Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 4. október 2012 19 Ríkisstjórn er vettvangur sam-ráðs ráðherra um stjórn lands- ins. Stjórnskipunin gerir ráð fyrir því að þar séu rædd mikilvæg stjórnarmálefni sem hafi áhrif á hag allrar þjóðarinnar. Það má því fullyrða að margir hefðu áhuga á því að vera fluga á vegg á ríkis- stjórnarfundum. Fáir hafa upp- lifað það og fáir sem munu upplifa það í framtíðinni. Eða hvað? Með nýju Stjórnarráðslögunum frá 2011 lögfesti Alþingi svo- hljóðandi ákvæði: „Allir fundir ríkisstjórnarinnar skulu hljóð- ritaðir og afrit geymt í vörslu Þjóðskjalasafns. Hljóðritanir þessar skulu gerðar opinberar að 30 árum liðnum frá fundi.“ Upphaflega var gert ráð fyrir að fyrirkomulagið kæmi til fram- kvæmda 1. janúar sl. Alþingi ákvað hins vegar í lok síðasta árs að slá því á frest til 1. nóvem- ber nk. Talið var nauðsynlegt að taka áður afstöðu til laga- legra álitaefna um aðgangsrétt almennings, fjölmiðla, sérstakra eftirlitsaðila og stjórnvalda sjálfra, auk álitaefna um ráð- herraábyrgð. Liggur nú fyrir Alþingi að ákveða hvort þetta fyrirkomulag komi til fram- kvæmda og þá hvort gera þurfi breytingar á lögum um framan- greind atriði áður en það gerist. Að þessu sinni verður rætt um rökin með og á móti því að hljóðrita ríkisstjórnarfundi. Þá verður farið nokkrum orðum um aðgang að afritum hljóðritana ef Alþingi heldur fast við fyrir- ætlanir sínar. Í samræmi við siðareglur háskólamanna er rétt að upplýsa að þessi pistill er að hluta byggður á álitsgerð sem höfundur vann að beiðni forsæt- isráðherra og nýlega var kynnt á fundi stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar Alþingis. Þá hefur höfundur jafnframt fjallað um hluta þessa efnis í ritstjórnar- grein í 1. hefti Tímarits lögfræð- inga 2012. Rök með og á móti því að hljóðrita ríkisstjórnarfundi Í upphaflegu frumvarpi því er varð að Stjórnarráðslögum var ekki gert ráð fyrir því að ríkis- stjórnarfundir yrðu hljóðritaðir heldur var því bætt við frum- varpið með breytingartillögu meirihluta allsherjarnefndar. Ekki var fjallað ítarlega um rökin að baki tillögu meirihlut- ans. Í meginatriðum var aðeins sagt að verið væri að bregðast við ábendingum í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis og til- lögum í skýrslu og ályktun þing- mannanefndar Alþingis. Vísað var til þess að stjórnvöld sækja umboð sitt til þjóðarinnar og starfa í hennar þágu. Rétt er þó að taka fram að ekki var rætt sérstaklega um þörf á að hljóðrita ríkisstjórnarfundi í skýrslum rannsóknarnefndar eða þingmannanefndar Alþingis. Af þessu má draga þá ályktun að markmið Alþingis með því að mæla fyrir um hljóðritun ríkis- stjórnarfunda hafi verið að auka gegnsæi í íslenskri stjórnsýslu í samræmi við lýðræðislegar und- irstöður hennar. En eru þetta sterk rök þegar grannt er skoðað? Fyrir fram má álykta að sögu- legt gildi hljóðritana af fundum ríkisstjórnar yrði töluvert. Sú ályktun er þó að verulegu leyti háð því að framkvæmd og eðli ríkisstjórnarfunda taki ekki efnislegum breytingum þótt þeir séu teknir upp. Óhætt er hins vegar að fullyrða að hljóðritanir á ríkisstjórnarfundum geti haft í för með sér að eðli slíkra funda taki nokkrum breytingum frá því sem nú er. Ganga verður út frá því að frjáls og óheft skoð- anaskipti á milli ráðherra um stefnumótandi mál myndu tak- markast á fundum ríkisstjórnar. Að teknu tilliti til þess að ríkis- stjórnarfundir eru samráðs- og samhæfingarvettvangur ráð- herra er því ekki augljóst að veruleg formbinding umræðna þar væri að öllu leyti af hinu góða fyrir þjóðarhag. Með þetta í huga vaknar sú spurn- ing hvort of langt sé gengið með hljóðritun ríkisstjórnarfunda. Finna verður eðlilegt jafnvægi á milli þess markmiðs að skapa gegnsæi um störf ríkisstjórnar- innar og mikilvægi þess að ráð- herrarnir séu ekki heftir í því að ræða þar opinskátt um mikil- væg málefni. Skýrar reglur um ritun fundargerða á ríkisstjórn- arfundum gætu ef til vill náð því markmiði að auka nægilega gegnsæi um störf ríkisstjórnar- innar án þess að hefta frjálsar umræður. Í þessu sambandi verður einn- ig að hafa í huga að hafi það verið ætlunin að aðgangur að hljóðritunum yrði að öllu leyti lokaður í þrjátíu ár frá fundi er óljóst hvaða tilgangi hljóð- ritanir eigi að hafa fyrir utan að verða grundvöllur fram- tíðarrannsókna á sviði sagn- fræði. Að minnsta kosti er ljóst að þá yrði vart náð því mark- miði hljóðritana að vera þáttur í lýðræðislegu aðhaldi samtím- ans með störfum ríkisstjórn- ar. Loks liggur fyrir að þetta fyrirkomulag hefur hvergi verið tekið upp í þeim ríkjum sem við berum okkur gjarnan saman við. Samandregið virðist skorta á að nægileg rök hafi verið sett fram fyrir því að hljóðrita ríkis- stjórnarfundi. Aðgangur að hljóðritunum á ríkisstjórnarfundum Stjórnarráðslögin gera ráð fyrir því að hljóðritanir skuli gerðar opinberar að 30 árum liðnum. Þetta ákvæði útilokar þó ekki að þeir, sem eiga aðgang að gögnum í vörslum stjórnvalda á grundvelli sérstakra laga- heimilda, kunni að eiga rétt á að fá slíkar hljóðritanir strax og þær verða til. Upplýsinga- lög gera t.d. ráð fyrir því að almenningur eigi ekki aðgang að fundargerðum ríkisstjórnar. Til að sama ætti við um hljóð- ritanir af fundum ríkisstjórn- ar þyrfti að breyta upplýsinga- lögum. Þá mæla lög fyrir um að rannsóknarnefndir, sem Alþingi setur á laggirnar, og umboðs- maður Alþingis, geti átt aðgang að slíkum hljóðritunum ef lögum er ekki breytt. Rannsóknar- nefndir geta m.a. haft því hlut- verki að gegna að afla upplýs- inga í málum þar sem kann að reyna á ráðherraábyrgð. Athug- unum umboðsmanns Alþingis er einnig ætlað að varpa ljósi á störf ráðherra. Ef markmiðið er að auka gegnsæi í störfum ríkisstjórnar skortir því rök til þess að þessir eftirlitsaðilar á vegum Alþingis hafi ekki slíkan aðgang. Um aðgang annarra aðila, eins og þingnefnda á borð við stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd, skapast hins vegar margvísleg álitamál. Eiga þingmenn sem þar sitja að hafa aðgang að hljóð- ritunum ríkisstjórnarfunda, og ef svo er, að uppfylltum hvaða skilyrðum? Forsætisráðuneytið, sem sá aðili sem ber að afhenda Þjóðskjalasafni afrit af hljóð- ritunum, hefur að lögum rétt til að fá slík afrit afhent þegar eftir því er óskað. Er rétt að for- sætisráðherra framtíðarinnar hafi aðgang að hljóðritunum ríkisstjórnarfunda í fortíðinni? Þessar eru meðal þeirra erfiðu spurninga sem Alþingi þarf að svara haldi það fast við fyrir- ætlanir sínar. Loks verður að halda því til haga að jafnvel þótt Alþingi tæki þá ákvörðun að loka alveg fyrir aðgang að hljóð- ritunum þyrfti aðeins meirihluta á Alþingi í framtíðinni til að breyta þeirri ákvörðun og opna fyrir aðgang að þeim, að hluta eða að öllu leyti. Samantekt Markmið Alþingis með sam- þykkt ákvæðis um hljóðritun ríkisstjórnarfunda var vissulega göfugt. Eins og að framan hefur verið rökstutt virðist þó mega draga í efa að nægileg rök hafi verið sett fram fyrir þessu fyr- irkomulagi. Ef til vill væri rétt að huga í staðinn að því að gera frek- ari breytingar á lagaákvæðum um skráningu fundargerða og opinbera birtingu þeirra innan hæfilegs tíma til að tryggja aukið gegnsæi með störfum rík- isstjórnar í þágu lýðræðislegs aðhalds. Á að hljóðrita ríkisstjórnarfundi? Róbert R. Spanó prófessor og forseti Lagadeildar HÍ HUGLEIÐINGAR UM LÖG OG RÉTT Finna verður eðlilegt jafnvægi á milli þess markmiðs að skapa gegnsæi um störf ríkisstjórnarinnar og mikilvægi þess að ráðherrarnir séu ekki heftir í því að ræða þar opin- skátt um mikilvæg málefni. NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI FORNÁM Í FORRITUN UNDIRBÚNINGUR FYRIR DIPLÓMANÁM Í FORRITUN Um námskeiðið Forritun er fjölbreitt, skapandi, alþjóðleg, krefjandi og skemmtileg starfsgrein sem stöðugt vantar nýja og skapandi starfs- krafta. Þeir sem hafa stúdentspróf eða hliðstæða menntun geta valið að fara beint í Diplómanám í forritun. Markmið námsins Markmið þessa námskeiðs er að nemendur læri undirstöðuatriði forritunar og er jafnframt undirbúningur fyrir Diplómanám í forritun. Einnig gerir fornámið nemendum kleift að meta hvort þeir hafi áhuga og getu til að halda áfram á þessari braut, í Diplómanám (282 stundir) og þaðan í Leikjaforritun (204 stundir) sem hvorutveggja eru kennt hjá NTV. Inntökuskilyrði Nemendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa lokið að minnsta kosti tveimur árum í framhaldsskóla. Einnig þarf góða enskukunnáttu þar sem námsgögn eru á ensku. Næsta námskeið Hefst: 16. október og lýkur 1. desember. Kennt er þri. og fim 18.00 - 22.00 og annan hvern laugardag frá 8:30 - 12:30. Námsþættir - Tölvur, hugtök og stýrikerfi (18 stundir) - Stærðfræði (30 stundir) - Java forritun (60 stundir) AF NETINU Engar líkur á breytingum Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tók við 2007 hugsuðu margir að þarna væri komið tækifæri til að taka til í landbúnaðarkerfinu. Eins og allir vita fór tími ríkisstjórnarinnar í annað. Nú er staðan þannig að varla neitt ríkisstjórnarmunstur er í kortunum sem mun hagga við þessu kerfi. Það hefur heldur ekki verið til umræðu um langa hríð, nema þá í tengslum við ESB-aðild. Forysta Bændasamtakanna er algjörlega á móti ESB, og hún hefur eignast bandamenn, sem eru kannski allir ekki ýkja hrifnir af háum landbúnaðarstyrkjum, en telja að best sé að hafa bændaforingjana með sér í liði. http://eyjan.pressan.is/silfuregils/ Egill Helgason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.