Fréttablaðið - 15.09.2012, Page 56
15. september 2012 LAUGARDAGUR14
YFIRVÉLSTJÓRI OG
VIÐHALDSTJÓRI ÓSKAST
Þörungaverksmiðjan hf. við Breiðafjörð á sunnanverðum
Vestfjörðum óskar eftir að ráða í starf yfirvélstjóra og við-
haldsstjóra á Reykhólum. Starfið felst aðallega í vélstjórn og
viðhaldi um borð í þangflutningaskipinu Gretti BA, auk þess
sem viðkomandi sér um viðhald á þangskurðarprömmum
félagsins, viðhaldi í verksmiðjunni á Reykhólum og önnur
tilfallandi störf hjá fyrirtækinu. Konur, jafnt sem karlar, eru
hvattar til að sækja um.
Hæfniskröfur
Viðkomandi þarf að hafa full vélstjóraréttindi, hafa sótt nám-
skeið í Slysavarnaskóla sjómanna, búa yfir góðri íslensku- og
enskukunnáttu og þekkja vel til Word og Excel í Windowsum-
hverfi.
Gerð er krafa um góða þekkingu og reynslu af rafmagns- og
vökvakerfum. Viðkomandi þarf að hafa færni í rafsuðu og
geta smíðað úr bæði stáli og áli og hafa reynslu af kerfis-
bundnu fyrirbyggjandi viðhaldi. Góð þekking á lögum og
reglum um öryggi og hollustu á vinnustað er nauðsynleg.
Þörungaverksmiðjan leggur mikla áherslu á öryggismál og
hefur vinnustaðurinn m.a. hlotið verðlaun sem fyrirmyndar-
fyrirtæki í forvörnum.
Um Þörungaverksmiðjuna
Þörungaverksmiðjan rekur þurrkverksmiðju á Reykhólum,
þar sem þang og þari eru þurrkuð í mjöl í háum gæðaflokki.
Bæði framsleiðsla og hráefnisöflun fyrirtækisins hafa lífræna
vottun. Meginhluti framleiðslunnar er seldur á erlendum
mörkuðum, þar sem hann er m.a. nýttur í framleiðslu í lyfja-
og snyrtivöruiðnaði auk framleiðslu á fóðurbæti, áburði og
fleiru.
Verksmiðjan gerir út þangflutningaskipið Gretti BA, tvo
dráttarbáta og sex slátturpramma til þangskurðar í og við
Breiðafjörð.
Þörungaverksmiðjan er í eigu FMC BioPolymer (71%) og
Byggðastofnunar (28%). Ársverk eru um 14 auk starfa verk-
taka við þangslátt. Rekstur Þörungaverksmiðjunnar gengur
vel og er fyrirhugað að efla hann enn frekar á komandi árum.
Rómuð náttúrufegurð
Á Reykhólum búa um 120 manns. Þar er verslun, grunnskóli,
leikskóli, sundlaug, bókasafn, dvalarheimili og ýmisleg önnur
þjónusta. Héraðið er rómað fyrir náttúrufegurð og er óvíða
að finna jafn margar fuglategundir svo fátt eitt sé nefnt.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist Þörungaverksmiðjunni
hf., 380 Reykhólum, merkt YFIRVÉLSTJÓRI, eða á netfangið
einar@thorverk.is, fyrir 26. september. Allar nánari upp-
lýsingar veitir Einar Sveinn Ólafsson framkvæmdastjóri í síma
897 0303.
Vörustjóri
Umsjón með innkaupum og uppbyggingu
birgðakerfis
Samskipti við núverandi og nýja birgja
Skipulagning og uppsetning lagera og dreifing
vara innanhúss
Umsjón með gerð vöruleiðbeininga
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla úr svipuðu starfi æskileg
Góð enskukunnátta í töluðu og skrifuðu máli.
Önnur tungumálakunnátta kostur
Góð almenn tölvukunnátta
Þekking á DK og/eða Navision er kostur
Tækniþekking er kostur
Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Trefjar ehf óska eftir að ráða vörustjóra.
Í starfinu fellst umsjón með innkaupum og
almennri birgðastýringu.
TREFJAR EHF er leiðandi í framleiðslu
plastbáta á Íslandi undir nafninu Cleopatra.
Meirihluti framleiðslunnar er seldur á erlenda
markaði. Fyrirtækið er handhafi Útflutnings-
verðlauna Forseta Íslands 2012. Fyrirtækið
framleiðir einnig heita potta og ýmsar aðrar
vörur úr plastefnum. www.cleopatra.is og
www.trefjar.is
Umsóknarfrestur er til 24. September 2012.
Öllum umsóknum verður svarað og fullum
trúnaði heitið. Umsóknir skulu sendar á
netfangið: hogni@trefjar.is eða bréfleiðis:
Trefjar ehf, „Vörustjóri“, Óseyrarbraut 29,
220 Hafnarfjörður
Leiðandi í fram-
leiðslu plastbáta
á Íslandi
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Hjálparkokkar óskast
í höfuðstöðvaeldhús Vodafone
Þín ánægja er okkar markmið
Nýi matreiðslumeistarinn okkar er snillingur – en hann getur ekki gert allt einn.
Þannig að okkur vantar gott aðstoðarfólk fyrir hann. Hjálparkokkarnir sinna
hvers kyns undirbúningi á mat, ýmsum frágangi og umsjón með matsal.
Skemmtileg vinna fyrir ábyrgt fólk.
um mánaðarmótin.
www.vodafone.is/storf
sími: 511 1144