Fréttablaðið - 23.10.2012, Síða 38

Fréttablaðið - 23.10.2012, Síða 38
23. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR26 26 menning@frettabladid.is Tónlist ★★★ ★★ Il Trovatore eftir Verdi Íslenska óperan sýnir í Hörpu Helstu hlutverk: Jóhann Frið- geir Valdimarsson, Hulda Björk Garðarsdóttir, Alina Dubik og Elsa Waage, Viðar Gunnarsson, Anoos- hah Golesorkhi. Hljómsveitar- stjóri: Carol I. Crawford. Leikstjóri: Halldór E. Laxness. Klassísku óperurnar fjalla venju- lega um atburði fyrr á tímum. Stefin í sögunum eru samt tímalaus. Þar er að finna ást og afbrýði, hefnd og valdabaráttu, sorg og gleði. Það er ástæðan fyrir því að óperur eru stundum færðar til nútímans. Því miður heppnast það ekki alltaf. Il trovatore eftir Verdi í uppsetn- ingu Íslensku óperunnar er dæmi um það. Sagan á að gerast á fimm- tándu öld á Spáni. Hún er býsna ruglingsleg og ótrúverðug í sjálfri sér, fyrir utan það að vera götótt. Helmingur sögunnar hefur t.d. gerst áður en sjálf óperan byrjar. Staðsetningin er líka stöðugt að breytast. En nútímabúningurinn gerir söguna enn ótrúverðugari. Þarna eru glæpakvendi brennd á báli – í nútímanum. Farand söngvari er sigurvegari í burt reiðum – í nútímanum. Og aðalkvenpers- ónan rýkur í það að ganga í klaust- ur þegar hún lendir í ástar sorg – í nútímanum. Kannski er hámark fáránleikans að þegar hún kemur í klaustrið, gengur aðstoðarkona með henni dragandi á eftir sér flug- freyjutösku. Maður spyr sig af hverju þessi leið var farin. Sennilega var það bara miklu ódýrara. Leik- mynd Grétars Reynissonar var mínímalísk, sniðug og smart í sjálfri sér, en í hrópandi mótsögn við sögu- svið óperunnar. Hún samanstóð af ferköntuðum, breytanlegum, lóð- réttum fleti ásamt rimlagirðingu. Það var ósköp kuldalegt miðað við allar tilfinningarnar í tónlistinni. Rómantíkin var hvergi. En flek- inn hefur væntanlega kostað mun minna en að fara með áhorfendur aftur í tímann, inn í annan heim. Sömu sögu er að segja um bún- inga Þórunnar Maríu Jóns dóttur. Jóhann Friðgeir Valdimars- son (Manrico) var í leðurfrakka, þeim sama, sýndist mér, og hann íklæddist þegar hann söng í Mach- beth fyrir nokkrum árum. Þarna var endurvinnslan heldur augljós. Mikið af búningunum voru bara föt sem eru til í flestum íslenskum fataskápum. Það var sem fátt rím- aði við líflega stemninguna í tón- listinni. Leikstjórn Halldórs E. Laxness var samt á margan hátt ágætlega heppnuð. Jóhann Friðgeir var t.d. mun afslappaðri í hlutverki sínu en oft áður. Almennt talað var leikur allra söngvaranna blátt áfram og tilgerðarlaus. Sumt stakk þó í stúf. Konur að glenna sig í upp- hafsatriðinu voru óttaleg klisja. Svo leiðis nokkuð virkaði tilgerðar- lega í Rigoletto í hittifyrra – enn þá meira núna. Og leikfimis æfingar hermannanna snemma í seinni hlut- anum voru misheppnuð tilraun til að létta stemninguna. Þeir voru í hlýrabol, flestir of feitir til að það kæmi sómasamlega út. Styrkur uppfærslunnar var hins vegar tónlistarflutningur- inn. Jóhann Friðgeir var alveg magnaður! Röddin var ótrúlega glæsileg, söngurinn kraft mikill og ástríðuþrunginn. Hulda Björk Garðars dóttir (Leónóra) var líka stórkostleg, og einnig Viðar Gunnars son (Ferrando). Sömu sögu er að segja um Anooshah Golesorkhi sem var Luna greifi. Hann söng einstaklega fallega, með þrumuraust þegar við átti, en líka fínlega á viðkvæmum augnablikum. Og Elsa Waage sem sígauninn Azu- cena vann leiksigur. Söngur hennar var hástemmdur og litríkur; leikur- inn hrífandi dramatískur. Söngvarar í minni hlut verkum stóðu sig einnig með ágætum. Snorri Wium var glæsilegur í sínu hlutverki og Gréta Hergils var prýðileg. Ásgeir Eiríksson og Sigur- jón Jóhannesson voru fínir og kór- inn söng mjög vel. Hljómsveitin var frábær og öllu saman stjórnaði Carol I. Crawford. Hún gerði það af stakri fagmennsku, tónlistin rann þægilega áfram. Heildarsvipurinn var sterkur, stemningin ávallt eins og hún átti að vera. Það er synd að annað en tónlistar- flutningurinn hafi ekki staðið almennilega undir væntingum. Jónas Sen Niðurstaða: Ótrúleg sagan í Il trovatore varð enn ótrúlegri í nútímavæðingu Íslensku óperunnar, en tónlistarflutn- ingurinn var frábær. Dýr tónlist, ódýrt leikhús ELSA WAAGE OG JÓHANN FRIÐGEIR Söngur Jóhanns Friðgeirs var magnaður að mati gagnrýnanda, sem fannst þó Elsa Waage bera af og vinna leiksigur í hlutverki sígaunans Azucena. MYND/GÍSLI EGILL HRAFNSSON Og leikfimisæf- ingar hermannanna snemma í seinni hlutanum voru misheppnuð tilraun til að létta stemninguna. Þeir voru í hlýrabol, flestir of feitir til að það kæmi sómasam- lega út. Bækur ★★★ ★★ Að endingu Julian Barnes. Jón Karl Helga- son þýddi. Bjartur Skáldskapurinn um eigið líf Nóvellan The Sense of an Ending eftir Julian Barnes hlaut hin virtu Booker-verð- laun 2011, enda eins og skrifuð inn í þá strategíu sem dómefndin virðist fara eftir: afskaplega ensk, karllæg og hefðbundin í stíl og byggingu. Nú hefur Jón Karl Helga- son snúið sögunni á íslensku og kallar hana Að endingu. Viðfangs- efni sögunnar er vel þekkt; hvernig við semjum lífssögu okkar eftir á með það fyrir augum að fegra eigin hlut. Barnes vinnur vel úr því, sagan er áhugaverð og þótt söguhetjan, Tom Webster, sé ekki sú sympatís- kasta fær hún lesandann smám saman á sitt band. Sögulokin eru óvænt og í það heila vekur sagan mann til umhugsunar um dínamík- ina í mannlegum samskiptum og lífslygina frægu. Fyrri hluti sögunnar segir frá skólaárum Websters og þriggja félaga hans á sjöunda áratug síð- ustu aldar. Rót átakanna er ástar- samband Websters og Veronicu, sem síðar hefur ástarsamband við Adrian vin hans, og heimsókn hans til foreldra hennar. Seinni hlutinn hverfist um þá atburðarás sem fer af stað þegar móðir Veronicu arfleiðir Webster að lítilli peninga- upphæð og dagbók Adrians, sem framdi sjálfsmorð upp úr tvítugu. Í framhaldinu neyðist Webster til að horfast í augu við sjálfan sig, taka ábyrgð á því hver hann er og hætta að breyta eigin lífshlaupi í skáldskap. Barnes er flinkur höfundur og hugsuður, vefur þræði sögunnar vel saman og opinberar hæfilega mikið í einu. Hann lætur Webster kryfja frásagnarefnið jafnóðum og lesandinn fylgir honum skref fyrir skref í þeim uppgötvunum sem hann gerir. Allt er þetta óskaplega vitsmunalegt og á köflum óþarflega blóðlaust en um leið eykst samúð lesandans með söguhetjunni, sem er svo innilega föst í eigin takmörk- unum. Það hefur ekki verið neitt áhlaupa verk að koma þessum „über“-enska texta yfir á læsilega íslensku en Jón Karl leysir það að mestu leyti farsællega þótt ýmislegt orki tvímælis og þá ekki síst hinn íslenski titill bókarinnar. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Vel skrifuð og vel byggð nóvella sem veltir upp ýmsum grundvallarspurningum um eðli mannsins og minninganna. – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 14 68 1 0/ 12 Gildir til 31. október Lægra verð í Lyfju 20% afsláttur Fíflablöð og birki Vatnslosandi. Dregur úr bjúg og stirðleika í liðum. Skáldsagan Vernon G. Little eftir ástralska höfundinn DBC Pierre er væntanleg á hvíta tjaldið í leik- stjórn Werner Herzog. Vernon G. Little hlaut Boo- ker-verðlaunin þegar hún kom út 2003 og kom út í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar hjá Neon-klúbbi Bjarts skömmu síðar. Bókin er harmræn saga sem fjallar um titil persónuna, fimmtán ára dreng í bandarískum smábæ í Texas, sem fyrir röð tilviljana og misskilnings er grunaður um fjöldamorð í skólanum sínum og ákveður að flýja til Mexíkó. Werner Herzog er einn róm- aðasti kvikmyndaleikstjóri heims. Hann hefur verið afkasta- mikill á undanförnum árum, einkum við gerð heimildar- mynda. Handritið að myndinni skrifar Andrew Birkin, sem skrifaði meðal annars kvik- myndahandritið að Nafni rósar- innar eftir Umberto Eco. Herzog leik- stýrir Vernon G. Little YFIRLITSSÝNING Á VERKUM SVAVARS GUÐNASONAR Verk Svavars Guðnasonar má um þessar mundir sjá á Cobra-safninu í Hollandi. Á myndinni standa við verk eftir Svavar þau Lars Olesen sýningarstjóri, Þórir Ibsen sendiherra, Dominique Ambroise Ibsen og Ásgerður Kjartansdóttir menningarfulltrúi. WERNER HERZOG HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Þriðjudagur 23. október 2012 ➜ Fundir 20.30 Bindindissamtökin IOGT á Íslandi, eining nr. 14, heldur opinn fund í félagsheimili IOGT í Brautarholti 4a. Allir velkomnir. ➜ Kvikmyndir 17.00 Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina Blái flugdrekinn eftir Tian Zhuangzhuang í stofu 101 í Odda Háskóla Íslands. Aðgangur er ókeypis. ➜ Tónlist 20.30 Alþjóðlegt tríó píanóleikarans Agnars Más Magnússonar kemur fram á tónleikum jazztónleikaraðarinnar á KEX Hostel, Skúlagötu 28. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Söngvaskáldin Skúli mennski og Hjalti Þorkelsson verða á huggulegu nótunum á Café Rosenberg. Aðgangs- eyrir er kr. 1.000. ➜ Fyrirlestrar 12.05 Margrét Gunnarsdóttir, doktors nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands, mun flytja erindið velsæld í örbirgðarlandi í fyrirlestrasal Þjóðminja- safns Íslands. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðinga- félags Íslands undir yfirskriftinni Hvað er fátækt? Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is HALLGRÍMUR HELGASON rithöfundur verður gestur í fyrirlestraröðinni Skáldatal í Norræna húsinu á fimmtudag. Skáldatal er fyrirlestraröð þar sem skáld og rithöfundar „ræða það sem brennur á þeim og á þann hátt sem efnið krefst“. Dagskráin er á vegum námsbrautar í ritlist við Háskóla Íslands í samvinnu við Bókmennta- og listfræðastofnun og Norræna húsið.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.