til að vera í við-
skiptum við okkur.”
Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustu
Pennans kappkostar að veita fag-
lega og persónulega þjónustu um
land allt.
Fyrirtækjaþjónusta fyrir alla
Í Pennanum má finna úrval ritfanga, rekstrarvara, húsgagna og kaffilausna sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum.
Starfsfólk Fyrirtækjaþjónustu Pennans kappkostar að veita faglega og persónulega þjónustu um land allt.
„Við leggjum upp úr því að viðskiptavinir geti nálgast okkur á þann hátt sem hentar þeim best, hvort sem er í gegnum sölumenn, verslun, síma eða vef, og viljum að það sé þægilegt og gaman að eiga við okkur viðskipti,”
segir viðskiptastjórinn Bylgja Bára Björnsdóttir. MYND/ÓLAFUR ÞÓRISSON