Fréttablaðið - 15.09.2012, Side 94
15. september 2012 LAUGARDAGUR62
sport@frettabladid.is
STELLA SIGURÐARDÓTTIR skoraði 12 mörk þegar íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði naumlega fyrir Slóvakíu,
22-23, í öðrum leik liðsins á æfingarmóti í Tékklandi í gær en íslenska liðið tapaði stórt fyrir Ungverjalandi í fyrsta leik sínum í
fyrradag. Það var allt annað var að sjá til íslenska liðsins í gær, íslensku stelpurnar voru 10-6 yfir í hálfleik og með forystu allan
leikinn þar til á 56. mínútu en þá seig Slóvakía framúr. Stelpurnar mæta Tékkum í lokaleik sínum í dag.
Það er okkur fyllilega
ljóst að taprekstur
gengur ekki til lengdar.
ÓLAFUR MAGNÚSSON
ÍÞRÓTTASAMBANDI FATLAÐRA
FÓTBOLTI Víkingar úr Ólafsvík
geta tryggt sér sæti í Pepsi-
deild karla á næsta sumri með
hagstæðum úrslitum á móti KA
á Akureyrarvelli í 21. umferð 1.
deildar karla á morgun.
Þórsarar eru þegar komnir
upp en KA er eina liðið sem getur
náð öðru sætinu af Víkingsliðinu.
Víkingar eru með sex stiga
forskot á KA-menn þegar
aðeins tvær umferðir eru eftir.
Ólafsvíkur-Víkingar tryggja sér
því sæti í efstu deild í fyrsta sinn
í sögu félagsins með því að ná í
stig í leiknum sem hefst kl. 14.00.
KA-menn hafa reyndar verið
á miklu flugi síðan í ágústbyrjun
og náð 16 stigum út úr síðustu sjö
leikjum sínum. Það má því búast
við hörkuleik á morgun.
Takist Víkingum að tryggja sér
Pepsi-deildarsætið í dag verður
það í fyrsta sinn síðan 1962 (ÍBÍ)
sem nýtt félag af Vesturlandi/
Vestfjörðum sem bætist í hóp
liða sem hafa spilað í efstu deild í
karlafótboltanum á Íslandi. - óój
Víkingar úr Ólafsvík:
Geta komist
upp á morgun
EINAR HJÖRLEIFSSON Á mikinn þátt í
að Víkingar hafa fengið á sig fæst mörk
allra liða í 1. deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÍÞRÓTTIR Samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar
fyrir næsta ár fær Íþróttasam-
band fatlaðra minni fjárveitingu
en á þessu ári. Upphæðin lækkar
um 400 þúsund krónur og er nú
21,1 milljón króna. „Hver króna
skiptir máli fyrir okkur eins og
alla aðra,“ segir Ólafur Magnús-
son, framkvæmdastjóri afreks-
og fjármálasviðs hjá Íþróttasam-
bandi fatlaðra.
Gulldrengurinn frá London
Ólympíumóti fatlaðra lauk fyrir
tæpri viku og fyrir aðeins fáein-
um dögum síðan tók ríkisstjórnin
sérstaklega á móti keppnissveit-
inni með mikilli viðhöfn. Fremst-
ur í þeim flokki fór Jón Margeir
Sverrisson sem vann til gullverð-
launa í Lundúnum.
„Við verðum fyrir niðurskurði
eins og fleiri. Það er auðvitað eng-
inn ánægður með það hlutskipti,“
segir Ólafur. „En því skal haldið
til haga að ríkisstjórnin kom fær-
andi hendi eftir mótið og styrkti
sambandið um fjórar milljón-
ir fyrir þann árangur sem við
náðum í London. Ber okkur vissu-
lega að þakka fyrir þann velvilja,“
bætir hann við.
„En það kostar heilmikið að
taka þátt í móti sem þessu sem
og að undirbúa okkar keppendur
fyrir þátttöku eins vel og kostur
er. Það má segja að við vorum
þegar búnir að eyða þeirri upp-
hæð áður en við fengum styrk-
inn.“
Fjárveiting sem hvarf í hruninu
Íþróttasamband fatlaðra fann
einnig fyrir hruninu á sínum
tíma. „Fram til ársins 2009 fékk
Ólympíuráð fatlaðra sérstaka
fjárveitingu upp á þrjár milljónir
á ári. Sú fjárveiting var þá tekin
af okkur og hefur aldrei komið til
baka,“ segir Ólafur.
Sambandið hélt þó áfram
sínu striki enda undirbúningur
þegar hafinn fyrir Ólympíumótið
í London. Það hafði þó sínar
afleiðingar í för með sér.
„Sambandið hefur verið rekið
með tapi undanfarin tvö ár. Okkar
eiginfjárstaða var þó á þann veg
að við gátum haldið áfram okkar
starfi en það er okkur að sama
skapi fyllilega ljóst að taprekstur
gengur ekki til lengdar,“ segir
Ólafur.
Krónurnar nýtast ekki jafn vel
Íþróttasamband fatlaðra hélt
sínum helstu styrktaraðilum
þrátt fyrir hrunið sem Ólafur
segist þakklátur fyrir.
„Okkar samstarfsaðilar hafa
staðið með okkur í gegnum súrt
og sætt. Þeir sýndu það í verki
með því að skrifa undir nýja
samninga strax eftir hrun,“ segir
Ólafur. „En eins og við þekkjum
öll hefur allur kostnaður auk-
ist mjög eftir hrunið og því nýt-
ast krónurnar sem við fáum frá
okkar samstarfsaðilum ekki jafn
vel og áður.“
Hann segir að sambandið muni
áfram ræða við ríkisvaldið um
aukna fjárveitingu og ekki síst
endurupptöku styrkveitingu til
Ólympíuráðs fatlaðra.
Á ekki von á breytingum
„Í hvert skipti sem við höfum
farið á fund fjárveitingarvalds-
ins eftir hrun höfum við biðlað
til þeirra um að taka upp þenn-
an styrk á ný. Ég á ekki von á að
það muni breytast í bráð,“ segir
Ólafur sem neitar því ekki að við
óbreytt ástand geti verið erfiðir
tímar fram undan.
„Ef ekkert breytist þarf maður
bara að bíta á jaxlinn og bölva
í hljóði. Það verður svo bara að
koma í ljós hvernig okkur tekst að
vinda ofan af okkar málum.“
eirikur@frettabladid.is
GULLDRENGURINN Jón Margeir Sverrisson synti til sigurs á Ólympíumóti fatlaðra. Hér
er hann með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FATLAÐIR FÁ MINNA Í FJÁRLÖGUM
Íþróttasamband fatlaðra fær minni fjárveitingu á næsta ári en á þessu samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi.
Fjárveiting sem fatlaðir fengu ár hvert hvarf árið 2009 vegna hrunsins. ÍF hefur verið rekið með tapi í 2 ár.