Fréttablaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 46
4. október 2012 FIMMTUDAGUR34
Efsta sæti metsölulista Eymunds-
son yfir allar bækur vermir
þessa dagana Létta leiðin eftir
Ásgeir Ólafs-
son, næring-
arráðgjafa og
þjálfara.
Bókin fjallar
um heilsubót-
arkerfi og eru
lesendur leiddir
skref fyrir
skref í gegnum
sex vikna tíma-
bil sem ætlað er
að skila aukinni vellíðan og létt-
ari líkama til frambúðar.
Annað sæti lista Eymundsson
skipar skáldsagan Fimmtíu gráir
skuggar, íslensk þýðing hinnar
geysivinsælu Fifty Shades of
Grey eftir E.L. James.
Létta leiðin
vinsælust
Söngleikjaunnendur fá mikið
fyrir sinn snúð í Salnum í Kópa-
vogi í vetur en á föstudags-
kvöld hefst tónleikaröðin „Ef
lífið væri söngleikur“. Þar flytja
leikararnir og söngvararnir
Bjarni Snæbjörnsson, Margrét
Eir, Sigríður Eyrún Friðriks-
dóttir og Orri Huginn Ágústsson
lög úr klassískum söngleikjum,
rokkóperum, poppsöngleikjum
og söngperlur stóru söngleikja-
skáldanna.
Sigríður Eyrún og Bjarni hafa
sungið saman í dúettnum Viggó
og Víólettu en fjórmenningarnir
tóku allir þátt í uppfærslu Þjóð-
leikhússins á Vesalingunum
síðastliðinn vetur. „Við erum öll
mjög hrifin af söngleikjum, en
því miður eru þeir svo sjaldan
settir á svið hér á landi,“ segir
Sigríður Eyrún. „Við ákváðum
því að bæta úr því, leiða saman
hesta okkar og flytja lög sem við
höldum mikið upp á úr ólíkum
stílum söngleikja.“
Á fyrstu tónleikunum annað
kvöld bregður hópurinn sér til
Broadway og West End með
flutningi laga úr Kabarett, Vesa-
lingunum, Fiðlaranum á þakinu,
Söngvaseiði og Óperudraugnum.
Í nóvember verða vinsælustu
söngleikjum kvikmyndasögunn-
ar gerð góð skil. Í febrúar verða
ódauðleg lög stóru söngleikja-
skáldanna á dagskrá og í apríl
verða tekin lög úr rokkóperum.
Spurð hvers konar söngleik-
ir henni þyki skemmtilegast-
ir nefnir Sigríður Eyrún verk
á borð við Avenue Q og Vesa-
lingana.
„Það má segja að ég heillist
af ýktum andstæðum; Vesaling-
arnir er auðvitað hádramatískt
verk en Avenue Q tekur sig ekki
hátíðlega og gerir svolítið grín
að forminu. Ég er í essinu mínu í
hvorutveggja.“
Söngleikir vakna til lífsins í Salnum
SÖNGLEIKJALÍF Fjórir söngvarar flytja lög úr jafn mörgum tegundum söngleikja við
undirleik Kjartans Valdemarssonar píanóleikara í Salnum í vetur.
ÁSGEIR ÓLAFSSON
Bókaforlagið Springer gaf nýlega
út fræðiritið Asymmetric Econo-
mic Integration: Size Characteris-
tics of Econo-
mies, Trade
Costs and
Welfare eftir
dr. Snorra
Snorrason
fræðimann
og kennara
við Lancas-
ter-háskól-
ann. Efni
bókarinnar
er hagfræði-
leg rannsókn
á efnahags-
legum sam-
runa ríkja með sérstöku tilliti til
þess hvort áhrif slíks samruna
séu breytileg eftir stærð þeirra
ríkja sem hlut eiga að máli. Rann-
sóknin byggir á gögnum frá 218
ríkjum, þar af eru 45 Evrópuríki
að Íslandi meðtöldu.
Í þessari rannsókn Snorra er
leitast við að svara því hvort
jákvæð hagræn áhrif fríverslun-
arsambanda dreifist jafnt á milli
aðildarríkja af ólíkri stærð eða
hvort, og þá í hve ríkum mæli,
fríverslunarsamstarf ýtir undir
ósamhverfu í vöruviðskiptum
milli misstórra ríkja.
Efnahagsleg-
ur samruni
rannsakaður
SKIPTIR STÆRÐIN
MÁLI? Í nýrri rann-
sókn eru efnahagsleg
áhrif fríverslunar-
samninga skoðuð.
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3