Fréttablaðið - 15.09.2012, Side 84
15. september 2012 LAUGARDAGUR52
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. blaðra, 6. komast, 8. keraldi, 9.
espa, 11. tímaeining, 12. brotthlaup,
14. rusl, 16. sjó, 17. húsfreyja, 18.
vætla, 20. 950, 21. síll.
LÓÐRÉTT
1. hvæs, 3. í röð, 4. lítilmenni, 5. eyrir,
7. vinsæll, 10. ról, 13. hluti verkfæris,
15. kattardýr, 16. sigti, 19. tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. masa, 6. ná, 8. ámu, 9.
æsa, 11. ár, 12. strok, 14. skrap, 16.
sæ, 17. frú, 18. íla, 20. lm, 21. alur.
LÓÐRÉTT: 1. fnæs, 3. aá, 4. smákarl,
5. aur, 7. ástsæll, 10. ark, 13. orf, 15.
púma, 16. sía, 19. au.
G-strengs Gulli nýtur
nýpressaða appelsínu-
safans í sólinni...
Þá ... allt í
einu Hjálp! Hjálp! Mús!
Svo þú ætlar að
halda kleinu-
hringnum?
Já. Mér finnst hann gera mig listrænan og
hættulegan.
Algjörlega!
Ef þýðingu orðanna „listrænn“ og
„hættulegur“ hefur verið breytt í
„grár“ og „rytjulegur“!
Stórskorinn
rómantíker leitar
að fágaðri konu til
að ræna og rupla.
Hvað ertu að
teikna?
Kanínu.
Kanínu?? Þetta lítur
út eins og kú!
Eða hestur,
eða api, eða
híena...
Ha! Ha! Ha!
Ha! Ha!
Hvað ertu að teikna?
Spendýr.
Santiago Sierra heitir listamaður. Hann er þekktastur fyrir að borga fátæku
fólki fyrir að gera erfiða og/eða niðurlægj-
andi hluti, eins og til dæmis að vera ofan
í kassa í fjóra daga eða láta múra sig inn í
vegg. Hann vill sýna fram á að fólk sé til-
búið að gera ansi margt sér til viðurværis,
meðal annars að láta breyta líkama sínum
varanlega, og greiddi til dæmis fjórum
vændiskonum peningaupphæð sem sam-
svaraði einum heróínskammti fyrir að láta
húðflúra línu á bak sitt. Sierra vill með list
sinni sýna notkun kapítalismans á fólki
og líkama þess. Í stuttu máli: hann fer
illa með fólk til að sýna hversu illa
er hægt að fara með einstakling án
þess að samfélagið fordæmi það.
CHRIS BROWN heitir lista-
maður sem sækir að því er
virðist innblástur til Sierra.
Hann vill sýna hvað samtím-
inn er firrtur þegar kemur
að ofbeldi gagnvart konum.
Hann vill neyða okkur
til að horfast í augu við
það að einhver sem getur
sungið skemmtileg lög, er
myndarlegur og fallega
klæddur geti jafnframt
verið maður sem lemur
kærustuna sína þannig að
hún þarf að leggjast inn
á spítala. Gjörningurinn, sem hefur staðið
yfir í mörg ár, felur í sér að verða popp-
stjarna sem er elskuð og dáð, einkum af
unglingsstúlkum, lemja kærustuna sína í
klessu, hljóta dóm og Grammy-verðlaun
nokkru síðar. Í stuttu máli: hann fer illa
með konur til að sýna hversu illa er hægt
að fara með þær án þess að samfélagið
fordæmi það.
CHRIS BROWN notar líka húðflúr í list-
sköpun sinni. Þar sem listaverkið sem á að
sýna firringu heimsins gagnvart ofbeldi
gegn konum er hann sjálfur, líf hans og
starf, leggur hann eigin líkama undir og
lætur flúra á hálsinn á sér staðfestingu
þess að hann hafi framið glæpinn sem
allir vita að hann framdi. Vel valinn lík-
amshluti, hann er aldrei með trefil. Betri
áminning til heimsins um nákvæmlega
hvað hann gerði er vandfundin, og betri
yfirlýsing um afstöðu hans til verksins er
ekki til.
EN ÞETTA er allt saman listrænn gjörn-
ingur. Það hlýtur bara að vera. Einhvern
tíma bráðum mun Chris Brown taka niður
sólgleraugun, horfa djúpt í augun á okkur
og segja: „Hvað eruð þið eiginlega að spá?
Hversu langt þarf ég að ganga til að þið
sjáið hvað ég er fyrirlitlegur og hættið að
mæra verkin mín og gefa dætrum ykkar
myndir af mér til að hengja upp á vegg?“
Gjörningurinn Chris Brown
Við bjóðum 20%
af bíómiðanum og
meira popp og gos
Þegar þú greiðir með
Stúdentakorti Íslandsbanka
í Smárabíói, Háskólabíói og
Borgarbíói Akureyri færðu
stórt gos og popp á verði
miðstærðar og 20% afslátt
af bíómiðanum – alla daga.
Sjáðu nánari upplýsingar um
námsvild á islandsbanki.is
*Afslátturinn gildir hvorki með öðrum tilboðum né á sýningar í lúxussölum.
Við bjóðum
góða þjónustu
www.facebook.com/
Islandsbanki.Namsmenn
Vegna forfalla getum við innritað nokkra
nemendur fyrir skólaárið 2012-2013:
• Einn 6 ára nemanda í Forskóla I
• Einn 7 ára nemanda í Forskóla II
• 4 til 5 8-10 ára nemendur á gítar
• 2 til 3 8-10 ára nemendur á slagverk ( ásláttarhljóðfæri)
• 2 8-10 ára nemendur á harmóníku
• 2 8-10 ára nemendur á saxófón
• 2 8-10 ára nemendur á klarinett
Vinsamlega hafið samband í síma 562-8477 milli kl. 13:00-16:00
Skólastjóri