Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 16
4. október 2012 FIMMTUDAGUR16 Umsjón: nánar á visir.is MILLJARÐAR KRÓNA var markaðsvirði skráðra hlutabréfa í Kauphöll Íslands í lok ágúst.322 Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti í gær þá ákvörðun sína að halda nafnvöxtum bank- ans óbreyttum. Eftir ákvörðunina eru virkir nafnstýrivextir bank- ans sem fyrr 5,125%. Í yfirlýsingu nefndarinnar er bent á að verðbólga hafi verið minni en spáð var við síðustu vaxtaákvörðun; hafi lækkað úr 4,6% í ágúst í 4,3% nú. Á móti komi að gengi krónunnar hefur lækkað um ríflega 5% frá síðustu vaxtaákvörðun. Að teknu tilliti til þessa telur nefndin að verðbólgu- horfur hafi lítið breyst frá síðustu vaxtaákvörðun og að verðbólgu- væntingar séu enn yfir markmiði bankans. Þá ítrekar nefndin það mat sitt að eftir því sem efnahagsbatan- um vindi fram verði nauðsynlegt að hækka raunstýrivexti. Að hve miklu leyti sú aðlögun eigi sér stað með hærri nafnstýrivöxtum fari hins vegar eftir framvindu verðbólgu. Í yfirlýsingu nefndarinnar frá því í gær er þó að finna harðari tón en síðast. Í henni er nefnilega tekið fram að miðað við óbreytt- ar horfur um verðbólgu og efna- hagsbata sé líklegt að nafnvextir þurfi að hækka frekar á næst- unni. Þá vék Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, að þróun efna- hagsmála á kynningarfundi vegna ákvörðunarinnar í gær. Sagði hann ýmislegt benda til þess að dregið hefði úr bata inn- lendrar eftirspurnar en á móti hefði áhætta vegna fjármála- kreppunnar á evrusvæðinu minnkað. Ákvörðun peningastefnu- nefndarinnar virðist hafa komið nokkuð á óvart. Þannig lækk- aði ávöxtunarkrafa á alla nema Vaxtahækkanir líklegar á næstunni miðað við óbreyttar horfur: Stýrivöxtum Seðlabankans haldið óbreyttum um sinn SÖLVHÓLL Þeir Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmunds- son seðlabankastjóri kynntu ákvörðun peningastefnunefndarinnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Jón Sigurður Helgason hefur tekið við starfi framkvæmda- stjóra KPMG. Jón hefur starfað hjá félaginu í nítján ár, verið með- eigandi í þrettán ár og stjórnar- formaður félagsins í sex ár. Sigurður Jónsson, sem hefur látið af starfi framkvæmdastjóra, mun starfa áfram hjá félaginu. Þá hefur Margrét G. Flóvenz tekið við stöðu stjórnarformanns, en hún var áður varaformaður stjórnar. - mþl Mannabreytingar hjá KPMG: Jón nýr fram- kvæmdastjóri Áætlun stjórnvalda um afnám gjaldeyrishafta verður skýrð betur á næstu mánuðum. Þetta sagði Arnór Sighvatsson aðstoð- arseðlabankastjóri á kynningar- fundi bankans vegna stýrivaxta- ákvörðunar í gær. Arnór var spurður á fundinum í gær hvort til stæði að gera breytingar á áætluninni. Sendinefnd frá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum (AGS) sendi frá sér yfirlýsingu í síðustu viku að lok- inni tveggja vikna heimsókn hér á landi í síðustu viku. Í yfirlýs- ingunni voru lagðar til ákveðnar breytingar á áætlun stjórnvalda um afnám hafta. - mþl Áætlun um afnám hafta: Áætlunin brátt skýrð betur Talsverðar umræður spunnust um áhrif þeirrar lækkunar sem orðið hefur á gengi krónunnar síðustu vikur á verðbólguhorfur á kynningarfundi peninga- stefnunefndarinnar í Seðlabanka Íslands í gær. Í því samhengi sagði Már Guðmundsson meðal annars: „Ef gengi krónunnar lækkar […] en laun fylgja ekki eftir þá breytir það í raun ekki verðbólgunni til lengdar. Það kemur smá kúfur fyrst um sinn en svo stefnir verðbólgan í verðbólgumarkmið. […] Sem betur fer hefur launaskrið undanfarið verið eitthvað minna en við óttuð- umst. Mikið veltur hins vegar á því hvað verður gert varðandi endurskoðun kjarasamninga. Við teljum ekki efnahagslegar forsendur fyrir einhverjum við- bótarlaunahækkunum þar fyrir allt kerfið í heild. Ef það gerist mun það hafa verðbólguafleiðingar og Seðlabankinn mun þurfa að bregðast við því.“ Ekki forsendur til almennra launahækkana Íslensk samkeppnislöggjöf er flókin og óljós auk þess sem erfitt er að fá leiðbeiningar frá Samkeppniseftirlitinu um hvað teljist fyrir- tæki í markaðsráðandi stöðu. Þetta er mat margra aðildar- fyrirtækja Samtaka atvinnu- lífsins (SA) sem kynntu í gær skýrslu þar sem lagðar eru til ýmsar breytingar á íslenskum samkeppnislögum og framkvæmd þeirra. „Við erum þarna að kynna þau skilaboð sem við höfum fengið frá okkar félagsmönn- um; fyrirtækjum sem eru að reyna að fara eftir lögunum. Það skiptir miklu máli til að lögin virki sem best að fyrirtæki viti, eða hafi í það minnsta á tilfinningunni hvort þau eru að gera rétt eða ekki,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Vilhjálmur segir að íslensk samkeppnislög- gjöf sé tiltölulega nýleg og hafi fyrir vikið verið í þróun. „Þetta er hins vegar grundvallarlög- gjöf fyrir atvinnulífið. Í SA eru bæði fyrirtæki sem þurfa að leita réttar síns hjá samkeppnis- yfirvöldum og eins fyrirtæki sem eru talin hafa brotið lögin. Útgangspunkturinn í skýrslunni er að finna þarf jafnvægi milli þessara hópa. Þá viljum við að framkvæmd laganna verði eins skilvirk og hægt er,“ segir Vilhjálmur. Meðal breytinga sem SA leggur til á umhverfi samkeppnismála eru í fyrsta lagi að fjárhæðamörk sem gera fyrirtæki tilkynning- arskyld vegna samruna verði hækkuð. Í öðru lagi að heimild Samkeppniseftirlitsins til þess að skjóta úrskurðum áfrýjunarnefndar sam- keppnismála til dómstóla verði felld úr gildi. Í þriðja lagi að heimild stofnunarinnar til breyt- inga á skipulagi fyrirtækja verði takmörkuð. Þá eru ýmsar aðrar tillögur í skýrslunni. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis- eftirlitsins, flutti erindi á kynningarfundi SA í gær. Í kjölfarið birti hann pistil á vef stofnunar- innar um efni ræðunnar. Páll Gunnar segir að Samkeppniseftirlitið telji tillögur SA draga taum stærri fyrirtækja. „Ef marka má skýrsluna eru tillögurnar settar fram sem viðhorf atvinnulífsins. Þegar nánar er að gáð kemur í ljós að megininntak tillagn- anna er að draga úr framkvæmd samkeppnis- laga. Það er augljóst að hér er dreginn taumur stærri fyrirtækja og þeirra sem vilja starfa í friði fyrir Samkeppniseftirlitinu og samkeppn- islögum,“ segir Páll Gunnar. Hann segir enn fremur: „Allar þessar til- lögur vinna í eðli sínu gegn hagsmunum þeirra fyrirtækja sem þurfa á samkeppnislögum að halda til að komast inn á markaði og vaxa og dafna við hlið stærri fyrirtækja. Þær vinna gegn hagsmunum neytenda og samfélagsins af virkri samkeppni.“ magnusl@frettabladid.is SA vilja skýrari samkeppnislög Mörg aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins telja samkeppnislöggjöfina og framkvæmd hennar of flókna. SA kynntu tillögur að úrbótum í gær en forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir þær draga taum stærri fyrirtækja. lengstu ríkisskuldabréfaflokka í gær sem bendir til þess að frek- ar hafi verið búist við vaxta- hækkun. Spár helstu greiningar- aðila höfðu ýmist gert ráð fyrir 0,25 prósentustiga vaxtahækkun eða þá því að vöxtum yrði haldið óbreyttum. Eins og áður sagði eru virkir nafnstýrivextir bankans 5,125%. Virkir raunstýrivextir hafa hins vegar hækkað úr um 0,5% í um 0,8% frá síðustu vaxtaákvörðun. Aðhald peningastefnunnar hefur því aukist samhliða lækkandi verðbólgu upp á síðkastið. Næsta vaxtaákvörðun verður kynnt 14. nóvember. magnusl@frettabladid.is SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ Í nýrri skýrslu SA eru kynntar tillögur að úrbótum á samkeppnislögum og fram- kvæmd þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA VILHJÁLMUR EGILSSON Það er augljóst að hér er dreginn taumur stærri fyrirtækja og þeirra sem vilja starfa í friði fyrir Sam- keppniseftirlitinu og sam- keppnislögum. PÁLL GUNNAR PÁLSSON FORSTJÓRI SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.