Fréttablaðið - 02.01.2013, Síða 11

Fréttablaðið - 02.01.2013, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 2. janúar 2013 | FRÉTTIR | 11 5 stjörnu FIT Innifalið: • Lokaðir tímar 3x í viku • Leiðbeiningar um mataræði sem er sérstaklega samsett til að tryggja þátttakendum 5 stjörnu árangur • Hvatning, fróðleikur og hollar og góðar uppskriftir frá Ágústu Johnson • Mælingar og vigtun fyrir og eftir fyrir þær sem vilja • Dekurkvöld í Blue Lagoon spa • Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum • Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu - jarðsjávarpotti og gufuböðum • 10% afsláttur af öllum meðferðum í Blue Lagoon spa Nýttu þér reynslu okkar og þekkingu til að ná 5 stjörnu formi. Hentar jafnt byrjendum sem vönum. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin, tímasetningu og skráningu finnur þú á www.hreyfing.is Breyttu línunum og tónaðu líkamann í sitt fegursta form. Við höfum sett saman nýtt æfingakerfi byggt á kerfi sem hefur slegið rækilega í gegn í New York. Það sameinar margar ólíkar styrktaræfingar sem móta og tóna vöðva líkamans á áhrifaríkan hátt. Æfingarnar eru rólegar, krefjandi og gerðar til að breyta línum líkamans á kerfisbundinn hátt. Áhersla er lögð á þægilega tónlist. Náðu 5 stjörnu formi FJARSKIPTI Síminn hyggst upp- færa símstöðina í Búðardal á fyrstu mánuðum komandi árs. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær höfðu íbúar og byggða- ráðið í Dalabyggð kvartað undan slæmu netsambandi. Síminn hafði svarað þessu fyrir tveimur vikum. „Síminn hefur skoðað aðstæður í Búðardal og séu engar, ófyrir- séðar, tæknilegar áskoranir fyrir hendi verður ráðist í uppfærslu á búnaði á fyrsta ársfjórðungi nýs árs. Búðardalur verður þá með fyrstu sveitarfélögum til að fá bætt net á nýju ári,“ segir Síminn sem kveður hraðann um netið munu aukast. „Bæjarbúar geta þá notið fullrar sjónvarpsþjónustu hjá Símanum.“ Síminn uppfærir á Búðardal: Dalabyggð fær fulla þjónustu DANMÖRK Alls voru 30 morð framin í Danmörku á nýliðnu ári. Það er talsvert undir meðaltali og hafa þau einungis einu sinni verið færri síðasta aldarfjórðunginn. Tíu fórnarlömb eru konur og tutt- ugu karlar, en fjögur málanna eru enn óleyst. Í frétt DR segir að jafnan komi á milli 50 og 70 morð inn á borð lögreglu. Mesti fjöldinn í seinni tíð hafi verið árið 1997 þegar morðin voru 88 talsins, en fæst voru þau árið 2006 þegar 29 voru myrtir. Að mati fræðimanna stuðlar almenn farsímaeign að því að færri látast eftir árásir og þar af leiðandi verða færri morð. - þj Farsímar fækka morðum: Þrjátíu drepnir í Danmörku LÖGREGLUMÁL Þrjátíu morð hafa verið framin í Danmörku það sem af er ári. Það er nokkru færra en í meðalári. NORDICPHOTOS/GETTY BÚÐARDALUR Uppfærsla símstöðvar- innar er á dagskrá. HEIMURINN 1 2 3 Chavez enn á sjúkrahúsi 1VENUSÚELA, AP Aðaláramóta-fögnuðinum í Venesúela var aflýst vegna veikinda Hugo Chavez, forseta. Hann er á spítala eftir að hafa gengist undir fjórðu krabba- meinsskurðaðgerð sína. Varaforseti Venesúela sagði á sunnudaginn að veikindi Chavez hefðu aukist eftir aðgerðina. Tengdasonur hans sagði á Twitter á nýársnótt að hjá Chavez væru börnin hans og að hann væri rólegur. Átök á Vestur- bakkanum 2 ÍSRAEL, AP Átta eru særðir eftir að ísraelskir hermenn dulbúnir sem grænmetissalar hófu rassíu á Vesturbakkanum þar sem átti að handtaka palestínska aðgerðarsinna í gær. Átök fylgdu í kjölfarið þegar fleiri hermenn óku skriðdrekum inn í bæinn. Ungmenni köstuðu eldsprengjum og grjóti að hermönn- unum og kveiktu í dekkjum til að hindra för þeirra. Ísraelarnir skutu þá úr byssum og notuðu táragas. Ísraelsmenn vilja ekki tjá sig um atvikið. Enn barist í Sýrlandi 3 SÝRLAND, AP Sýrlenskir hermenn og uppreisnarmenn börðust í úthverfum höfuðborgar- innar Damaskus og nærri flugvellin- um í Aleppo með þeim afleiðingum að loka þurfti flugvellinum svo ekkert var flogið til þessarar stærstu borgar Sýrlands í gær. Uppreisnar- menn hafa fært sig upp á skaftið undanfarnar vikur og beina nú kröftum sínum að flugvöllum til að veikja mátt Sýrlandshers í lofti.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.