Fréttablaðið - 15.09.2012, Side 91
LAUGARDAGUR 15. september 2012 59
„Þetta er svolítið eins og að eignast barn,“ segir Arn-
ljótur Sigurðsson, söngvari og bassaleikari Ojba
Rasta, um útgáfu fyrstu plötu sveitarinnar á þriðju-
daginn.
„Við byrjuðum að taka plötuna upp fyrir tæpum
tveimur árum þannig að þetta
hefur tekið sinn tíma.“
Hin ellefu manna Ojba Rasta
spilar reggítónlist með „döbb“ ívafi.
Þrjú lög af plötunni hafa hljómað í
útvarpinu við góðar undirtektir, eða
Baldursbrá, Jolly Good og nú síðast
Hreppstjórinn. Útgefandi er Record
Records.
Umslag plötunnar er ansi ævin-
týralegt og var það listamaðurinn
Ragnar Fjalar Lárusson sem hannaði
það. „Hann er að gera alls konar dót og líka mynd-
list. Hann er einn af mínum uppáhaldslistamönnum,“
segir Arnljótur, sem hefur sjálfur unnið með Ragnari
Fjalari við myndlist. „Ég sagði við hann að mig lang-
aði að sjá eitthvað alveg geggjað og ég held
að það hafi tekist.“
Fram undan hjá Ojba Rasta eru hlust-
unarpartí á Faktorý á mánudagskvöld og
útgáfutónleikar um næstu mánaðamót.
Spilamennska á Airwaves-hátíðinni er
einnig í pípunum. „Það eru mjög spenn-
andi tímar fram undan hjá okkur og nýr
kafli að verða til.“ - fb
Langaði að sjá eitthvað geggjað
SYSTKINI Arnljótur Sigurðsson (lengst til vinstri) ásamt þremur systkinum sínum úr
Ojba Rasta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMSLAGIÐ Ragnar Fjalar Lárusson hannaði
umslag fyrstu plötu Ojba Rasta.
Bíó ★★★★★
A Seperation
Leikstjórn: Asghar Farhadi.
Leikarar: Leila Hatami, Peyman
Moaadi, Shahab Hosseini, Sareh
Bayat, Sarina Farhadi
Þessi frábæra íranska kvikmynd
frá því í fyrra hefur farið sigur-
för um heiminn, unnið til fjölda
verðlauna og nemur nú loks land í
íslenskum kvikmyndahúsum. Segir
hún frá ungum hjónum í Teheran
sem skilja að borði og sæng. Konan
flytur burt, en eiginmaðurinn verð-
ur eftir í íbúð hjónanna ásamt ung-
lingsdóttur þeirra og öldruðum
föður sínum sem þjáist af Alzheim-
er. Dag einn ræður hann fátæka
og heittrúaða konu til þess að ann-
ast gamla manninn, en hún veldur
starfinu illa og allt fer á endanum
í háaloft.
Myndin eyðir mörgum ranghug-
myndum fáfróða vesturlandabú-
ans um Íran. Tehran virðist nokkuð
nútímaleg borg og frjálslyndi milli-
stéttarinnar er meira en annarra.
Þó þetta sé ekki aðalatriði mynd-
arinnar liggur dramatíkin samt að
stórum hluta í þessum mismunandi
viðhorfum persónanna til trúarinn-
ar og lífsins.
Leikararnir eru algjörlega frá-
bærir og þau Leila Hatami og
Peyman Moaadi eru þar fremst
meðal jafningja. Áhorfandinn trúir
því að þau séu raunverulega hjón
sem hafi eitt sinn verið ástfangin
og hamingjusöm, en nú sé neist-
inn horfinn og þau eigi sér bjartari
framtíð hvort í sínu lagi. Heimilis-
hjálpin og vafasamur eiginmaður
hennar vekja samúð og fyrirlitn-
ingu til skiptis og þessi „hversdags-
legu“ vandamál sem persónurnar
glíma við kalla fram meiri spennu
en flestar hasarmyndir sem ég hef
séð nýverið.
Leikstjórinn, sem einnig er hand-
ritshöfundur og framleiðandi mynd-
arinnar, á mikið hrós skilið fyrir
vönduð vinnubrögð og góða list-
ræna dómgreind. Tökumaðurinn
er með vélina í lófanum mest allan
tímann og gerir það smekklega og
þægilega. Þá er kvikmyndin án
tónlistar alveg þar til stafir rúlla í
blálokin. Sú ákvörðun var hárrétt,
enda hefði músík sennilega þvælst
fyrir og dregið úr áhrifamættinum.
Skothelt handritið, góð leikstjórn og
leikur í úrvalsflokki sjá um þetta
hjálparlaust. Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Ein besta mynd síðasta
árs.
Drama
í úrvals-
flokki
KOMDU ÞÉR Í TOPPFORM
6-vikna námskeið
CLUB FIT-MTL mótun, tónun og lenging
Þolþjálfun og styrktaræfingar með eigin
líkamsþyngd.
Hópþjálfun á göngubrettum og góðar æfingar
sem móta, tóna og lengja vöðvana. Hópstemning
og hvetjandi tónlist. Hver og einn ræður sínum
hraða á hlaupabrettinu.
Aðeins 20 manns í hóp
45 mínútna tímar - Þér leiðist ekki eina mínútu!
Innifalið:
• Þjálfun 2x í viku
• Club Fit - MTL æfingakerfið miðar að því að styrkja
allan líkamann, móta og lengja vöðva og auka þol
• Þátttakendur hafa aðgang að lokuðu svæði með
fræðslu, upplýsingum og uppskriftum frá Hreyfingu
• Hvatningarpóstur 1 x í viku frá Ágústu Johnson
• Þol- og styrktarmælingar – fyrir og eftir
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og
opnum tímum
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu – jarðsjávarpotti
og gufuböðum