Fréttablaðið - 17.09.2012, Blaðsíða 58
17. september 2012 MÁNUDAGUR26
sport@frettabladid.is
HAUKAR komust auðveldlega áfram í EHF-bikarnum í handbolta um helgina en þá mættu
þeir HC Mojkovac frá Svartfjallalandi í tveimur leikjum. Fyrri leikurinn vannst með tuttugu
marka mun og sá seinni með sex mörkum. Tímabilið fer því vel af stað hjá Haukunum.
1-0 Halldór Orri Björnsson (11.), 1-1 Albert
Brynjar Ingason (15.), 1-2 Atli Guðnason
(81.), 2-2 Mark Doninger (90.).
Skot (á mark): 9-7 (5-6)
Varin skot: Ingvar 3 - Gunnleifur 3.
STJARNAN (4-3-3): Ingvar Jónsson 6 - Jóhann
Laxdal 6, Tryggvi Sveinn Bjarnason 6 (58. Baldvin
Sturluson 5), Daníel Laxdal 7, Hörður Árnason
6 (84. Garðar Jóhannsson -) - Alexander Scholz
6, Halldór Orri Björnsson 7, Atli Jóhannsson 5 -
Gunnar Örn Jónsson 3 (72. Mark Doninger 5),
Kennie Knak Chopart 5, Ellert Hreinsson 4.
FH (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson 6 - Guðjón
Árni Antoníusson 6, Freyr Bjarnason 7, Guðmann
Þórisson 7, Danny Justin Thomas 6 - Pétur Viðars-
son 6, Björn Daníel Sverrisson 7, Bjarki Gunn-
laugsson 6 -Hólmar Örn Rúnarsson 5 (69. Viktor
Örn Guðmundsson 5), Atli Guðnason 8, Albert
Brynjar Ingason 7. * MAÐUR LEIKSINS
Samsungvöllur, áhorf.: 1.257 Þóroddur Hjaltalín (7)
2-2
1-0 Christian Steen Olsen (23.), 2-0 Andrí
Ólafsson, víti (32,), 2-1 Hafþór Ægir Vil-
hjálmsson (51.)
Skot (á mark): 11-5 (6-3)
Varin skot: Abel 2 - Óskar 2.
ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 7 - Arnór Eyvar Ólafs-
son 7, Brynjar Gauti Guðjónsson 6, Rasmus
Christiansen 6, Matt Garner 6 - Tonny Mawejje
6, Andri Ólafsson 6, Guðmundur Þórarinsson 6 -
Víðir Þorvarðarson 8*, Christian Steen Olsen 6,
Ian David Jeffs 6.
GRINDAVÍK (4-4-2): Óskar Pétursson 5 - Ray
Anthony Jónsson 5, Björn Berg Bryde 5, Ólafur
Örn Bjarnason 5, Matthías Örn Friðriksson 5 - Óli
Baldur Bjarnason 6 (67., Scott Mckenna Ramsay
5), Iain James Williamson 6 (70., Alex Freyr
Hilmarsson 5), Marko Valdimar Stefánsson 6,
Hafþór Ægir Vilhjálmsson 7 - Tomi Ameobi 4, Pape
Mamadou Faye 5. * MAÐUR LEIKSINS
Hásteinsvöllur, áhorf.: 611 Garðar Ö. Hinriksson (7)
2-1
0-1 Matthías Guðmundsson (86.), 1-1 Garð-
ar Bergmann Gunnlaugsson (90.)
Skot (á mark): 7-16 (3-7)
Varin skot: Páll 6 - Sindri 2.
ÍA (4-3-3): Páll Gísli Jónsson 7 - Theodore Furness
5, Ármann Smári Björnsson 6, Kári Ársælsson 5,
Guðjón Heiðar Sveinsson 3 - Einar Logi Einarsson
4, Arnar Már Guðjónsson 3, Hallur Flosason 4 (61.,
Jesper Holdt Jensen 6) - Dean Martin 4 (76., Jón
Vilhelm Ákason -), Andri Adolphsson 6, Garðar
Bergmann Gunnlaugsson 6
VALUR (4-5-1): Sindri Snær Jensson 5 - Jónas Tor
Næs 5, Matarr Jobe 6, Halldór Kristinn Halldórsson
6, Úlfar Hrafn Pálsson 6 - Haukur Páll Sigurðsson
7, Rúnar Már Sigurjónsson 8*, Kristinn Freyr
Sigurðsson 8 - Ásgeir Þór Ingólfsson 3 (67., Indriði
Áki Þorláksson 6), Matthías Guðmundsson 7 (90.,
Atli Heimisson -), Kolbeinn Kárason 6 (79., Þórir
Guðjónsson -). * MAÐUR LEIKSINS
Akranesvöllur, áhorf.: 813 Kristinn Jakobsson (7)
1-1
0-1 Kristinn Jónsson (34.), 0-2 Nicholas
Rohde (72.), 0-3 Elfar Árni Aðalsteinsson
(81.), 0-4 Tómas Óli Garðarsson (90.).
Skot (á mark): 8-7 (5-6)
Varin skot: Hannes 2 - Ingvar 3.
KR (4-3-3): Hannes Þór Halldórson 5 - Magnús
Már Lúðvíksson 4, Bjarni Guðjónsson 4, Grétar
Sigfi nnur Sigurðarson 4, Aron Bjarki Jósepsson
3 - Jónas Guðni Sævarsson 4, Björn Jónsson -,
(4., Viktor Bjarki Arnarsson 3), Baldur Sigurðsson
5 - Þorsteinn Már Ragnarsson 5, Emil Atlason 4,
Gary Martin 3.
BREIÐABLIK (4-3-3): Ingvar Þór Kale 7 - Þórður
Steinar Hreiðarsson 7, Renee Troost 7, Sverrir Ingi
Ingason 7, Kristinn Jónsson 8* - Ben Everson
7(88., Stefán Þór Pálsson -), Tómas Óli Garðarsson
8, Rafn Andri Haraldsson 7 - Arnar Már Björgvins-
son 5(69., Elfar Árni Aðalsteinsson 6), Andri Rafn
Yeoman 6, Nichlas Rohde 7(90., Haukur Baldvins-
son -). * MAÐUR LEIKSINS
KR-völlur. Þorvaldur Árnason (7)
0-4
1-0 Sigurbergur Elísson (18.), 2-0 Sigur-
bergur Elísson (62.), 0-3 Einar Orri Einars-
son (68.), 4-0 Hörður Sveinsson (73.), 5-0
Jóhann Ragnar Benediktsson (81.)
Skot (á mark): 11-4 (8-3)
Varin skot: Ómar 3 - Ögmundur 2.
KEFLAVÍK (4-3-3): Ómar Jóhannsson 6 – Grétar
Atli Grétarsson 7, Haraldur Freyr Guðmundsson 7,
Magnús Þór Magnússon 7, Jóhann Ragnar Bene-
diktsson 7 – Magnús Sverrir Þorsteinsson 6 (77.,
Bojan Stefán Ljubicic ), Frans Elvarsson 7, Denis
Selimovic 6, Einar Orri Einarsson 7 (83., Elías Már
Ómarsson -), Sigurbergur Elísson 8* – Guð-
mundur Steinarsson 7 (69., Hörður Sveinsson 6).
FRAM (4-5-1): Ögmundur Kristinsson 4 – Daði
Guðmundsson 3, Alan Lowing 3, Kristján Hauks-
son 4, Sam Tillen 4 – Jón Gunnar Eysteinsson 3,
Halldór Hermann Jónsson 5, Samuel Hewson 4 –
Almarr Ormarsson 5 (77., Sveinbjörn Jónassson -),
Kristinn Ingi Halldórsson 5, Orri Gunnarsson 4.
* MAÐUR LEIKSINS
Nettóvöllur, áhorf.: 713 Gunnar J. Jónsson (6)
5-01-0 Magnús Þórir Matthíasson (58.), 2-0 Björgólfur Takefusa (71.).
Skot (á mark): 10-10 (6-4)
Varin skot: Bjarni 4 - Ismet 3.
FYLKIR (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 5 -
Davíð Þór Ásbjörnsson 5 (67., Ásgeir Eyþórsson),
Kjartan Ágúst Breiðdal 5, David Elebert 5 (61.,
Björgólfur Takefusa 6), Tómas Þorsteinsson 5 -
Finnur Ólafsson 6, Elís Rafn Björnsson 6 (46.,
Sigurvin Ólafsson 6), Emil Ásmundsson 5 - Ingi-
mundur Níels Óskarsson 4, Árni Freyr Guðnason
4, Magnús Þórir Matthíasson 5
SELFOSS (4-5-1): Ismet Duracak 5 - Endre Ove
Brenne 5, Stefán Guðlaugsson 5, Hafþór Þrastar-
sonz 5, Robert Sandnes 5 - Jón Daði Böðvarsson
6, Egill Jónsson 5, Babacar Sarr 4, Tómas Leifsson
4 (30., Ivar Skjerve 5) , Jon Royrane 4 (56., Marko
Hermo 5) - Viðar Kjartansson 5. * MAÐUR LEIKSINS
Fylkisvöllur. Vilhjálmur Þórarinsson (7)
2-0
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA:
FH 19 13 3 3 45-19 42
ÍBV 19 9 4 6 30-17 31
KR 19 9 4 6 32-27 31
Stjarnan 19 7 9 3 39-33 30
Breiðablik 19 8 5 6 26-24 29
ÍA 19 8 5 6 28-32 29
------------------------------------------------------------
Fram 19 6 2 11 27-34 20
Selfoss 19 5 3 11 25-36 18
Grindavík 19 2 4 13 26-49 10
FÓTBOLTI FH og Stjarnan skildu
jöfn 2-2 á Samsung-vellinum í
Garðabænum í gær en FH varð
meistari í fyrsta sinn síðan 2009
með þessum úrslitum.
Stjörnumenn komust yfir í
byrjun leiksins í gær en FH- ingar
svöruðu um hæl. Atli Guðnason
tryggði FH-ingum í raun Íslands-
meistaratitilinn tíu mínútum fyrir
leikslok þegar hann kom gestunum
yfir með laglegu marki. Stjarnan
náði aftur á móti að jafna metin
þegar komið var fram yfir venju-
legan leiktíma og smá stress kom
yfir FH-inga í nokkrar sekúndur
áður en Þóroddur Hjaltalín jr.
flautaði til leiksloka.
„Þetta er frábær tilfinning að
vera orðinn Íslandsmeistari,“
sagði Guðjón Árni Antoníusson,
leikmaður FH, eftir leikinn.
„Við ætluðum auðvitað að vinna
leikinn í kvöld en manni er í raun
alveg sama núna, þetta er búið, við
erum meistarar. Við vorum aftur
á móti ekki góðir í kvöld og í raun
var spilamennska okkur ömurleg.
Mér fannst leikurinn einhvern
veginn bara líða áfram en það var
gríðarlega mikilvægt fyrir okkur
að skora annað markið, það kláraði
leikinn í raun.“
„Þetta var rosalega erfiður
leikur og maður er alveg búinn á
því,“ sagði Björn Daníel Sverrisson,
leikmaður FH, eftir leikinn í gær.
„Það er virkilega þægilegt að
vera búnir að klára þetta þegar
þrjár umferðir eru eftir og við
getum farið aðeins rólegir inn í
næstu leiki, haft gaman af hlut-
unum og spilað skemmtilegan fót-
bolta. Ég bjóst alltaf við því að við
yrðum Íslandsmeistara en það
kemur mér á óvart að vera búnir
að tryggja okkur titilinn svona
löngu fyrir mótslok, hélt kannski
að við myndum berjast um dolluna
alveg fram í lokaumferðina.“
„Það er mikil liðsheild í þessu
liði og það er að skila okkur
þessum Íslandsmeistaratitli,“
sagði Atli Guðnason, leikmaður
FH, eftir að liðið hafði tryggt sér
titilinn stóra.
„Það hefði verið skemmtilegra
að vinna leikinn hérna í lokin og
leiðinlegt að fá þetta jöfnunarmark
á okkur, en við er Íslandsmeist-
arar og það er gríðarlega gaman.
Það var gaman að sjá boltann í
netinu en ég setti hann bara á milli
lappanna á mark verðinum, alveg
eins og á að gera þetta,“ sagði Atli
Guðnason, markaskorari FH, eftir
sigurinn í gær.
KR-ingar töpuðu stórt
KR kastaði frá sér sínum titilvon-
um með neyðarlegu tapi í Vestur-
bænum gegn Blikum.
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR,
var ómyrkur í máli í lok leiks og
sagði gengi liðsins að undanförnu
illskiljanlegt.
„Það er erfitt að útskýra gengi
okkar í undanförnum leikjum. Við
höfum lagt leikina upp með því að
reyna að vinna þá en það virðist
ekkert ganga né falla með okkur,“
sagði Rúnar.
„Við erum bara búnir að ná í
átta stig í síðari umferðinni sem
er skelfileg uppskera og erum við
alls ekki sáttir við það. Við erum
bikarmeistarar en erum búnir að
missa af titlinum og er það sárt og
svekkjandi. Við stefndum á að ná
að vinna deildina líka en það gekk
ekki eftir,“ sagði Rúnar að lokum.
Grindavík fallið
Lærisveinar Guðjóns Þórðar sonar
féllu endanlega við tap í Eyjum.
„Staðreynd dagsins er sú að við
erum fallnir og yfirleitt þegar lið
falla er það vegna þess að þau eru
ekki nógu góð. Það þurfa allir að
kíkja á sína frammistöðu, ég þarf
að kíkja á mína og mínir leikmenn
þurfa að kíkja á sína,“ sagði Guð-
jón dapur.
„Við þurfum að meta það og vega
hvernig við getum bætt það sem
úrskeiðis hefur farið. Stundum
þarf að taka eitt skref aftur á bak
til að taka tvö skref áfram, það er
það sem við verðum að gera,“ sagði
Guðjón en athygli vakti að hann
brá sér til Spánar á dögunum í frí.
Hann vildi ekki ræða um það eftir
leikinn.
- sáp, shf, gts
Bikarinn aftur í Fjörðinn
FH er orðið Íslandsmeistari í knattspyrnu þó svo þrjár umferðir séu eftir af
Pepsi-deildinni. Stig gegn Stjörnunni dugði til enda tapaði KR stórt gegn
Blikum. Grindavík tapaði í Vestmannaeyjum og er fallið úr deildinni.
GÖMLU MENNIRNIR FAGNA Gunnleifur Gunnleifsson og Freyr Bjarnason hafa leikið frábærlega fyrir FH-inga í sumar og eru ekki
hættir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MeistaradEIlDin
REAL MADRID - MAN. CITY
MONTPELLIER - ARSENAL B. DORTMUND - AJAX
Á MORGUN KL. 18.30
MAN. UTD. - GALATASARAY
CHELSEA - JUVENTUS BARCELONA - SP. MOSKVA
MIÐVIKUDAG KL. 18.30
UPPHITUN FYRIR LEIKINA HEFST KL. 18.00 OG MEISTARAMÖRKIN ER Á DAGSKRÁ STRAX AÐ LEIKJUNUM LOKNUM