Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 4
4. október 2012 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 03.10.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
219,4802
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,77 123,35
197,79 198,75
158,47 159,35
21,251 21,375
21,414 21,540
18,437 18,545
1,5685 1,5777
188,92 190,04
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ranghermt var í blaðinu í gær að
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins, hefði sótt fund
þungavigtarfólks úr stjórnmálum og
atvinnulífi um Evrópumál í fyrradag.
LEIÐRÉTT
á Súfistanum í Bókabúð
Máls og menningar
í kvöld 4. október
kl. 20
Rithöfundarnir Auður
Jónsdóttir og Einar
Kárason spjalla við
Kristof um nýju
bókina hans.
Höfundakvöld með
Kristof Magnusson
ALLIR VELKOMNIR
– ÓKEYPIS AÐGANGUR
LANDBÚNAÐUR Stuðningur við
íslenskan landbúnað er ofmetinn í
nýrri skýrslu OECD, að mati full-
trúa Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks í atvinnuveganefnd
Alþingis.
Í skýrslunni segir að styrkir hins
opinbera til landbúnaðar séu tvöfalt
hærri hér en að meðaltali í OECD-
löndunum. Einnig er íslenska
styrkjakerfið sagt óskilvirkt vegna
þess að meirihluti styrkja sé fram-
leiðslutengdur, sem sé markaðs-
truflandi. Íslensk stjórnvöld verði
að draga úr stuðningi við landbún-
aðinn og halda jafnframt áfram að
þróa „skilvirkari“ og betur sam-
hangandi stefnu, sem hafi meðal
annars umhverfisvernd og minni
truflanir á framleiðslu og viðskipt-
um að markmiði.
Fréttablaðið náði ekki tali af
Steingrími J. Sigfússyni atvinnu-
vegaráðherra vegna málsins í gær,
en hann er staddur í Norðurlands-
kjördæmi eystra og fundar þar
stíft. stigur@frettabladid.is
Stjórnarandstaða segir OECD
ofmeta landbúnaðarstyrkina
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í atvinnuveganefnd þingsins segja stuðning við íslenskan
landbúnað ekki jafnmikinn og OECD heldur fram. Fulltrúar Samfylkingar og Hreyfingar vilja breytingar.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
21°
16°
12°
15°
17°
11°
11°
26°
16°
26°
24°
32°
13°
17°
18°
12°
Á MORGUN
Hæg breytileg átt.
LAUGARDAGUR
Hægt vaxandi suðlæg
átt vestan til.
5
5
4
4
6
6
2
7
7
9
9
9
8
6
7
13
7
3
4
6
2
7
5 5
8
8
4
6
6
7
7
9
BJART Á MORGUN
Heldur hægari
vindur í dag en var
á landinu í gær,
einnig styttir víðast
upp er líður á
daginn. Á morgun
veður yfi rleitt bjart-
viðri og hæg breyti-
leg átt. Hægt vax-
andi sunnanátt og
þykknar upp vestra
á laugardaginn.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Einar K. Guðfinnsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur ekki kynnt sér efni skýrslunnar en segist
telja að rétt sé að halda áfram framleiðslutengdum stuðningi í landbúnaði. „Að mínu mati er
þetta ekki skynsamleg stefna sem Evrópusambandið og ýmis önnur ríki hafa viðhaft, að vera ekki
með framleiðslutengingar, sem leiðir til þess að áhugi manna á atvinnuþátttöku slævist. Hitt er
alveg ljóst – og það hefur alltaf legið fyrir – að við styðjum hlutfallslega töluvert mikið við okkar
landbúnað og fyrir því eru auðvitað ýmsar ástæður; við búum í harðbýlu, dreifbýlu landi. En ýmis-
legt sem talið er með í þessum stuðningi, og OECD og aðrir slíkir taka með í sínum útreikningum,
er í raun tilfærslur innan kerfisins – það má nefna fóðurskattinn, verðjöfnunargjald í mjólkur-
iðnaði og ýmislegt annað – þannig að það er ekki allt sem sýnist í þeim efnum.“
Óskynsamleg stefna Evrópusambandsins
EINAR K.
GUÐFINNSSON
„Menn eru oft að bera saman epli og appelsínur,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins í atvinnuveganefnd Alþingis. Í fjárlögum á Íslandi séu liðir sem OECD flokki sem
stuðning við landbúnaðinn en séu í raun bara peningar sem ríkið hafi umsýslu með tímabundið.
Hann nefnir sérstaklega verðjöfnun mjólkurafurða og fóðursjóð. „Þarna er því ofmat á stuðningi,“
segir hann. Á hinn bóginn hafi menn bent á að sums staðar erlendis séu greiðslur frá hinu opin-
bera sem ekki sjáist og OECD reikni þess vegna ekki með. Varðandi óskilvirkni vegna framleiðslu-
tengingar segir Sigurður Ingi: „Það mætti halda því fram að hæfileg blanda af því og svokölluðum
grænum greiðslum sé skynsamlegri leið heldur en til dæmis Evrópusambandið stundar – að
greiða fólki fyrir að framleiða ekki, sem hljómar ekki í mín eyru eins og áhugaverð atvinnugrein.
En þetta er hugmyndafræðilegur ágreiningur og menn geta haft ólíkar skoðanir á þessu.“
Stuðningurinn ofmetinn
SIGURÐUR INGI
JÓHANNSSON
Ólína Þorvarðardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í atvinnu-
veganefnd, segir OECD hafa gert sambærilegar athuga-
semdir undanfarin ár og í megindráttum sé hún sammála
þeim. „Það er ekki eðlilegt ástand þegar hinn opinberi
stuðningur nemur um helmingi af tekjum þeirra sem í
atvinnugreininni starfa. Ég tek undir að það sé ástæða til
að endurskoða og skerpa á stefnu stjórnvalda varðandi
opinber framlög til landbúnaðarins og færa þau enn frekar
inn í nýsköpunar-, rannsóknar- og þróunarstarf. Fjölbreyttur
og hagkvæmur landbúnaður byggir á nýsköpun í fram-
leiðslu og markaðssókn. Ég held að það sé mjög ofsagt
að greinin muni fara á hliðina þótt þetta sé endurskoðað í
góðu samráði við alla hlutaðeigandi. Íslenskir neytendur eiga líka mikið undir
því að landbúnaðurinn starfi í eðlilegu samkeppnisumhverfi.“
Neytendur eiga mikið undir
ÓLÍNA
ÞORVARÐARDÓTTIR
„Hreyfingin sem slík hefur enga sérstaka stefnu í
landbúnaðarmálum,“ segir Þór Saari, fulltrúi hennar í
atvinnuveganefnd. „En ég hef fylgst með þessum málum
lengi sem hagfræðingur. Landbúnaðarstefnan hefur ekki
verið sérstaklega hagfelld bændum, enda hefur þeim
fækkað umtalsvert undanfarna áratugi. Ég hef velt því
alvarlega fyrir mér hvort við ættum ekki að taka upp
þá stefnu sem virðist ætla að verða ofan á, til dæmis í
ESB, að í stað framleiðslustyrkja fái menn einfaldlega
búsetustyrki – styrk fyrir það eitt að vera bændur að upp-
fylltum ákveðnum lágmarksskilyrðum.“ Slíkur styrkur gæti
verið fimm milljónir á ári. „Það mundi duga til að meira
yrði framleitt af landbúnaðarvörum, það væri auðveldara fyrir fólk að hefja
búskap og verð á landbúnaðarvörum mundi lækka í kjölfarið.“
Vill skoða búsetustyrki af alvöru
ÞÓR SAARI
NÁTTÚRA Snarpur jarðskjálfti varð
undir Mýrdalsjökli, tæpa fimm
kílómetra austnorðaustan Goða-
bungu, um hálf níu í gærmorgun.
Skjálftinn var af stærðinni 3,1 á
Richter-kvarða og í kjölfar hans
fylgdu fáir og litlir eftirskjálftar.
Gunnar Gunnarsson, sérfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands, segir
að ekki sé ráðlegt að lesa of mikið
í skjálftann, sem hafi átt upptök
sín mjög norðarlega í jöklinum.
„Þetta var bara þessi staki
skjálfti,“ segir Gunnar og bendir
á að töluverð skjálftavirkni hafi
verið í Kötlu í sumar og sumarið
2011. - bþh
Jarðskjálfti af stærðinni 3,1:
Grunnur jarð-
skjálfti í Kötlu
KATLA Engar vísbendingar eru um að
Katla muni gjósa á næstunni. MYND/HAG
Reif bindi af lögreglubúningi
Hálffertugur maður frá Egilsstöðum
hefur verið ákærður fyrir að veitast að
lögreglumönnum í febrúar 2010, reyna
að hrinda öðrum þeirra fram af svölum
og hóta honum og kollega hans líf-
láti. Þá er hann ákærður fyrir að hafa
reynt að grípa í háls lögreglumanns
á lögreglustöðinni á Egilsstöðum í
maí síðastliðnum og rifið bindi af ein-
kennisbúningi hans.
DÓMSTÓLAR
ÍRAN, AP Vaxandi reiði hefur verið
meðal almennings í Íran undanfar-
ið vegna gengishruns og verðbólgu.
Ástæðan er að hluta rakin til refsi-
aðgerða Vesturlanda vegna kjarn-
orkuáforma Írana.
Lögregla Teheran skipaði kaup-
mönnum á helsta markaðstorgi
borgarinnar, sem höfðu lokað versl-
unum sínum, að opna aftur. Einn-
ig efndi lögreglan til aðgerða gegn
víxlurum sem verslað hafa með
erlenda gjaldmiðla. Óljóst er hvort
aðgerðir af þessu tagi duga til að
styrkja gjaldmiðil Írans, sem hefur
fallið um þriðjung á innan við viku.
Ástandið hefur vakið aftur deil-
ur milli Mahmouds Ahmadinejad
forseta og valdamikilla andstæð-
inga hans, sem segja kreppuna að
nokkru stafa af mistökum í pen-
ingamálastefnu stjórnar landsins.
Stjórnin er gagnrýnd fyrir að
auka peningamagn í umferð en
halda jafnframt vöxtum niðri.
Vegna þessa hafi fjöldi fólks flúið
yfir í erlenda gjaldmiðla.
Þá hefur glíma ríkisvaldsins við
refsiaðgerðir gert illt verra; mjög
hefur dregið úr olíuútflutningi auk
þess sem helstu alþjóðabankar veita
Íran ekki lengur þjónustu. - gb
Íranskar öryggissveitir berja niður mótmæli í höfuðborginni Teheran:
Kaupmönnum sem loka hótað
MÓTMÆLI Í TEHERAN Fyrstu merki þess
að gengishrunið hafi skapað ólgu meðal
almennings. NORDICPHOTOS/AFP
PALESTÍNA, AP Mannréttindasam-
tökin Human Rights Watch gagn-
rýna harðlega aðbúnað fanga á
Gasa-svæðinu, þar sem Hamas-
samtökin fara með völd.
Í nýrri skýrslu er fullyrt
að öryggissveitir Hamas mis-
þyrmi föngum með ýmsum hætti
og handtaki fólk af handahófi.
Fyrir þessu séu nægar sannanir.
„Stjórnin á Gasa ætti að hætta að
líta fram hjá misþyrmingunum og
tryggja að réttarkerfið virði rétt-
indi Palestínumanna,“ segir Joe
Stark hjá Human Rights Watch. - gb
Gagnrýni á Hamas:
Ill meðferð
fanga á Gasa