Fréttablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 97
LAUGARDAGUR 15. september 2012
FÓTBOLTI Pepsi-deild karla fer aftur
af stað á morgun eftir þrettán
daga landsleikjahlé og það gæti
farið svo að FH-ingar tryggðu sér
Íslandsmeistaratitilinn og Grinda-
vík félli þótt enn væru þrjár
umferðir eftir af deildinni.
FH-ingar eru með tíu stiga for-
skot á KR-inga og KR-liðið verð-
ur búið að spila sinn leik á móti
Breiðabliki þegar kemur að stór-
leik FH og Stjörnunnar klukkan
19.15 á sunnudagskvöldið. Tak-
ist Vesturbæingum ekki að vinna
Blika þá verður það ljóst við fyrsta
flaut á teppinu í Garðabæ að FH-
liðinu nægir eitt stig til að gull-
tryggja sjötta Íslandsmeistaratit-
ilinn á átta árum.
FH-liðið hefur unnið þrjá leiki
í röð án þess að fá á sig mark og
alls náð í 21 af 24 stigum í boði frá
miðjum júlímánuði og það þykir
flestum aðeins vera tímaspursmál
hvenær FH-ingar endurheimta
Íslandsbikarinn.
Grindvíkingar eru aftur á móti
í afar slæmum málum á botni
deildarinnar og ekkert nema sigur
á móti ÍBV í Eyjum kemur í veg
fyrir að liðið falli úr deildinni.
Grindavík er tíu stigum á eftir
Fram sem situr í síðasta örugga
sætinu eins og er. Tapi Fram og
nái Grindavík í stig þá munar níu
stigum þegar níu stig eru eftir í
pottinum en markatala Grindavík-
urliðsins er miklu verri (20 mörk)
og liðið væri því í raun fallið.
Það verður líka hart barist um
Evrópusætin enda munar aðeins
þremur stigum á liðunum í 3. til 6.
sæti (Stjarnan 29, ÍBV 28, ÍA 28,
Breiðablik 26). Bikarmeistaratit-
ill KR-inga þýðir að liðin í 3. og
4. sæti komast í Evrópukeppnina
næsta sumar.
Þá má ekki gleyma fallbarátt-
unni því slæm staða Grindvíkinga
breytir því ekki að það fer annað
lið líka niður í 1. deild og þar sem
Framarar og Selfyssingar voru á
miklu flugi fyrir frí þá mega liðin
fyrir ofan þau vara sig. Tvö þeirra,
Keflavík (tekur á móti Fram) og
Fylkir (tekur á móti Selfossi) drag-
ast fyrir alvöru niður í fallbarátt-
una með tapi í þessum leikjum. - óój
Leikir morgundagsins:
16.00 ÍBV - Grindavík Hásteinsvöllur
17.00 ÍA - Valur Akranesvöllur
17.00 Keflavík - Fram Nettóvöllurinn
17.00 Fylkir - Selfoss Fylkisvöllur
17.00 KR - Breiðablik KR-völlur
19.15 Stjarnan - FH Samsung völlurinn
Pepsi-deild karla aftur af stað eftir landsleikjahlé:
Jafntefli gæti fært
FH-ingum titilinn
HEMIR GUÐJÓNSSON Þjálfari FH-inga
þarf ekki að hafa miklar áhyggjur
enda er staða liðsins frábær á toppi
deildarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
- Ekkert um okkur án okkar
www.obi.is
„Ég hafði gaman af kennslunni, hún var oft krefjandi
en það var líka gefandi að vinna með unglingum. Mér
leið einnig vel í hópi góðra starfsfélaga. Í dag snýst
lífið um að gera það besta úr þeirri litlu orku sem ég
hef, finna mér tilgang í félagsstörfum og sinna
fjölskyldunni. Ég valdi það ekki að verða öryrki. Það
rýrir ekki gildi þitt sem manneskju að geta ekki
unnið.“
Þorbera Fjölnisdóttir
Langflestir sem verða öryrkjar hafa unnið í áratugi
og óska þess að geta tekið virkan þátt í samfélag-
inu. Örorka er ekki val eða lífsstíll.
Ég borgaði skatta í
22 ár og borga enn
Ég valdi ekki að verða öryrki
MENNINGARSJÓÐUR KVENNA Á ÍSLANDI
UMSÓKNUM
Markmið sjóðsins er að styrkja menningarstarfsemi kvenna sem
beinist að því að greina, efla, varpa ljósi á og breyta stöðu
kvenna í íslensku samfélagi. Með menningarstarfsemi er átt við
hvers kyns listir, rannsóknir og kynningu á menningu kvenna.
Úthlutað er árlega úr sjóðnum. Umsækjendur geta verið konur,
samtök þeirra, félög eða fyrirtæki.
Umsóknum skal skila á eyðublaði sem nálgast má á vefsíðu
Hlaðvarpans, www.hladvarpinn.is. Á síðunni er einnig skipulagsskrá
sjóðsins þar sem fram koma skilyrði fyrir styrkveitingum úr sjóðnum.
Hlaðvarpinn er sjóður sem stofnaður var af hluthöfum Hlaðvarpans
ehf. til styrktar menningarmálum kvenna á Íslandi. Stofnfé sjóðsins
er söluandvirði fasteigna félagsins að Vesturgötu 3 í Reykjavík.
Hlaðvarpanum
pósthólf 1280
121 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2012
Öllum umsóknum verður svarað.
Sjá nánar á vefsíðu sjóðsins, www.hladvarpinn.is
Upplýsingar veitir stjórn sjóðsins um netfangið
hladvarpinn@hladvarpinn.is
UMSÓKNIR SKULU BERAST
auglýsir eftir
GOLF Ragnar Már Garðarsson úr
GKG tryggði sér í fyrradag sigur á
hinu virta og sterka unglingamóti,
Duke of York golfmótinu, sem fór
fram á Royal Troon vellinum í
Skotlandi. Ragnar Már kom heim
til Íslands í gær og fékk frábærar
móttökur í klúbbhúsi GKG.
„Ég er mjög sáttur enda ætlaði
ég bara að gera mitt besta og fá
bara reynslu út úr þessu. Ég bjóst
ekki alveg við því að vinna mótið,“
sagði Ragnar Már Garðarsson
í samtali við Fréttablaðið en
móttakan í gær kom honum
skemmtilega á óvart.
Ragnar Már tryggði sér
sigurinn í bráðabana en hann
komst í hann með því að ná
besta hring lokadagsins. Ragnar
lék á 72 höggum eða pari Royal
Troon vallarins. Það var frábært
skor enda voru aðstæður mjög
erfiðar. „Þetta var rosa mikið
rok og mikil rigning inn á milli.
Ég var örugglega aðeins vanari
aðstæðunum en aðrir því sumir
eru bara vanir því að spila í sól
og blíðu alla daga,“ segir Ragnar
í léttum tón.
Ragnar var í sjöunda sæti fyrir
lokahringinn en tókst samt að
komast í umspilið. „Ég ætlaði að
spila mitt besta golf og vona það
besta. Ég fattaði það á tveimur síð-
ustu holunum að ég væri að spila
mjög vel miðað við aðstæður því
það voru ekki allir að gera það. Ég
sá þá strax að ég gæti hafa komist
ofar. Eftir hringinn þá fattaði ég,
þegar ég var að borða, að ég væri
kominn upp í þriðja sætið og svo
var ég bara kominn í umspil. Þetta
var mjög spennandi og áhugavert,“
segir Ragnar um atburðarrásina í
lok mótsins.
Ragnar Már er enn bara 17 ára
gamall og fær því tækifæri til að
mæta aftur á mótið á næsta ári til
þess að verja titilinn. „Ég var ekki
að stressa mig mikið yfir þessu.
Ég var bara glaður með hvað ég
spilaði vel og var kominn langt.
Ég fékk mjög mikla athygli og það
voru margir sem vildu tala við
mig. Mér var boðið á mótið aftur
á næsta ári til þess að verja tit-
ilinn. Ég ætla að reyna það. Það
eru flestir sem hafa unnið mótið
á lokaárinu og því ekki algengt að
menn fái tækifæri til að verja titil-
inn,“ segir Ragnar Már.
Það var Andrew Bretaprins sem
afhenti honum verðlaunin. „Hann
var hress, spurði mig hvern-
ig hefði gengið og óskaði mér til
hamingju. Hann spurði líka hvort
veðrið væri svipað á Íslandi,“ segir
Ragnar Már og þessi stórefnilegi
kylfingur er með háleit markmið í
golfinu. „Ég ætla að reyna að kom-
ast í háskóla út og spila þar. Svo
ætla ég mér að gerast atvinnumað-
ur fljótlega,“ segir Ragnar sem er
einnig mjög liðtækur í blaki og
tennis.
„Ég er í landsliðinu í blaki en
blakið er meira svona á veturna.
Ég var í tennis en hætti því í
sumar til þess að einbeita mér að
golfinu,“ segir Ragnar.
Hann er hlaðinn verðlaunum
eftir sumarið og það er ekki slæmt
að halda upp á það að vera kosinn
efnilegasti kylfingur landsins
með því að vinna eitt sterkasta
unglingagolfmót í heimi.
ooj@frettabladid.is
Bjóst ekki við því að vinna
Ragnar Már Garðarsson fékk frábærar móttökur þegar hann kom til landsins í
gær sem nýrkrýndur meistari á einu sterkasta unglingagolfmóti heimsins.
FAGNAÐARFUNDIR Foreldrar Ragnars, Ragnheiður Sigurðardóttir og Garðar Ólafsson,
taka hér á móti honum í gær ásamt bróður hans Sigurði Arnari. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI