Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 10

Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 10
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 „Ég einsetti mér að reyna að hjálpa fólki að hætta að skammast sín fyrir þetta,“ segir Andri Hrafn Agnarsson, sem komst að því í haust eftir rannsóknir að hann er ófrjór. Hann sagði sögu sína í Íslandi í dag fyrir jólin og fékk gríðarleg viðbrögð í kjölfarið. Skömmin mikil í fyrstu „Ég fór fyrst og fremst í þetta við- tal vegna þess að ég vildi hvetja fólk sem er í þessum sporum áfram og til að koma út úr skápnum með þetta. Þannig leið okkur, þó ég viti ekki hvernig það er að koma út úr skápnum þá fannst mér svolítið eins og það væri það sem ég væri að gera með þessu,“ segir Andri. Hann segir að fyrst eftir að hann og Sara Petra, kærasta hans, fengu fréttirnar hafi hann skammast sín svakalega mikið. „Í mínu tilfelli var það af því að mér fannst ég vera misheppnaður. Mér fannst karlmennskan í mér horfin.“ Hann hafi orðið þungur í skapinu og liðið mjög illa. Hann hafi orðið kvíðinn og forðast að tala við fólk af því að hann nennti ekki að láta eins og allt væri í lagi þegar líf hans hefði breyst svona mikið. „Það er í raun alveg fáránlegt að maður skammist sín fyrir svona lagað, af því að maður fæðist svona og getur ekkert að þessu gert. En ég skil það samt svo vel, mér leið svona sjálfum en ég ákvað bara að snúa þessu við.“ Varð að breyta hugarfarinu Andri hafði þá haft orð á því við Söru að hann þyldi ekki hvernig ófrjósemin hefði breytt honum. „Eftir nokkurn tíma fór ég loksins að opna augun og ég tók einfalda ákvörðun. Ég vissi að ég gæti ekk- ert gert í þeim aðstæðum sem ég var lentur í en ég hafði fulla stjórn á því hvernig ég tækist á við þessi vandamál. Ég einfaldlega yrði að breyta um hugarfar. Ég gat legið heima hjá mér áfram og haldið áfram að vorkenna mér eða snúið þessum aðstæðum upp í eitthvað tækifæri.“ Hann setti sér því þrjú mark- mið. Að hjálpa fólki í sömu stöðu með því að koma opinberlega fram, að vekja fólk til umhugsunar um hversu erfitt er fyrir fólk að fá fréttir um ófrjósemi og að vekja stjórnvöld til umhugsunar um fyrir komulag á niðurgreiðslum til tæknifrjóvgana. Ekki mesti vandinn í heiminum „Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég á ekki við mesta vandann að stríða í heiminum, margir hafa það miklu verra. En mér finnst þetta mál samt þurfa svolitla athygli og mér finnst þurfa að opna á þessa umræðu svo fólk komi út með þetta.“ Andri segist ekki vilja vera of pólitískur, en hann er ósáttur við þær breytingar að fyrstu tækni- frjóvganir séu ekki lengur niður- greiddar af ríkinu. „Opinberar tölur sýna að fimmtán prósent para þurfa á einhvers konar aðstoð að halda við að eignast börn. Það er mjög há tala.“ Því séu allar líkur á því að flestir þekki einhvern sem þurfi á hjálp að halda við að eignast börn, en viti ekki endilega af því vegna þess að fólk haldi ófrjósem- inni leyndri. Ótrúleg viðbrögð við viðtali „Eftir að viðtalið birtist við mig í Íslandi í dag fór gjörsamlega allt af stað. Fyrir utan stuðning frá fjölskyldu og vinum þá hefur því- líkur fjöldi fólks sem við þekkj- um og sem við þekkjum ekki neitt skrifað mér og Söru á Facebook, og meira að segja fékk ég símtal frá manni utan af landi sem ég þekki ekkert. Flestir eru í sömu sporum og við eða þekkja einhvern í okkar sporum. Fólk hefur þakkað okkur fyrir að stíga fram og vekja athygli á málinu og einnig deilt með okkur sinni sögu, sem margar hverjar voru átakanlegar að lesa.“ Andri segist því vilja nota tækifærið og þakka öllum sem hafa sýnt þeim stuðning. thorunnfrettabladid.is Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég á ekki við mesta vandann að stríða í heiminum, margir hafa það miklu verra. Andri Hrafn Agnarsson 15% prósent para eiga í erfi ð- leikum með að eignast börn. Kynslóðir elda með okkur Fissler pottar, pönnur og önnur búsáhöld í miklu úrvali. Einnig vandaðir hraðsuðupottar sem gera matseldina hraðari og hollari. Þýsk hágæðavara. Fissler hefur framleitt hágæða potta og pönnur í Þýskalandi í 167 ár. ÚTSÖLUSTAÐIR: ht.is SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt LAUGAVEGI 178. Sími: 568 9955. Einsetti sér að hjálpa ófrjósömum Eftir að Andra Hrafni Agnarssyni hafði verið greint frá því í haust að hann væri ófrjór ákvað hann að láta reynsluna verða til góðs. Hann einsetti sér að hjálpa öðrum í sömu stöðu að hætta að skammast sín fyrir ófrjósemi. Hann segir viðbrögðin hafa verið gríðarlega mikil. ANDRI OG SARA Fyrst eftir að þau fengu fréttirnar hugsaði Andri oft um að slíta sambandinu við Söru til að hún hefði tækifæri til að eignast fjölskyldu með öðrum manni. Nú eru þau ákveðin í því að eignast sína eigin fjölskyldu með öðrum leiðum en hinni hefðbundnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÍSKÖLD ÁNÆGJA Sjósundkappar njóta ylsins í pottinum eftir að hafa synt í hressi- lega köldum sjónum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL LÍKAMSRÆKT Fjölmenni var á Ylströndinni í Nauthólsvík í gær- dag, en sú hefð hefur skapast undan farin ár að skella sér í sjó- sund á nýársdag. Þetta er í sjöunda sinn sem Ylströndin opnar fyrir unnendur sjóbaða og sjósunds þennan dag. Í tilkynningu kemur fram að um 1.200 manns hafi fengið sér sund- sprett í Nauthólsvíkinni á nýársdag frá því farið var að hafa opið. Sjávarhiti í Nauthólsvík hefur að meðaltali verið rúmlega ein gráða frá því mælingar hófust og allt útlit er fyrir að sjórinn hafi verið svip- aður í gær. Lægsti sjávarhiti í Naut- hólsvík á nýársdag hefur mælst -1,7 gráður. „Reynslan sýnir að ánægja og gleði þátttakenda eykst eftir því sem sjórinn er kaldari og má til gamans geta þess að hugtakið „ísköld ánægja“ hefur verið að festa sig í sessi í Nauthólsvíkinni undan- farið,“ segir í tilkynningunni. - sv Fjölmenni í sjósundi á Ylströndinni á nýársdag: Kaldur sjór gleður gesti strandarinnar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.