Fréttablaðið - 15.09.2012, Page 38
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjaþjónusta LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 20122
Hjá Póstdreifingu starfa um 500 manns og er stærstur hluti þeirra póst- og blað-
berar sem starfa við dreifingu á
blöðum, markpósti, tímaritum og
fjölpósti.
Sérhæfðar lausnir
Anna Bára Teitsdóttir, deildar-
stjóri sölu- og markaðsdeildar,
segir þjónustu Póstdreifingar hafa
verið fagnað af fjölmörgum útgef-
endum blaða og fjölpósts þar sem
fyrirtækið hefur einsett sér að vera
leiðandi í verði á markaði.
Enn fremur segir Anna Bára að
fyrirtækið leggi mikla áherslu á að
bjóða viðskiptavinum sínum upp
á sérhæfðar lausnir. „Við eigum í
góðu samstarfi við margar prent-
smiðjur og auglýsingastofur sem
þurfa á sérhæfðri þjónustu að
halda á sviði dreifingar.“ Þá nefnir
Anna Bára einnig í því sambandi
markhópatengda dreifingu á fjöl-
pósti þar sem hefðbundið dreifing-
armynstur er brotið upp. „Þannig
getur til dæmis lítið fyrirtæki eða
einyrki sent út fjölpóst á ákveðið
svæði innan póstnúmera, til sér-
býla eða fjölbýlishúsa allt eftir því
hvað hentar markhópnum hverju
sinni.
Nú fer að ganga í hönd anna-
samasti tími ársins og eru fyrir-
tæki þegar farin að tryggja sér
dreifingardag á kynningarefni og
gera ráðstafanir varðandi heim-
sendinguá vörum sínum.“
Vöruhýsing í nýju húsnæði
Samhliða blaðadreifingu sér Póst-
dreifing um að dreifa vörum og
sendingum fyrir fyrirtæki á stór-
höfuðborgarsvæðinu. „Samstarf
og sveigjanleiki eru þar lykilhug-
tök og einbeitum við okkur að því
að veita klæðskerasniðna þjón-
ustu sem passar vel að þörfum
ólíkra viðskiptavina. Þannig eru
netverslanir farnar að nýta sér
þjónustu okkar í auknum mæli og
til að mæta betur þörfum þeirra
varðandi dreifingu og vöruhýs-
ingu hefur verið ákveðið að flytja
í hentugra húsnæði um áramótin.“
Gæðavottað dreifikerfi
Í stóru fyrirtæki eins og Póstdreif-
ingu er nauðsynlegt að vera með
gott gæðastjórnunarkerfi og hafa
því öll dreifingarkerfi Póstdreif-
ingar verið vottuð samkvæmt ISO
9001:2008-staðlinum. „Vottunin
staðfestir að gæðakerfi fyrirtæk-
isins uppfyllir kröfur staðalsins
og að allir starfsferlar og verklags-
reglur eru skýrar og í samræmi við
viðskiptaskilmála.“
Dreifing til áttatíu
þúsund heimila
Dreifikerfi Póstdreifingar nær inn á 80.000 heimili sex daga vikunnar á
stórhöfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Jafnframt sinnir fyrirtækið dreifingu
á önnur svæði víðs vegar um landið. Dreifikerfi Póstdreifingar eru gæðavottuð.
Avis bílaleiga hefur um margra ára skeið rekið öfluga fyrirtækjaþjón-ustu. Viðskiptavinir bílaleigunn-
ar geta treyst því að Avis er ávallt með gott
úrval af nýjum bílum og vinnur stöðugt að
því að gera bókun á bílaleigubílum eins að-
gengilega og einfalda og kostur er.
Um leið og fyrirtæki hefur gert samning
við Avis fær það sérstakan viðskiptastjóra
sem sér um að öll bílamál hjá viðkomandi
fyrir tæki séu í lagi. Þessi þjónusta er sveigj-
anleg og áreiðanleg lausn sem leysir þarf-
ir viðkomandi fyrirtækis. Þannig finnum
við alltaf bestu lausnina fyrir fyrirtækið
hverju sinni.
Það eru margir ótvíræðir kostir við að
leigja bíla frekar en að eiga þá. Það fylgir
enginn viðhaldskostnaður leigðum bílum
né bifreiðagjöld. Ekki þarf að hafa áhyggjur
af dekkjaskiptum, tryggingum eða endur-
söluáhættu bílsins.
Ófeigur Friðriksson og Ólöf Sif Þráins-
dóttir eru viðskiptastjórar hjá Avis og er
fyrirtækjaþjónusta sérgrein þeirra. Þau
segja þarfir fyrirtækja vera eins misjafn-
ar og þau eru mörg. „Hingað koma stór
og smá fyrirtæki með ólíkar þarfir þegar
kemur að stærðum og gerðum bíla og eins
að lengd leigutímans svo eitthvað sé nefnt.
Við kappkostum að finna bestu lausnina
fyrir hvert og eitt fyrirtæki bæði hratt og
vel.“
Viðskiptastjórar Avis hafa mikla reynslu
og auðvelda fyrirtækjum að sjá bestu kost-
ina. „Það er misjafnt hvort um er að ræða
tímabundið söluátak, árstíðabundin störf
eða stöðuga keyrslu svo eitthvað sé nefnt.
Vetrarleigan eða skólabílarnir þar sem
þú leigir bílinn bara yfir vetrarmánuðina
hefur einnig verið sérstaklega vinsæl hjá
fyrirtækjunum fyrir komandi vetur.“
Forgangsþjónusta Avis er þægileg-
ur kostur fyrir þá sem ferðast mikið. Sem
meðlimur forgangsþjónustu Avis þarftu
einungis að framvísa ökuskírteininu þínu,
sækja bíllyklana og aka af stað. Viðskipta-
vinurinn sleppur því við allar skráningar
og biðraðir.
Avis býður upp á leigustöðvar á öllum
helstu þéttbýliskjörnum á Íslandi. Það er
alltaf verið að skoða möguleikana á því að
fjölga leigustöðvunum um landið enn frek-
ar. Viðskiptavinir Avis geta því auðveldlega
fengið bíl á einum stað og skilað honum á
öðrum.
Bílafloti Avis er stór og nær yfir allan
skalann, allt frá litlum umhverfisvæn-
um smábílum upp í stóra jeppa, smárútur
og sendiferðabíla. Til eru fjórar stærðir af
sendiferðabílum sem henta fyrirtækjum
jafnt sem einstaklingum að leigja. Leigu-
tíminn er mjög sveigjanlegur en það er
hægt að leigja þessa bíla frá fjórum klukku-
stundum allt upp í 36 mánuði.
Í þjónustuveri okkar starfar frábært og
reynslumikið fólk sem sér um að bóka bíl-
inn hvort sem fólk vantar bíl innanlands
eða erlendis.
Nánari upplýsingar má finna á vef Avis,
www.avis.is og í þjónustuveri Avis í síma
591 4000.
Hagstæðara fyrir fyrirtækin
að leigja bílana en að eiga.
Gott úrval nýrra bíla og sveigjanleg og persónuleg þjónusta einkenna fyrirtækjaþjónustu Avis bílaleigu.
Ófeigur Friðriksson og Ólöf Sif Þráinssdóttir eru viðskiptastjórar hjá Avis og er fyrirtækjaþjónusta sérgrein
þeirra. MYND/STEFÁN
Anna Bára Teitsdóttir segir að þjónustu Póstdreifingar hafi verið fagnað af útgefendum
blaða og fjölpósts þar sem fyrirtækið einsetji sér að vera leiðandi í verði á markaði.
MYND/STEFÁN
HRESSING Í VINNUNNI
Vinna getur verið góð skemmtun. Að
vinna vinnuna sína með góðum og
hollum veitingum er hins vegar enn betri
skemmtun. Það þarf ekki mikla fyrirhöfn til
að fríska upp á vinnuandann með góðum
bita eða ljúffengum drykk. Hægt er að
koma vinnufélögum á óvart með því að
mæta óvænt með léttan mat í vinnuna.
Það er tilvalið að baka kræsingar heima,
til dæmis köku eða pönnukökur. Einnig er
sniðugt að mæta með kex, osta, sultu og
salat. Hollir og ferskir ávextir eru himnasending þegar vinnudagurinn
hefur verið erfiður. Svo má auðvitað bara koma við í næsta bakaríi og
kaupa rúnstykki og vínarbrauð. Örlítið metnaðarfyllri
starfsmenn koma vinnufélögum á óvart með
gómsætum pitsum og ilmandi hvítlauks-
olíu. Ef maður vill slá alveg í gegn þá er
kveikt í grillinu og ljúffengir hamborg-
arar grillaðir. Þá er um að gera að láta
hugmyndaflugið njóta sín og splæsa í
beikon, góða osta og spennandi sósur.
Við berum út sögur af frægu fólki
Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Birtingur treystir okkur fyrir
öruggri dreifingu á Séð og heyrt
B
ra
n
de
n
bu
rg