Fréttablaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 9
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
26
19
Skráning fer fram á vefnum okkar www.promennt.is og þar má einnig finna allar
nánari upplýsingar.
PROMENNT
Skeifunni 11B 108 Reykjavík Sími 519 7550 promennt@promennt.is promennt.is
HAGNÝT BÓKHALDSNÁMSKEIÐ
Hjá Promennt er boðið upp á hagnýt bókhaldsnámskeið, bæði fyrir þá sem þurfa á grunnþjálfun að halda – en einnig fyrir lengra
komna, sem vilja bæta við þekkinguna eða ná meiri færni. Einnig er boðið upp á ýmis bókhaldstengd sérnámskeið, svo sem
fjárhagsbókhald í Navision, tollskýrslugerð og fleira.
www.promennt.is
Ég var mjög ánægð með námskeiðið í Bókhaldi I og Excel. Frábært að geta verið bara heima
og lært í gengum netið. Það var líka svo gott að geta nýtt sér sveigjanleikann í mætingu eins og
t.d. fyrir mig þar sem ég er í vaktavinnu. Ekkert mál að svissa á milli morgun- og kvöldtíma eftir
því hvað hentaði minni vinnu. Síðan eru þarna frábærir kennarar sem komu öllu efni frá sér á
mjög skýran hátt en leyfðu samt sem áður þeim sem voru fljótari að ná hlutunum eða með
meiri þekkingu að njóta sín. Ég er í alla staði mjög ánægð með þjónustuna hjá Promennt og á
klárlega eftir að nýta mér það að fara á fleiri námskeið.
Sólveig Pétursdóttir (Bókhald 1 og Excel)
Hjá Promennt er
boðið upp á
fjarkennslu í beinni.
Hjá Promennt er
boðið upp á dag-
og kvöldnám.
Promennt er eini
Microsoft-vottaði
skólinn á Íslandi.
BÓKHALD 1
Sérlega hagnýtt námskeið fyrir þá sem þurfa að ná tökum á bókhaldinu. Hentar einnig
þeim sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði með góðri undirstöðu, þekkingu og
grunnþjálfun í bókhaldsvinnu. Kennsla byggir að mestu leyti á verklegum æfingum með
raunveruleg fylgiskjöl. Námið er metið til eininga.
Helstu viðfangsefni: Verslunarreikningur, VSK-reglur og skýrslur, bókhaldsgrunnur og
tölvubókhald.
Lengd: 115 std. Verð: 109.000 kr. Hefst: 10. október
Boðið er upp á morgun- og kvöldnámskeið.
BÓKHALD 2
Einstaklega hagnýtt framhaldsnámskeið í bókhaldi. Hentar þeim sem hafa bókhalds-
reynslu eða hafa lokið tölvu-, skrifstofu- og bókhaldsnámi og vilja ná frekari skilningi
og færni í bókhaldi. Kennsla fer fram í formi verklegra æfinga.
Helstu viðfangsefni: Fjárhagsbókhald, upprifjun og flóknar færslur, VSK-uppgjör og
leiðréttingarskýrslur, launabókhald, útreikningur launa, lífeyrissjóður og skattur,
launamiðar, launaframtal og skil til skatts. Afstemmingar, lokafærslur og skil á bókhaldi
til endurskoðenda, uppsetning rekstrar- og efnahagsreikninga og lestur ársreikninga.
Lengd: 90 std. Verð: 109.000 kr. Hefst: 2. október
Boðið er upp á morgun- og kvöldnámskeið.
EXCEL – FRAMHALD
Framhaldsnámskeið í Excel þar sem þátttakendur munu læra hvernig beita má Excel á stórar
töflur og vinna úr gögnum á fjölbreyttan hátt, m.a. með Pivot töflum og gröfum, ásamt
notkun Excel við flóknari verkefni og til útreikninga. Að auki verða tekin fyrir nokkur gagnleg
fjármálaföll, uppfletti- og leitarföll ásamt Data Tools verkfærunum. Áhugasömum gefst færi á
að skyggnast í Excel 2013.
Lengd: 15 std. Verð: 29.900 kr. Hefst: 20. september
NAVISION – FJÁRHAGSBÓKHALD
Nám ætlað þeim sem hafa einhvern bókhaldsgrunn að byggja á eða hafa t.d. lokið bókhalds-
áföngum í framhaldsskóla. Aðalmarkmið er að þjálfa fólk til starfa við tölvubókhald í Navision
og kenna meðferð bókhaldsgagna og uppbyggingu bókhaldslykla í tölvu. Leiðréttingar,
millifærslur, reikningsjöfnuður og afstemmingar. Fylgiskjöl nokkurra mánaða færð með
tilheyrandi uppgjöri og útskriftum lista, aðalbókar, efnahags- og rekstrarreikninga.
Lengd: 47 std. Verð: 54.000 kr. Hefst: 7. nóvember
Boðið upp á morgun- og kvöldnámskeið.
TOLLSKÝRSLUGERÐ
Hagnýtt og ítarlegt námskeið í gerð tollskýrslna. Kynntar eru helstu reglur er varða innflutning,
innflutningstakmarkanir og undanþágur. Farið er yfir fylgiskjöl með vörusendingum (hvaða tilgangi
þau þjóna við innflutning og gerð tollskýrslna), myndun tollverðs og útreikning aðflutnings-
gjalda. Kynntir eru fríverslunarsamningar og notkun tollskrárinnar.
Lengd: 21 std. Verð: 28.000 kr. Hefst: 28. nóvember
Boðið er upp á morgun- og kvöldnámskeið.
VILTU BÆTA
VIÐ ÞIG
ÞEKKINGU?