Fréttablaðið - 23.10.2012, Síða 24
KYNNING − AUGLÝSINGVetrardekk ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 20124
Fyrirtækið Betra grip ehf. starfrækir hjólbarðaverk-stæði og heildverslun í Lág-
múla 9 í Reykjavík. Fyrirtækið er
umboðs- og söluaðili fyrir Bridge-
stone- og Firestone-hjólbarða sem
Arngrímur Þorgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Betra grips, segir
vera með þeim bestu sem völ er á.
„Að öðrum dekkjum ólöstuðum
er Bridgestone stærsti og um leið
einn virtasti dekkjaframleiðandi
á markaðnum í dag. Bridgestone
er með höfuðstöðvar í Japan og
dekkjaframleiðslu um allan heim.
Við flytjum inn Bridgestone-hjól-
barða fyrir allar gerðir bifreiða, allt
frá dekkjum undir minnstu fólks-
bíla og upp í stór og sterk lyftara-
dekk sem vega um hálft tonn. Við
höfum einnig selt um tveggja ára
skeið nýjustu línu loftbóludekkja
frá þeim, svokallaða þriðju kyn-
slóð af loftbóludekkjum, WS70- og
DMV1-dekk.“
Arngrímur segir nýju loftbólu-
dekkin hafa vakið mikla eftirtekt
og ánægju meðal viðskiptavina um
allan heim. „Loftbóludekkin eru í
raun fyrsti raunverulegi valkost-
urinn í stað þessara hefðbundnu
nagladekkja sem allir þekkja.
Dekkin hafa náð mikilli útbreiðslu
um allan heim á skömmum tíma
enda úrvalsdekk hér á ferð.“
Öryggi og þægindi
Dekkin eru að sögn Arngríms
hönnuð með öryggi, þægindi og
umhverfissjónarmið að leiðar-
ljósi. Þau eru frábrugðin öðrum
vetrardekkjum á markaðnum þar
sem þau eru framleidd úr gæða
gúmmíefnum. „Multicell er að
2/3 hlutum þakið litlum loftbólum
sem mynda undirþrýsting við yfir-
borð vegarins. Fyrir vikið mynd-
ast sogkraftur á milli undirlags-
ins og loftbóludekksins sem ekið
er á. Því hafa þessi dekk einstaka
gripeiginleika hvort sem undir-
lagið er snjór eða ís. Segja má að
dekkin virki eins og öflugar sogs-
kálar þannig að loftbólurnar sjúgi
sig niður í malbikið og dragi í sig
vökva og hrinda jafnóðum frá sér
þegar hjólin snúast. Þessi dekk
henta því vel íslenskum vetrarað-
stæðum, eru hljóðlát, umhverfis-
væn og endast vel.“
A rngrímur segir lof tbólu-
dekkin vera einstaklega mjúk og
til þess fallin að auka mjög þæg-
indi í akstri. „Efnið hefur afar
mikið frostþol og loftbólu dekkin
tapa ekki mýkt sinni þó úti sé
mikið frost eins og verður oft hér
á landi. Dekkin fjaðra hljótt og
örugglega á undirlaginu og að aka
bílnum verður allt önnur og mun
skemmtilegri upplifun en áður.“
Minna svifryk
Einn fylgifiskur mikillar notkunar
nagladekkja er svifryks mengun.
Þegar logn er yfir vetrartímann
má oft sjá mikla mengun yfir Stór-
Reykjavíkursvæðinu sem er að
mestu tilkomin vegna nagladekkj-
anna að sögn Arngríms enda keyra
mjög margir á slíkum dekkjum.
„Með því að aka á loftbóludekkjum
má koma í veg fyrir þetta vanda-
mál og minnka mengun án þess
að stofna öryggi í umferðinni í
hættu.“
Betra grip starfrækir einnig
hjólbarðaverkstæði í húsnæðinu
að Lágmúla 9. Fyrirtækið hefur á
að skipa úrvals starfsmönnum sem
búa yfir mikilli reynslu varðandi
vetrardekk og taka vel á móti við-
skiptavinum. Auk þess selur Betra
grip verkstæðistæki frá Ravaglioli
og viðgerðavörur fyrir hjólbarða
frá Tip Top.
Verkstæðið og heildverslunin eru
opin alla virka daga frá klukkan 8
til 18. Verkstæðið er opið á laugar-
dögum frá klukkan 10 til 14. Allar
nánari upplýsingar eru veittar í
síma 533-3999 eða á heimasíðu
fyrir tækisins, www.betragrip.is.
Grænn valkostur með
loftbóludekkjum frá Bridgestone
Minni mengun, öryggi og góð ending einkenna nýju loftbóludekkin frá Bridgestone. Betra grip ehf. hefur umboð fyrir úrvalsdekkjum
frá Bridgestone og Firestone auk þess að reka hjólbarðaverkstæði í Lágmúla.
„Loftbóludekkin eru í raun fyrsti raunverulegi valkosturinn í stað þessara hefðbundnu nagladekkja,“ segir Arngrímur Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Betra grips. MYND/GVA
Bridgestone er stærsti og einn virtasti dekkjaframleiðandi heims. MYND/GVA