Fréttablaðið - 23.10.2012, Page 28

Fréttablaðið - 23.10.2012, Page 28
KYNNING − AUGLÝSINGVetrardekk ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 20128 Vaka rekur dekkjaverkstæði og hjól-barðasölu á tveimur stöðum á höfuð-borgarsvæðinu, í Skútuvogi 8 í Reykja- vík og á Smiðjuvegi 28 í Kópavogi. Á báðum stöðum er ríkulegt úrval dekkja í öllum gæðaflokkum. Dekk fyrir íslenskar aðstæður „Við erum meðal annars með Falken-dekk til sölu en þau eru sérhönnuð fyrir veðráttu í Norður-Evrópu og henta því einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður. Þau eru framleidd í Japan og þetta er mjög þekkt merki í Evr- ópu,“ segir Rúnar Grétarsson, dekkjaráðgjafi hjá Vöku. Fyrstur kemur fyrstur fær „Núna erum við að fylla húsið af nýjum og notuðum dekkjum og það er gamla, góða reglan sem gildir; fyrstur kemur fyrstur fær, því bestu dekkin fara alltaf fyrst. Starfs- menn okkar veita ráðgjöf við kaup á réttum dekkjum við hinar ýmsu aðstæður. Það eru ekki valin sömu dekk fyrir þann sem keyrir meira og minna hérna í bænum og þann sem keyrir yfir heiðina á hverjum degi, sama hvaða heiði það er,“ segir Rúnar. Harðskeljadekk í bænum Vaka er með dekk í öllum stærðum til sölu og vetrardekk af öllum gerðum. Fyrirtækið er með nagladekk, venjuleg vetrardekk og harð- skeljadekk til sölu. „Harðskeljadekkin frá Fal- ken eru sérstaklega ætluð fyrir þá sem velja að sleppa nöglunum. Þau eru örugg og ætluð fyrir snjó og hálku þannig að þau eru alveg kjörin fyrir íslenskar aðstæður. Fyrir fólk sem er lítið sem ekkert að keyra fyrir utan höfuð- borgarsvæðið eru harðskeljadekk virkilega raunhæfur og góður möguleiki.“ Gott verð á hágæðavöru Verð á Falken-dekkjum er mjög hagstætt að sögn Rúnars miðað við að þau eru hágæða- vara. „Við erum líka með tilboð á dekkjum frá Infinity sem framleidd eru í Kína en þau hafa reynst vel á Íslandi. Í því merki erum við með pakkatilboð á heilum gangi. Hér hjá Vöku tökum við öll seljanleg dekk upp í við- skipti hjá okkur.“ Engin bið í röð Vaka hefur sérstöðu í hjólbarðabransanum því þar þarf ekki að bíða í röð eftir þjónustu. „Hjá okkur er hægt að bóka tíma í umfelgun á þeim tíma sem hentar hverjum og einum. Sá tími sem hentar er einfaldlega valinn á Vakahf.is. Okkur hjá Vöku þykir gamal dags að bíða í lengri tíma í röð fyrir framan dekkja- verkstæði til að fá þjónustu þannig að við höfum tekið upp þetta kerfi. Fólk kemur svo með bílinn og við gerum þetta á skömmum tíma á meðan fólk bíður.“ Vaka býður einnig upp á dekkjahótel þar sem dekkin eru geymd á öruggum stað svo þau taki ekki dýrmætt pláss í geymslu fólks. Dekk fyrir íslenskar aðstæður Starfsmenn Vöku veita aðstoð við val á réttu dekkjunum fyrir veturinn en fyrirtækið er meðal annars með hágæða dekk frá Falken. Vaka hefur þá sérstöðu í hjólbarðabransanum að þar er hægt er að panta tíma sem hentar hverjum og einum á netinu. Rúnar Grétarsson og Bjarni Ingólfsson, dekkjaráð- gjafar Vöku, tilbúnir í slaginn.Steinar Már Gunnsteinsson hjá Vöku segir harðskeljadekkin frá Falken vera virkilega góðan kost. MYND/GVA Villidýrið á meðal vetrardekkjanna. Skútuvogi 8 og Smiðjuvegi 28 / Sími 567 6700 vakahf@vakahf.is / vakahf.is OPIÐ: Virka daga 8-18 og laugardaga 10-14 Í mörg ár hefur Siberian Husky verið tryggur félagi í hörðum vetrum í norðaustur Síberíu. Husky er virkur, ötull og seigur en forfeður hans komu frá mjög köldu og hörðu umhverfi á norðurslóðum. Siberian Husky er því tilvalið tákn fyrir FALKEN dekk sem eru frábær fyrir íslenskar aðstæður, örugg í gegnum ís og snjó! FALKEN dekk

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.