Fréttablaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 4
17. september 2012 MÁNUDAGUR4 SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli íslenskra skipa nam 100.401 tonni í ágúst sem er um 1,6% minni afli en í ágúst 2011 þegar aflinn nam 109.814 tonnum. Þótt aflinn minnki hefur hann aukist um 15,8% miðað við sama tíma- bil 2011, sé hann metinn á föstu verði, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 76.600 tonnum, en 83.300 tonn af uppsjávarafla veiddust í ágúst 2011. Rúmum 54.700 tonnum var landað af makríl í ágústmánuði, samanborið við 58.900 tonn í ágúst 2011. Um 19.800 tonn veiddust af síld sem er samdráttur frá fyrra ári um 4.000 tonn. - shá Heildarafli fiskiskipa í ágúst: Tonnin færri en virðið eykst Á DEKKI 100 þúsund tonn fóru á þurrt í ágúst. Rangt var farið með nafn formanns Sjúkraliðafélags Íslands í tilvitnun sem fylgdi frétt í helgarblaði Fréttablaðsins. Rétt nafn formanns Sjúkraliðafélags- ins er Kristín Á. Guðmundsdóttir. LEIÐRÉTTING LÖGREGLUMÁL Lagt var hald á nokkra tugi gramma af efni sem talið er vera amfetamín við hús- leit lögreglu á höfuðborgarsvæð- inu á laugardagskvöld. Einnig fundust peningar sem taldir eru afrakstur fíkniefnasölu. Fram kemur í tilkynningu lögreglu að húsráðandi, kona á þrítugsaldri með tengsl við vél- hjólagengið Outlaws, hafi verið handtekinn í þágu rannsóknar- innar. Konan er sögð hafa komið áður við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála. - óká Fundu amfetamín við húsleit: Húsráðandinn tengist Outlaws Farþegi fluttur á slysadeild Farþegi bifreiðar var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild eftir árekstur í Kópavogi klukkan níu á laugardags- morgun. Ökumaður bílsins var hins vegar fluttur á lögreglustöð og vistaður í fangageymslu grunaður um að vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna. LÖGREGLUMÁL SJÁVARÚTVEGUR „Það eina sem Evr- ópusambandinu er heimilt að gera er að beita löndunarbanni á íslensk fiskiskip sem eru á makríl veiðum en allar aðgerðir umfram það, innflutningsbann eða slíkt, eru skýrt brot gegn EES-samningnum, segir Friðrik Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ. Á heimasíðu sambandsins segir að heimild til refsiaðgerða sem Evr- ópuþingið samþykkti sé almenns eðlis og beinist því ekki eingöngu gegn Íslendingum, heldur öllum ríkjum sem talin eru stunda ofveiði á sameiginlegum fiskistofnum. Þá taki hún eingöngu til þeirra tegunda sem talið er að séu ofveiddar og annars afla sem veiddur er í sömu veiðiferð. Því sé ekki hægt að halda því fram að innflutningsbann verði sett á allar íslenskar sjávarafurðir á grundvelli heimildarinnar. Friðrik segir fráleitt að saka Ísland um ofveiði. „Við höfum ítrekað lagt fram tillögur um að allir dragi úr veiðum svo ekki verði veitt umfram ráðgjöf. En þá þurfum við auðvitað að fá sann gjarnan hlut eins og aðrir. Þá er mikilvægt að það fari fram endurmat á makríl- stofninum því gera má ráð fyrir að stofninn sé mun stærri en mælingar vísindamanna benda til,“ segir Friðrik. - shá Útvegsmenn segja aðrar aðgerðir en löndunarbann brot á EES-samningnum: Nær bara til löndunar á makríl LANDAÐ Í EYJUM Löndunarbann á íslensk fiskiskip á makrílveiðum er það eina sem refsireglur ESB leyfa. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 26° 22° 18° 24° 24° 18° 18° 28° 19° 28° 24° 31° 17° 25° 18° 17° Á MORGUN Strekkingur eða all- hvasst austan til annars hægari. MIÐVIKUDAGUR Allhvasst með NA- ströndinni annars frem- ur hægur vindur. 8 8 7 5 5 8 8 7 6 5 8 7 7 7 9 6 5 5 4 4 0 8 6 4 8 7 9 6 15 15 7 1 7 8 NORÐANÁTT verður ríkjandi næstu daga með minnkandi úrkomu norðan- og austan- lands en björtu veðri sunnan og vestan til. Um miðja viku gæti orðið bjartviðri mjög víða um land en svo lítur út fyrir sunnanátt með rigningu þegar líður að næstu helgi. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður LÖGREGLUMÁL Enn er allt á huldu um orsök öflugrar sprengingar í Ofanleiti í gærmorgun. Íbúi í hús- inu liggur lífshættulega slasaður á Landspítalanum eftir atvikið. Lögregla lauk vettvangsvinnu um sexleytið í gær, en hefur enn ekkert gefið út um tildrög spreng- ingarinnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ekkert sem liggur fyrir um að eitthvað sak- næmt hafi farið fram í íbúðinni sem hefði getað valdið slysinu. Ingvar Ágústsson var staddur í Ofanleiti þegar sprengingin varð og var hann fyrstur á vettvang. Hann sá mann standa í stofu íbúð- arinnar og hljóp til hans til að aðstoða hann við að koma sér út. Að sögn Ingvars var ekki mikill eldur í íbúðinni á þessu stigi, að undanskildum logum í hljómflutn- ingsgræjum og litlum logum í eld- húsi. Hann slökkti eldinn strax í raftækjunum og reyndi svo að beina manninum út. Veggur sem skildi að stofu og svefnherbergi hafði hrunið inn í stofuna og ofan á sófann. „Næsta hugsun var að koma honum út. En veggurinn blokker- aði gönguleiðina ásamt sófanum, en ég náði að þrykkja sófanum til og hann labbaði svo út sjálfur,“ segir Ingvar. Hann ræddi ekkert við manninn, sem var augljóslega í miklu losti. Hann náði þó að tjá honum að hann væri einn í íbúð- inni ásamt hundinum sínum, sem slapp ómeiddur úr sprengingunni. „Það eina sem ég sá var gas kútur í eldhúsinu,“ segir hann. „Það var enginn eldur í stofunni þegar við komum að þessu. Mér finnst heldur ólíklegt að sprengingin hafi orðið þar, þar sem veggurinn hrundi inn í hana, en ekki öfugt.“ Sigurður Ásgrímsson, fagstjóri sprengjusveitar Landhelgisgæsl- unnar, furðar sig á að lögregla hafi ekki kallað Landhelgisgæsl- una á svæðið þegar sprengingin varð. „Það hefði verið eðlilegt að gera það,“ segir Sigurður. „Ég mun lík- lega óska eftir því á morgun [í dag] að fá að sjá vettvanginn og afla mér upplýsinga um þetta mál.“ Sigurður segir erfitt að segja til um orsakir sprengingarinnar án þess að hafa séð svæðið. Hann segir þó að miðað við það sem hann sá í fréttum hafi verið ein- kennilegt hversu mikill eldur blossaði upp í kjölfar sprenging- arinnar. „Það er yfirleitt ekki svo í gas- sprengingum, þær eru hreinni og sneggri. En hvort það hafi verið einhver önnur efni í íbúðinni sem voru svona mikill eldsmatur er erfitt að segja til um,“ segir hann. „Þetta er allt mjög einkennilegt. Mjög undarlegt. Ég mun kanna þetta mál á morgun [í dag] til að heyra hvað lögreglan telur að þetta hafi getað verið. Það er mjög nauðsynlegt fyrir okkur að vera upplýstir í öllu svona. En það vantar upp á hér á landi að menn taki svona löguðu alvarlega.“ Sigurður segir gas vissulega vera fyrstu hugmyndina sem komi upp í svona sprengingum. „En þessi eldur og svarti reykur gerir það mjög einkennilegt,“ segir hann. „Leifar af gaskúti ættu þá að finnast í íbúðinni ef það hefur verið orsökin.“ sunna@frettabladid.is Undrast að ekki hafi verið leitað til sprengjusveitar Lögregla rannsakar nú tildrög öflugrar sprengingar við Ofanleiti í gær. Maður slasaðist lífshættulega í slysinu. Nauðsynlegt að taka svona löguðu alvarlega, segir fagstjóri sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar. ÖFLUG SPRENGING Fljúgandi brak úr íbúðinni skemmdi bíla tugi metra frá fjöl- býlishúsinu. Borgarstarfsmenn fóru strax í að hreinsa upp glerbrot, sem höfðu dreifst víða um hverfið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Íbúum í Ofanleiti 17 og 19 var boðið upp á hressingu og áfallahjálp í hús- næði Rauða krossins um eittleytið í gær eftir að húsin voru rýmd. Að sögn Jóns Brynjars Birgissonar hjá Rauða Krossinum komu um 15 manns úr hús- unum til að fá upplýsingar, en þeim var einnig boðin gisting ef þörf var á. „Þau mega ekki fara heim til sín strax, en mér sýnist langflestir vera komn- ir með gistingu,“ segir Jón Brynjar. „Okkar hlutverk núna er að hlusta á þau og veita þeim upplýsingar. Svo höfum við samband við íbúana nokkrum dögum síðar til að kanna hvernig þeim hefur reitt af.“ Íbúum boðið í Rauða krossinn GENGIÐ 14.09.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,0412 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 120,65 121,23 195,91 196,87 157,91 158,79 21,178 21,302 21,268 21,394 18,4 18,508 1,5457 1,5547 186,8 187,92 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.