Fréttablaðið - 23.10.2012, Side 6

Fréttablaðið - 23.10.2012, Side 6
23. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR6 Reykjavíkurborg ı 411 1111 ı www.reykjavik.is/fer R ey kj av ík u rb o rg 2 3. o kt ó b er 2 01 2 / JH J AÐALFUNDUR Hollvinasamtaka líknardeilda verður haldinn í safnaðarheimili Neskirkju, mánudaginn 29. október n.k. kl. 20. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og umræður um framtíð samtakanna. Stjórnin NOREGUR Ný bók um Norðmenn og seinni heimsstyrjöldina hefur vakið mikið umtal. Í bókinni, sem ber heitið Miskunnarlausu Norð- mennirnir, nafngreinir höfundurinn Eirik Veum hundruð manna sem tengdust ríkislög- reglunni, sem vann með herliði nasista á her- námsárunum 1940 til 1945. Veum réttlætir nafnbirtingarnar með því að segja þær hluta af nauðsynlegu uppgjöri þjóðarinnar. „Við þurfum að átta okkur á því að Norð- menn frömdu einhver verstu ódæðin á stríðs- árunum, og að við tókum meiri þátt í stríðs- glæpum en áður hefur verið talið,“ segir Veum við Aftenposten. Hann hefur hins vegar verið gagnrýndur fyrir vafasama heimildavinnu, þar sem hann styðst að mestu leyti við yfirheyrslur, dóms- mál og fjölmiðlaumfjöllun frá 1945, sem þykja litast mikið af tíðarandanum sem þá ríkti en þúsundir manna hlutu dóm fyrir að vinna með hernámsliðinu, þrjátíu voru dæmdir til dauða og 25 teknir af lífi. Þá hefur Veum verið gagnrýndur fyrir að nafngreina fólk sem kom ekki nálægt pynd- ingum, drápum eða stríðsglæpum. Meðal annars er tiltekin kona sem var sautján ára gömul þegar hún vann á skrif- stofu ríkislögreglunnar í Stavanger. Veum tekur sjálfur fram að óvíst sé hvort stúlkan hafi fengið dóm eftir stríðið, en hún rataði engu að síður í bókina undir nafni. Veum ráðgerir að skrifa tvær bækur til við- bótar um efnið. - þj Deilt um uppgjör Norðmanna eftir hernámsár Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni: Umdeildar nafnabirtingar í nasistabók Ríkislögreglan var stofnuð 1941 og vann náið með þýska hernámsliðinu við að uppræta and- spyrnuhreyfinguna. Hátt í þúsund manns eru taldir hafa tengst ríkislögreglunni. Flestir þeirra voru meðlimir í norsku þjóðernishreyfingunni Nasjonal Samling. Sjö meðlimir voru teknir af lífi eftir réttarhöld í stríðslok. Heimild: Aftenposten Óljúfar minningar DÓMSTÓLAR Síðdegis í dag á að ljúka aðalmeðferð sem hófst í gær- morgun fyrir Héraðsdómi Reykja- víkur í máli sérstaks saksóknara gegn Aroni Pétri Karlssyni kaup- sýslumanni. Aron er grunaður um fjársvik í tengslum við sölu á stór- hýsi við Skúlagötu 51 til kínverska sendiráðsins. Þrjú ár eru síðan rannsókn máls- ins hófst. Fram kemur í umfjöllun Vísis.is að Aron hafi við aðalmeð- ferðina í gær borið við minnisleysi um veigamikil atriði málsins. Embætti sérstaks saksóknara gaf um miðjan apríl á þessu ári út ákæru á Aron, sem er sonur Karls Steingrímssonar (oft kenndur við Pelsinn). Húsnæðið sem kínverska sendiráðið keypti var áður í eigu félags þeirra feðga. Ákæran á hendur Aroni byggir á því að hann hafi í desember 2009 komið sér og félagi sínu undan skuldum, með því að skjóta húseigninni að Skúlagötu 51 úr félaginu Vindasúlum ehf. inn í eignarhaldsfélagið 2007 ehf., skömmu áður en húsið var selt til kínverska sendiráðsins fyrir 875 milljónir króna. Á húsinu hvíldu tryggingabréf í eigu Arion banka, Glitnis og Íslandsbanka, upp á um einn milljarð króna, og töldu bank- arnir að með eignatilfærslunni hefðu þeir verið snuðaðir um 300 milljónir króna. - óká Grunaður um svik í tengslum við sölu á húseign til kínverska sendiráðsins: Aðalmeðferðinni á að ljúka í dag GVATEMALA, AP Síðustu vikur hafa vakið von um að Otto Perez Mol- ina, forseti í Gvatemala, ætli sér að standa við loforð um að gerðar verði umbætur í mannréttinda- málum í landinu. Viðbrögð stjórnvalda við fjöldamorðum, sem hermenn frömdu í byrjun mánaðarins, hafa að minnsta kosti verið mjög frábrugðin því sem landsmenn eiga að venjast. Ýtarleg rannsókn lögreglu á því sem gerðist hófst samstundis og innan viku höfðu átta óbreyttir hermenn og einn ofursti í hernum verið handteknir. Morðin voru framin þann 4. október þegar þúsundir frum- byggja efndu til mótmæla með því að loka einum af þjóðvegum landsins. Mótmælendurnir voru óvopn- aðir, en lögregla greip strax inn í og reyndi að fá mannfjöldann til að hverfa frá og hleypa umferð um veginn. Innan skamms var tveimur herflutningabifreiðum ekið á staðinn og fljótlega hófst skothríð, sem lauk með því að átta mótmælendur lágu í valnum en 34 voru særðir. Herinn hefur áratugum saman komist upp með nánast hvað sem er, ekki síst ofbeldi gegn frum- byggjum landsins. Í þetta skiptið beið hins vegar dómsmálaráðherra landsins, hin 46 ára gamla Claudia Paz y Paz, ekki boðanna heldur sendi strax 175 manna rannsóknarlið á vett- vang. Leitað var að skothylkjum, blóði og lífsýnum. Einnig var haldið á sjúkrahús í nágrenninu að ræða við mótmælendur og vitni, sem þangað voru komin til læknismeðferðar. Ofurstinn og tveir hinna óbreyttu hermanna eiga nú yfir sér allt að 500 ára fangelsis- dóm hver fyrir að hafa tekið fólk af lífi án dóms og laga. Hinir Herinn í Gvatemala látinn sæta ábyrgð Átta hermenn og einn ofursti eiga yfir höfði sér langa fangelsisdóma fyrir fjöldamorð sem framin voru 4. október. Herinn hefur áratugum saman komist upp með nánast hvað sem er í Gvatemala, en breyting virðist vera orðin þar á. FJÖLDAMORÐUM MÓTMÆLT Fjölmenn mótmæli hafa verið haldin í landinu gegn framferði hersins í byrjun mánaðarins. NORDICPHOTOS/AFP ARON P. KARLSSON KARL STEINGRÍMSSON Það er ekki síst hin sterka staða dómsmálaráðherrans, Claudiu Paz y Paz, sem talin er hafa haft þau áhrif að Otto Perez Molina forseti féllst á að hermennirnir yrðu handteknir. Paz y Paz er mannréttindalögfræðingur og hafði lengi barist af hörku gegn mannréttindabrotum áður en hún varð ráðherra árið 2010. Hún nýtur stuðnings frá Bandaríkjunum og öðrum löndum sem veita Gvatemala mikilvæga fjárhagsaðstoð. Sterk staða dómsmálaráðherrans óbreyttu hermennirnir sex eiga yfir höfði sér allt að 320 ára fang- elsi hver fyrir vísvitandi morð- tilraunir. Samkvæmt rannsóknarskýrslu hunsuðu hermennirnir fyrir- mæli frá lögreglu um að halda sig fjarri mótmælendunum. Perez Molina forseti, sem sjálfur er fyrrverandi herforingi og hefur verið ásakaður um að hafa framið mannréttindabrot á meðan borgarastyrjöld stóð yfir í landinu, studdi ákvörðun dóms- málaráðherrans og hefur heitið því að nota herinn ekki oftar til að halda mótmælendum í skefj- um. gudsteinn@frettabladid.is VEISTU SVARIÐ? 1. Hvar skalf jörð um helgina? 2. Hvaða sveitarfélög samþykktu sameiningu í nýafstaðinni þjóðar- atkvæðagreiðslu? 3. Hvenær á fyrstu umræðu um nýja stjórnarskrá að vera lokið á Alþingi? SVÖR: 1. Í hafinu norður af Siglufirði. 2. Álftanes og Garðabær. 3. Fyrir jól.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.