Fréttablaðið - 02.01.2013, Page 2
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VESTFIRÐIR Íbúar í Árneshreppi
voru án rafmagns í nær fjóra
sólarhringa, eða frá aðfaranótt
síðastliðins laugardags. Víðtæk
bilun varð á rafmagnskerfi á Vest-
fjörðum eftir að óveðrið skall þar á
fyrir helgi, en viðgerðarmenn frá
Orkubúi Vestfjarða unnu hörðum
höndum að viðgerðum eftir að
veðrinu slotaði. Vonast var til að
rafmagn yrði komið á alls staðar
á svæðinu eftir viðgerðir gærdags-
ins.
Kristján Haraldsson orkubús-
stjóri segir þetta vera allt of lang-
an tíma fyrir fólk að vera í raf-
magnsleysi, þó svo að það sé ekki
óalgengt á svæðinu að rafmagn
fari af.
„Nú förum við yfir málin og
skoðum afleiðingarnar af þessu
veðri,“ segir Kristján. „Við erum
að setja línur í jörð á þessum
svæðum hægt og rólega, en það
er bara svo geypilega dýrt. Ef við
tökum bara Árneshreppinn sem
dæmi út frá markaðssjónarmiði,
þá stendur aldrei undir sér að setja
línur í jörð þar vegna þess að íbú-
arnir eru svo fáir. En út frá sam-
félagslegum sjónarmiðum verður
að gera þetta.“
Að sögn Kristjáns kostar á bilinu
400 til 500 milljónir að leggja raf-
magnslínur í jörð í Árneshreppi
einum. Rúmlega fimmtíu manns
eiga lögheimili í hreppnum, en
hann er sá fámennasti á landinu
öllu. Landsvæðið er þó töluvert
stórt, eða um 724 ferkílómetrar.
Unnið var að viðgerð á Norður-
línu á Trékyllisheiði, Tálknafjarð-
arlínu og Breiðdalslínu upp af
Kjaranstaðadal í gær. Á gamlárs-
kvöld tókst að koma á spennu frá
Mjólká til Önundarfjarðar eftir að
starfsmenn í Mjólkárvirkjun höfðu
lagfært Hrafnseyrarlínu. Dísil-
keyrslu lauk á Flateyri og Þing-
eyri á tíunda tímanum. Ekki tókst
að koma á spennu frá Breiðadal til
Ísafjarðar og Bolungarvíkurlínu
og er enn þá keyrt þar á varaafli
og dísilvélar eru keyrðar í Súðavík
og á Suðureyri.
sunna@frettabladid.is
Voru án rafmagns í
nær fjóra sólarhringa
Íbúar í Árneshreppi á Vestjförðum voru án rafmagns í nær fjóra sólarhringa eftir
óveðrið. Allt of langur tími, segir orkubússtjóri. Nauðsynlegt að leggja línur í jörð
þótt þær séu dýrar og standi ekki undir sér. Unnið að viðgerðum í allan gærdag.
ÞJÓÐKIRKJAN Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans, fagnar því
að kirkjan vilji leiða landssöfn-
un til tækjakaupa á spítalanum.
Agnes M. Sigurðardóttur biskup
boðaði slíka söfnun í nýárspre-
dikun sinni í Dómkirkjunni í gær.
„Undanfarið hefur verið vegið
að öryggi landsmanna í heil-
brigðismálum, bæði hér í höfuð-
borginni og eins úti um landið.
Á eina háskólasjúkrahúsi lands-
ins, þar sem einkunnarorðin eru
umhyggja, fagmennska, öryggi
og framþróun, er tækjakostur það
bágborinn og úr sér genginn að til
vandræða er,“ sagði Agnes.
„Það er nauðsynlegt að finna
leiðir til úrbóta því öll viljum við
búa við öryggi á hvaða aldri sem
við erum og hvar sem við búum.
Landspítali er fyrir okkur öll sem
búum í þessu landi,“ bætti hún
við. Það væri Þjóðkirkjan líka.
„Þess vegna vill kirkjan taka
þeirri áskorun að vera leiðandi í
söfnun til tækjakaupa á Landspít-
alanum í samráði við stjórnendur
spítalans. Samtakamáttur þjóðar-
innar hefur einatt skilað miklum
árangri.“
„Við höfum ekki rætt þetta,
en ég var búinn að heyra óm af
þessu frá kirkjunnar mönnum,“
segir Björn Zoëga. „Auðvitað
líst okkur alltaf vel á það þegar
svona stórt og sterkt afl vill
styðja við starfsemina því að það
er engin launung að við höfum að
miklu leyti þurft að styðjast við
gjafir við endurnýjun á vissum
tækjum.“ - sh
Biskup Íslands segir vegið að heilbrigðisöryggi þjóðarinnar og boðar söfnun á vegum kirkjunnar:
Forstjóri LSH fagnar boðaðri landssöfnun
AGNES SIG-
URÐARDÓTTIR
BJÖRN
ZOËGA
„Aðaláhyggjuefnið er hlýnandi veður sem getur skapað enn frekari
snjóflóðahættu,“ segir Harpa Grímsdóttir, forstöðukona Snjóflóðaseturs á
Ísafirði. Ákveðið var að aflétta rýmingu í Súðavík og Hnífsdal um miðjan
dag í gær, og íbúum í tveimur húsum við Seljalandsveg á Ísafirði verður
leyft að fara heim aftur.
Síðustu daga hafa sjö íbúðarhús á Vestfjörðum staðið tóm vegna hættu
á snjóflóðum, en sama hættustig er nú og undanfarna daga. Að sögn
Hörpu er mesta hættan í dæmigerðum giljum ofan við bæi þar sem snjór
er mikill. Tugir flóða hafa fallið á svæðinu undanfarna daga.
Áhyggjur af hlýnandi veðri
Elvar Árni, skýtur þetta ekki
svolítið skökku við?
„Við skjótum nágrannaþjóðum
okkar ref fyrir rass.“
Elvar Árni Lund er formaður Skotveiðifélags
íslands en Ísland er í 15. sæti heimslistans
yfir byssueign á hvern íbúa.
LÖGREGLUMÁL Karlmaður réðst á
sjúkraflutningamenn og sló lög-
reglukonu í Árbæjarhverfi um
eittleytið á nýársnótt. Sjúkrabíll-
inn hafði verið sendur í Árbæjar-
hverfið þar sem talið var að
maður væri veikur. Þegar lög-
regla og sjúkralið komu á staðinn
lét maðurinn til skarar skríða.
Hann var umsvifalaust handtek-
inn og vistaður í fangaklefa.
Þá skarst tvítug stúlka í andliti
eftir að glasi hafði verið hent í
hana á veitingastað um fjögur-
leytið á nýársnótt. Atvikið átti sér
stað á bar við Hafnarstræti. Vitað
er hver árásarmaðurinn er, hann
hafði sig á brott áður en lögregla
kom á staðinn. Stúlkan var flutt
með sjúkrabifreið á slysadeild.
- jhh
Fékk glas í andlitið:
Réðst á sjúkra-
flutningamenn
SPURNING DAGSINS
FÓLK „Við áttum von á því að hún kæmi yfir hátíð-
arnar, en þetta fór eins og við vonuðum og hún ákvað
að bíða fram í janúar,“ segir Einar Viðar Viðars-
son, nýbakaður og stoltur faðir fyrsta barns ársins
2013. „Það er að vissu leyti betra að fæðast snemma á
árinu, upp á skóla og svona, en þetta er auðvitað alltaf
dásamlegt, sama hvenær þau koma.“
Einar og kona hans, Berglind Hákonardóttir, eiga
fyrir tvö börn; Hákon átta ára og Védísi fjögurra ára.
Þau systkinin eiga afmæli í október og desember.
Litla stúlkan kom í heiminn klukkan 5.34 og gekk
fæðingin vel, að sögn Einars.
„Við vorum komin á kvennadeild LSH klukkan tvö
eftir að hafa keyrt frá Hvolsvelli,“ segir hann. „Þetta
gekk bara mjög vel í alla staði.“
Nýársbarnið var 14 merkur og 49,5 sentimetrar að
lengd. Litla stúlkan er enn ekki komin með nafn. „Nú
fer maður bara í það að hugsa,“ segir Einar, sem var
á leið á Selfoss með nýstækkaðri fjölskyldunni þegar
Fréttablaðið náði tali af honum í gær. Þar ætla hjónin
að hvílast á sjúkrahúsi með dótturina eina nótt áður
en þau halda heim á Hvolsvöll. - sv
Vel sköpuð stúlka frá Hvolsvelli er fyrsta barn ársins 2013:
Beið þar til nýtt ár gekk í garð
MEÐ NÝÁRSBARNIÐ Einar Viðar Viðarsson og Berglind
Hákonardóttir með nýfædda dóttur sína. MYND/STÖÐ 2
VERSLUN Mun minna seldist af
flugeldum um þessi áramót en
í fyrra. Veðrið virðist hafa sett
strik í reikninginn víða á land-
inu, en á höfuðborgarsvæðinu og
á Akureyri var sala svipuð milli
ára, enda voru veðuraðstæður
þar góðar miðað við annars stað-
ar á landinu.
Hörður Már Harðarson, for-
maður Slysavarnarfélagsins
Landsbjargar, sagði í samtali við
Stöð 2 í gærkvöld að sala hafi
gengið illa þar sem veðurófærð
spillti samgöngum. Menn hafi
rétt náð að selja fyrir kostnaði á
flugeldunum, en ekki meira en
það. Hörður bendir á að sölustað-
ir verði opnir fyrir þrettándann,
svo enn sé ekki öll nótt úti. - sv
Veðrið setti strik í reikning
Flugeldasala
dregst saman
SLYS Alls létust 23 eintaklingar af
slysförum á nýliðnu ári. Er þetta
fjölgun um þrjá frá árinu 2011.
Tæpur helmingur lést í bílslysi,
eða tíu manns, en heima- og frí-
tímaslysum fjölgaði á milli áranna
2010 og 2012, úr tveimur í sex.
Flest banaslysin voru í mars og
desember eða fimm einstaklingar
í hvorum mánuði.
Þó virðist sem banaslysum hafi
fækkað jafnt og þétt síðustu ár, en
svo dæmi séu tekin létust 36 árið
2003 og fimmtíu árið 2006. - sv
23 létust af slysförum 2012:
Flestir létu lífið
í umferðinni
Arnór K. Hannibalsson, pró-
fessor í heimspeki við Háskóla
Íslands, andaðist að heimili
sínu, Hregg-
nasa í Kjós,
föstudaginn
28. desemb-
er síðastlið-
inn, 78 ára
að aldri.
Hann var
kvæntur
Nínu Sæunni
Sveins-
dóttur, fædd árið 1935, en þau
skildu árið 1995. Börn þeirra
eru Ari, Kjartan, Auðunn,
Hrafn og Þóra.
Arnór fæddist að Strand-
seljum í Ögurhreppi þann 24.
mars 1934. Foreldrar hans
voru Hannibal Valdimarsson,
verkalýðsleiðtogi, þingmaður
og ráðherra, og Sólveig Ólafs-
dóttir.
Arnór Hanni-
balsson látinn
ALLT Á KAFI Íbúar á Ísafirði stóðu í ströngu í gær við að moka bíla sína úr snjó-
köflum. Spáð er hlýnandi veðri næstu daga. MYND HAFÞÓR
FÆRRI KAUPA FLUGELDA Svo virðist
sem veðrið hafi sett strik í reikninginn
hjá flugeldasölunum þetta árið.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL