Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.01.2013, Blaðsíða 8
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Líf hefur á ný færst í íslenskan hlutabréfamarkað á síðustu miss- erum eftir ládeyðu í kjölfar banka- hrunsins þegar markaðurinn nær þurrkaðist út. Síðustu misser- in hafa helstu kauptækifærin í Kauphöllinni reynst vera nýskráð fyrir tæki sem hafa raunar hækk- að ótrúlega mikið í verði síðustu tvö ár. Fréttablaðið heldur áfram að gera upp árið 2012 í viðskipta- lífinu. Úrvalsvísitala Kauphallarinn- ar var endurræst í 1.000 stigum í upphafi árs 2009 eftir bankahrun- ið. Næstu mánuði hrundi vísitalan niður í um 560 stig í mars það ár en var aftur komin upp í 1.000 stig í apríl 2010. Síðan hefur vísitalan sveiflast í kringum þúsund stigin og sat í tæplega 1.050 stigum þegar þetta var ritað. Veltan á hlutabréfamarkaði hefur hægt og bítandi verið að aukast á þessum tíma þótt hún sé enn hvergi nærri þeirri veltu sem var vanaleg á árunum fyrir banka- hrunið. Nýskráð félög hækkað mikið Sérstaka athygli hefur vakið góður gangur nýskráðra félaga sem og þeirra sem hafa ráðist í umtals- verðar hlutafjáraukningar. Senu- þjófurinn í Kauphöllinni síðustu tvö ár hefur þannig verið Ice- landair Group. Framtakssjóður Íslands keypti í júní árið 2010 30% hlut í Icelandair Group á genginu 2,5. Síðan hefur virði bréfa í fyrirtækinu aukist verulega og var gengið 8,22 þegar þetta var ritað. Jafngildir það ríf- lega 230% hækkun á virði frá kaupum Framtakssjóðsins. Fyrsta nýja félagið til að vera skráð í Kauphöllina frá banka- hruni var Hagar sem voru seldir í almennu hlutafjárútboði á geng- inu 13,5. Rétt fyrir áramót, rúmu ári seinna, var gengi bréfanna 22,8 sem jafngildir tæplega 70% verð- hækkun á einu ári. Á þessu ári hafa svo þrjú ný félög verið skráð í Kauphöllina; Reginn í sumar og Eimskip og Vodafone undir lok árs. Reginn hefur hækkað um ríflega 30% á hálfu ári en sennilega er enn of snemmt að meta leitni bréfa Eim- skips og Vodafone. Höftin ýta undir hækkanir Skýringar á þróun hlutabréfa- verðs eru í fæstum tilfellum þær nákvæmlega sömu. Hækkun verðs hlutabréfa Icelandair Group verð- ur þannig sennilega skýrð að hluta með mikilli fjölgun ferðamanna sem heimsótt hafa Ísland síðustu ár en fyrirtækið er hið stærsta í íslenskri ferðaþjónustu. Þróun ferðamannastraumsins hefur aftur á móti líklega haft lítið að segja um hækkun hlutabréfaverðs hinna félaganna sem hér hafa verið nefnd. Þó má nefna tvö atriði sem almennt eru talin hafa haft mikið að segja. Annars vegar svokallað- an útboðsafslátt sem yfirleitt ein- kennir útboðsverð félaga sem til stendur að skrá á markað og hins vegar áhrif gjaldeyrishaftanna á fjárfestingarumhverfi hér innan- lands. Eitt helsta einkenni hluta- fjárútboða er að hlutabréfaverð nýskráðra félaga hefur tilhneig- ingu til að hækka nokkuð meira fyrst eftir skráningu en sem nemur hækkun vísitölu. Þetta þýðir að það verð sem hlutabréf eru boðin á í útboðum á það til að vera nokkru lægra en sem nemur verðlagningu fjárfesta á bréfunum. Samkvæmt bandarískum rannsóknum hefur þessi svokallaði útboðsafsláttur numið 16,8% að meðaltali þar í landi en sama fyrir bæri þekkist víðast hvar. Frekari skýringu á því má finna í kassa hér til hlið- ar. Hitt atriðið sem hér var nefnt til sögunnar sem skýring á mikl- um hækkunum á hlutabréfaverði nýskráðra félaga var fjárfestingar- umhverfið hér innanlands. Gjald- eyrishöftin sem nú eru í gildi gera það að verkum að innlendir fjár- festar (svo sem lífeyrissjóðirnir sem hafa um 100 til 150 milljarða fjárfestingarþörf á ári) hafa mjög takmörkuð úrræði til fjárfestinga utan Íslands. Það sama gildir um eigendur þeirra hundruða millj- arða sem eru í eigu erlendra fjár- festa sem læstust inni í landinu þegar gjaldeyrishöftin voru sett á. Þar sem mögulegir fjárfesting- arkostir fyrir þessa peninga eru tiltölulega fáir hafa margir varað við því að gjaldeyrishöftin ýti undir bólumyndun á innlendum eignamörkuðum. Hér skal ekki fullyrt hvort slík þróun er hafin en þó er væntanlega óhætt að segja að gjaldeyrishöfin hafi ekki verið dragbítur á verði íslenskra hlutabréfa síðustu ár. Fleiri skráningar í vændum Eins og áður sagði hafa fjögur íslensk fyrirtæki verið skráð á hlutabréfamarkað á síðustu þrett- án mánuðum. Búist er við því að skráðum félögum fjölgi nokkuð áfram á árinu 2013 en meðal fyr- irtækja sem hafa verið orðuð við skráningu eru Advania, N1, Ice- landic Group, Prómens, Sjóvá, Tryggingamiðstöðin, Skeljungur og Reitir. Það er því líklegt að fjár- festum bjóðist áfram spennandi fjárfestingartækifæri í nýskráðum félögum á næstu misserum. magnusl@frettabladid.is NISSAN MICRA VISIA Nýskr. 09/11, ekinn 11 þús. km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 1.990 þús. Rnr.102122. Mikið úrval af nýlegum, lítið eknum bílum á frábæru verði! Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is NISSAN QASHQAI+2 SE 4x4 Nýskr. 03/12, ekinn 9 þús km. bensín, sjálfskiptur, 7 manna Rnr.151594. HYUNDAI i30 CLASSIC Nýskr. 11/10, ekinn 17 þús. km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 2.190 þús. Rnr.160015. FORD GALAXY TREND 7 manna Nýskr. 06/11, ekinn 38 þús km. dísel, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.490 þús. Rnr.130383. HYUNDAI i10 Nýskr. 06/10, ekinn 36 þús. km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 1.290 þús. Rnr.190685. NISSAN QASHQAI SE Nýskr. 05/12, ekinn 27 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.790 þús. Rnr.130383. HYUNDAI IX35 GLS Nýskr. 04/12, ekinn 10 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.990 þús. Rnr.102131. Frábær kaup kr. 5.290 þús. Gerðu frábærhjá Bílalandi BL Gott úrval af 4x4 bílum Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði! Ný félög hafa hækkað mikið í Kauphöllinni Skráðum félögum á íslenska hlutabréfamarkaðinum fjölgaði um þrjú á árinu með hlutafjárútboðum Regins, Eimskips og Vodafone. Hlutabréfaverð nýskráðra félaga hefur hækkað mikið í Kauphöllinni síðustu tvö ár. Fleiri skráningar eru í vændum. 10000 8000 6000 4000 2000 0 600 480 360 240 120 0 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 Þú su nd Gömul úrvalsvísitala (vinstri ás) Ný úrvalsvísitala OMXI6 (vinstri ás) Heildarvelta í milljónum króna (hægri ás) Þróun hlutabréfamarkaðar 2004 til 2012 350 300 250 200 150 100 50 ➜ Þróun hlutabréfa nýrra félaga 2010 til 2012 Icelandair Group Eimskip Hagar Vodafone Reginn Úrvalsvísitala 2010 2011 2012 20.000 15.000 10.000 5.000 0 1.200 1.025 850 675 500 2009 2010 2011 2012 ➜ Þróun hlutabréfamarkaðar 2009 til 2012 Heildarvelta (vinstri ás) Linear (Heildarvelta í milljónum króna (vinstri ás)) Úrvalsvísitala OMXI6 (hægri ás) M ill jó ni r k ró na

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.