Fréttablaðið - 02.01.2013, Síða 10
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
„Ég einsetti mér að reyna að hjálpa
fólki að hætta að skammast sín
fyrir þetta,“ segir Andri Hrafn
Agnarsson, sem komst að því í
haust eftir rannsóknir að hann
er ófrjór. Hann sagði sögu sína
í Íslandi í dag fyrir jólin og fékk
gríðarleg viðbrögð í kjölfarið.
Skömmin mikil í fyrstu
„Ég fór fyrst og fremst í þetta við-
tal vegna þess að ég vildi hvetja
fólk sem er í þessum sporum áfram
og til að koma út úr skápnum með
þetta. Þannig leið okkur, þó ég viti
ekki hvernig það er að koma út úr
skápnum þá fannst mér svolítið
eins og það væri það sem ég væri
að gera með þessu,“ segir Andri.
Hann segir að fyrst eftir að hann
og Sara Petra, kærasta hans, fengu
fréttirnar hafi hann skammast sín
svakalega mikið. „Í mínu tilfelli
var það af því að mér fannst ég
vera misheppnaður. Mér fannst
karlmennskan í mér horfin.“ Hann
hafi orðið þungur í skapinu og liðið
mjög illa. Hann hafi orðið kvíðinn
og forðast að tala við fólk af því að
hann nennti ekki að láta eins og
allt væri í lagi þegar líf hans hefði
breyst svona mikið.
„Það er í raun alveg fáránlegt að
maður skammist sín fyrir svona
lagað, af því að maður fæðist svona
og getur ekkert að þessu gert. En
ég skil það samt svo vel, mér leið
svona sjálfum en ég ákvað bara að
snúa þessu við.“
Varð að breyta hugarfarinu
Andri hafði þá haft orð á því við
Söru að hann þyldi ekki hvernig
ófrjósemin hefði breytt honum.
„Eftir nokkurn tíma fór ég loksins
að opna augun og ég tók einfalda
ákvörðun. Ég vissi að ég gæti ekk-
ert gert í þeim aðstæðum sem ég
var lentur í en ég hafði fulla stjórn
á því hvernig ég tækist á við þessi
vandamál. Ég einfaldlega yrði að
breyta um hugarfar. Ég gat legið
heima hjá mér áfram og haldið
áfram að vorkenna mér eða snúið
þessum aðstæðum upp í eitthvað
tækifæri.“
Hann setti sér því þrjú mark-
mið. Að hjálpa fólki í sömu stöðu
með því að koma opinberlega fram,
að vekja fólk til umhugsunar um
hversu erfitt er fyrir fólk að fá
fréttir um ófrjósemi og að vekja
stjórnvöld til umhugsunar um
fyrir komulag á niðurgreiðslum til
tæknifrjóvgana.
Ekki mesti vandinn í heiminum
„Ég geri mér alveg grein fyrir því
að ég á ekki við mesta vandann að
stríða í heiminum, margir hafa það
miklu verra. En mér finnst þetta
mál samt þurfa svolitla athygli og
mér finnst þurfa að opna á þessa
umræðu svo fólk komi út með
þetta.“
Andri segist ekki vilja vera of
pólitískur, en hann er ósáttur við
þær breytingar að fyrstu tækni-
frjóvganir séu ekki lengur niður-
greiddar af ríkinu. „Opinberar
tölur sýna að fimmtán prósent para
þurfa á einhvers konar aðstoð að
halda við að eignast börn. Það er
mjög há tala.“ Því séu allar líkur á
því að flestir þekki einhvern sem
þurfi á hjálp að halda við að eignast
börn, en viti ekki endilega af því
vegna þess að fólk haldi ófrjósem-
inni leyndri.
Ótrúleg viðbrögð við viðtali
„Eftir að viðtalið birtist við mig í
Íslandi í dag fór gjörsamlega allt
af stað. Fyrir utan stuðning frá
fjölskyldu og vinum þá hefur því-
líkur fjöldi fólks sem við þekkj-
um og sem við þekkjum ekki neitt
skrifað mér og Söru á Facebook, og
meira að segja fékk ég símtal frá
manni utan af landi sem ég þekki
ekkert. Flestir eru í sömu sporum
og við eða þekkja einhvern í okkar
sporum. Fólk hefur þakkað okkur
fyrir að stíga fram og vekja athygli
á málinu og einnig deilt með okkur
sinni sögu, sem margar hverjar
voru átakanlegar að lesa.“ Andri
segist því vilja nota tækifærið og
þakka öllum sem hafa sýnt þeim
stuðning. thorunnfrettabladid.is
Ég geri mér alveg
grein fyrir því að ég á ekki
við mesta vandann að
stríða í heiminum, margir
hafa það miklu verra.
Andri Hrafn Agnarsson
15%
prósent para eiga í erfi ð-
leikum með að eignast börn.
Kynslóðir elda
með okkur
Fissler pottar, pönnur og önnur búsáhöld í miklu
úrvali. Einnig vandaðir hraðsuðupottar sem gera
matseldina hraðari og hollari. Þýsk hágæðavara.
Fissler hefur framleitt hágæða potta og pönnur í Þýskalandi í 167 ár.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
ht.is
SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt
LAUGAVEGI 178. Sími: 568 9955.
Einsetti sér að hjálpa ófrjósömum
Eftir að Andra Hrafni Agnarssyni hafði verið greint frá því í haust að hann væri ófrjór ákvað hann að láta reynsluna verða til góðs. Hann
einsetti sér að hjálpa öðrum í sömu stöðu að hætta að skammast sín fyrir ófrjósemi. Hann segir viðbrögðin hafa verið gríðarlega mikil.
ANDRI OG SARA Fyrst eftir að þau fengu fréttirnar hugsaði Andri oft um að slíta
sambandinu við Söru til að hún hefði tækifæri til að eignast fjölskyldu með öðrum
manni. Nú eru þau ákveðin í því að eignast sína eigin fjölskyldu með öðrum leiðum
en hinni hefðbundnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍSKÖLD ÁNÆGJA Sjósundkappar njóta ylsins í pottinum eftir að hafa synt í hressi-
lega köldum sjónum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LÍKAMSRÆKT Fjölmenni var á
Ylströndinni í Nauthólsvík í gær-
dag, en sú hefð hefur skapast
undan farin ár að skella sér í sjó-
sund á nýársdag.
Þetta er í sjöunda sinn sem
Ylströndin opnar fyrir unnendur
sjóbaða og sjósunds þennan dag.
Í tilkynningu kemur fram að um
1.200 manns hafi fengið sér sund-
sprett í Nauthólsvíkinni á nýársdag
frá því farið var að hafa opið.
Sjávarhiti í Nauthólsvík hefur að
meðaltali verið rúmlega ein gráða
frá því mælingar hófust og allt útlit
er fyrir að sjórinn hafi verið svip-
aður í gær. Lægsti sjávarhiti í Naut-
hólsvík á nýársdag hefur mælst -1,7
gráður.
„Reynslan sýnir að ánægja og
gleði þátttakenda eykst eftir því
sem sjórinn er kaldari og má til
gamans geta þess að hugtakið
„ísköld ánægja“ hefur verið að festa
sig í sessi í Nauthólsvíkinni undan-
farið,“ segir í tilkynningunni. - sv
Fjölmenni í sjósundi á Ylströndinni á nýársdag:
Kaldur sjór gleður
gesti strandarinnar