Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 6
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
JAPAN Shinzo Abe, nýr forsætis-
ráðherra Japans, sér ekki fram á
að Japanar geti lifað án kjarnorku-
vera. Eigi að takast að koma efna-
hagslífinu upp úr þeim doða sem
ríkt hefur árum og jafnvel ára-
tugum saman sé óhjákvæmilegt
að ræsa á ný flest kjarnorkuver
landsins og smíða jafnframt nýja
kjarnaofna.
„Takist okkur ekki að endur-
heimta öflugt efnahagslíf, þá á
Japan sér enga framtíð,“ sagði
hann á sínum fyrsta blaðamanna-
fundi eftir að hann varð fyrir helgi
forsætisráðherra í annað sinn.
Hann kallar nýja hægristjórn sína
„kreppulausnarstjórnina“.
Vinstristjórn forvera hans,
Yoshihiko Noda, hafði lofað því að
reisa ekki ný kjarnorkuver í stað
þeirra sem gömul eru orðin og úr
sér gengin heldur ætti þvert á móti
að draga smám saman úr kjarn-
orkuvinnslu í landinu með því að
stöðva gömlu kjarnorkuverin.
Eftir kjarnorkuslysið í Fuku-
yama vorið 2011 var starfsemi í
öllum kjarnorkuverum landsins
stöðvuð meðan kannað var hversu
vel þau þyldu náttúruhamfarir eða
aðra ógn.
Alls eru 54 kjarnorkuofnar í
Japan, en aðeins sex þeirra hafa
verið teknir í notkun á ný. Fyrir
slysið í Fukuyama fengu Japanar
þriðjung raforku sinnar úr kjarn-
orkuverum, þannig að verulega
munar um þennan orkugjafa.
Abe virðist hins vegar láta sér
fátt finnast um áhyggjur af örygg-
ismálum í tengslum við kjarn-
orkuna. Aðalatriðið sé að koma
kjarnorkuverunum aftur í gang til
að styrkja efnahagslífið.
Abe var forsætisráðherra um
stutt skeið fyrir um sex árum,
en síðan þá hafa sex forsætisráð-
herrar farið með stjórn í Japan.
Hann er þjóðernissinnaður
og hyggst ótrauður standa uppi
í hárinu á Kínverjum í deilu
ríkjanna um yfirráð yfir nokkrum
smáeyjum. Íhaldsflokkur hans,
LDP, hafði hins vegar stjórnað
Japan meira og minna í hálfa öld
frá árinu 1995, en hafði glutrað
niður fylgi sínu á síðustu árum, allt
þar til hann vann stórsigur á ný nú
fyrir jólin.
gudsteinn@frettabladid.is
Shinzo Abe óttast
ekki kjarnorkuna
Nýr forsætisráðherra Japans ætlar að ná efnahagslífinu á strik, hefja kjarnorku-
vinnslu af fullum krafti á ný og standa uppi í hárinu á Kínverjum. Flokkur hans
stjórnaði landinu meira og minna frá árinu 1955 þar til fylgið hrundi árið 2009.
SHINZO ABE Íhaldsflokkur hans er kominn aftur til valda eftir nokkurra ára hlé.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Shinzo Abe hefur fullan hug á að endurskoða afsökunarbeiðni sem jap-
önsk stjórnvöld sendu Suður-Kóreu árið 1993, þar sem viðurkennt var að
japanski herinn hefði á stríðsárunum þvingað suðurkóreskar konur til kyn-
lífs með japönskum hermönnum. Margir íhaldsmenn í Japan, þar á meðal
Abe, hafa verið ósáttir við þessa yfirlýsingu, og sagt að engar sannanir séu
fyrir því að konurnar hafi verið þvingaðar til athafna, hvað þá að yfirmenn
í japanska hernum hafi átt hlut að þeirri þvingun. Láti Abe nú verða af því
að taka afsökunarbeiðnina til baka, að hluta eða öllu leyti, má reikna með
að samskiptin við Suður-Kóreu versni mjög.
Vill endurskoða afsökunarbeiðni
FÍLABEINSSTRÖNDIN Harmleikur varð í Abidjan, stærstu borg Fíla-
beinsstrandarinnar, eftir flugeldasýningu á gamlárskvöld þegar meira
en sextíu manns tróðust undir hópi fólks og dóu. Flestir hinna látnu
voru börn á aldrinum átta til fimmtán ára.
Meira en 200 manns slösuðust, en það er enn óljóst hvers vegna
örtröðin myndaðist. Björgunarfólk mætti á staðinn um tveimur tímum
síðar, að því er erlendir fjölmiðlar herma, en náði ekki að bjarga nema
hluta fórnarlambanna.
Hörmungarnar dundu yfir klukkan tvö á nýársnótt, þegar fólk var
að fara heim af flugeldasýningunni. Ekki er enn ljóst hvað kom múg-
æsingunni af stað. - sv
Flugeldasýning á Fílabeinsströndinni breyttist í harmleik:
Tugir barna tróðust undir
UM 200 SLASAÐIR Meira en 60 létust og 200 slösuðust þegar múgæsing braust út
eftir flugeldasýningu á Fílabeinsströndinni. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN, AP Bandaríkjaþing samþykkti
á nýársnótt samkomulag þeirra Baracks
Obama Bandaríkjaforseta og Joe Biden
varaforseta við Mitch McConnell, leiðtoga
repúblikana í öldungadeild Bandaríkja-
þings.
Samkomulagið um lögin sem fara nú
fyrir neðri deild bandaríska þingsins koma
í veg fyrir að skattar hækki á Bandaríkja-
menn í millistétt en við áramótin féllu úr
gildi skattalækkanir George Bush, forvera
Obama í embætti. Nýju skattalögin voru
samþykkt með miklum meirihluta í öld-
ungadeildinni.
Samkomulagið kemur einnig í veg fyrir
niðurskurð á atvinnuleysisbótum, lækkun
á launum lækna og hækkun á verði á mjólk
næstu tvo mánuðina. Það þýðir að þetta
þrætuepli verður aftur tekið upp á næstu
vikum.
„Þótt hvorki demókratar né repúblikan-
ar hafi náð markmiðum sínum er þetta rétt
ákvörðun fyrir þjóðina svo fulltrúaþing-
ið ætti að samþykkja þessi lög án tafar,“
sagði Obama forseti eftir að málið var leitt
til lykta á nýársnótt. Obama er viss um að
lögin muni auka hagvöxt í Bandaríkjunum
og minnka fjárlagahallann. - bþh
Barack Obama forseti ánægður með samkomulag um skattalög á Bandaríkjaþingi:
Samkomulag um skattalögin í höfn
BÚIÐ Í BILI Obama lýsti ánægju sinni með niðurstöðu þings-
ins í skattamálunum. NORDICPHOTOS/AFP
1. Hvar í heiminum vilja læknar
leggja blátt bann við öfl ugustu
fl ugeldunum?
2. Hvað heitir forsætisráðherra
Indlands?
3. Hvenær var síðast jafn víðtækt raf-
magnsleysi á landinu eins og á Vest-
fjörðum undanfarna daga?
SVÖR
1. Í Svíþjóð 2. Manmohan Singh
3. Árið 1995
HEIÐRUÐ Á BESSASTÖÐUM
HLUTU FÁLKAORÐUNA Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi tíu Íslendinga hinni íslensku fálkaorðu við
hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Orðan er veitt tvisvar á ári en í þetta skipti hlutu orðuna Eggert Pétursson myndlist-
armaður, Eva Sigurbjörnsdóttir hótelstjóri, Helga Birna Gunnarsdóttir þroskaþjálfi, Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor, Ingibjörg
Einarsdóttir skrifstofustjóri, Kristín Guðmundsdóttir íþróttakennari, Kristján Eyjólfsson læknir, Magnús Geir Þórðarson leik-
hússtjóri, Sveinn Elías Jónsson, bóndi og byggingameistari, og Þórir Baldursson tónlistarmaður. Allir voru sæmdir riddara-
krossi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VEISTU SVARIÐ?